Morgunblaðið - 02.11.1991, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. NÓVEMBER 1991
21
Yitzhak Shamir, forsætisráðherra ísraels, ræðir við James Baker,
utanríkisráðherra Bandaríkjanna, áður en hann fór af friðarráðstefn-
unni í Madrid eftir að hafa flutt þar ræðu í gær.
Abdel-Shafi hvatti Bandaríkja-
menn og Sovétmenn, sem stóðu
fyrir ráðstefnunni, til að gera öll
hernumin svæði Israela að vemdar-
svæðum alþjóðastofnana. „Pal-
estínumenn eru fúsir til að treysta
ykkur fyrir því að vernda líf okkar
og land þar til samið hefur verið
um réttlátan frið,” bætti hann við.
Hann sagði að Palestínumenn
hefðu fagnað friðarráðstefnunni
með því að bjóða ísraelskum her-
mönnum olíuviðargreinar sem frið-
artákn og vísaði til fagnaðarláta
sem brutust út á hernumdu svæð-
unum eftir ræðu hans í fyrradag.
„Palestínsk börn skreyttu skrið-
dreka hersins með friðartáknum.”
Jórdanir segja ísraela vilja
hindra friðarumleitanir
Kamel Abu Jaber, utanríkisráð-
herra Jórdaníu, var harðorður í
garð Shamirs og sakaði hann um
að reyna að koma í veg fyrir að
ráðstefnan bæri tilætlaðan árangur.
„Það sem við heyrðum frá honum
var í raun enn eitt afturhvarfið til
gömlu hugmyndafræðinnar, sem
miðaði augljóslega að því að tor-
velda og í raun hindra friðarumleit-
anir.” Hann bætti við að ísraelar
gætu annaðhvort fengið land eða
frið, en ekki hvort tveggja.
Amr Moussa, utanríkisráðherra
Egyptalands, reyndi að sefa deilu-
aðilanna og gagnrýndi Shamir fyrir
að flytja skammaræðu í stað þess
að friðmælast við araba. Hann sagði
að ekki mætti gera of mikið úr
ágreiningi Israela og araba á ráð-
stefnunni og kvaðst vongóður um
að hún væri fyrsta skrefið í átt til
friðar í Miðausturlöndum.
Júgóslavía:
Boða nýjar árás-
ir á Dubrovnik
Belgrad, Dubrovnik. Reuter.
JÚGÓSLAVNESKI sambandsherinn ætlar að grípa til nýrra aðgerða
til að neyða Króata í Dubrovnik til uppgjafar og hefur horfið frá
fyrra boði sínu um friðasamlega lausn. Skýrði talsmaður hersins frá
þessu í gær.
Savo Lukic, talsmaður sam-
bandshersins, sagði, að króatísku
þjóðvarðliðarnir í Dubrovnik notuðu
vopnahléð til að birgja sig upp af
vopnum en meginverkefni sam-
bandshersins væri hins vegar að
afvopna þá. Kenndi hann Króötum
um og sagði þá ekki vilja friðsam-
lega lausn. Um 50.000 manns, karl-
mer.n, konur og börn, eru innikróað-
ir í borginni en síðustu daga hefur
fólkinu borist nokkuð af nauðsynj-
um með skipum.
Stipe Mesic, króatískur forseti
Júgóslavíu, var meðal þeirra, sem
komust til Dubrovniks í fyrradag,
og í ræðu, sem hann hélt fyrir mikl-
um mannijölda í gær, sakaði hann
Vestur-Evrópu og Bandaríkin um
að hafa svikið málstað Króata.
„Þessi ríki hafa stutt lýðræðisþró-
unina hér í orði en vilja ekkert gera
til að verja hana á borði,” sagði
Mesic.
■ ÓSLÓ - Aung Sang Suu Kyi,
sem hlaut friðarverðlaun Nóbels
á þessu ári og haldið er í stofufang-
elsi og einangrun í heimalandi sínu,
Burma, hefur fengið að vita um
verðlaunaveitinguna, að sögn Nó-
belsnefndarinnar norsku. „Hún
sagðist mjög þakklát fyrir þann
heiður sem nefndin hefði sýnt
henni,” sagði Odd Arne Westad,
talsmaður Nóbelsnefndarinnar.
Hann sagðist ekki geta skýrt frá
því hver hefði komið tíðindunum til
Suu Kyi. Herforingjastjóm Burma
fangelsaði andófskonuna eftir að
flokkur hennar sigraði með yfir-
burðum í fijálsum kosningum 1989.
H BÚKAREST - Rúmenarhafa
afmáð öll sýnileg merki kommún-
ismans í landinu eftir fall einræðis-
herrans Nicolae Ceausescu og í
því sambandi hafa 160 götur í höf-
uðborginni Búkarest verið nefndar
upp á nýtt. Bera þær nú nöfn kónga,
kirkjuleiðtoga, fijálslyndra stjórn-
málaleiðtoga, menningarfrömuða
og ein gata ber nafn fransks blaða-
manns sem beið bana í uppreisninni
gegn Ceausescu í desember 1989.
■ KAUPMANNAHÖFN - Vís-
indamenn við sjúkrahúsið í
Hvidovre vonast til að geta hafið
tilraunir með nýtt alnæmislyf eftir
hálft annað ár. Á það að koma í
veg fyrir, að alnæmisveiran geti
fjölgað sér og er einnig að því stefnt
að búa til bóluefni gegn alnæmi.
Lyfið ræðst á sykrur, sem aðeins
fínnast í alnæmisveirunni og krabb-
ameinsfrumum, en uppistaðan er
annars eggjahvítuefni, sem er svo
líkt eggjahvítuefni veirunnar, að
líkaminn á bregðast við því og
mynda mótefni. Komist veiran inn
í líkamann eiga mótefnin að hindra,
að hún komi sér fyrir í frumunum.
Þá brotnar hún niður og eyðist að
sögn vísindamannanna.
MODEL MYND
Tísku- og módelskóli
Nýtt námskeið að hefjast.
Innritun hafin í alla hópa
í síma 677799.
Afhending skírteina
laugardaginn 2. nóv. kl. 14-16.
Kennarar: Kolla og Snúlla
7-9 ára 10-12 ára
13-14 ára 15-20 ára
eldri
Ath.: Munið Barnabæ á daginn í Kringlunni.
Allt fyrir barnið í dansi, leiklist, söng o.fl. o.fl.
Frá 5 ára aldri.
MYND
Kringlunni,
3. hœð.
OG RAÐSÓFUM
í VERSLUN OKKAR í SKÚTUVOGI 11
í tilefni sameiningar Lystadúns
og Snælands bjóðum við
afslátt af eftirtöldum vörum:
RÚMDÝNUR
SVEFNSOFAR
_______/
T^íO
Afsláttur gildirtil 10. nóvember.
Fjölbreytt úrval áklæða.
OPIÐ LAUGARDAG FRÁ KL. 10-16
OPIÐ SUNNUDAG FRÁ KL. 13-16
VERIÐ VELKOMIN
msam
SKÚTUVOG111 -SÍMI 814655