Morgunblaðið - 02.11.1991, Qupperneq 36
36
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARÐAGUR 2. NÓVEMBER 1991
kirkju og hefst hún kl.
15.00. Þar munu mæta
fyrrum skiptinemar, þeir
skiptinemar sem nú dvelja
hér og aðrir sem starfað
hafa að málefnum AUS.
Nokkur samtök skiptinema
eru starfandi hérlendis.
Þeirra á meðal eru Alþjóð-
leg ungmennaskipti (AUS)
en þau eru 30 ára um þess-
ar mundir. AUS er íslands-
deild Alþjóðlegu kristilegu
ungmennaskiptanna ICYE
sem í upphafi spruttu úr
samstarfi kirkjudeilda í
Bandaríkjunum og Þýska-
landi í lok seinni heimsstyij-
aldarinnar. AUS hafa starf-
að hérlendis frá árinu 1961
og á þeim þrjátíu árum sem
liðin eru hafa forgangsverk-
efni samtakanna breyst
nokkuð, t.d. er lögð áhersla
á ungmennaskipti við þró-
unarlönd Afríku, Suður-
Ameríku og Asíu og nú í
ár skiptu samtökin í fyrsta
sinn við Lettland. Alþjóð-
legu kristilegu ungmenna-
skiptin starfa nú í þrjátíu
löndum í öllum heimsálfum.
í fyrstu starfaði íslands-
deildin á vegum þjóðkirkj-
unnar undir heitinu KAUS
en árið 1983 tóku heim-
komnir skiptinemar að sér
starfið og var heitinu þá
breytt í AUS. Árlega er
tveimur skiptinemum frá
þróunarlöndum boðið að
koma hingað til lands og
taka þátt í svokölluðu iðn-
nemaprógrammi þeim að
kostnaðarlausu. Þróunars-
amvinnustofnun íslands
hefur veitt samtökunum
styrk til þess að standa
straum af ferðakostnaði
iðnnemanna.
■ KVENFÉLAGIÐ
Hringurinn heldur sinn ár-
lega handavinnu- og köku-
basar á morgun, sunnudag-
inn 3. nóvember, kl. 14.00 í
Fóstbræðraheimilinu við
Langholtsveg. Margir fal-
legir munir verða á boðstól-
um til jólagjafa og góðar
kökur. Ennfremur verða til
sölu ný, mjög falleg jólakort
félagsins. Állur ágóði rennur
til Bamaspítalasjóðs Hrings-
ins.
Laugordagskvöld 2. nóvember
BLÚSBRÆDURNIR
(Arnór og Ingó)
nýkomnir frá
MEMPHIS
með stórkostlegt
dansatriði
EPLIÐ, Ármúla 5,
þar sem hlutirnir gerast hratt
lUHGUB
ÝMIR OG GRÉTAR UPPI, ÞOSSI í KJALLARA-20 ÁRA-OPIÐ TIL KL. 3
Ahrifavaldur í aldarfjórðung
Gamli erkibítillinn Paul McCartney í hljómleikamynd-
inni Get Back.
Kvikmyndlr
Sæbjörn Valdimarsson
Háskólabíó: „Get Back”
Leikstjóri Richard Lester.
Tónlistarmynd um hljóm-
leikaferðalag Paul McCart-
neys og hljómsveitar hans
1989-’90.
Leikstjóri Richard Lester.
Bretland 1991.
BANDAMEAIN
leika fyrir dansi í
kvöld til kl. 03.00
20 ára
jotfiN
Nektardansmær
Hin stórglæsilega danska nektardans-
mær Patricío i fyrsto sinn ó íslandi
I kvöld kl. 23.00 stundvislega.
Garðatorgi 1, Garðabæ.
Sími 65 76 76 .
Sjálfsagt höfðar hljómleik-
amynd erkibítilsins Paul
McCartneys mest til þeirrar
kynslóðar sem var uppá sitt
besta og varð vitni að því er
hinir fjóru, hárprúðu (á þeirra
tíma mælikvarða) Liverpool-
piltar slógu svo rækilega í
gegn að heimurinn hefur ekki
orðið samur síðan. Þeim tókst
að breyta honum - til hins
betra.
Get Back er engu síður
hvalreki öðrum kynslóðum,
ekki síst vegna þess að Paul
McCartney og félagar leggja
megináherslu á gömul og sí-
gild Bítlalög og þau hljóma
ótrúlega svipað og á gulladar-
plötunum góðu. Það má ekki
hrófla við helgidómum. Hér
koma þrumurokkararnir Back
in the USSR, Get Back, Birt-
hday, að maður tali ekki um
klassíkina I Saw Her Stand-
ing Therc; ógleymanlegar
Bítlaballöður einsog Long and
Winding Road, Fool On the
Hill, Elanor Rigby, Let It Be,
Yesterday og Hey Jude.
McCartney kryddar svo
lagavalið með gömlum og
nýjum lögum frá sólóferli sín-
um; Band on the Run, Coming
Up Live and Let Die, svo
nokkur séu nefnd. Sá sem
stjórnar öllu húllumhæinu er
enginn annar en Richard
Lester, sem leiðbeindi Bítlun-
um í hinum sögufræu tónlist-
armyndum A Hard Day’s
Night og Help. Og sá er nú
ekki að tvínóna við hlutina.
Hann keyrir strax á fulla ferð
með Paul í Band on the Run
og enginn tími fyrir gamal-
kunnugt kjaftæði né hátíðlega
gamburspeki sem oft sligar
myndir sem þessar, hvert lag-
ið öðru betra er leikið á þess-
ari vel heppnuðu heimsreisu
hljómsveitarinnar, sem m.a.
setti aiheimsmet í aðsókn:
184.268 gestir mættu á
hljómleikana í Rio de Janeiro!
Hinsvegar er fléttað inn í svið-
stökurnar fréttamyndum af
sögufrægum atburðum á ald-
arfjórðungsferli McCartneys
og myndum frá hljómleikum
Bítlanna og atriðum úr mynd-
um þeirra. Hann vottar svo
sannarlega sínum gamla
fjandvini, John Lennon, virð-
ingu sína með því að bregða
mynd hans oft og lengi á tjald-
ið og er það vel. Þessi frásagn-
armáti er geysivel lukkaður
og dreifir ekki athygli áhorf-
andans frá meginmálinu -
tónlistinni.
Hljómsveitarmeðlimimir
standa sig með miklum ágæt-
um, McCartney fer náttúrlega
á kostum og nýtur frábærs
stuðnings gítar- og bassaleik-
aranna, trommarinn og
hljómborðsleikarinn eru einn-
ig pottþéttir. í rauninni
standa sig allir með einstök-
um sóma nema frú McCartn-
ey, hennar innlegg til sígildrar
popptónlistarinnar er lítið
meira en flaksandi hár og svo
skekur hún sína litlu hnefa
útí loftið, svona af og til.
Hálf-vandræðaleg innanum
alla þessa öndvegis atvinnu-
menn, en þá er líka að finna
í röðum kvikmyndagerðar-
mannanna - m.a. er annar
tökustjóranna Jordan Cron-
enweth, sem sá um sömu hluti
við gerð einnar bestu myndar
af þessum meiði, Stop Making
Sense, myndar Jonathans
Demme um hljómleika Talk-
ing Heads. Upptakan er óað-
fínnanleg, maður er ein augu
og eyru frá upphafi til enda.
Bráðfjörug mynd og hrífandi.
■ KVIKMYNDASÝN-
INGAR hefjast aftur
sunnudaginn 3. nóvember
kl. 14.00 fyrir böm og ungl-
inga í fundarsál Norræna
hússins. Hér er um að ræða
kvikmyndir frá Norðurlönd-
unum og eru þær sýndar
ótextaðar. Býijað verður að
sýna tvær myndir frá Dan-
mörku. Sú fyrri heitir Guld-
hjertet og er frá 1981. Leik-
stjóri er Bille August.
Myndin segir frá lítilli stelpu
sem er í 90 ára afmæli-
sveilsu langömmu sinnar.
Hún er einkabam og það
er ekki alltaf auðvelt að
átta sig á heimi fullorðinna.
En það breytist þegar hún
hittir góðu dísina. Seinni
myndin heitir Guld og
gronne skove og er gerð
1990. Leikstjóri er Anette
Pilmark. Myndin fjallar um
litla stelpu í regnskógum
Costa Rica. Fjölskrúðug
náttúra og dýralíf regn-
skóganna fær notið sín í
myndinni en jafnframt er
sögð saga fátækrar stelpu
sem er að hefja skólagöngu
og langar í skólabúning eins
og hinar skólasystumar.
Aðgangur að kvikmynda-
sýningunum er ókeypis og
er öllum heimill aðgangur.
Sunnudaginn 10. nóvember
verður sænska kvikmyndin
um Línu langsokk á dag-
skrá. Hefst sýningin kl.
14.00.
■ HALDIÐ verður upp á
30 ára afmæli Alþjóðlegra
ungmennaskipta (AUS)
laugardaginn 2. nóvember.
Hátíðin verður haldin í
safnaðarheimili Bústaða-
ingolf
pUnktur
Boðið upp a Jameson
Óperubarinn opnaður kl. 21.00
_____1.1 no nn
Opnum niöri kl. 23.00
Verð 500 kr.
Óvænt uppákoma eftir miðnætti: Mæta KENDO kapparnir?
GÖMLU DAIMSARNIR
í HREYFILSHÚSINU
í kvöld kl. 21-02. Pantanir í síma 34090
frá kl. 18.00-20.30 og við innganginn.
Siffi og félagar. Söngkona Kristbjörg Löwe.
Allirvelkomnir.
Elding.
Hefst kl. 13.30 __________ f
Aðalvinninqur að verðmæti________ §|
j________100 þús. kr.______________ II
Heildarverðmæti vinninqa um — TEMPLARAHOLUN!
300 þús. kr. Eiríksgötu 5 — S. 20010