Morgunblaðið - 15.01.1992, Blaðsíða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. JANUAR 1992
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. JANUAR 1992
21
iw
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Ritstjórnarfulltrúi
Árvakur h.f., Reykjavík
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Þorbjörn Guðmundsson,
Björn Jóhannsson,
Árni Jörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst Ingi Jónsson.
Björn Vignir Sigurpálsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðal-
stræti 6, sími 691111. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 691122. Áskriftar-
gjald 1200 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 110 kr. eintakið.
Hvað er orðið um
verðbólgima?
Vorið 1983, þegar þáver-
andi vinstri stjórn
hrökklaðist frá völdum, nam
verðbólguhraðinn á __ árs-
grundvelli um 130%. A 'síð-
asta ári nam verðbólgan
6,8%-7,5% eftir því við hvað
er miðað. A þessu ári er gert
ráð fyrir, að verðbólgan nemi
2-3% frá upphafi til loka árs-
ins. Þetta- er stórkostlegur
árangur. Tímabil óðaverð-
bólgu hófst á íslandi með
valdatöku vinstri stjórnar
sumarið 1971. Það stóð með
miklum sviptingum í tvo ára-
tugi. Á því árabili nam verð-
bólgan að jafnaði um 35%
en árum saman var hún föst
í um og yfír 60% og stundum
var hún margfalt meiri eins
og vorið 1983.
Kjarasamningar og ýmsar
aðgerðir stjórnvalda og fjár-
málastofnana hafa skilað
verulegum árangri. Verðlag
hefur verið nokkuð stöðugt
síðustu misseri. Atvinnufyr-
irtæki og einstaklingar geta
nú skipulagt ijármál sín með
meira öryggi en nokkru sinni
síðustu tvo áratugi. Þrátt
fyrir lífskjaraskerðingu og
margvíslega erfiðleika í efna-
hags- og atvinnumálum er
ljóst, að við höfum náð mikl-
um árangri í efnahagsstjórn-
un.
Þótt skammt sé um liðið
frá því að verðbólgustigið var
mjög hátt erum við byijuð
að gleyma þeim tíma. Þjóðin
er orðin vön því stöðuga verð-
lagi sem hér hefur ríkt und-
anfarin misseri. Það mundi
koma fólki gersamlega í opna
skjöldu ef breyting yrði á því
og sviptingar verðbólgunnar
gengju í garð á nýjan leik.
Það hefur með öðrum orðum
orðið veruleg hugarfars-
breyting hjá Islendingum.
V erðbólguhugsunarháttur-
inn er að hverfa.
Kjarasamningarnir sem
gerðir voru í febrúar 1990
eiga verulegan þátt í þeim
árangri sem náðst hefur.
Dýrir peningar eiga líka rík-
an þátt í þessari ánægjulegu
þróun. Háir raunvextir hafa
stöðvað margvíslegar óarð-
bærar íjárfestingar sem áður
þóttu sjálfsagðar þegar óða-
verðbólgan borgaði lánin nið-
ur. Markviss stefna núver-
andi ríkisstjórnar að draga
úr ríkisútgjöldum og þar með
lánsþörf ríkisins mun eiga
mikinn þátt í að viðhalda
þessum árangri á nýbyijuðu
ári.
Það er rík ástæða til að
fagna þessum árangri. Hann
er ljósi punkturinn í heldur
erfiðri fjárhagsstöðu þjóðar-
innar. Fyrir nokkrum árum
hefði enginn trúað því, hefði
sú spá verið sett fram, að
verðbólgan yrði komin niður
í 2-3% á síðasta áratug aldar-
innar.
Nú skiptir máli, að við
höldum okkar striki. Það er
meiri kjarabót fólgin í svo
lágri verðbólgu fyrir lands-
menn en kauphækkunum
sem enginn grundvöllur er
fyrir. Það er mikill léttir fyr-
ir bæði heimili og fyrirtæki
að verðtrygging lánaskuld-
bindinga hækki þær skuld-
bindingar ekki upp úr öllu
valdi í hveijum mánuði.
Mesta kjarabótin fyrir stóra
hópa landsmanna er fólgin í
lækkun raunvaxta, sem
grundvöllur er að skapast
fyrir. Ef tekst að lækka raun-
vexti um nokkur prósentustig
á næstu mánuðum þýðir það
aukið ráðstöfunarfé fyrir fjöl-
marga launþega.
Staða atvinnulífsins er
mjög erfið. Sú staðreynd, að
um 3.000 íslendingar voru
atvinnulausir í desember-
mánuði veldur verulegum
áhyggjum. Þetta atvinnuleysi
getur aukizt ef við förum
ekki varlega. Við slíkar að-
stæður er lítið vit í því fyrir
verkalýðsfélögin að efna til
verkfallsaðgerða. Reynslan
af þeim vinnustöðvunum sem
Dagsbrún efndi til í desember
er ekki slík fyrir verkalýðsfé-
lögin, að tilefni sé til endur-
tekningar á þeim.
Verkalýðsfélög og vinnu-
veitendur og stjórnmálamenn
úr öllum flokkum eiga þátt í
því að þessi mikli árangur
hefur náðst í verðbólgubar-
áttunni. Nú þurfa ábyrgir
menn í öllum flokkum og í
félagasamtökum vinnuveit-
enda og verkalýðs að taka
höndum saman um að varð-
veita þennan árangur. Betri
kjarabót er ekki hægt að
tryggja launþegum við nú-
verandi aðstæður.
Fimm bæir í Borgarfirði um-
flotnir vatni eftir flóð í Hvítá
FIMM bæir í Borgarfirði voru
í gær umflotnir vatni eftir hina
miklu vatnavexti í Hvítá og
þverám hennar. Bændur í Borg-
arfirði sem fréttaritari Morgun-
blaðsins í Borgarnesi ræddi við
töldu þessa vatnavexti í hópi
hinna allra mestu í manna minn-
um en þó tæpast eins mikla og
1982. Víða flæddi inn í útihús
og skemmur og einnig flæddi
inn í bæinn á Ferjukoti. Þá var
vitað um að minnsta kosti tvo
sumarbústaði í Norðurárdal þar
sem flætt hafði inn vatn. Víða
hafa vegir orðið fyrir skemmd-
um vegna vatnavaxta. Vatn
rann yfir Vesturlandsveg fyrir
neðan Hreðavatn. Hvítárvalla-
vegur er lokaður við Ferjukot
og Hálsasveitarvegur er ófær í
Hvítársíðu við Hvítársíðukrók.
Talið var að allvíða hefði vatnið
rofið skörð í vegi og á þriðja
hundrað rúllubaggar hefðu orð-
ið fyrir skemmdum vegna
vatnsins. Sumir höfðu flotið upp
og þá rak eins og dufl um um-
flotin tún. Þá var einnig talið
að girðingar hefðu víða
skemmst.
Björgunarsveitin Brák í Borgar-
nesi var kvödd að Feijukoti í Borg-
arhreppi í gærmorgun en þar var
vatn farið að flæða inn um niður-
föll. Björgunarsveitarmenn héldu
til hjálpar með þijár dælur og
aðstoðuðu Þorkel Fjeldsted bónda
og hans fólk við að dæla út úr
húsum og loka niðurföllum. Jónas
Valdimarsson, formaður Brákar,
kvaðst ekki telja að mikið tjón
hefði orðið innanstokks í Feijukoti
enda væri fólk á þessum slóðum
ávallt viðbúið vatnavöxtum og
hefðu flestir af fyrri reynslu sett
sökkla undir eldavélar og viðkvæ-
mustu heimilistæki.
Jónas sagði að sér hefði virst
sem um kaffíleytið væri farið að
sjatna í ánni en menn voru því þó
viðbúnir að til þeirra yrði leitað nú
í nótt. Auk útkallsins að Feijukoti
og björgunar hesta við Sólheima-
tungu í fyrradag höfðu Brákar-
menn verið fengnir til að koma
böndum á um 40 metra hitaveitu-
rör sem flotið var upp skammt frá
Hvítá, sem að sögn Jónasar var í
gær orðin að beljandi stórfljóti
„eins og flestar lækjarsprænur,“
sagði Jónas.
Fréttaritari Morgunblaðsins í
Borgarnesi ræddi í gær við bænd-
ur sem töldu það hafa verið lán í
óláni í sambandi við þessa vatna-
vexti að ekki hafi verið stór-
streymt. Vatrisborð hafði hækkað
mjög skyndilega, eða um allt að
10-20 sentimetra á klukkustund
þegar verst lét. Engu síður voru
bændur á því að hér væri á ferð-
inni réttnefnt stórflóð í Hvítá og
nálægt því sem menn myndu mest
Morgunblaðið/Júlíus
Flætt hefur yfir Hvítárvallaveg
við brúna yfir Ferjukotssíki.
þótt ekki væri eins mikið og 1982.
Auk Feijukots í Borgarhreppi voru
það bæirnir Hvítárbakki og Staf-
holtsey í Andakílshreppi og Flóða-
tangi og Melgerði í Stafholts-
tungnahreppi, sem voru umflotnir
í gær. Ekki var vitað um tjón á
skepnum eða að gera hefði þurft
út björgunarleiðangra vegna
nauðstaddra dýra utan að í
Vatnsdal nyrðra var um 70 hross-
um bjargað undan flóði.
Annars staðar á landinu hafði
ekki frést um tjón á bæjum en
vegaskemmdir höfðu orðið á Vest-
fjörðum. Þannig var Vestfjarða-
vegur ófær í Djúpadal og Reyk-
hólavegur var aðeins fær jeppum.
Á Barðaströnd rann Hagá yfir
Barðastrandarveg.
Morgunblaðið/Rax
Þorkell Fjeldsted í Ferjukoti athugar vatnsdýptina við útihúsin en þar undan var hyldjúpt.
Mótmælafundur opinberra starfsmanna:
Ríkisstjórnin stefnir að grund-
vallarbreytingu á þjóðfélaginu
Guðs miskunn er það fyrsta sem deyr í vondu ári, sagði formaður Kennara-
sambandsins um efnahagsráðstafanir ríkisslj órnarinnar
Opinberir starfsmenn fylltu Bíóborgina. Morgunblaðið/KGA
HÖRÐ gagnrýni kom fram á að-
gerðir ríkisstjórnarinnar til að
spara í velferðarkerfinu og auka
kostnaðarþátttöku neytenda op-
inberrar þjónustu á fundi um 700
opinberra starfsmanna í Bíóborg-
inni í gær. í ályktun fundarins eru
aðgerðir ríkisstjórnarinnar kall-
aðar grundvallarbreyting á þjóð-
félaginu. Að fundinum stóðu
Bandalag háskólamenntaðra rík-
isstarfsmanna, Bandalag starfs-
manna ríkis og bæja og Kennara-
samband Islands. Einnig var mót-
mælt hugmyndum um skerðingu
á starfshlunnindum opinberra
starfsmanna, svo sem lífeyrisrétt-
indum, fæðingarorlofi og veikind-
arétti, og áformum stjórnvalda
umfækkunopinberrastarfsmanna.
„Það er sama hvar borið er niður
hjá vaídhöfum þessarar þjóðar, allt
skal í burt, sem aukið getur á vel-
ferð og þrótt almennings," sagði
• Sigríður Kristinsdóttir, formaður
starfsmannafélags ríkisstofnana, en
hún var fundarstjóri. „Niður skal
bijóta það samfélag, sem við höfum
reynt að byggja upp þannig að jafn-
rétti og mannvinátta skuli í heiðri
höfð.“ Sigríður sagði að fundurinn
væri aðeins byijun á baráttu opin-
berra starfsmanna gegn ríkisstjórn-
inni.
Aðeins hótanir frá ríkinu
Páll Halldórsson, formaður
BHMR, sagði að hótunum ríkis-
stjórnarinnar í garð launafólks linnti
ekki. Ekki væri látið þar við sitja,
heidur töluðu verk stjórnarinnar.
Þeim væri fyigt eftir með hræðsluá-
róðri, sem vekti ótta og bölmóð með
launafólki. Páll talaði um hernaðará-
stand í heilbrigðisþjónustunni. „Sú
samhjálp, sem við höfum verið stolt
af, skal víkja en í staðinn skulu sjúkl-
ingar vera tekjustofn," sagði hann.
Hann bætti við að ráðizt væri að
menntun og skólakerfi og kallaði
hugmyndir um breytingar á Lána-
sjóði íslenzkra námsmanna aðför að
sjóðnum, sem þýddi afturhvarf til
þeirra tíma er menntun hefði verið
forréttindi efnafólks.
Páll sagði að óttinn væri bitrasta
vopn ríkisstjórnarinnar og opinberir
starfsmenn yrðu að vinna á ótta sín-
um við að mótmæla. „Þetta land á
ærinn auð, og stundarvandræði
þurfa ekki að koma niður á velferð-
inni ef við skiptum honum rétt,“
sagði Páll.
Hann sagði að á sama tíma og
opinberum starfsmönnum væri hótað
skerðingu starfsiilunninda og íjöld-
auppsögnum hefðu samningar verið
lausir í nær fimm mánuði. „Á samn-
ingafundum hefur lítið annað komið
frá samningamönnum ríkisins en
hótanir. Fundirnir hafa verið hrein
sýndarmennska og móðgun við
samningamenn félaganna. Engar
raunverulegar viðræður hafa átt sér
stað,“ sagði Páll. „Við venjulegar
kringumstæður hefði framkoma rík-
isins nægt til þess að menn hefðu
látið sverfa til stáls. En, góðir félag-
ar, óttinn hefur ekki síður gert vart
við sig hingað til meðal opinberra
starfsmanna en annarra. Eg er sann-
færður um að ef svo væri ekki vær-
um við löngu búin að hrinda þessari
árás,“ sagði hann. Hann bætti við
að menn hefðu gert sér ljóst að rík-
ið væri ómerkilegur viðsemjandi og
veigruðu sér því við að fara út í
kostnaðarsamar aðgerðir til að ná
árangri, sem væri strikaður út með
einu pennastriki. Þetta slen yrðu
opinberir starfsmenn að hrista af
sér, leggja til hliðar ágreiningsefni
sín og snúa vörn í sókn.
Grundvallarhugmyndum að
baki velferðarkerfinu hafnað
Svanhildur Kaaber, formaður
Kennarasambandsins, sagði að hug-
myndir um félagslegan jöfnuð og
samhjálp þegnanna hefðu þokað fyr-
ir kaldriljaðri gi’óða- og markaðs-
hyggju. „í þessu sambandi hlýtur
okkur, opinberum starfsmönnum, að
vera ofarlega í huga sá boðskapur,
sem felst í hugmyndum samninga-
nefndar ríkisins til okkar, þar sem
lausnarorðin í kjaramálum okkar og
svokölluðum efnahagsvanda þjóðar-
innar eru framleiðniaukning, einka-
væðing og hagræðing," sagði Svan-
hildur. „Þannig eru hugtök og
hugsunarháttur, sem fram að þessu
hafa verið bundin við framleiðslu og
iðnað, heimfærð á störf okkar og
það velferðarkerfi, sem byggt hefur
verið upp með áratugabaráttu. Nú-
verandi stjórnvöld lita á velferðar-
kerfið sem hvert annað fyrirtæki,
sem á að bera sig, eins og það, heit-
ir, og hafna þannig greinilega þeim
grundvallarhugmyndum, sem að
baki liggja,“ sagði hún.
„Guðs miskunn er það fyrsta sem
deyr í vondu ári, er sagt við móður
Jóns Hreggviðssonar er hún grætur
og særir bændur við Jesúnafn að
feija sig yfir Ölfusá þegar hún ætl-
aði að leita syni sínum griða,“ sagði
Svanhildur. „Það eru orð að sönnu
og eiga ótrúlega vel við efnahagsráð-
stafanir ríkistjórnarinnar, sem hún
hefur ýmist þegar ákveðið eða
stefnir að.“
Byggt á breiðu baki öryrkjans
Ögmundur Jónasson, formaður
BSRB, sakaði stjórnvöld um að
reyna að „byggja upp á hinu breiða
baki öryrkjans“. „Þeir hafa sett
hærri skatta á þá, sem eru sjúkir
eða búa við ómegð. Þar er borið nið-
ur. Þar er teknanna aflað. En við
spyijum enn og aftur, í allt haust
höfum við spurt: Hvers vegna þora
menn ekki að setja skatta á ríkt
fólk fyrr en það verður veikt? Og
hvers vegna í ósköpunum er svona
erfitt og flókið að setja á ijármagns-
skatt, sem einn sér myndi gera miklu
meira en afla allra þeirra tekna, sem
þeir.eru að krafsa upp úr vösum
sjúklinga og barnafólks?“ sagði
Ögmundur.
Hann krafðist þess, eins og aðrir
ræðumenn, að tekjuskiptingunni yrði
breytt. „Við höfnum þessari tekju-
skiptingu," sagði Ögmundur um
núverandi ástand.
í fundarlok var samþykkt ályktun
fundarins, en þar segir meðal ann-
ars: „Opinberir starfsmenn líta svo
á að ríkisstjórnin stefni að því að
gerbreyta gerð íslenzks þjóðfélags í
veigamiklum atriðum. Ber þar hæst
niðurskurðinn á velferðarkerfinu
sem byggt hefur verið upp með ær-
inni fyrirhöfn. Niðurskurður og fjár-
svelti skólakerfisins er beinlínis aðför
að æsku þessa lands og afkomumög-
uleikum þjóðarinnar síðar. Sem
sparnaðaraðgerð er þar um að ræða
fullkomið vindhögg.
Ríkisstjórnir mega ekki fara út í
stórfelldar breytingar á þjóðfélaginu
án þess að það sé gert í sátt við
þjóðina. í alþingiskosningunum á
síðasta ári var ekki kosið um grund-
vallarbreytingu á þjóðfélaginu. Eng-
inn boðaði þá þessa leiftursókn gegn
velferðarkerfinu sem ráðamenn eru
nú að framkvæma með tilskipunum
og lagaboðum.“
Ráðherra hefur viðræður við
Samskip um kaup á Ríkisskipum
Beiðni undirbúningsnefndar um frest hafnað
HALLDÓR Blöndal samgöngu-
ráðherra hefur hafnað beiðni und-
irbúningsnefndar að stofnun hlut-
afélags um strandferðir um frek-
ari frest til að gera tilboð í eignir
Skipaútgerðar ríkisins. Hefur
hann ákveðið að hefja viðræður
við Samskip hf. um hugsanleg
kaup þeirra á m/s Esju og e.t.v.
flciri skipum Ríkisskipa. Hjörtur
Emilsson, varaformaður undir-
búningsnefndarinnar, segist vera
vonsvikinn yfir að ekki hefði ver-
ið reynt til þrautar að vinna úr
hugmyndum undirbúnings-
nefndarinnar. Hann segir ljóst að
Samskip muni ekki veita sömu
þjónustu og Ríkisskip hafi veitt.
„Eg þykist viss um að þegar upp
verður staðið komi i ljós að okkar
tilboð um þjónustusamning er
hagkvæmasta lausnin fyrir ríkið,“
sagði hann.
„Okkur finnst' þessi tímapressa
undarleg og hversu hratt málið er
-allt í einu keyrt áfram. Við hefðum
talið eðlilegt að meiri tími gæfist
til að taka jafn stórar ákvarðanir
og þarna er verið að taka,“ segir
Hjörtur. Hann segir jafnframt að
verði samið við Samskip sé starfi
undirbúningshópsins lokið.
Halldór sagði að borist hefði til-
boð frá Samskipum hf. í m/s Esju
þar sem tekið væri fram að starfs-
fólk Ríkisskipa sitji fyrir um vinnu
ef af kaupum verði ella muni Sam-
skip leita eftir því erlendis, hvort
hentugl skip fáist til strandsiglinga
fyrir Austfjörðum. „Nú er óhjá-
kvæmilegt að taka upp viðræður
við Samskip um hugsanleg kaup
eða leigu á Esju og er opið að þeir
samningar taki líka til fleiri skipa
Skipaútgerðar ríkisins. Undir-
búningshópurinn hafði ekki neitt
það fram að færa sem gaf tilefni
til að verða við beiðni hans enda
hefur það sett strik í útreikninga
þeirra að Samskip hyggjast sjálf
taka upp áætlunarferðir til Austur-
lands,“ sagði Halldór. Sagði hamf
að viðræður við Samskip hæfust
án tafar.
Hjörtur sagði að fyrir lægi að
Samskip myndu bjóða áhöfn Esjunn-
ar starf hjá félaginu en óvissa ríkti
um störf annarra starfsmanna Ríkis-
skipa. „Við starfsmenn gerðum okk-
ar tilboð í þeim tilgangi að stærstur
hluti starfsmanna hefði áfram"
vinnu hjá nýju fyrirtæki,“ sagði
hann.