Morgunblaðið - 14.02.1992, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. FEBRÚAR 1992
Staða afurða-
lána óbreytt
Afurðalán vegna saltsíldar fyrir
Rússlandsmarkað voru ekki af-
greidd i Landsbankanum í gær.
Sverrir Hermannsson bankastjóri
segir málið enn í sömu stöðu og
áður varðandi greiðsluábyrgðir.
„Málið er óleyst enn og stendur
fast,“ sagði Sverrir Hermannsson
við Morgunblaðið. „Við hér í bank-
anum fáum ekki afgreiðslu hjá
ábyrgðadeildinni sem talað er um
að búið sé að opna,“ sagði Sverrir.
Hann sagði það að skilja á for-
stöðumanni ríkisábyrgðasjóðs, að
Rússar væru ekki búnir að koma
sínum málum í lag varðandi síldar-
kaupin. Engar útflutningsheimildir
væru komnar fyrir vörur sem greiða
ætti síldina með og síldarkaupa-
samningurinn, sem gerður var við
Rússa, sé því ekki enn orðinn virk-
ur. „Þess vegna er þessi ábyrgða-
sjóður okkur lokaður," sagði Sverrir.
—....■■■♦ ♦ ♦---
Könnun Hagvangs
fyrir Umferðarráð:
Flestir vilja
aka á nagla-
dekkjum
V*r j « VVTTT /** T Morgunblaðið/KGA
Utvegsbankaklukkan fjarlægð
Starfsmenn ístaks hafa að undanfömu unnið að því að breyta gamla Útvegsbankahúsinu við Lækjartorg í Dómshús. Breytingarnar hafa aðal-
lega verið innan dyra en nauðsynlegt reyndist að brjóta niður búnað á þaki vegna nýrrar og stærri lyftu. í leiðinni var Útvegsbankaklukkan
fjarlaigð en ekki hefur verið tekin ákvörðun um hvort henni verður aftur komið fyrir á þakinu. Aætluð verklok við Útvegsbankahúsið eru 15. júní.
"•'v
ÞRÍR af hverjum fjórum öku-
mönnum kjósa heldur að aka á
negldum en ónegldum hjólbörð-
um að vetrarlagi, samkvæmt
skoðanakönnun, sem Hagvangur
vann fyrir Umferðarráð um mán-
aðamótin nóvember-desember sl.
í könnuninni kváðust 73,6% að:
spurðra kjósa neglda hjólbarða. í
hliðstæðri könnun fyrir um ári voru
70,9% sama sinnis. 18,8% vildu held-
ur aka á ónegldum hjólbörðum nú,
en 7,6% tóku ekki afstöðu.
í könnuninni var fólk einnig spurt
hveija það teldi hæfílega sekt fyrir
að aka yfír á rauðu Ijósi. Flestir, eða
30,6% töldu eðlilegt að sú upphæð
væri á bilinu 5-10 þúsund krónur.
23,1% vildu hafa sektina 10-15 þús-
und krónur og tæp 5% nWndu 15-20
þúsund krónur. Tæplega 4% nefndu
20-30 þúsund krónur, 1% nefndi
30-50 þúsund og 2,2% 50 þúsund
eða meira. Sekt vegna þessa umferð-
arlagabrots nemur nú 7 þúsund
krónum.
I úrtakinu voru eitt þúsund
manns, valdir af handahófí úr þjóð-
skrá. Svarhlutfall var 77,2%.
Auglýsingakostnaður fjármálaráðuneytis 75 milljónir 1990 og fyrri hluta árs 1991:
Hvíta húsinu greiddar 62,7
milljónir vegna auglýsinga
Auglýsingastofan Hvíta húsið fékk 62,7 milljónir árið 1990 og fyrstu
fimm mánuði ársins 1991, til ráðstöfunar vegna auglýsinga og kynning-
ar fyrir fjármálaráðuneytið. Alls nam auglýsinga- og kynningarkostn-
aður ráðuneytisins 75,2 milljónum á þessu tímabili. Þetta kom fram
I svari fjármálaráðherra við fyrirspum Árna Mathiesens alþingis-
manns á Alþingi í gær. Samkvæmt upplýsingum frá Hvíta húsinu var
tæplega 1/3 hluti þessarar upphæðar, eða 17 milljónir án vsk. vegna
verkefna fyrir fjármálaráðuneytið sjálft, en afgangurinn vegna verk-
efna fyrir embætti ríkisskattstjóra.
í fréttatilkynningu frá Hvíta hús- átak vegna notkunar sjóðvéla kostað
inu kemur fram, að Hvíta húsið fékk
5,05 milljónir króna án vsk. á ofan-
greindu tímabili fyrir eigin vinnu,
aðkeypta vinnu og efniskostnað fyr-
ir fjármálaráðuneytið. Þar af hafí
2,6 milljónir og upplýsingar um rík-
isflármál, þar á meðal bæklingurinn
í hvað fara skattamir, 2 milljónir.
Þá kemur fram að dreifíng auglýs-
inga til fjölmiðla fyrir fjármála-
ráðuneytið hafí kostað 11,85 millj-
ónir án vsk. Þar af hafi landsmála-
blöð fengið greiddar 2,6 milljónir,
Ríkisútvarpið, sjónvarp og útvarp,
2,2 milljónir, íslenska útvarpsfélag-
ið, sjónvarp og útvarp, 900 þúsund
krónur. Morgunblaðið 2 milljónir,
DV 1,5 milljónir, Tíminn og Þjóðvilj-
inn 650 þúsund hvort blað, Pressan
520 þúsund, Alþýðublaðið 250 þús-
und og Dagur 550 þúsund krónur.
Hvíta húsið segist ekki hafa tök á
að birta tölur úr samstarfí sínu við
ríkisskattstjóra sökum trúnaðar-
skyldu, en í hlutarins eðli liggi, að
Áætlað að yfir 100 félagslegar íbúðir í Reykjavík séu leigðar ólöglega út:
Hagnaður leigusala getur num-
ið tugum þúsunda á mánuði
NOKKUÐ er um að fólk leigi út á ólöglegan hátt félagslegar eignar-
íbúðir (verkamannabústaði) sem það hefur fengið úthlutað. Húsnæðis-
nefnd Reykjavíkur hafði afskipti af 80-100 slíkum málum á síðasta
ári og hefur verið beðið um útburð leigjenda í nokkrum tilvikum.
Framkvæmdastjóri nefndarínnar telur að yfir 100 íbúðir séu leigðar
út á ólöglegan hátt. Eigendur þessarra íbúða geta haft verulegan
hagnað af útleigunni, í sumum tilvikum tugi þúsunda króna á mánuði.
Tekjulágt fólk fær úthlutun fyrir
félagslegum eignaríbúðum (áður
verkamannabústöðum) með
ákveðnum kvöðum og fær hagstæð
lán fyrir meginhluta kaupverðsins.
Eigendum er ekki heimilt að Ieigja
íbúðirnar nema að fenginni skrif-
legri heimild húsnæðisnefndar. Að
sögn Ríkarðs Steinbergssonar,
framkvæmdastjóra Húsnæðis-
nefndar Reykjavíkur, eru slík leyfi
veitt að undangengnu mati á að-
stæðum. Hann segir að einkum séu
veitt leyfi vegna tímabundinnar
fjarveru fólks vegna atvinnu, náms
eða heilsufars. Hann segir algeng-
ast að fólk fái leiguleyfi til eins eða
hálfs annars árs og heimilt sé að
framlengja leyfíð en þó þannig að
samfelldur leigutími fari ekki yfír
þijátíu mánuði.
Ríkarður segir að nú séu 40-50
félagslegar eignaríbúðir af alls um
3.000 í Reykjavík í leigu samkvæmt
heimild Húsnæðisnefndar. Talið er
að mun fleiri íbúðir séu leigðar út
og segir Ríkarður að samkvæmt
könnunum sem gerðar hafa verið á
undanfömum árum megi búast við
að yfír 100 íbúðir séu í ólöglegri
leigu. Segir hann starfsmenn Hús-
næðisnefndar í sífelldri baráttu
gegn þessum brotum en erfitt sé
við að eiga. Málin viðkvæm og auk
þess þungt í vöfum að koma við
þeim úrræðum sem heimilt er að
grípa til. Hann segir að á síðasta
ári hafí starfsfólk nefndarinnar
haft afskipti af 80-100 málum
vegna ólöglegrar útleigu. Málin eru
á öllum stigum, þar á meðal nokkur
sem em komin á það stig að óskað
hefur verið eftir útburði Ieigjenda
en heimild til slíks var veitt með
lagabreytingu á árinu 1990. Að
sögn Ríkharðs hefur enn ekki kom-
ið til útburðar leigjenda enda væri
reynt að semja við fólkið áður en
til slíks kæmi. Leigjendur sem verða
fyrir tjóni vegna þess að húsnæðis-
nefnd hefur rift ólöglegum leigu-
samningi á rétt á bótum hjá leigu-
sala.
Þá hefur Byggingasjóður verka-
manna heimild til að hækka vexti
lána, sem nú em 1%, upp í vexti
almennra kaupleiguíbúða sem nú
em 4,5% en Ríkarður segir að það
úrræði komi að litlu gagni ef íbúð-
irnar eru gamlar og lítið eftir af
lánunum.
Fólk ber ýmsu við þegar það er
staðið að ólöglegri útleigu. Ríkarður
segir algengt að fólk sé komið í
sámbúð og segist ekki vilja brjóta
allar brýr að baki sér ef sambúðin
gangi ekki. Þá em dæmi um að
fólk sé komið i annað eigið húsnæði.
Samkvæmt reglum um félagsleg-
ar eignaríbúðir má mánaðarlegt
leigugjald ekki vera hærra en 0,4%
af reiknuðu endursöluverði íbúðar-
innar. Það eru 24 þúsund krónur á
mánuði fyrir fjögurra herbergja
íbúð sem metin er á 6 milljónir
króna. Ríkarður segir töluvert um
að fólk okri á leigunni í ólöglegum
leigusamningum, dæmi væm um
leigu slíkra íbúða fyrir um eða yfír
50 þúsund á mánuði. Kostnaður
fólksins sé ekki nema hluti af því
en hann fer eftir því hve gömul
íbúðin er. í mörgum tilvikum hafa
lán verið óverðtryggð og er það
fólk að greiða örfá þúsund fyrir
íbúð en hefur tugi þúsunda króna
í hagnað á mánuði.
kynningarátak vegna t.d. upptöku
virðisaukaskatts og dreifing margs
konar skilaboða um skattkerfismál
sé stærsti hluti umræddra viðskipta.
I umræðu á Alþingi í gær gagn-
rýndu nokkrir þingmenn Sjálf-
stæðisflokksins Ólaf Ragnar Gríms-
son, sem var fjármálaráðherra á
þessum tíma, fyrir mikil viðskipti
við Hvíta húsið og bentu á að auglýs-
ingastofan hefði einnig séð um
kosningabaráttu Alþýðubandalags-
ins sl. vor. Ólafur Ragnar sagði að
þegar hann kom í fjármálaráðuneyt-
ið hefði legið fyrir samningur frá tíð
fjármálaráðherra Sjálfstæðisflokks-
ins um að Hvíta húsið annaðist kynn-
ingar og auglýsingar vegna skatta-
mála. Þegar ákveðið hefði verið að
efna til kynningarátaks vegna virðis-
aukaskatts hefði verið útboð meðal
auglýsingastofa og ríkisskattstjóra-
embættið hefði lagt til að Hvíta
húsið yrði ráðið.
Bjami Sigtryggsson var upplýs-
ingafulltrúi fj ármálaráðuneytisins
árið 1988. Hann sagði í samtali við
Morgunblaðið, að starfandi hefði
verið nefnd, skipuð af fjármálaráð-
herra, sem átti að undirbúa breyt-
ingu úr söluskatti í virðisaukaskatti
og kynningu á því. GBB, forveri
Hvíta hússins, hefði þá séð um aug-
lýsingar og kynningar fyrir ríkis-
skattstjóraembættið, og fyrirtækið
hefði haft mikil verkefni vegna um-
fangsmikilla skattkerfisbreytinga
fyrr á því ári og í Iok ársins 1987.
„Nefndin taldi ekki rétt að sama
auglýsingastofan starfaði fyrir ráðu-
neytið og ríkisskattstjóræmbættið,
meðal annars vegna umfangs þessa
verkefna," sagði Bjarni.
Hann sagðist því hafa rætt við
auglýsingastofur til undirbúnings
lokuðu útboði á verkefninu fyrir fjár-
málaráðuneytið en Hvíta húsið hefði
ekki átt að vera þar á meðal. „Þeg-
ar Ólafur Ragnar kom inn í ráðu-
neytið í október 1988 var mér hins
vegar tjáð að ég ætti ekki lengur
að hafa með þessi mál að gera. Þá
hafði ekki verið talað við Hvíta hús-
ið um þetta verkefni og nánast lá
fýrir að það yrði ekki gert.“
Sjá ennfremur þingsíðu bls. 25