Morgunblaðið - 14.02.1992, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 14.02.1992, Blaðsíða 21
20 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. FEBRÚAR 1992 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. FEBRÚAR 1992 21 Útgefandi Framkvaemdastjóri Ritstjórar Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Ritstjórnarfulltrúi Árvakur h.f., Reykjavík Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jáhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Björn Vignir Sigurpálsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðal- stræti 6, sími 691111. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 691122. Áskriftar- gjald 1200 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 110 kr. eintakið. Velferð hverra? Iþeim umræðum, sem að und- anfömu hafa farið fram vegna niðurskurðar á ríkisút- gjöldum, virðast ástæður hans stundum gleymast. Kröfumar, sem hvers konar hagsmuna- og þrýstihópar hafa haldið á lofti, kalla í raun á áframhald þess eyðslustigs, sem viðgengizt hefur um margra ára skeið. íslendingar hafa lifað um efni fram og í stað •þess að miða útgjöldin við tekj- umar hafa verið slegin endalaus lán. Agaleysi í opinberri fjármála- stjórn hefur verið mikið og stefnt efnahagslegu sjálfstæði þjóðar- innar í voða. Þeir sem þekkja til reksturs venjulegs heimilis vita, að nauð- synlegt er að miða útgjöld þess við tekjumar. Lán eru ekki tekin nema af nauðsyn til fjárfestinga og þeirrar stundar er beðið með óþreyju, að unnt verði að greiða þau upp að fullu. Þá fyrst rýmk- ast fjárhagur fjölskyldunnar verulega og hún losnar við greiðslu vaxta og annars lántöku- kostnaðar, sem hefur þrengt kostinn svo mjög. í eðli sínu gilda sömu lögmál um fjármál fjölskyldunnar og hins opinbera, þótt aðstaðan sé ekki sú sama. Foreldrunum dytti aldrei í hug að slá lán í sífellu til að kosta hvers kyns óráðsíu og ætlast til þess að þau verði greidd af börnum og bamaböm- um. Foreldrarnir verða að miða útgjöld sín við tekjur til ráðstöf- unar og neita sér og sínum um hvers kyns munað unz fjárhagur- inn leyfir. Þessu hefur verið öfugt farið í opinberri ijármálastjóm um langt árabil. Umsjónarmenn al- mannafjár hafa reynt að uppfylla hvers konar kröfugerð og þegar peningar hafa ekki verið til hefur verið gripið til þess ráðs að hækka skatta og álögur eða að taka lán. Þama skilur á milli reksturs heimilis og hins opin- bera. Heimilisfólkið verður að miða við eigin fjárhag, en þeir sem annast opinberar fjárreiður eru ekki að eyða eigin peningum heldur annarra. Ríkissjóður hefur verið rekinn með hrikalegum halla undanfarin ár því stjómmálamenn hafa ekki haft þrek til að standa gegn kröf- um kjósenda um hvers kyns eyðslu, meiri framkvæmdir og meiri þjónustu. Hagsmuna- og þrýstihópar hafa gengið á lagið og stjómmálamennirnir látið undan, því það hefur verið lík- legra til vinsælda og kjörfylgis. Hámarki náði óráðsían síðustu daga fyrrverandi ríkisstjórnar þegar hún horfðist í augu við þingkosningamar í apríllok. Ljóst var í maíbyijun, að ríkissjóðshall- inn yrði tvisvar til þrisvar sinnum meiri en fjárlög gerðu ráð fyrir og lánsfjárþörf hins opinbera mun meiri en allur nýr sparnaður í bankakerfinu. Ný ríkisstjóm Sjálfstæðis- flokks og Alþýðuflokks gerði sér grein fyrir að lengra yrði ekki gengið í eyðsluseminni og tími væri til kominn að stinga við fót- um. Hún hefur þó ekki gengið lengra en svo í fyrstu niður- skurðaraðgerðum sínum, að rík- issjóðshallinn er áfram verulegur, eða 4 milljarðar króna samkvæmt fjárlögum. Raunar á eftir að koma í ljós, hvort ríkisstjóminni tekst að halda hallanum innan þeirra marka. Því miður mnnu fyrstu áform núverandi ríkis- stjómar í ríkisíjármálum að veru- legu leyti út í sandinn, þegar henni mistókst að fylgja fram fyrirhuguðum niðurskurði á út- gjöldum, sem ákveðinn var sl. vor, skömmu eftir að ríkisstjórnin tók við voldum. Jón Steinar Gunnlaugsson, hæstaréttarlögmáður, ritaði grein í Morgunblaðið í fyrradag, þar sem hann fjallar um þá gagn- rýni, fyrst og ífémst opinberra starfsmanna, að niðurskurður ríkisútgjalda bitni á bömum. Hann segir m.a.: „Orðin „heill“ og „réttlæti“ snúast ekki um að geta í dag haldið uppi svonefndu „velferðar- kerfT' og látið bömin okkar borga kostnaðinn síðar. Með slíkri notk- un er búið að snúa merkingu þessara orða í andhverfu sína. Miklu nær væri að stofna samtök gegn þeirri hálfglæpsamlegu stefnu að skrifa kostnaðinn við lifnaðarhætti okkar hjá börnun- um okkar, Þáð fer svo um mann hálfgerður hrollur, þegar æsinga- ménnimir nótá það sem áróðurs- bragð, að niðurskurður ríkisút- gjalda bitni á bömunum vegna þess að eitthvað sé reynt að spara í skólakerfínu. Hvílíkt og annað eins. Undanfarin 10 ár eða svo hefur drðið mikil útgjaldaaukning í skólakerfmu. Hver er það sem man eftir einhverri vá í skólakerf- inu fyrir 10 árum? Allt era þetta tóm áróðursbrögð hjá æsinga- mönnum.“ Orð Jóns Steinars era í tíma töluð. Því til staðfestingar má benda á, að um síðustu áramót vora löng erlend lán þjóðarinnar um 200 þúsund milljónir króna. Greiðslubyrðin er rúmlega 20 þúsund milljónir á ári hveiju. í hveijum árgangi, sem setzt í grannskólana, era um 4 þúsund börn. Eyðsluseggir nútímans hafa því langt þunga byrði á bak hvers þeirra — veðsett þau er- lendum lánadrottnum. Um vel- ferð hverra snýst umræðan? Fjölmennur fundur stúdenta um málefni Háskóla íslands; Niðurskurði, skólagjöldum og breytingum á LIN andmælt Reiðubúinn til samkomulags um breytingar á frumvarpinu, sagði menntamálaráðherra STÚDENTAR við Háskóla íslands létu óspart í ljós óánægju sína með áform ríkisstjórnarinnar um breytingar á Lánasjóði íslenzkra náms- manna og niðurskurð á fjárframlögum til Háskólans á fundi í Háskólabíói í gær. Púað var á þá Olaf G. Einarsson menntamálaráðherra og Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra er þeir töluðu fyrir stefnu stjórn- arinnar, en hins vegar gerði meirihluti fundarmanna góðan róm að málflutningi stjórnarandstöðunnar á Alþingi. Samstarfsnefnd náms- mannahreyfinganna boðaði til fundarins og troðfylltu námsmenn Háskóla- bíó. Ólafur G. Einarsson menntamála- ráðherra sagði að ríkisstjómin hefði einsett sér að ná tökum á ríkisfjármál- unum og til þess að það væri hægt yrði að spara í menntakerfinu eins og annars staðar. Hann sagði að orða mætti það svo að Háskólinn hefði með niðurskurði á fjárveitingum verið neyddur til að hækka skólagjöld. „Mér er alveg ljóst að þessi heimild er nýtt vegna þess að Háskólinn er í ákveðn- um vanda vegna þess hve naumt fjár- magnið til reksturs hans er skammt- að. Ég myndi vilja sjá skólagjöldin nýtt þannig að skólar gætu aukið við starfsemi sína og bætt aðstöðu, en þyrftu ekki að nota þau til að fylla upp í eitthvert bil, sem myndast við það að ekki er farið að óskum þeirra við afgreiðslu fjárlaga," sagði menntamálaráðherra. Um Lánasjóð íslenzkra námsmanna sagði Ólafur að við honum blasti gífur- legur vandi og til þess að leysa þann vanda væri frumvarpið flutt, sem lagt hefur verið fram á Alþingi. Ráðherr- ann sagði að á síðasta ári hefði Al- þingi ákveðið að veita 1.720 milljónir króna til Lánasjóðsins, en þegar á árið leið hefði komið í ljós að heilan milljarð hefði vantað til að sjóðurinn gæti staðið við skuldbindingar sínar. Núverandi ríkisstjóm hefði breytt út- hlutunarreglum og sparað þannig 300 milljónir, en veitt 700 milljónir á fjáraukalögum til að brúa bilið. Viljum tryggja jafnrétti tU náms „Mönnum verður tíðrætt um jafn- rétti til náms. Þennan rétt viljum við tryggja, einmitt í gegnum Lánasjóð íslenzkra námsmanna. Það er mat mitt að þetta verði ekki tryggt nema með gjörbreytingu á lögum um Lána- sjóð íslenzkra námsmanna og úthlut- unarreglum. Þau helztu atriði, sem ég á þarna við, eru auðvitað hertar endurgreiðslureglur, vextir og lán- tökugjöld," sagði menntamálaráð- herra. Hann sagði að meginmarkmið frumvarpsins yrðu að nást. Hins veg- ar væri hugsanlega hægt að fara mismunandi leiðir að þeim. Ráðherr- ann sagðist ekki hafa séð tillögur frá gagnrýnendum frumvarpsins sem leiddu til viðunandi lausnar en hann lýsti eftir slíkum tillögum. „Mennta- málanefnd Alþingis, sem nú hefur þetta frumvarp til umfjöllunar, mun taka allar tillögur til athugunar. Ég er reiðubúinn til samkomulags um breytingar á frumvarpinu, en þær breytingar mega ekki setja þau markmið í hættu að LÍN fái gegnt því hlutverki sínu að veita þeim full- nægjandi námsaðstoð, sem vilja nema.“ Menntamálaráðherra sagðist vilja láta skoða þann möguleika að tekju- hærri einstaklingar greiddu hærra hlutfall af lánum sínum til baka ár- lega en þeir, sem lægri tekjur hefðu. Einnig sagðist hann tilbúinn að skoða það ákvæði frumvarpsins að fólk yngra en 20 ára fái ekki námslán. Ekki hægt að spara í skólakerfinu Steingrímur Hermannsson, for- maður Framsóknarflokksins, sagðist aldrei hafa talið að hægt væri að spara í skólakerfinu, heldur væri þar margt ógert. Steingrímur sagði að framsókn- armenn væru andvígir því frumvarpi um breytingar á LIN, sem mennta- málaráðherra hefði lagt fram, en hann væri þó tilbúinn að skoða ýmsar breyt- ingar á núverandi kerfi. „Ég nefni til dæmis þá breytingu að þeir náms- menn, sem setjast að erlendis, greiði lán sín með vöxtum og kannski á skemmri tíma. Við höfum því miður ekki efni á að ala upp námsmenn fyr- ir aðrar þjóðir, hversu góðir og verð- ugir sem þeir eru,“ sagði Steingrím- ur. Hann sagði að gera yrði kröfu um að námsmenn væru með í ráðum þeg- ar námslánakerfinu væri breytt, en svo hefði ekki verið itú heldur náms- menn boðaðir alltof seint til funda um málin. „Þið skuluð krefjast þess að setzt verði niður með fulltrúum ykkar og úr þessu máli greitt þannig að viðunandi sé fyrir ykkur og miklu fleiri; fyrir íslenzka þjóð,“ sagði for- maður Framsóknarflokksins. Núverandi kerfi á ieið í þrot Jón Baldvin Hannibalsson, utanrík- isráðherra og formaður Alþýðuflokks- ins, sagði að nóg framboð væri af stjómmálamönnum, sem segðust vera vinir námsmanna. Hins vegar væri leiðinlegt ef það kynni að koma á daginn að ekki væru allir viðhlæjend- ur vinir. „Sá stjórnmálamaður, sem segir að forgangsröð út frá framtíðar- sýn sé að veita fjármunum til mennt- unar, rannsókna og til að styðja við bakið á hinni arðvænlegu ijárfestingu í mannauðnum, mun auðvitað snúast gegn sólundarkerfí, sem ekki verður varið með þessum rökum,“ sagði Jón Baldvin. „Hann mun til dæmis segja: „Ég mun ekki standa að því að halda áfram að veija öllum tekjuskatti ein- staklinga á Islandi í að veija úrelt, óþarft og óhagkvæmt einokunarkerfi í landbúnaði." Þar getið þið fengið tólf milljarða til að efla menntun, rannsóknir og vísindi. Slíkur stjórn- málamaður segir að sjálfsögðu: „Ég ætla ekki að eiga hlut að því, í gegn- um pólitískt kerfí og pólitískar lána- stofnanir, að fjárfesta í loðdýrum, fískeldisævintýrum og ullarævintýr- um fyrir 55 milljarða og sitja uppi með það arðlaust eftir fimm ár.“ Þar fóru miklir fjármunir forgörðum, sem ekki fara í mennt og menningu." . Jón Baldvin sagði að fljótlega eftir að núverandi lánakerfi var sett á lagg- imar hefði hann sagt að stutt væri í að það yrði námsmönnum gagnslaust. Útgjaldaboginn væri spenntur alltof hátt, vaxtamunurinn færi vaxandi og stjórnmálamenn, sem segðust vera vinir námsmanna, vildu ekki leggja fé ríkisins í kerfið heldur fjármagna það með lánum. Þetta kerfi myndi fljótt komast í þrot, sagði Jón Bald- vin. Hann sagði að ekki þyrfti að deila um það hvernig ætti að haga námsaðstoðarkerfi á næstu árum ef óbreytt kerfi ætti að halda áfram, vegna þess að það myndi einfaldlega ekki verða til neitt kerfi. Lánsréttur verði skiigreindur nákvæmlega Jón Baldvin lýsti síðan hugmyndum sínum um námslánakerfi, sem ganga töluvert lengra en það frumvarp, sem liggur fyrir Alþingi. „í staðinn fyrir óendanlega framfærsluþörf á að skil- greina lánsréttinn nákvæmlega. Fjöl- skyldubætur eiga að vera í fjölskyldu- bótakerfi. Ég tel að námsaðstoðin eigi að vera meiri eftir að grunnnámi lýk- ur, þegar komið er út í framhaldsnám. Ég tel að þessi lán, sem menn taka á námstímanum, eigi að bera lág- marksvexti. Til hliðar við það eigi jafnframt að vera styrkjakerfi, og greina eigi á milli láns og styrks. Ég tel einnig að það eigi að afnema í svona kerfí skerðingarákvæði vegna eigin aflafjár og ég tel að í ljósi þess fjárhagsvanda, sem við stöndum í, höfum við ekki lengur efni á að greiða 800 milljónir í skólagjöld fyrir 700-800 nemendur í misjafnlega góð- um, en afar dýrum bandarískum há- skólum. Ég er þeirrar skoðunar að þetta námsaðstoðarkerfi eigi að fjár- magna að langmestu leyti með fram- lögum frá ríkinu, af stjórnmálamönn- um sem þora að segja við almenning: „Þetta eru þeir skattar, sem við ætlum að leggja á ykkur til að standa undir þessu kerfi þannig að það geti staðið undir sér sjálft. Ég legg til að hraðað verði endurgreiðslum þeirra, sem nú eru á góðum aldri og hafa sæmilegar tekjur, aftur til sjóðsins," sagði Jón Baldvin. Að ræðu hans lokinni áminnti fundarstjóri, Bjöm Ársæll Pétursson stúdent, fundarmenn um að púa á eftir ræðum en ekki í miðjum ræðum framsögumanna. Sambandið gerði Q8 tilboð um hlut sinn í Olíufélaginu: Kaupum venjulega olíufyrir- tækin í heild, en ekki hluta - segir Margrét Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Kuwait Petroleum A/S í Danmörku KÚVEISKA olíufélagið Kuwait, Petroleum, sem jafnan gengur undir nafninu Q8, er nú með til skoðunar þær upplýsingar sem fulltrúar félagsins öfluðu sér hér á landi í síðustu viku um Olíufélagið h.f., þar sem félagið íhugar kaup á 31% eignarhlut Sambandsins í OHufélaginu. Að sögn Margrétar Guðmundsdóttur, sem er framkvæmdasljóri Kuwait Petroleum í Danmörku er ekki við því að búast að félagið geri upp hug sinn hvað kaupin varðar, fyrr en að nokkrum tíma liðnum. Margrét sagði í samtali við Morg- unblaðið í gær að fyrir skömmu hefði verið haft samband við Q8, til þess að kanna hvort félagið hefði áhuga á að kaupa hlut Sambandsins í Olíu- félaginu. „Q8 safnar upplýsingum um viðkomandi félög í öllum þeim tilvik- um sem því er boðið að kaupa önnur olíufélög eða hlut í þeim. Félagið metur alla slíka möguleika af fullri alvöru. Að gagnasöfnun lokinni er farið yfir allar upplýsingar og það síðan metið hvort viðkomandi félag er þess virði að það verði keypt, eða ekki,“ sagði Margrét. „Málið stendur þannig í dag,“ sagði Margrét, „að við erum að meta þær upplýsingar sem við fengum frá Olíu- félaginu, Landsbankanum og Sam- bandinu. Við erum engan veginn komin á það stig að svo stöddu að taka ákvörðun um hvort af fjárfest- ingunni á íslandi verður eða ekki. Hvað varðar kaup Q8 á hluta Sam- bandsins í Olíufélaginu er um nokkuð sérstakt mál að ræðá, því hér.er ein- ungis um hluta fyrirtækis að ræða. Yfirleitt höfum við haft þann háttinn á að við höfum í öllum löndum nema Ungverjálandi keypt fyrirtækin eins og þau leggja sig, en ekki ákveðinn eignarhluta. Hvort þetta kemur til með að hafa einhver áhrif á niður- stöðu og það hver hún verður, er ekki hægt að segja til um nú.“ Margrét sagði að ekkert væri hægt að segja um verðhugmyndir Q8 fyrir eignarhlut Sambandsins í Olíufélag- inu enn sem komið væri. „Þessar við- ræður hafa átt sér stað og Q8 er nú að meta þetta tilboð Sambandsins og það hvort það er þess virði að skoð- ast nánar,“ sagði Margrét. Margrét hefur starfað hjá Q8 í Danmörku í fimm og hálft ár og var hún fyrsta konan hjá fyrirtækinu til þess að vera ráðin sem framkvæmda- stjóri þess. Hjá félaginu í Danmörku starfa um 4.000 manns. Hún sagði að Q8 væri til þess að gera ungt fé- lag í markaðssetningu og hefði ein- ungis verið í Evrópu síðan 1983. „Á síðustu níu árum hefur Q8 verið að kaupa olíufyrirtæki um allt megin- land Evrópu. Það er eina leiðin fyrir oíiufyrirtæki til þess að vaxa, að fara inn og kaupa upp fyrirtæki sem er fyrir á markaðnum. Síðan hafa verið keypt smáfyrirtæki í Englandi, hér í Danmörku keyptu þeir BP 1987. En upp á síðkastið hafa kraftar Q8 eink- um beinst að Austur-Evrópu. Þeir Margrét Guðmundsdóttir fram- kvæmdastjóri Kuwait Petroleum A/S í Danmörku keyptu í Ungveijalandi og eru að skoða önnur lönd í Austur-Evrópu, jafnframt því sem verið er að meta fjárfestingarmöguleika á Spáni,“ sagði Margrét. Margrét sagði þegar hún var spurð hvenær niðurstöðu væri að vænta, að erfitt væri að gera sér það í hugar- lund, en svona skoðun og svo samn- ingur, ef af yrði, tæki sinn tíma. Hún sagði í því sambandi að frá upphafi til loka samninganna um kaup Q8 á BP í Danmörku 1987 hefðu liðið um níu mánuðir. Námsmenn skipuðu hvert sæti, ganga og þrep í Háskólabíói. Morgunblaðið/Ámi Sæberg Miðaldra stjórnmálamenn efndu til sukksins Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, þing- maður Kvennalista, sagði að ráðherr- ar virtust telja sig þess umkomna að kenna fólki kostnaðarvitund, sparnað og peningasiðgæði og minna það á að nú væri loðdýra- og fiskeldissukk á enda, fylliríinu væri lokið. „En ég spyr, hver efndi til veizlunnar?" spurði Ingibjörg Sólrún og svaraði sjálf: „Til þessarar veizlu efndu nefnilega mið- aldra menn, sem á sínum tíma stund- uðu nám á kostnað eiginkvenna sinna eða fengu óvístölutryggð námslán á lágum vöxtum, sem brunnu upp í verðbólgunni." Ingibjörg Sólrún sagði að ef frum- varp menntamálaráðherra um Lána- sjóð námsmanna yrði að lögum yrði úr versta námslánakerfi á Norður- löndum. „Þetta er kerfi sem ekki styrkir námsmenn með svo mikið sem einni krónu. Þetta er í raun kerfí, þar sem námsmenn þurfa að greiða fyrir aðgang að menntun," sagði hún. Þingkonan rakti ýmis dæmi um afleiðingar þess kerfis, sem frumvarp- ið felur í sér, sem hún taldi óæskileg- ar. Þannig tók hún dæmi af einstæðri móður, sem færi í hjúkrunarfræði og tæki 1,9 milljónir í námslán. Þegar hún yrði 67 ára hefði hún greitt 2,5 milljónir í vexti, hálfa milljón af höfuð- stól en ætti 1,4 milljónir ógreiddar. Námslán væru ekki fjárfestingarlán, heldur framfærslulán og ættu ekki að bera vexti, því að þeir bitnuðu verst á þeim tekjulægstu. Aðför að menntakerfinu Svavar Gestsson, þingmaður Al- þýðubandalagsins og fyrrverandi menntamálaráðherra, sagði að ríkis- stjórnin stæði að allsheijaraðför að menntakerfínu. Hann sagði að vinnu- brögð við samningu frumvarps um LÍN væru hneyksli, þar sem álit náms- manna hefði ekki verið virt viðlits. Hann sagði að alvarlegast væri í frum- varpinu að félagslegt tillit laganna væri afnumið og sjóðnum þannig breytt í fjárfestingarsjóð, með hlið- stæðum hætti og í laxeldi og loðdýra- rækt. Þá yrðu námsmenn meðhöndl- aðir eins og fyrsta árs nemar allan sinn námsferil, sem þýddi að þeir sem ekki ættu fé til að fleyta sér yfír fyrsta misserið, yrðu að borga 10% af fram- færslukostnaði sínum til bankanna allan tímann. Þetta jafngilti 10% flatri skerðingu á öllum námslánum. Þá gagnrýndi Svavar þau orð mennta- málaráðherra að breytingar á LÍN myndu minnka aðsókn að sjóðnum og þannig myndi fé sparast. Hann kall- aði 20 ára regluna svokölluðu aðför að verkmenntun. Háskólanum hnignar Pétur Þ. Óskarsson, framsögumað- ur stúdenta á fundinum, sagði að háskólayfirvöld hefðu neyðst til að leggja á skólagjöld vegna þrýstings frá ríkisstjórninni og þar með væri snúið af þeirri braut að menntun skyldi vera ókeypis. Skólagjöld hefðu hingað til þótt slæmur til og menn hefðu litið til Bandaríkjanna, þar sem 10% þjóðarinnar væru ólæsir og æðri menntun forréttindi hinna ríku. „Þar hefur þróunin náð hvað lengst, nú höfum við íslendingar lagt inn á svip- aðar brautir,“ sagði Pétur. Hann sagði að vegna þess að þrátt fyrir skóla- gjöldin vantaði fé til Háskólans, væri farið að fella niður námskeið. Það þýddi að námið yrði fábreyttara og Háskólanum hnignaði. Pétur sagði að námsmenn gerðu sér grein fyrir vanda Lánasjóðsins, og hann yrði að leysa. Það væri hins vegar óréttlæti að gera námsmönnum nútíðar og framtíðar að greiða upp- safnaðan vanda fortíðarinnar. „Er það okkur að kenna að lánin sem veitt voru fyrir 1976 brunnu upp í óðaverð- bólgu vegna þess að þau voru ekki verðtryggð? Er það okkur að kenna að ríkisvaldið hefur tekið lán með háum vöxtum til að lána námsmönn- um án vaxta? Er það okkar sök að á þessu ári fer allt framlag ríkisins til Lánasjóðsins, 2,2 milljarðar króna, í að greiða vexti og afborganir af þess- um lánum?“ sagði Pétur. Hann sagði að námsmenn hefðu sjálfir lagt til hertar endurgreiðslur til að bæta hag sjóðsins. Stúdentar hefðu verið sein- þreyttir til vandræða, en þeir myndu beijast fyrir sínum málstað. Styrkveitingar faldar Vísindasjóði I pallborðsumræðum eftir að fram- söguerindum lauk var talsvert rætt um hugmyndir um styrkjakerfi, sem fram koma í frumvarpinu um LÍN. Guðmundur Magnússon prófessor, sem var formaður nefndarinnar sem samdi frumvarpið, sagði að um þetta hefði verið rætt í smáatriðum, bæði áður en námsmenn komu inn í nefnd- ina og eftir að fulltrúar þeirra tóku þar sæti. Jón Baldvin Hannibalsson sagði að styrkjakerfí ætti fyrst og fremst að ná til þeirra, sem stunduðu sérhæft framhaldsnám eða sköruðu framúr í námi. Ólafur G. Einarsson sagði að rætt hefði verið um að styrk- veitingár yrðu faldar Vísindasjóði, en ekki LÍN. Sú skoðun sín, að nauðsyn- legt væri að taka upp styrkjakerfi, hefði styrkzt er ákveðið var að setja hámark á lán vegna skólagjalda er- lendis. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir gagnrýndi að hugmyndir um styrkja- kerfí væru óljósar. „Það er algerlega óboðlegt að ræða þá ekki styrkjakerfi opinskátt og opinberlega og leggja fram nákvæmar hugmyndir um slíkt kerfi, samhliða því að frumvarp til laga um námslán er lagt fram,“ sagði hýn. Steingrímur Hermannsson sagði að útilokað væri að samþykkja frum- varpið nema hugmyndir um stórefldan Vísindasjóð yrðu útfærðar. Stúdentar mótmæla með undirskriftum í fundarlok afhenti Steinunn V. Óskarsdóttir, formaður Stúdentaráðs Háskóla íslands, menntamálaráðherra undirskriftalista með nöfnum á þriðja þúsund stúdenta við HÍ, þar sem niðurskurði, álagningu skólagjalda og breytingum á LJN er mótmælt. Sighvatur Björgvinsson heilbrigðisráðherra á Akureyri: íslendingar liggja lengst allra á sjúkrahúsum SIGHVATUR Björgvinsson heilbrigðisráðherra hefur nú undir höndum skýrslu sem Hagfræðistofnun Háskóla íslands hefur unnið fyrir hann um íslenska heilbrigðiskerfið. Á fundi sem ráðherrann hélt með almenn- ingi á Akureyri á miðvikudagskvöldið vitnaði hann í þessa skýrslu en þar kemur fram að íslenska heilbrigðiskerfið er nú hið dýrasta í heimi. Ennfremur munu íslendingar liggja lengst allra á sjúkrahúsum og kem- ur m.a. fram í skýrslunni að meðal íslendingur liggur tvöfalt lengur á sjúkrahúsi en meðal Dani. Hagfræðistofnun kemst að þeirri niðurstöðu að íslenska heilbrigðis- kerfið sé nú orðið töluvert dýrara en hið bandaríska sem áður var talið hið dýrasta í heimi. íslenska kerfið kostar nú 900 dollara á mann en í Bandaríkj- unum 700 dollara á mann. Miðað er við gengisvísitölu og tekið tillit til aldursdreifingar þjóðanna við út- reikninga Hagfræðistofnunar. Sig- hvatur Björgvinsson sagði á fundin- um að ekki kæmu fram ákveðnar skýringar á þessum mun sem væri á kostnaði heilbrigðiskerfa þessara þjóða. Hinsvegar teldi Hagfræði- stofnun að hann gæti legið í fjár- magnskostnaði og skipulagi íslenska kerfísins og því greiðslufyrirkomulagi sem væri í gildi, þ.e. að ríkið borgar brúsann ... „og enginn hefur áhuga á að spara fyrir ríkið,“ sagði Sighvat- ur. í upphafi máls síns sagði Sighvatur að ástæða fundarferðar hans um landið væri sú að sjónarmið heilbrigð- isráðuneytisins í þeimssparnaðar- og niðurskurðaraðgerðum sem í gangi eru hefðu ekki komist til skila í fjölmiðlum. „Umræðan hefur gengið út á að til standi að loka spítölum og sjúkrahúsum sem ekki er rétt. Okkar markmið eru að ná kostnaði við heilbrigðiskerfið niður í það sem hann var um áramótin 1989/90,“ sagði Sighvatur. Ráðherrann rakti efnahagsþróunin á síðustu árum en hún er orsök þess að grípa hefur þurft til fyrrgreindra aðgerða. Gatið sem ríkisstjórnin er að reyna að stoppa í nú nemur 15 milljörðum króna. Sighvatur rakti ítarlega þær að- gerðir sem framkvæmdar hafa verið hingað til og felast í ýmiskonar gjald- töku fyrir læknisþjónustu. Hann fór yfir lyfjamálin, lífeyriskerfið og greiðslur fyrir þjónustu á stofnunum. I máli hans kom frain fað allar þessar aðgerðir ættu það sammerkt að þeir sem minnst mega sín í þessu þjóð- félagi borga minnst fyrir þjónustuna. „Við höfum hlíft þeim sem minnst mega sín og ég vil nefna það að í flestum tilfellum hefur gjaldtakan af gamla fólkinu lækkað eri ekki hækkað eins og haldið hefur verið fram,“ sagði Sighvatur. Ráðherra fór ítarlega í gegnum hugmyndir þær sem á lofti eru um að fylla í 15 milljarða króna gatið með hátekjuskatti og fjármagnstekj- um. Hann sagði að þetta tvennt gæti engan veginn gefið meira en 1-3 milljarða króna á ári og kæmi því alls ekki í staðinn fyrir niðurskurð og spamað. Halldór Halldórsson, formaður Læknafélags Akureyrar, tók fyrstur til máls á eftir framsögu ráðherra. Hann sagði að menn upplifðu sam- dráttinn sem vondan draum og að í umræðu innan læknafélagsins um samdráttinn væru menn ekki sáttir við hann og teldu að hann gæti haft skelfilegar afleiðingar í för með sér. „Mér virðist þörf á að leita nýrra leiða í heilbrigðismálum,“ sagði Halldór. „En vart getur talist hagkvæmt að láta sjúkrahúsin standa auð. Og við megum ekki missa vel menntað hjúkr- unarfólk af landinu í kjölfar þessara aðgerða.'1 Ragnhildur Jónsdóttir sagði að fyrst ráðherrann hefði líkt rekstri rík- issjóðs við rekstur heimilis vildi hún nefna að hún hefði rekið stórt og mikið heimili um 40 ára skeið. „Og í mínu heimilishaldi hef ég æfinlega reynt að spara eyrinn ekki síður en krónuna og því finnst mér þessir milljarðar sem næðust með hátekju- skatti og fjármagnsskatti ágæt búbót upp í þetta 15 milljarða króna gat,“ sagði Ragnhildur. Bjami Arthursson, forstöðumaður Kristness, sagði að út í hött væri að bera saman heilbrigðiskerfíð í Banda- ríkjunum og á íslandi, það væri eins og að bera saman epli og appelsínur, og gerði hann athugasemdir við þ'að sem stendur í skýrslu Hagfræðistofn- unar. Fleiri tóku til máls á fundinum, eða alls 14 manns. Undir lokin tók Sighvatur Björgvinsson aftur til máls og svaraði gagnrýni er fram kom. Hann vildi taka það skýrt fram að ekkí væri verið að loka sjúkrastofnun- um og sagði að rekstur minnstu heilsugæslustöðvanna yrði óbreyttur og að ekki yrði dregið úr bráðaþjón- ustu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.