Morgunblaðið - 14.02.1992, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 14.02.1992, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. FEBRÚJAR 1992 11 Sveinn Bjömsson Sveinn Björnsson: Mynd við 37. sálm. 1991. Myndlist Eiríkur Þorláksson Á þessari öld hefur það ein- hverra hluta vegna legið íslend- ingum nær að hafa trúmál í flimtingum en fjalla um þau á opinskáan og beinan hátt. Þótt þjóðin telji sig vel trúaða sam- kvæmt könnunum, verður þess t.d. lítið vart í kirkjusókn, og umfjöllun um trúarleg efni í list- um og bókmenntum hefur verið sárasjaldgæf — raunar svo sjald- gæf að það vekur sérstaka at- hygli í hvert skipti sem slíkt kemur upp. Sýning Sveins Bjömssonar, sem nú stendur yfir í Hafnarborg í Hafnarfirði, er eitt slíkt tilvik. Á sýningunni getur að líta tæp- lega sjötíu myndir, unnar með pastel- og olíukrít á pappír, þar sem myndefnið er sótt í ljóða- bálk Matthíasar Johannessens, Sálmar á atómöld, sem kom út á vegum Almenna Bókafélagsins á síðasta ári. Hið trúarlega inn- tak sálmanna (sem liggja frammi á sýningunni) er skýrt og inni- legt, myndrænt og auðskilið, þótt það sé væntanlega ekki allt- af í takt við uppáskrifaðar kirkjulegar kenningar. Þetta inn- tak grípur Sveinn í verkum sín- um og myndgerir á persónulegan hátt út frá texta sálmanna. Eins og listamaðurinn segir í sýning- arskrá: „Ég hreifst svo af ævin- týrunum í kvæðunum, trúnni og andagiftinni, að ég gat ekki ann- að en gert þessi verk.“ Sveinn Björnsson hefur verið virkur þátttakandi á myndlistar- sviðinu um áratuga skeið. Þar hefur hann markað sér persónu- lega myndgerð, sem að nokkru má rekja til ferils hans sem sjó- manns áður en hann sneri sér að myndlistinni, en einnig kemur fleira til, eins og Halldór Björn Runólfsson listfræðingur bendir á í sýningarskránni: „Það sem segja má að ein- kenni list Sveins umfram allt annað er skýlaus höfnum á öllu sem heitið getur punt og pjatt. Við fyrstu sýn virðast verk hans gróf og fráhrindandi. Það er vegna þess að menn eru svo vanir því að skoða myndlist sem þrautakóng í handverki þar sem sá sé bestur sem sé flinkastur. ... Það gleymist nefnilega oft að líta á það sem máli skiptir. í verkum Sveins er það hug- myndaflugið. Það er kjaminn, sem enginn apaköttur getur stælt hversu flinkur sem hann er. Þetta hugmyndaflug gerir allan grófleikann og tröllsháttinn ljóðrænaft og fagran þegar öllu er á botninn hvolft.“ Það er hugmyndaflug Sveins sem ræður ríkjum á sýningunni. Myndirnar eru unnar á einlitan pappír sem skapar afar virkan bakgrunn fyrir myndgerðina; hvítan, svartan, gráan, bleikan, bláan, grænan, rauðan — allt eftir því sem listamanninum þyk- ir henta hveiju sinni. Á hverri mynd er tiltekið hvaða sálmur er myndvaki verksins, og oft er tilvitnun í textann hluti verksins. Þessir textar eru sterk brot: „Án þess að eiga annan kost, sigli ég í þínu nafn“, (1. sálmur). „Gæft- imar fást ekki I Veiðimanninum - ekki frekar en kærleikur þinn“, (29. sálmur). „Þú ert sólin. Líf okkar lyngið sem ber ávöxt“, (37. sálmur). „Þú blæst til byijar svo við megum lifa þúsund ár sem einn dagur,“ (50. sálmur). En sálmarnir ráða ekki mynd- gerðinni, heldur sú sýn sem þeir opna listamanninum. Hér er sterkt og einfalt myndmál á ferð- inni, sem listunnendur þekkja frá hendi Sveins, en nýtur sín afar vel í þessum miðli, krít á pappír, og nær ef til vill að gera mynd- efninu betri skil en ríkulegri miðlar gætu gert. Trúarleg myndlist á sér ekki ríka hefð hér á landi, og því er hvert framlag á því sviði mikilvægt. Þessi sýning er hins vegar ekki athyglisverð eingöngu vegna myndefnisins, heldur ekki síður vegna þess að listamaðurinn nær að bregða á það ferskri birtu, og standa þannig undir lokaorð- um sínum í sýningarskránni: „Trúin og listin eru svo samofin í Sálmunum, en það eru þær einnig í mér.“ Sýningu Sveins Bjömssonar í Hafnarborg í Hafnarfírði lýkur mánudaginn 17. febrúar. Sólarkaffi Seyðfírðingafélagsins SEYÐFIRÐINGAFÉLAGIÐ í Reykjavík heldur árlegt sólar- kaffi sitt, laugardaginn 15. fe- brúar í Akoges-húsinu við Sig- tún. Verður þar haldið upp á 10 ára afmæli félagsins með fjölbreyttri dagskrá. Húsið verður opnað kl. 20, en skemmt- unin hefst kl. 20.30. Seyðfirðingafélagið keypti fyrir nokkrum árum húsið „Skóga“ við Garðarsveg 9 á Seyðisfírði og hef- ur unnið að því að gera það upp og er það nú til leigu sem orlofs- hús. Með þessu framtaki hefur áhugi brottfluttra aukist til muna um heimsókn til æskustöðvanna, og var það einmitt ætlunin. Félagar í Seyðfirðingafélaginu eru nú 230. Kraftaverkanæringin sem er ekki skoluð úr HÚTFI. jAU.AND 15.0G 22. FEBRÚAR 7. mars - síðasta sýning STÓRSÝNINGIN ! ^1-0^ > Pétur Daníel Berglind Nú fer hver að verða síðastur að sjá þessa stórskemmtilegu sýningu 28.06 29. FEBRÚAR Móeiður THE BYRDS Fyrsta lag hljómsveitarinna Mr. Tambourine Man eftir Dylan, sló í gegn og seldist í meira en 2 milljónum eintaka. Síðan kom hvert lagið af öðru; Turn Turn Turn, Eight Miles High, So You Want to be a Rock'n Roll Star, Lady Friend, lagið úr Easy Rider og Jesus It's Just All Right with Me svo aðeins fáein séu nefnd. 13., 14., 20., 21., 27.06 28. MARS 0G 3. og 4. APRÍL THE PLATTERS Missið ekki af þessu einstaka tækifæri til að sjá og heyra í hinum stórkostlegu The Platters. Hver man ekki eftir lögum eins og The Great Pretender, Only You, Smoke Gets in Your Eyes, The Magic Touch, Harbor Lights Enchanted, My Prayer, Twilight Time, You'll never Know, Red Sails in the Sunset, Remember When.. o.fl. 10.0G11.APRÍL DR. HOOK EIN ALVINSÆLASTA HUÓMSVEIT SEM TIL LANDSINS HEFUR KOMIÐ. Hver man ekki eftir: Sylvia's mother, The cover of the Rolling stones, Only sixteen, Walk right in, Sharing the night together, When you are in love with a beautiful woman, Sexy eyes, Sweetest of all o.fl. o.fl. Hljómsveitin STJÓRNIN er nú aftur komin á sviðið á Hótel íslandi og leikur um helgar í vetur. Sýningar á heimsmælikvarða á Hótel íslandi Miðasala og borðapantnanir i sima 687111

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.