Morgunblaðið - 14.02.1992, Blaðsíða 38
38
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FÖSTUDAGUR 14. FEBRÚAR 1992
OLYMPIULEIKARNIR I ALBERTVILLE
Ulvang enn
á sigurbraut
- þrátt fyrir að hafa dottið og
brotið annan skíðastafinn
Reuter
Norðmaðurinn Vegard Ulvang leyndi ekki gleði sinni eftir sigurinn í 10 km göngu.
NORÐMAÐURINN Vegard Ul-
vang sýndi enn einu sinni yfir-
burði sína er hann vann önnur
guilverðlaun sín í 10 km göngu
með hefðbundinni aðferð í
gær. Hann varð þar með fyrsti
Norðmaðurinn til að vinna
tvenn gullverðlaun í göngu á
sömu ólympíuleikum síðan
Torleif Haug gerði það 1924.
Ulvang, sem sigraði í 30 km
göngunni með yfirburðum á
mánudaginn, datt í brautinni eftir
4 km og braut annan skíðastafínn.
Landi hans, Paul-Gunnar Mikkels-
plass, sem keppti m.a. á Skíðamóti
Islands fyrir nokkrum árum, var
við brautina sem áhorfandi, lánaði
honum annan skíðastafinn sinn.
„Þegar svona skeður kemst mað-
ur í uppnám. Fyrsta hugsunin var
sú að gullverðlaunin væru gengin
mér úr greipum. Eftir 500 metra
fékk ég annan stafinn hjá.Mikkels-
plass og var hann 8 sentímetrum
„EG er mjög ánægður með
gönguna," sagði Rögnvaldur
Ingþórsson, göngumaðurfrá
Akureyri, sem hafnaði í 59.
sæti af 110 keppendum í 10
km göngu karla á Ólympiuleik-
unum í Albertville í gær. Hauk-
ur Eiríksson, sem einnig erfrá
Akureyri, hafnaði f 81. sæti og
var ekki ánægður með útkom-
una.
styttri, en það kom ekki að sök,“
sagði Ulvang.
„Eg hef aldrei verið í eins góðri
æfingu. Ég á von á að vinna þriðju
gullverðlaunin og jafnvel þau
fjórðu,“ sagði Ulvang eftir gönguna
í gær. Hann á góða möguleika á
að fullkomna þrennuna á morgun
og Norðmenn verða að teljast sigur-
stranglegir í boðgöngunni og þar á
hann víst sæti. „Eg er jafnvel
hungraðari í sigur nú en áður en
ég kom hingað.“
ítalski hermaðurinn, Marco Alba-
rello, vann óvænt silfurverðlaunin,
var 19,2 sek á eftir Ulvang. Christ-
er Majback færði Svíum fyrstu
verðlaunin á leikunum með því að
ná þriðja sæti. Norski heimsmeist-
arinn Björn Dahlie varð að sætta
sig við 4. sætið. Hann sagðist ekki
hafa valið rétt skíði til að keppa á.
Það var mikilvægt að ná góðum
árangri í 10 km göngunni í gær
því ræst verður út eftir árangri í
15 km göngunni á morgun. Ulvang
Rögnvaldur getur vel við unað
að vera um miðjan hóp kepp-
enda. Hann gekk 10 km á 32:04.6
mín. og var rúmlega 5 mín. á eftir
sigurvegaranum, Vegard Ulvang
frá Noregi. Haukur gekk á 34:52.6
mínútum og var tæpum þremur
mín. á eftir Rögnvaldi.
Rögnvalur sagðist hafa verið með
gott fatt og rennsii. „Ég er ánægð-
ur með að vera aðeins fjórum sek-
fer þá fyrstur af stað, 19,2 sek. á
undan Albarello. Sá keppandi sem
fyrstur kemur í mark er sigurveg-
ari. En í öðrum göngum eru kepp-
úndum á eftir ítalanum Maurilio
De Zolt, sem vann silfurverðlaun í
50 km göngunni á síðustu ólympíu-
leikum. Ég byijaði frekar róiega
og var 1 71. sæti eftir fimm kíló-
metra en náði að vinna mig upp
um 12. sæti síðustu kílómetrana,"
sagði Rögnvaldur.
„Ég er að venjast vel þunna loft-
inu hér og er ekkert þreyttur eftir
10 km gönguna. Gangan á laugar-
endur ræstir út með 30 sek. millibili.
Maurilio de Zolt, Ítalíu, var ald-
ursforsetinn í göngunni í gær - 41
árs. Hann sagðist hafa átt í vand-
daginn leggst vel í mig og ég ætla
að færa mig upp um nokkur sæti,“
sagði Rögnvaldur.
Stífnaði upp
„Ég hefði viljað gera betur,“
sagði Haukur Eiríksson. „Ég stífn-
aði upp undir lokin og náði því aldr-
ei endaspretti. Mér finnst ég vera
þungur og ég næ því ekki út úr
mér sem ég á inni í þessari hæð.
En ég vona að ég geri betur í
göngunni á laugardaginn."
ræðum með öndunina í þessari
miklu hæð. Hann hafnaði í næsta
sæti á undan Rögnvaldi Ingþórs-
syni.
ídag
Dagskrá Ólympíuleikanna í
Aibertville í dag:
09.00 - Skíðaskotfimi kvenna.
3 x 7,5 km boðganga.
09.00 - Tvímenningskeppni á sleð-
um, 1. og 2. umferð.
12.30 - Skiðastökk af 120 m palli.
(sveitakeppni).
16.30 - Listdans á skautum.
skylduæfingar.
15.00 - 1.000 m skautahlaup kv.
Íshokkí, b-riðill:
12.00 - Samveldin - Frakkland.
15.30 - Sviss - Noregur.
19.15 - Tékkoslóvakía - Kanada.
Veðurútlit: Snjókomu linnir en
áfram skýjað og mistur á flestum
keppnisstöðum fram eftir morgni,
en síðan léttir til og spáð er sólskini.
Ánægður með gönguna
- sagði Rögnvaldur Ingþórsson, sem varð í 59. sæti í 10 km göngu
Haukur náði sérekki á strik og hafnaði í 81. sæti af 110 keppendum
Samkvæmt
Frakkinn Edgar Grospiron og
bandaríska stúlkan Donna
Weinbrecht voru sigurstrang-
Iegust í hóiasviginu og þau stóðu
undir væntingum í gær, þegar
keppt var í greininni í fyrsta
sinn á Ólympíuleikum.
Grospiron var með mikla yfir-
burði í undankeppninni og fór
síðan á kostum í gær. „Þetta
var dagurinn minn, ég var frá-
bær,“ sagði Frakkinn og áhorf-
endur sýndu í verki að þeir voru
á sama máli, hópuðust að hetj-
unni og fögnuðu ákaft.
Viðbrögð Frakka við úrslitun-
um í kvennakeppninni voru á
öðrum nótum. Franska stúlkan
Raphaelle Monod, sem var efst
í undankeppninni, missti jafn-
vægið, náði ekki seinna stökkinu
og hafnaði í áttunda og síðasta
sæti. Hún vissi þegar að draum-
urinn um gulhð var orðinn að
engu og renndi sér grátandi í
faðm föður síns.
Winbrecht vissiuð hveiju hún
gekk, tók enga áhættu og
tryggði sér gullið — var með
0.19 fleiri stig en Elizaveta
Kojevnikova, sem fór brautina á
skemmstum tíma. Stine Hatte-
stad frá Noregi varð í þriðja
sæti, en hún fékk flest stig allra
fyrir stökkin.
Reuter
Kronberger fagnar sigrinum. Wachter til vinstri og Masnada til hægri.
Slæmar aðstæður
Norðmaðurinn Geir Karlstad sigr-
aði í 5.000 m skautahlaupi
karla í gær. „Þetta gat ekki verið -
betra hjá mér. Allt gekk upp og ég
hef aldrei skautað eins vel. En það
hefði átt að fresta skauthlaupinu
vegna veðurs," sagði hann.
Aðstæður voru mjög erfiðar vegna
mikillar úrkomu og sagði Norðmaður-
inn að keppninni hefði mátt líkja við
happadrætti vegna rigningarinnar.
Engu að síður skautaði hann vel en
var nær 20 sekúndum frá heimsmet-
inu.
Norski heimsmethafinn Johann-
Olav Koss, sem var á sjúkrahúsi um
síðustu helgi vegna veikinda, missti
taktinn síðustu 800 metrana og átti
ekki möguleika á verðlaunasæti, en
fyrir Ieikana var honum spáð þreföld-
um sigri.
Svíinn Tomas Gustafson, sem sigr-
aði í greininni á síðustu tveimur
Ólympíuleikum, var ekki á meðal sex
fyrstu.
Hollendingurinn Falco Zandstra
fékk silfrið. „Ég er ánægður með silf-
urverðlaunin á fyrstu Ólympíuleikum
mínum," sagði heimsmeistari ungl-
inga 1991, en bæti við að ísinn hefði
verið of mjúkur vegna bleytunnar.
Leo Visser, landi hans, hafnaði í
þriðja sæti.
Öruggur sigur hjá
Petru Kronberger
Petra Kronberger frá Austurríki
varð í gær ólympíumeistari í
alpatvíkeppni kvenna. Hún hafði
besta tímann í bruninu á miðvikudag
og náði þriðja besta tímanum í svig-
inu í gær og hlaut samtals 2,55 stig.
Landi hennar, Anita Wachter, varð
önnur og Florence Masnada frá
Frakklandi þriðja.
Kronberger hafði það gott forskot
eftir brunið að hún þurfti ekki að
taka óþarfa áhættu í sviginu í gær.
Hún er jafnvíg á allar greinarnar og
ætti því að eiga möguleika á að bæta
enn í verðlaunasafnið á leikunum.
Austurrísku stúlkurnar áttu mögu-
leika á að vinna þrefalt allt þar til
Ulrike Maier krækti og fór út úr
brautinni er hún átti nokkur hlið eft-
ir í síðari umferð svigsins. í stað
þess stóð franska stúlkan Florence
Masnada með bronsverðlaunin og
vann þar með fyrstu verðlaun sín á
stórmóti. Hún var með spelkur á
báðum hnjám vegna þess að hún er
nýstigin upp úr uppskurði.
Fimm stúlkur úr fyrsta ráshópi féllu
úr í síðari umferð.
Fyrsta gull Finna
Maþut Lukkarinen tryggði
Finnum fyrstu gullverð-
launin á Ólympíuleikunum, þegar
hún sigraði í 5 km sklðagöngu
kvenna með fijálsri aðferð. Þetta
voru önnur verðlaun fínnsku
hjúkrunarkonunnar, en hún varð
í öðru sæti í 15 km göngu á eftir
rússnesku stúlkunni Lyubov Eg-
orova, sem nú varð að sætta sig
við silfrið.
Keppnin var geysilega jöfn og
spennandi og aðeins munaði níu
sekúndubrotum á tveimur fyrstu.
Lukkarinen náði besta tíma, sem
skráður hefur verið i greininni á
Ólympíuleikum þrátt fyrir að að-
stæður væru ekki eins og best
verður á kosið. „Við gerðum okk-
ur kannski vonir um að krækja í
einn verðlaunapening, en 'þetta
er stórkostlegt,“ sagði Petri Rolig,
einn fararstjóra Finna og unnusti
Lukkarinen, um árangurinn til
þessa.
Elena Vialbe frá Rússlandi fékk
bronsverðlaunin, rétt eins og í 15
km göngu, en heimsmeistarinn,
Trude Dybendahl frá Noregi, stóð
ekki undir væntingum og varð í
21. sæti.