Morgunblaðið - 14.02.1992, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 14.02.1992, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. FEBRÚAR 1992 Saka Jakes um landráð Innanríkisráðuneytið í Tékkó- slóvakíu sakaði í gær 18 emb- ættismenn kommúnistastjórn- arinnar fyrr- verandi, þar á meðal Milos 'Jakes, fyrr- verandi leið- toga komm- únistaflok- ksins, um landráð í tengslum við innrásina í landið árið 1968. Þeir eru sak- aðir um að hafa stuðlað að inn- rásinni með því að senda Moskvu-stjóminni formlega hjálparbeiðni. Ráðuneytið kvaðst þó ekki geta efnt til réttarhalda yfír mönnunum. Rússaflokk- ur í Israel Rússneskir gyðingar, sem gætu ráðið úrslitum í þingkosningun- um í ísrael í júní, stofnuðu stjómmálaflokk í gær til að knýja á um atvinnuöryggi og fjármuni handa innflytjendum. Flokkurinn ákveður eftir kosn- ingarnar hvort hann styður Likud-flokkinn eða Verka- mannaflokkinn. 400.000 manns hafa flutt frá Rússlandi til ísraels frá árinu 1989. Stormur í Kaliforníu Stormur gekk yfír suðurhluta Kalifomíu í gær og að sögn veðurfræðinga er hann sá mesti í ríkinu í 100 ár. Að minnsta kosti sex manns biðu bana af völdum óveðursins og mun fleiri var saknað. Kasmírgang- an stöðvuð Heryfirvöld í Pakistan sögðu í gær að þarlendir múslimar hefðu hætt við fjöldagöngu sína yfír til Kasmírs í Indlandi en þangað ætluðu þeir til liðs við trúbræður sína sem krefjast sjálfstæðis eða sameiningar við Pakistan. Að minnsta kosti tíu múslimanna biðu bana og tugir særðust.í átökum við pakist- anska hermenn, sem stöðvuðu göngumennina á miðvíkudag. ^ERLENTj Jakes ^ Reuter List í Kreml Rússneskt barn rennir sér niður listaverk úr snjó við múra Kremlar í gær. Fjórar risastórar höggmyndir úr snjó em nú á Rauða torginu í Moskvu vegna keppni í tengslum við vetrarhátíð í borginni. í bakgranni er Kremlartum og grafhýsi Leníns. Dýrar meng- unarvarnir Evrópubandalagið gæti dregið úr koltvísýringsmengun í and- rúmsloftinu um allt að 60% með um 150 milljarða hollenskra gyllina kostnaði (4.800 millj- arða ÍSK). Þetta kom fram í könnun sem hollenska rann- sóknarstofnunin TNO gerði fyrir framkvæmdastjórn band- alagsins. Reynolds hreinsar til Albert Reynolds, nýskipaður forsætisráðherra Irlands, losaði sig við átta ráðherra úr stjóminni eftir að hann tók formlega við embættinu af Charles Haughey á þriðjudag. Þetta er ein mesta upp- stokkun á ríkisstjóm í sögu landsins. Aðeins einn ráðherra, Bertie Ahem fjármálaráðherra, hélt embætti sínu. Mikið hneykslismál 1 uppsiglingu í Japan Hugmyndir um samsteypustjórn að loknum kosningum í sumar Tókýó. Reuter. JAPANSKA lögreglan réðst I gær inn á skrifstofur annars stærsta vöruflutningafyrirtækis í Japan en það er miðpunkturinn í nýju hneykslismáli, sem snertir flesta stjórnmálaflokkana. Talið er, að þetta hneyksli sé jafnvel umfangsmeira en Reeruit-hneykslið fyrir þremur árum. Einn af frammámönnum í sljórnarflokknum, Fijáls- lynda demókrataflokknum, telur rétt að huga að samsteypustjórn í Japan eftir kosningar í júlí. Hvert hneykslismálið öðra meira hefur komið upp í Japan á síðustu áram og öil bera þau vitni um út- breidda spillingu í stjómmálum landsins. Efast margir um, að ríkis- stjóm Miyazawa verði langra líf- daga auðið af þessum sökum. Fyrir nokkru var Fumio Abe, gjaldkeri í flokksdeild Miyazawa í Frjálslynda demnókrataflokknum, ákærður fyr- ir að hafa þegið mútur frá bygging- arfyrirtæki, Kyowa Company, og einnig komið peningum áleiðis til flokksdeildar Miyazawa en nýjasta hneykslið er enn stærra í sniðum. Varðar það vöraflutningafyrirtækið Tokyo Sagawa Kyubin en tveir fyrr- um starfsmenn þess eru sagðir hafa afhent um 230 milljarða ÍSK. kr. í ólöglegum lánum. Fór sumt af fénu til fyrirtækja í eigu glæpamanna- samtaka og sagt er, að sumt hafi vérfð notað til að múta 200 þing- mönnum, jafnt stjómarandstæðing- um sem stjórnarsinnum. Fijálslyndi demókrataflokkurinn hefur verið við stjórnvölinn í Japan frá 1955 en vegna hneykslismál- anna hefur dregið verulega úr stuðningi við hann. 1989 missti hann meirihluta í efri deild þingsins vegna Recruit-hneykslisins, sem snerist aðallega um hlutabréfavið- skipti eða -brask, og margt bendir til, að hann fái skell í þingkosning- unum í júlí. Shin Kanemara, vara- formaður flokksins og einn áhrifa- mesti stjómmálamaður í Japan, sagði í gær á fundi með frammá- mönnum í viðskiptalífinu, að rétt væri að huga að samsteypustjórn að kosningum loknum. Hafði hann þá í huga samstjóm Frjálslynda demókrataflokksins, hófsamari arms Sósíalistaflokksins, mið- flokksins Komeito og Lýðræðislega sósíalistaflokksins. Reuter Shin Kanemaru ásamt lífvörðum sínum. Hann telur rétt að huga að samsteypustjórn í Japan eftir kosningar í júlí enda líklegt, að stjórn- arflokkurinn, Fijálslyndi demókrataflokkurinn, fái þá mikinn skell. Hjartans þakkir sendi ég öllum þeim, sem glöddu mig meÖ heimsóknum, gjöfum, skeyt- um og símtölum á 90 ára afmœli mínu. í guðs friöi. Þórdís Benediktsdóttir frá Smáhömrum. lnnilegt þakklceti fœri ég Rarik-kórnum og Lúðrasveitinni Svaninum, er heiÖruÖu mig með söng og lúÖrablœstri, ásamt þeim fjölda vina og vandamanna, sem fœrÖu mér heilla- skeyti og gjafir og heimsóttu mig á 80 ára afmceli mínu 3. febrúar sl. Elías Valgeirsson, Hraunbæ 103, Reykjavík. Svíþjóð: Bildt segir „hlutleysi“ ekkileng- ur einkenna utanríkisstefnuna Stokkholmi. Reuter. CARL Bildt, forsætisráðherra Svíþjóðar, segir að orðið „hlutleysi" eigi ekki við lengur sem lýsing á utanríkisstefnu Svía. Hann segir að ef hann hefði verið forsætisráðherra á meðan á Persaflóastríðinu tók hefðu Svíar tekið mun skýrari afstöðu með fjölþjóðahemum sem barðist gegn Saddam Hussein. „Evrópa hefur breyst, það era ekki lengur til staðar tvær andstæð- ar hemaðarblokkir. Við eram því að breyta stefnu okkar,“ sagði sænski forsætisráðherrann í sam- tali við jReuters-fréttastofuna. Bildt sagði ennfremur að orðið hlutleysi ætti ekki Iengur við sem heildarlýs- ing á þeirri utanríkis- og öryggis- málastefnu sem Svíar hygðust framfylgja á þessum áratug. „Við stöndum vissulega fyrir utan hern- aðarbandalög en gagnstætt því sem áður var, er við reyndum að forðast utanríkismála- og varnarmálasam- vinnu af öilu tagi, höfum við nú mikinn áhuga á slíku," sagði Bildt. Hann sagði það vera skoðun sína að nú væri í auknum mæli litið á Svíþjóð sem land þar sem breyting- ar ættu sér stað er væra hluti af norður-evrópskri endurreisn. Sú endurreisn væri þríþætt og byggð- ist á væntanlegri aðild Norðurland- anna að Evrópubandalaginu, ná- lægð þeirra við Eystrasaltsríkin og stefnubreytingu frá miðstýringu í átt til markaðsbúskapar. „Norður- löndin munu gerast aðilar [að EB]. Við höfum þegar skilað inn um- sókn, Finnar ætla að sækja um og fyrr fremur en síðar munu Norð- menn gera það,“ sagði Bildt. Á þriðjudag í næstu viku heldur Carl Bildt í fimm daga opinbera heimsókn til Bandaríkjanna og verður hann fyrsti íhaldsmaðurinn í því embætti til að fara í slíka heimsókn til Bandaríkjanna. Mun hann meðal annars eiga fundi með George Bush Bandaríkjaforseta, James Baker utanríkisráðherra, Alan Greenspan seðlabankastjóra, Nicholas Brady fjármálaráðherra og Boutros Boutros Ghali, fram- kvæmdastjóra Sameinuðu þjóð- anna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.