Morgunblaðið - 14.02.1992, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. FEBRÚAR 1992
17
Samstarfsnefnd félaga aldraðra í Reykjavík: foKo 0 0 0 Ö 0 0 0 Ó
Ríkið annar ekki þörf
fyrir hjúkrunarrými
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Fulltrúar í Samstarfsnefnd félaga aldraðra I Reykjavík. A myndinni
eru talið frá vinstri: Magnús H. Magnússon, formaður Samtaka aldr-
aðra, Bergsteinn Sigurðarson, formaður Félags eldri borgara, Gyða
Jóhannsdóttir, fulltrúi húsfélagsins Gimli, Guðríður Olafsdóttir,
framkvæmdastjóri Félags eldri borgara og Ólöf Steingrímsdóttir,
fulltrúi húsfélagsins Breiðabliks.
SAMSTARFSNEFND félaga
aldraðra í Reykjavík telur að
eins og nú horfir sé tilgangs-
laust að gera ráð fyrir því að
hið opinbera fullnægi þörf aldr-
aðra fyrir hjúkrunarrými, og á
meðan aðeins helmingur þeirra
sem þörf hafi á komist inn á
ríkisreknar stofnanir sé öldr-
uðu fólki stórlega mismunað.
Telur nefndin að skortur á
hjúkrunarrými og umönnun
fyrir aldraða hafi komið í veg
fyrir að eðiileg tilfærsla verði
í þjónustuíbúðum fyrir aldraða,
þannig að stór hluti íbúanna
verði fólk sem haldið er ýmsum
hrörnunarsjúkdómum, og þann-
ig geti skapast þar óæskilegt
ástand. Þessa sé þegar farið að
gæta í elstu sambýlishúsunum
fyrir aldraða, en meðalaldur
íbúa í þeim er nú 75-80 ár. Sam-
starfsnefndin er skipuð for-
mönnum og fulltrúum félaga
sem byggt hafa þjónustuíbúðir
fyrir aldraða í Reykjavík og hún
hefur kannað möguleika á þvi
að félögin stæðu sameiginlega
að því að byggja 60 umönnun-
ar- og hjúkrunarrými og hefur
verið óskað eftir lóð hjá Reykja-
víkurborg undir slíka byggingu.
Aðilar að Samstarfsnefnd félaga
aldraðra í Reykjavík eru Samtök
aldraðra, Félag eldri borgara, hús-
félagið Breiðablik, húsfélagið Rétt-
arholt og húsfélagið Gimli. Nefndin
hefur starfað frá því í janúar á síð-
astliðnu ári til þess að leita lausnar
á þeim vanda sem.fólginn er í skorti
á hjúkrunarrými fyrir aldraða. Að
sögn Gyðu Jóhannsdóttur, tals-
manns samstarfsnefndarinnar, hef-
ur kostnaður við byggingu vist- og
hjúkrunarrýma verið kannaður af
nefndinni, og voru arkitektar
Sunnuhlíðar í Kópavogi fengnir til
þess að framreikna byggingar-
kostnað hjúkrunarheimilisins þar.
„Sunnuhlíð er mjög vinalegt
hjúkrunarheimili og samkvæmt
upplýsingum arkitektanna má
reikna með að sambærilegt hús með
búnaði sem uppfyllir ýtrustu kröfur
nútímans kosti um fjórar og hálfa
milljón króna á hvern vistmann.
Er þá miðað við 38 fermetra brúttó-
flatarmál í eins og tveggja manna
herbergjum. Þegar hins vegar var
tilkynnt um byggingu hjúkrunar-
heimilisins Eirar í Grafarvogi kom
fram að áætlaður kostnaður á hvert
legurými þar yrði um átta milljónir
króna,“ sagði hún.
Gyða sagði að í ljós hefði komið
að aldrað fólk sem einhveiju fengi
ráðið væri ófúst til þess að selja
húsnæði sitt, og dæmi væru um að
þjónustuíbúðir hefðu staðið auðar
nokkur ár eftir að eigendur þeirra
væru komnir inn á öldrunarstofnan-
ir. Af þessum íbúðum væru greidd
Tilefni málþingsins er endurskoð-
un laga um stjórn fiskveiða. Ljóst
er að fyrirkomulag veiðanna er eitt
mikilvægasta mál þjóðarinnar og
er brýnt að fram fari málefnaleg
umræða um helstu atriði sem því
tengjast.
A málþinginu verða flutt fimm
erindi sem hvert um sig fjalla um
einstaka þætti fiskveiðistjórnar og
húsgjöld og fjármagnskostnaður
sem gæti numið 10-15 þúsund
krónum á mánuði, en þetta hefði
verið túlkað á þann hátt að fólk
vildi halda eign sinni af öryggis-
ástæðum og löngun til að eiga sam-
astað.
„Þetta ástand verður áfram hér
í Reykjavík eins og undanfarin ár
ef ekki verður einhver stefnubreyt-
ing. Þar sem þjónustuíbúðirnar
renna út eins og heitar lummur
væri það eðlileg þróun að í stað
þjónustuíbúðarinnar eða einbýlis-
hússins sem ekki er lengur þörf
fyrir geti aldraðir með fjármagns-
flutningi í gegnum bankakerfið sett
peninga í sitt eigið umönnunar- og
hjúkrunarrými. Með því móti, og
með auknu frelsi fyrir vistmepn til
þess að velja og hafna, yrði öldr-
unarstofnunum veitt meira aðhald
í því að skila þjónustunni til neyt-
andans. Eignarhluta sinn fengi eig-
andi síðan endurgreiddan með verð-
bótum samkvæmt mati eða erfingj-
ar hans að honum látnum. Þetta
er að minnsta kosti viðfeldnari leið
en að reiða fram gjafir til þess að
fá pláss á öldrunarstofnunum, en
margir eru fúsir til að leggja fram
fé ef þeim er tryggt hjúkrunar-
rými,“ sagði Gyða.
Guðríður Olafsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Félags eldri borgara,
segir skortinn á hjúkrunarrými fyr-
ir aldraða hafa fárið sívaxandi að
undanförnu, og nú sé svo komið
að farið sé að flytja fólk af höfuð-
borgarsvæðinu hreppaflutningum
út á land á hjúkrunarstofnanir.
„Ég hef upplýsingar um að búið
sé að dæma mörg hundruð manns
eftir vistunarmati sem ættu' að fara
á stofnanir en komast hvergi. Þetta
hefur í mörgum tilfellum leitt til
þess að aldraðir hafa lent á sjúkra-
verða almennar umræður að þeim
loknum. Þeir sem flytja erindi verða
Birgir Þór Runólfsson, Sigfús Jóns-
son, Snjólfur Ólafsson, Ragnar Árn-
ason og Þorvaldur Gylfason. Fund-
arstjóri verður Gísli Pálsson.
Ráðstefnan verður haldin í Nor-
ræna húsinu í dag, föstudaginn 14.
febrúar og hefst kl. 13.15.
húsum, og bráðasjúkrahúsin hafa
verið notuð til að bjarga málunum.
Nú sýnist manni hins vegar að þau
verði fljótlega útilokuð fyrir eldra
fólk. Aldraðir og þeir sem þá ann-
ast eru því mjög öryggislausir og
þeir geta ekki treyst á að fá hjálp
þegar hennar er þörf. Þess vegna
erum við að reyna að koma með
þessa nýju hugmynd um að fá lóð
fyrir hjúkrunarheimili sem kannski
yrði tvískipt, þannig að hluti heimil-
isins væri herbergi eða íbúðir með
þjónustu, en hinn hlutinn yrði með
venjulegu fyrirkomulagi. Þá má
einnig hugsa sér að breyta hluta
af því þjónustuhúsnæði sem þegar
er til staðar í öldrunarheimili með
léttri hjúkrun. Þar yrði um einhvers
konar millistig að ræða þar sem
fólk fengi aðhlynningu, svo framar-
lega sem það sé ekki svo veikt að
það þurfi á annarskonar þjónustu
að halda,“ sagði hún.
Bergsteinn Sigurðarson, formað-
ur Félags eldri' borgara, sagðist
telja að aukið hjúkrunarrými væri
brýnasta nauðsynin í hagsmuna-
málum aldraðra hvað varðar
heilsufar og umönnun. „Þó borginni
hafi verið skipt í sex hverfi sem
eigi að annast heimilisþjónustu og
heilsugæslu, þá er sú starfsemi
ekki fullmönnuð og raunverulega í
molum. Þess vegna finnst okkur
nauðsynlegt að knýja á með að fá
fleiri hjúkrunarheimili og að borgin
láti þessum félögum í té lóð og
aðstoði við uppbyggingu og rekstur
hjúkrunarheimilis. Við höfum rætt
þetta mál við borgina, en hún er
hins vegar ekki reiðubúin til að láta
okkur í té lóð að svo stöddu. Það
er kannski mesti þröskuldurinn,“
sagði hann.
Magnús H. Magnússon, formað-
ur Samtaka aldraðra, sagðist telja
fljótvirkustu og ódýrustu leiðina til
að bæta ástandið í öldrunarþjónustu
vera að efla stórlega heimahjúkrun
og heimilisaðstoð. Þannig gæfist
fólki kostur á að dvelja á heimili
sínu ef það vildi, hvort sem um
væri að ræða eldri íbúðir eða sér-
hannað þjónustuhúsnæði.
„Það verður þó að vera einhver
staður sem fólk getur treyst því að
komast á, ef veikindi þess eru orðin
mikil. Mér fínnst mest nauðsyn á
að fá hjúkrunarheimili sem ekki er
með mjög þunga sérþjónustu, þann-
ig að mögulegt sé að gera þetta
talsvert ódýrara en þau hjúkrunar-
heimili sem Reykjavíkurborg hefur
staðið að og er með í farvatninu.
Það eru margir sem eru í þjónustu-
íbúðum í dag sem sjá fram á að
þeir geti ekki búið þar lengur, og
því væri upplagt fyrir þá að geta
flutt hluta af eignum sínum í þess-
um íbúðum yfir í hjúkrunarheimili
til að tryggja að þeir fái einhveija
umönnun," sagði Magnús.
Málþing um stjórn fiskveiða:
Fiskveiðiarðurimi
og skipting hans
SJÁVARÚTVEGSSTOFNUN Háskóla íslands heldur málþing um
stjórn fiskveiða í dag. Á málþinginu verður fjallað um fiskveiðiarð-
inn og skiptingu hans.
IKREPPUNNI