Morgunblaðið - 14.02.1992, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. FEBRÚAR 1992
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Halldór H. Jónsson borinn tíl grafar
ÚTFÖR Halldórs H. Jónssonar, arkitekts og
stjómarformanns Eimskipafélags íslands, fór
fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík í gær.
Sr. Auður Eir jarðsöng, en biskup íslands,
herra Ólafur Skúlason, fór með lokabæn,
kastaði rekunum og flutti blessun. Líkmenn
voru Davíð Oddsson, Jóhannes Nordal, Hörð-
ur Sigurgestsson, Óttarr Möller, Indriði Páls-
son, Konráð Guðmundsson, Baldvin Jónsson
og Erlingur Þorsteinsson.
VEÐUR
VEÐURHORFUR I DAG, 14. FEBRUAR
YFiRLIT: Um 300 km suðaustur af landinu er 975 mb laegð sem þok-
ast austur og grynnist en fyrir norðaustur strönd Grænlands er 1017
mb hæð. Við Hvarf er nærri kyrrstæð 960 mb laegð.
SPÁ: Suðaustanátt. Skúrir með suðurströndinní, en bjart veður ann-
ars staðar fram eftir degi. Hiti 0-5 stig víðast hvar.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á LAUGARDAG: Suðlæg átt og fremur milt veður. Smá skúr-
ir eða slydduél sunnan- og vestanlands en léttir til norðanlands og
austan.
HORFUR Á SUNNUDAG: Suðaustanátt, hvöss og slydda eða rigning
sunnanlands og vestan, en hægari og þykknar upp norðaustanlands.
Htýnandi veður í bili, en kólnar aftur með kvöldinu.
Svarsími Veðurstofu íslands — Veðurfregnir: 990600.
Heiðskirt Léttskýjað Hálfskýjað Skýjað
/ / /
/ /
/ / /
Rigning
* / *
* /
/ * /
Slydda
* * *
* *
* * *
Snjókoma
Alskýjað
V $ V
Skúrir Slydduél Él
Sunnan, 4 vindstig.
Vindörin sýnir vindstefnu
og flaðrimar vindstyrk,
heil fjööur er 2 vindstig.
10° Hitastig
V Súld
s Þoka
itig..
FÆRÐ A VEGUM:
Greiðfært á vegum í nágrenni Reykjavíkur. Fært er um Hellisheiði og
Þrengsli og Mosfellsheiði er fær. Vegir á Suðurtandi eru greiöfærir og
í dag var mokaður snjór af veginum með Suðausturströndinni og er
nú fært öllum bílum austur á Austfirði. Á Austfjörðum er fært um
Fagradal og Fjarðarheiði og jeppafært um Vatnsskarð. Oddsskarð er
ófært en verður mokað á morgun. Greiðfært er fyrir Hvalfjörð og um
Borgarfjörð, Snæfellsnes og Dalí og vestur í Reykhólasveit. Bratta-
brekka er fær. Fært er frá Patreksfirði til Tálknafjarðar en Kleifaheiði
og Hálfdón aðeins fær jeppum og stórum bílum. Ágæt færð er yfir
Holtavörðuheiði og til Hólmavíkur og Drangsness, en Steingrímsfjarðar-
heiði er aðeins fær jeppum og stórum bílum. Þaðan er svo fært til
ísafjarðar en hálka er á þeirri ieíð. Breiðndalsheiði er ófær en fært á
miili Þingeyrar og Flateyrar og einnig ísafjarðar og Súgandafjarðar.
Vegir á Norðurlandi eru færir, t.a.m. til Siglufjarðar og Akureyrar og
þaðan til ólafsfjarðar. Einnig eru vegir í Þingeyjarsýsium færir, þar é
meðal í Mývatnssveit og með ströndinni til Þórshafnar, en þaðan er
fært jeppum og stórum bílum til Vopnafjarðar. Vegagerðin
w* VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12.00 í gær að ísl. tíma hití veður Akureyri 3 hálfskýjað Reykjavík 3 skýjað
Bergen 7 halfskýjað
Helsinkl 0 skýjað
Kaupmannahöfr 8 alskýjað
Narssarasuaq 2 skafrenningur
Nuuk -r10 alskýjað
Ósló 2 súld
Stokkhólmur 1 slydda
Pórshöfn 6 léttskýjað
Algarve 15 heiðskirt
Amsterdam 8 hálfskýjað
Barcelona 14 skýjað
Beriín 11 rigning
Chicago 42 snjókoma
Feneyjar vantar
Frankfurt ð rigning
Glasgow 7 skýjað
Hamborg 8 skýjað
London 9 skýjað
LosAngeles 14 skýjað
Lúxemborg 7 skýjað
Madrid 11 léttskýjað
Malaga 17 léttskýjað
Mailorca 16 tóttskýjað
Montreal *18 skýjað
NewYork -r4 alskýjað
Oriando 12 þoka
París 10 skýjað
Madeira vantar
Róm 14 þokumóða
Vfn 11 tóttskýjað
Washington 44 snjókoma
Winnipeg 410 snjókoma
IDAGkt. 12.00
Heimild: Veöurstofa Islands
(Byggt á veðurspá kl. 16.15 i gær)
9 manns sagt upp
í Þjóðleikhúsinu
Um sama fólk að ræða og í fyrra
STEFÁN Baldursson, Þjóðleikhússtjóri, hefur sagt upp níu fastráðnum
starfsmönnum leikhússins og taka uppsagnirnar gildi frá 1. september
næstkomandi. Uppsagnirnar taka til tveggja leikstjóra, sex leikara og
eins annars starfsmanns leikhússins. Fólkinu var áður sagt upp á síð-
asta ári, en uppsagnirnar voru dregnar til baka af fráfarandi þjóðleik-
hússtjóra, Gísla Alfreðssyni.
Stefán sagði að þarna væri um
að ræða sömu ákvörðun og í fyrra
og eins og hann hefði lýst yfir í fyrra-
vor stæði sú ákvörðun óhögguð. Stef-
án sagði að haft hefði verið samráð
við ríkislögmann um hvernig staðið
væri að uppsögnunum nú. Um væri
að ræða rökrétt framhald af fyrri
ákvörðun. „Þetta er ákveðin upp-
stokkun á samsetningu starfsmanna-
hópsins sem fylgir leikhússtjóra-
skiptum. Það eru fyrst og fremst list-
rænar forsendur sem búa þarna að
baki. Það er ekki verið að fækka
starfsfólki," sagði Stefán.
Hann sagði að eins og komið hefði
fram hjá honum í fyrra væri sam-
setning leikarahópsins aldurslega
orðin fremur óhagstæð og með þessu
móti væri verið að breyta samsetn-
ingu leikhópsins út frá listrænu mati
hans og jafnframt í ákveðnu hagræð-
ingarskyni. Hann sagði að búið væri
að ráða fólk í stað þess sem sagt
hefur verið upp að hluta til.
Brynja Benediktsdóttir, leikstjóri,
var meðal þeirra sem fengu uppsagn-
arbréf. Hún segir að bréfin hafí kom-
ið óvænt í ábyrgð og með hraðpósti
á laugardaginn. „Þau voru að mestu
leyti samhljóða uppsagnarbréfunum
frá því í fyrra sem verðandi Þjóðleik-
hússtjóri sendi áður en hann varð
fullmektugur í embættinu. Eini mun-
urinn var sá að í þetta skipti þakk-
aði hann okkur fyrir unnin störf svo
nú geta allir séð að um er að ræða
fullbæran embættismann en ekki
einhvem venjulegan dóna eins og í
fyrra. Sérstaklega ef tekið er tillit
til þess að hann getur ekki verið að
þakka okkur störf undir sinni stjóm
þetta árið því hann hefur gætt þess
vandlega að enginn þeirra sem hann
reyndi að segja upp í fyrra fengi
nýtt verkefni þó við værum á launum
þennan tíma,“ sagði Brynja og bætti
við að í þessari stöðu, sem fastráðin
við Þjóðleikhúsið, hefði hún eðlilega
ekki getað tekið að sér ábyrgðarmik-
il verkefni s.s. leikstjórn áramótas-
kaupsins og hátíðarsýningu Halldórs
Laxness á Akureyri.
Brynja var spurð hvort hún hygð-
ist gera eitthvað sérstakt í málinu
og sagðist hún þá aðeins geta svarað
fyrir sig og Benedikt Ámasson leik-
stjóra. „Þar sem Bandalag háskóla-
manna hefur með okkar mál að gera
og fór strax fram á miskabætur þeg-
ar ólöglegu uppsagnimar áttu sér
stað vegna þess að þá strax var
starfsheiður okkar og starfsvett-
vangur svertur eftir áratuga farsælt-
starf við Þjóðleikhúsið," sagði hún.
„Við munum sannarlega gera eitt-
hvað í samvinnu við okkar stéttarfé-
lag því það á ekki að fara svona
með fólk.“
-----*---------
Umferðar-
slysum fjölg-
aði um 31%
Umferðarslysum hér á landi
fjölgaði mikið á síðasta ári. Slys
voru 758 í fyrra og þá létust eða
slösuðust samtals 1153. Árið 1990
slösuðust eða létust 881 í 564
slysum. Fjölgunin er 31%.
Tala látinna er svipuð í fyrra og
undanfarin ár. Árið 1990 létust 24
í 19 slysum, en 27 í 24 slysum í
fyrra. Fjölgun slasaðra er langmest
meðal þeirra, sem verða fyrir minni
háttar meiðslum, en meira slösuð-
um fækkar hlutfallslega miklu
minna. Mikið slasaðir voru 229 í
fyrra, en voru 324 að meðaltali á
ári næstu ellefu ár þar á undan.
897 teljast lítið slasaðir í fyrra, en
voru 646 árið á undan. Það er 39%
fjölgun.
Ferðaskrifstofurekstur Flugleiða:
Samkeppnin erfíð fyrir
aðrar ferðaskrifstofur
- segir Helgi Jóhannsson, formaður
Félags íslenskra ferðaskrifstofa
„ÞETTA er auðvitað erfið samkeppni fyrir aðrar ferðaskrifstofur, en
rúmlega 80 millj. kr. tapi hjá Úrvali-Útsýn árið 1990 var öllu sópað inn
til Flugleiða. Úrval-Útsýn byrjaði síðan árið 1991 með þvi að lækka
verð sitt um 20% og bjóða vildarkjör á öllum hlutum. Þetta er óheiðar-
leg staða að vera í, og það geta ekki aðrar ferðaskrifstofur unnið svona,“
segir Helgi Jóhannsson, forstjóri Samvinnuferða-Landsýnar og formað-
ur Félags íslenskra ferðaskrifstofa. íslaug Aðalsteinsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Ferðaskrifstofu Reykjavíkur, segist telja að þarna sé um
orettmæta viðskiptahætti að ræða.
Eins og fram kom í viðtali við
Sigurð Helgason, forstjóra Flugleiða,
í Morgunblaðinu í gær, var tap á
ferðaskrifstofurekstri Flugleiða hf. á
árunum 1985-1990 alls um 191 millj-
ón króna á verðlagi í dag, og kom
langmestur hluti þess til á árinu
1990. Hann vísaði því hins vegar á
bug að Flugleiðir hafi niðurgreitt
ferðaskrifstofureksturinn með því að
greiða upp tap af honum.
Helgi Jóhannsson sagði að ef ein-
hver önnur ferðaskrifstofa en Úrval-
Útsýn hefði orðið að bera rúmlega
80 millj kr. tap þá héfði það fyrsta
sem hún hefði getað gert ekki verið
það að bjóða 20% verðlækkun á öllum
ferðum.
„Það er hins vegar hægt ef þú
getur alltaf hreinsað til á meðan
aðrar ferðaskrifstofur verða að búa
við þennan vanda og reyna að klóra
sig út úr honum. Þetta er sannarlega
erfið samkeppni og óheiðarleg staða
að vera í,“ sagði hann.
Aðspurður hvort éigendur Sam-
vinnuferða-Landsýnar hefðu lagt
fyrirtækinu til fé sagði Helgi svo
alls ekki vera. Þeir hefðu tilkynnt
að ef ekki tækist að reka ferðaskrif-
stofuna án þess að illa gengi yrði
henni lokað. „Það er engin miskun
í þessu og þannig hefur þetta verið
með aðrar ferðaskrifstofur," sagði
hann.
íslaug Aðalsteinsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Ferðaskrifstofu
Reykjavíkur, sagði að ef svo væri
að Flugleiðir hefðu greitt upp tap
Úrvals-Utsýnar þá væri um órétt-
mæta viðskiptahætti að ræða. „Það
verður hver að sníða sér stakk ’éftir
vexti, og það verðum við að gera sem
stöndum í einkarekstrinum, en mun-
urinn hjá Úrvali-Útsýn er að móður-
félagið getur alltaf hlaupið undir
bagga. Þegar einhver fer að selja
undir kostnaðarverði gerir það þeim
auðvitað afskaplega erfitt fyrir sem
eru að selja svipaða vöru,“ sagði hún.
I
I
I
\
I
/
/
I