Morgunblaðið - 14.02.1992, Qupperneq 5
5
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. FEBRÚAR 1992
Mótmæli grunnskólanemenda á Lækjartorgi:
Þrðstur Gestsson.
Lovísa Hannesdóttir og Helga
Jónsdóttir eru nemendur í 8. bekk
Snælandsskóla. „Okkur fínnst það
ekki rétt að niðurskurðurinn bitni
á okkur. Við viljum hafa skólann
eins og hann er núna,“ sögðu þær.
Þær sögðu að ef skóladagurinn
yrði styttur myndi heimanám auk-
ast. „Þá væru meiri líkur á að fólk
næði ekki nógu góðum einkunnum
og menntunin yrði ekki eins góð.
Það á að gefa öllum tækifæri á
framhaldsnámi. Það er allt í lagi
NEMENDUR í 8., 9. og 10. bekkj-
um grunnskóla í Reykjavík fóru
í mótmælagöngu frá Miklatúni
að Lækjartorgi í gær, þar sem
Olafi G. Einarssyni, menntamála-
ráðherra, var afhentur undir-
skriftarlisti vegna mótmæla
grunnskólanemcnda við niður-
skurði í menntakerfinu. Þegar
menntamálaráðherra hafði veitt
listunum viðtöku varð hann fyrir
eggjakasti nokkurra úr hópnum
en stjórnendur fundarins báðu
hann þegar^ afsökunar á þessum
verknaði. Á milli 500 til 700
manns tóku þátt í mótmælunum.
í bréfi til ráðherra, sem fylgir
undirskriftarlistunum, segir m.a. að
grunnskólanemendum finnist að í
tillögum til breytinga á menntakerf-
inu felist niðurskurður á þeim
mannréttindum sem grunnskóla-
nemendur á íslandi hafi notið og
eigi að njóta. Ennfremur segir að
nemendur óttist afleiðingar þess ef
kennarastöðum verði stórlega
fækkað og ef sett verði lágmarks-
einkunn til inngöngu í framhalds-
skóla.
Eftir að skólafólkið hafði óskað
eftir nærveru ráðherrans með hróp-
um í um hálfa klukkustund kom
hann til fundarins og voru honum
afhentar um 4.000 undirskriftir.
Hann sagði að niðurskurðaraðgerð-
irnar væru ekki eins slæmar og
látið væri í ljós, þær væru aðeins
tímabundnar og ekki væri hjá þeim
komist. Nokkrir einstaklingar úr
fjöldanum köstuðu eggjum í mennt-
amálaráðherra er hann vék af fundi.
Þorri nemenda virtust þó vera reið-
ir vegna þessa og var ráðherrann
beðinn afsökunar.
Á ekki að skera meira niður
Þröstur Gestsson, nemandi í 10.
bekk Vogaskóla, tók þátt í mótmæl-
unum í gær. Hann sagði að nú
þegar væru nemendur í færri tímum
en þeir vildu. „Það er mjög lítið val
hjá okkur nú og það á eftir að verða
miklu verra ástand ef meira er skor-
ið niður, sérstaklega hjá minni skól-
unum,“ sagði Þröstur.
Hann sagði að það ætti frekar
að sameina minni skóla í sömu
hverfum en að minnka kennslu enn
meira. „Nú þegar hefur sæmræmd-
um prófum verið fækkað niður í
aðeins tvö og við viljum vera betur
undirbúin fyrir framhaldsnám en
þetta,“ sagði Þröstur.
Viljum hafa skólann
eins og hann er
að hafa einhver skilyrði til inngöngu
í framhaldsskólanna en þau mega
heldur ekki vera of mikil,“ sögðu
þær.
Lovísa og Helga tóku jafnframt
fram hversu leiðinlegt þeim þótti
eggjakastið á menntamálaráðherra.
„Svona framkoma er ekki rétt og
verður til þess að eyðileggja fyrir
öllum hinum. Það voru aðeins örfá-
ir sem stóðu fyrir þessu," sögðu
þær.
herra tekur við
undirskriftarlist-
unum. Á innfelldu
myndinni víkur
hann af fundi með
eggjaslettur á föt-
um sínum.
lísadagar
Fallegar flísar prý5a
hvert heimih.
Þær eru ekki bara fallegar,
heldur líka sterkasta efni á
veggi, sem
völ
er á.
Vi5 seljum næstu daga mikiö
gólf- og veggflísum
á heimsþekktum
öendum^ me5 10-50%
afslætti.
Mimií> KYggiiigavelliiiia.
25% iiI og <kílirsiöö\;ii'
í alll að 2 ár.
■%
málmngarPLJ
pjðnastan hf
akranesi
M
METRO
í MJÓDD
G.Á. Böðvarsson hf.
SELFOSSI
Grensásvegi 11 • Reykjavik • Simi 83500
Eggjum var kastað í
menntamálaráðherra
Menntamálaráð-