Morgunblaðið - 14.02.1992, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 14.02.1992, Qupperneq 10
* r KAUPSTAÐUR /miklioirdur I MJODD ALLAR BÚÐIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. FEBRÚAR 1992 Kaup á laxveiðileyfum færð sem rísna: Mat ræður hvort hægt er að gjald- færa kostnað - segir Friðrik Sophusson fjármálaráðherra FJÁRMÁLARÁÐHERRA efast um að kaup stjórnenda fyrirtækja og stofnana á laxveiðileyfum sem færð eru sem risna fyrirtækjanna og þar með til frádráttar frá tekjum hafi mikil áhrif á verð laxveiði- leyfa. Gylfi Pálsson segir í grein um stangveiði, sem birtist í síðasta sunnudagsblaði Morgunblaðsins, að þessi kaup laxveiðileyfa skekki viðskiptamyndina og spenni verðið upp. Segir Gylfi ljóst að „Jón Jonsson meðallaunamaður" keppi ekki við þessa aðila um laxveiði- leyfin á jafnréttisgrundvelli. Friðrik segir að mat á eðli kaupa á Iaxveiðileyfum ráði því hvort fyrirtæki, hvort heldur það er opin- bert eða í einkaeign, geti fært það sem risnu og rekstrarkostnað. Friðrik Sophusson sagði í samtali við Morgunblaðið af þessu tilefni að hann vissi ekki hvaða áhrif þessi kaup á laxveiðileyfum hefðu á verð- ið en efaðist um að þau væru mik- il. „Verðið ræðst af markaðnum og held ég að útlendingarnir ráði miklu um verðið á besta veiðitímanum í bestu laxveiðiánum," sagði Friðrik. „Það sem skiptir máli þegar litið er á veiðileyfi sem rekstarkostnað fyrirtækja er hvort um er að ræða skattskyld fyrirtæki eða ekki,“ sagði Friðrik þegar hann var spurður um í hvaða tilvikum hægt væri að færa kaup á veiðileyfum sem frádráttar- bæra risnu. Hann sagði að skattayf- irvöld hefðu engin afskipti af opin- berum fyrirtækjum sem ekki væru skattskyld. „Það eru eflaust nokkur dæmi um að viðskiptavinum stofn- ana er boðið í laxveiði. Eftirlit með því hvort eðilegt sé að telja útgjöld- in rekstrarkostnað er hjá því ráðu- neyti sem stofnunin heyrir undir og Ríkisendurskoðun. Ef talið er að um sé að ræða óeðlilega risnu eiga þess- ir eftirlitsaðilar að gera athuga- semdir. Ákvæði skattalaga gilda hins vegar um skattskyld fyrirtæki, hvort sem þau eru opinber eða í einkaeign. Samkvæmt skattalögum má draga rekstrarkostnað frá tekj- um og rekstrarkostnaðurinn er skil- greindur þannig að hann sé þau gjöld sem ganga til að afla tekn- anna, tryggja þær og halda þeim við. Þess vegna skiptir öllu máli að hægt sé að sýna fram á að sá kostn-' aður sem fyrirtækin leggja í sé þess eðlis. Hægt er að hugsa sér mörg dæmi um kaup á veiðileyfum sem flokkast óumdeilanlega undir frá- dráttarbæra risnu. Til dæmis ef fyr- irtæki býður erlendum aðila sem það á mikil viðskipti við í veiði. Einnig er hægt að hugsa sér dæmi um hið gagnstæða, til dæmis þegar yfir- menn tveggja fyrirtækja bjóða hvor öðrum í veiði til skiptis á kostnað fyrirtækjanna án þess að fyrirtækin eigi með sér veruleg Viðskipti. Kjarninn er sá hvort líta megi á þessi útgjöld sem eðlilegan þátt í að afla fyrirtækinu tekna. Það gætu verið ástæður til að líta á svipaðan hátt á fyrirtæki og stofnanir sem ekki eru skattskyld. Hugsum okkur að ráðherra komi til íslands í opin- beru boði einhvers ráðherra og einn þáttur i dvölinni væri að fara í lax- veiði, nú eða sjóstangaveiði. Ef talið er að þetta sé liður í eðlilegum sam- skiptum ráðherranna og til þess gert að styrkja stöðu landsins er væntanlega ekki gerð athugasemd við slík útgjöld. Ef hins vegar starfs- menn ráðuneyta eða stofnana kaupa veiðileyfi til eigin nota eða gesta sinna án þess að það skili sér með þeim hætti sem ætlast er til hjá eink- afyrirtækjum, hlýtur viðkomandi starfsmaður sjálfur að eiga að greiða veiðileyfið," sagði Friðrik. Kammertónlist í Bústaðakirkju FJÓRÐU tónleikar á 35. starfsári Kammermúsíkklúbbsins verða í Bústaðakirkju sunnudaginn 16. febrúar og hefjast þeir klukkan 20,30. Flutt verða verk eftir Benj- amin Britten, Hafliða Hallgríms- son og Franz Schubert. Flytjend- ur á tónleikunum er Mistry-kvart- ettinn frá London. Þeir, sem leika í Mistry-kvartett- inum eru Jagdish Mistry, fiðla, Char- les Sewart fíðla, Caroline Henbest lágfiðla og Sarah Butcher knéfiðla. Ennfremur leikur Hafliði Hallgríms- son á knéfiðlu. í fréttatilkynningu frá Kammermúsíkklúbbnum færir hann Bristish Council bestu þakkir fyrir fjárstuðning til þessa tónleika- halds. Verkið eftir Britten, sem fiutt verður er Strengjakvartett nr. 3, op. 94 (1975) og verkið eftir Franz Sc- hubert, sem flutt er eftir hlé, er Kvintett fyrir 2 fiðlur, lágfiðlu og 2 knéfiðlur í C-dúr, op. 163, D.956 (1828) Verk Hafliða Hallgrímssonar heit- ir Fjórir þættir fyrir strengjakvartett (In memoriam Bryn Turley (1990-91). Kiúklingar 10 í ks. kr. kg. Pizza Jambon 300 g. Gróf Samsölu- samlokubrauð MS bruður 250 g. MAARUD skrúfur, salt og P'Par 70 9- Danskt marmelaði /inn n Sinalco 1,5 lítri SCHOLTES OFNAR - ALDREI GLÆSILEGRI! Með fullkominni hitastjórn og nákvæmu loftstreymi nærðu þeim árangri við baksturinn sem þig hefur alltaf dreymt um. Ofnsteiking 11 Með innrauðum hita og margátta loftstreymi færðu steikina safaríka og fallega brúnaða. » * » i • i i i i i i i i »»»*»» » « i i * i i tttttjtttttjtt Glóðsteiking Með innrauðum hita og loftstreymi, sem líkir eftir aðstæðum undir beru lofti, nærðu útigrillsáhrifum allan ársins hring.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.