Morgunblaðið - 14.02.1992, Síða 34
34
V
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. FEBRÚAR 1992
Leikendur: Sólveig Arnarsdóttir, Haraldur
Hallgrímsson, Ingvar Sigurðsson, Þorlákur Kristins-
son, Eggert Þorleifsson, Björn Karlsson,
Magnús Ólafsson.
Leikstjórn og handrit: Ásdís Thoroddsen.
Sýndkl. 5,7, 9og11.
Miðaverð kr. 700.
BILUNÍBEINNI
ÚTSENDINGU
★ ★ ★ Pressan
**** Bíólínan
* ★ -k'/i HK DV
★ ★ ★ ★ S.V. Mbl.
Sýnd kl. 6.40 og 9.
Bönnuði. 14ára.
Framlag íslands til
Óskarsvcrðlauna.
Sýnd i'B-sal kl. 5.
FRUMSYNIR
SPENNU-TRYLLIRINN
LIKAMSHLUTAR
ÞegarBob fékk
ágræddan nýjan
handlegg...
Sýnd kl. 5.10, 9.10 og
11.10.
Bönnuð innan 12 ára.
HAI^rePt >N ffORD
RECmRDING
HENRY
Sýnd kl. 9.10 og
11.10.
Bönnuð i. 12 ára.
Sýnd 5.10 og 7.10
Fáar sýningar eftir.
TVOFALTLIF
VERÓNIKU
Það er stórkostlegt hvað laeknavísindin geta.
En hvað gerist þegar hönd af morðóðum manni er grædd á
ósköp venjulegan mann og fer síðan að ráðskast með hann?
AI. MBL.
'-'4 >&k
m CAMNIÍ
*ÉL t*
DOUBLE LIFE'a
oí veronika *
ATH.: SUM ATRIÐI i MYNDINNI ERU EKKI FYRIR VIÐKVÆMT FÓLK
Leikstjóri: Erik Red. Aðalhlutverk: Jeff Fahey, Brad Dourif.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. Bönnuð innan 16 ára.
Sýnd kl. 7.05 og
11.05.
Fáar sýningar eftir.
★ ★ ★ SV. MBL,
Sýndkl. 7.10.
Sýnd kl.7.10.
Fáar sýningar eftir.
Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson
Meðal sýningargripa í Kringlunni um helgina verður Jeep, jeppi
Jóns Eyjólfssonar, sem komst alla leið á Hvannadalshnúk. Hann er
meðal margra tröllslegra jeppa og breyttra sendibíla á sýningunni.
Sýning á
risajeppum
í Kringlunni
MÖRG af stærstu hálendisferða-
tækjum landsins verða til sýnis
í Kringlunni og Borgarkringl-
unni um helgina en þá sýna
bílaumboðin og félagar úr ferða-
klúbbnum 4x4 nýjustu jeppana á
markaðnum. Meðal sýningar-
gripa eru nýsmíðaðir jeppar og
jeppinn sem komst alla leið á
Hvannadalshnúk.
Félagar úr 4x4 klúbbnum verða
með kynningu á hálendisferðum og
leiðbeiningar til hálendisferðalanga
á farartækjum. Þá mun torfæru-
meistarinn Árni Kópsson árita plak-
öt ásamt akstursíþróttamanni árs-
ins, Karli Gunnlaugssyni. í bland
við jeppasýninguna verða sýningar-
atriði með eróbikk-hópi, karate-
mönnum og óvenjulegur vélsleði
verður sýndur, sem er sérsmíðaður
til keppnisaksturs.
Neskaupstaður:
Bæjarráð mótmæli að Flug-
leiðir hætti áætlunarflugi
Neskaupstað.
FLUGLEIÐIR ætla að hætta áætl-
unarflugi til Neskaupstaðar i maí
næstkomandi og ætla að skila inn
sérleyfi slnu sem gildir til ársins
1997. Á fundi bæjarráðs miðviku-
daginn 5. febrúar var þessari
ákvörðun mótmælt harðlega og
ákveðið að leita allra leiða til að
tryggja að flugsamgöngur milli
Neskaupstaðar og Reykjavíkur
legðust ekki af.
Ályktun bæjarráðs Neskaupstaðar
er svohljóðandi: „Bæjarráð Neskaup-
staðar mótmælir harðlega þeirri
ákvörðun framkvæmdastjórnar
Flugleiða að skila inn sérleyfi sínu
til áætlunarflugs milli Norðfjarðar
og Reykjavíkur. Bæjarráðið telur
óeðlilegt að Flugleiðir geti einhliða
og fyrirvaralítið tekið slíka ákvörðun.
Bæjarráð Neskaupstaðar mun
ekki sætta sig við að flugsamgöngur
Morgunblaðið/Ágúst Blöndal
Fokkervél Flugleiða á Norðfjarðarflugvellinum.
milli Neskaupstaðar og Reykjavíkur Bæjaryfirvöld hafa þegar hafið
verði aflagðar og munu bæjaryfir- óformlegar viðræður við önnur flug-
völd í Neskaupstað með öllum tiltæk- félög um að annast flug á þessari
um ráðum tryggja áframhald þessara leið.
flugsamgangna." - Ágúst.
Tölvusýning haldin
í Verslunarskólanum
HALDIN verður í húsakynnum Verslunarskóla íslands í Ofanleiti 1
tölvusýning á vegum tölvuklúbbs Nemendafélags Verslunarskóla
íslands, laugardaginn 15. febrúar.
Á sýningunni munu eftirtalin
fyrirtæki sýna vörur sínar: Heimilis-
tæki (frumsýning á nýrri tölvulínu),
Einar J. Skúlason, Örtölvutækni,
Tæknival, Sameind, Þór, Japis og
Hvesta. Auk þeirra munu einstak-
lingar sýna vélar sínar. Sýndur
verður hug- og vélbúnaður fyrir
PC-, Atari-, Amiga- og Archimed-
es-tölvurnar.
Sýningin er opin frá 10 til 17.
Ragnheiður Hrafnkelsdóttir
Ragnheiður Hrafnkelsdótt-
ir sýnir í Nýlistasafninu
RAGNHEIÐUR Hrafnkelsdóttir
(Ránka) opnar myndlistarsýn-
ingu í neðri sölum Nýlistasafns-
ins, Vatnsstíg 3b, Reykjavík,
laugardaginn 15. febrúar kl.
16.00.
Ragnheiður nam við Skolen for
brugskunst í Kaupmannahöfn
1978-82 og var nemandi við Gerrit
Rietfeld akademíuna í Amsterdam
1982-84.
Á árunum 1989-91 stundaði
Ragnheiður MFA nám við Pratt
Institute í New York.
Þetta er fjórða einkasýning
Ragnheiðar. Fyrri sýningar voru
1983 og 1987 í Nýlistasafninu og
1988 í gallerí Svart á hvítu.
(Fréttatilkynning)