Morgunblaðið - 14.02.1992, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. FEBRÚAR 1992
37
4
4
4
4
4
4
4
4
4
fl
i
3
)
i
I
SUNDGARPAR Á ÞORRA
Utselnum bregður ekki við þó kalt sé í veðri enda vel í skinn kominn.
Hætt verði við förina
Askorun til Davíðs Oddssonar forsætisráðherra:
frá Sveini Rúnari Haukssyni:
I MIÐJUM önnum við að skera ís-
lenska velferð niður við trog hefur
Davíð Oddsson ákveðið að þiggja
boð Yitzhaks Shamirs, forsætisráð-
herra ísraelska aðskilnaðarríkisins,
og dvelja hjá honum í þijá. daga.
Ekki hefur verið upplýst hver til-
gangur ferðarinnar er.
Ymislegt er við þessa ferð að
athuga, sem við þegnar Davíðs get-
um velt fyrir okkur. Ljóst er, að
ísraelska ríkisstjórnin gerir allt
hvað hún getur til þess að ijúfa
einangrun sína á alþjóðavettvangi
og freista þess að fá beina og óbeina
viðurkenningu á aðskilnaðarstefnu
sinni og hernámi í Palestínu.
Hver er þessi Shamir sem Davíð
vill vingast við? Shamir var um
árabil eftirlýstur hryðjuverkamað-
ur, m.a. fyrir morðið á Bernadotte
greifa, sáttasemjara Sameinuðu
þjóðanna í Palestínu árið 1948.
Hryðjuverkasveitir zíonista, Irgun
og Stern, voru undir forystu Sham-
irs og Begins, sem átti einnig eftir
að verða forsætisráðherra í Israel.
Hryðjuverkasveitir þeirra frömdu
fjöldamorð á óbreyttum borgurum
og einnig á breskum hermönnum
og stjórnarerindrekum, er þeir
sprengdu Hótel Davíðs konungs
(King David Hotel) í Jerúsalem í
loft upp. Atburðir þessir vöktu óhug
um allan heim.
Annars er óþarft að leita langt
aftur í tímann til að skoða feril
þess hryðjuverkamanns sem valist
hefur til forystu Ísraelsríkis. Sham-
ir ber í dag höfuðábyrgð á bama-
morðum og misþyrmingum á íbúum
herteknu svæðanna.
Hvers eðlis er það ríki sem Davíð
vill gera eitt af þeim fyrstu sem
hann heimsækir sem forsætisráð-
herra okkar?
Sjálf löggjöf Ísraelsríkis mismun-
ar íbúum á grundvelli trúarbragða
og uppruna. Rétturinn er gyðinga,
hvaðan sem þeir koma úr heimin-
um. Aðrir verða að víkja, íbúar
Palestínu sem fyrir em, kristnir
arabar, múslimar og aðrir. Þetta
er grundvallaratriðið í framkvæmd
zíonismans.
Heimurinn hefur horft upp á þá
grimmd sem leiðir af slíkri stjórnar-
stefnu. Hrottaskapur ísraelskra
hermanpa á herteknu svæðunum
er afleiðing hennar, einnig landrán
ísraelsstjómar. Meira að segja
Bandaríkjastjórn hefur snúist gegn
landráni ísraela á herteknu svæð-
unum, sem og öll önnur ríki heims.
ísraelsher veitir svokölluðum „land-
nemum" fulltingi til að leggja undir
sig land Palestínumanna og reisa
þar víggirtar byggðir.
Áframhald þessarar stefnu, sem
brýtur í bága við öll alþjóðalög og
rétt, bendir ekki til þess að ísraels-
stjórn sé minnsta alvara með þátt-
töku í friðarviðræðum.
Ég skora á Davíð Oddsson að
láta ekki verða af heimsókn til ísra-
els við óbreyttar aðstæður. Ef ekki
verður við snúið, skora ég á Davíð
að láta ekki Shamir einan um að
leiða sig í sannleika um ástandið
þar eystra, heldur heimsækja einnig
herteknu svæðin og kynna sér milli-
liðalaust sjónarmið Palestínu-
manna. Annað væri honum og ís-
lensku þjóðinni til vansæmdar.
SVEINN RÚNAR HAUKSSON
formaður Félagsins Ísland-Palestína
ÚTSALA Á
DESCAMPS
handklæðum og sloppum ó olla fjölskylduna.
40-50% afsláttur
SffíMA
GLUGGATJÖLD
Síðumúla 35 og Kringlunni, sími 680333.
tTMSUSlLI
Húsgögn - stólar, sófar,
Montana hillueiningar.
Gluggatjaldaefni, bútar
gólfmottur, lampar o.fl.
Góður afsláttur
epcil
■ Faxafeni 7, sími 687733.
-
VELVAKANDI
KEPPNIS-
ÍÞRÓTTIR
Einar Vilhjálmsson
frá Seyðisfirði:
ÞEGAR hnefaleikar voru bann-
aðir, var mjög gumað af því,
að Island væri eina landið sem
það gerði. Mikið var talað um
skaðsemi þessarar íþróttar,
íþróttamannanna sjálfra
vegna. Fátítt var að þeir gættu
ekki handa sinna utan hrings-
ins.
Á síðari tímum hafa verið
teknar upp hermannaíþróttir
Asíumanna, þar sem högg,
spörk og margs konar önnur
fantabrögð eru iðkuð. Svo virð-
ist að iðkun þessara íþrótta
hafi færst í ríkum mæli til
skemmtistaða og í grennd
þeirra, þar sem hinn almenni
borgari og lögreglumenn eru
beittir þessum hermennsku-
brögðum. Kunnátta og þjálfun
þessara manna jafngildir því,
að þeir gangi vopnaðir gegn
vopnlausum og varnarlausum
manni.
Knattspyrna og handknatt-
leikur eru keppnisíþróttir, þar
sem andstæðar fylkingar
ganga hart fram í óvægnum
leik og slys eru tíð.
Fróðlegt væri að fá álit
lækna um þessi mál, til dæmis
slysatíðni hinna ýmsu íþrótta-
greina og hvers eðlis slysin
eru, hve alvarleg lyfjaneyslan
er í greinunum og hvers má
vænta í skapgerðareinkennum
iðkenda hverrar hreinar.
Eins er nauðsynlegt að lög-
regluyfirvöld gefi því gaum,
hvort rekja megi aukið ofbeldi
til vissra iðkenda einstakra
íþróttagreina og hafa þá í huga
hvort þar eru menn sem ekki
eiga þar heima.
Margir stjómmálamenn
sækja atkvæði í hóp íþrótta-
manna, með því að ausa al-
mannafé í hinar ýmsu stofnan-
ir og félög þeirra. Almannafé
væri betur varið til þarfari
hluta en ofurkapps í stríðs-
íþróttum, sem færa- þjóðinni
fjölda slasaðra manna á hveiju
ári. Skammt er að minnast
þess að forsætisráðherra tafð-
ist frá störfum vegna gamalla
meiðsla, sem hann hlaut í
íþróttum á yngri árum.
Er ekki nær að beina þeim
fjármunum sem í dag renna til
þessara slysaíþrótta til þarfari
verkefna, til dæmis mætti efla
heilbrigðisþjónustuna og
menntamálin, eða létta byrð-
inni af skattgreiðendum.
mmmmmmmaom
OPNUNARTIMI
Föstudaga
kl. 13-19
Laugardaga
kl.10-16
Aðra daga
kl. 13-18
ÚTSÖLU
BILDSHOFÐA 10
STÓRÚTSÖLU
MARKADURINN
VESTURLANDSVEGUR
Fjöldi fyrirtækja - gífurlegt vöruúrvai
STEINAR, hljómplötur - geisladiskar - kasettur • KARNABÆR, tískufatnaður herra og
dömu • SONJA, tískufatnaður • PARTÝ, tískuvörur • BOMBEY, barnafatnaður •
BLÓMALIST, allskonar gjafavörur • KÁPUSALAN, kvenfatnaður • STRIKIÐ, skór á
alla fjölkylduna • KJALLARINN/KÓKÓ, alhliða tískufatnaður • STÚDÍÓ, fatnaður •
SAUMALIST, allskonar efni • ÁRBLIK, peysur • Xog Z, barnafatnaður • ÉG OG PÚ,
undirfatnaður og margt fleira
FRÍTT
KAFR-
MYNDBA
NDAHORN
FYRR
BÖRNIN-
ÓTRÚLEGT
VERB
Með lágu verði, miklu vöruúrvali og
þátttöku fjölda fyrirtækja hefur
stór-útsölumarkarðurinn svo sannarlega
slegið í gegn og stendur undir nafni.
BÍLDSHOFÐI
STRAUMUR