Morgunblaðið - 14.02.1992, Síða 40

Morgunblaðið - 14.02.1992, Síða 40
 Rétti val- _ kosturitmi SJÓVÁnflALMENNAR MORGUNBLADID, ADALSTRÆTl 6, 101 REYKJAVÍK Sím 601100, FAX 691181, PÓSTHÓLF 1565 / AKUREYRl: HAFNARSTRÆTl 85 FOSTUDAGUR 14. FEBRUAR 1992 VERÐ I LAUSASOLU 110 KR. Kópavogur: Gangandi vegfarandi beið bana MAÐUR á áttræðisaldri beið bana í umferðarslysi í Kópavogi í gær. Hann var á gangi yfir Hafnarfjarðarveg þegar hann varð fyrir bifreið. Slysið var tilkynnt til lögregl- unnar í Kópavogi kl. 16.21. Mað- urinn gekk út á Hafnarfjarðarveg, rétt sunnan við brúna yfir Kárs- nesbraut, og varð fyrir bifreiðinni. Hann var fiuttur á slysadeild, en ’var látinn þegar þangað kom. Ekki er unnt að birta nafn mannsins að svo stöddu. Sjónar- vottar eru beðnir um að snúa sér til lögreglunnar í Kópavogi. Ríkisskattanefnd: 1.400 mál bíða úr- skurðar 125 mál afgreidd frá áramótum UM 1.400 kærur bíða nú úrskurðar hjá Ríkisskatta- nefnd að sögn Gunnars Jó- hannssonar formanns nefndarinnar. Nefndin hef- ur afgreitt samtals 125 mál frá áramótum. Að sögn Gunnars eru yfir- leitt kveðnir upp úrskurðir í 20-30 málum í hverri viku en hann segir að takmarkað- ar fjárveitingar og mannafli á skrifstofu nefndarinnar geri ekki kleift að hraða málsmeð- ferð meira en verið hefur. Gunnar hafði ékki upplýs- ingar um hvort kærumálum vegna skattaálagningar hefði fjölgað að undanförnu. Morgunblaðið/Sigurgeir Jðnasson Jón Kjartansson SU búinn að fylla og gefur Hólmaborgu SU afganginn af kastinu á miðunum við Vestmannaeyjar í gær. Mjög mikil loðnuveiði Vestmannaeyjum. MOKVEIÐI var í gær á loðnumiðunum 25 mílum vestan við Vestmannaeyjar, eftir eins og hálfs sólar- hrings brælu. Loðnan hefur gengið hratt vestur í austan- brælunni og hefur farið 70 mílur á þessum eina og hálfa sólarhring. Bar skipstjórnar- mönnum á miðunum saman um að loðnan gengi óvenju hratt og eins væri hún komin óvenju vestarlega miðað við árstíma. Eftir hádegið voru um 20 bátar að á miðunum og voru allir að vinna. Sumir voru að kasta, nýkomnir á miðin, en aðrir að klára að dæla og bún- ir að fylla. Lítið löndurnarrými er nú hjá flestum loðnuverk- smiðjum og verða margir bát- anna að sigla norður fyrir land eða til Færeyja til löndunar. Grímur Þrotabú íslenska stálfélagsins hf.: Heildarkröfur í búið rúm- lega 1,8 milljarðar króna Ekkert kemur til úthlutunar upp í 783 millj. kr. launakröfur og almennar kröfur LÝSTAR kröfur í þrotabú íslenska stálfélagsins hf. nema samtals 1.806.225.663 krónum. Kröfulýsingarfrestur rann út 29. janúar sl. og í gær Iagði bústjóri þrotabúsins fram kröfuskrá búsins í skiptarétti Hafnarfjarðar. Nær einu eignir þrotabúsins eru stálbæðsluverk- smiðja og verksmiðjubúnaður á Markhellu 4 í Hafnarfirði sem eru að fullu veðsettar en þessar eignir hafa verið auglýstar til sölu á tíu milljónir dollara eða 580 milljónir íslenskra króna. Samtals nema lýstar veðkröfur 1.023.553.672 kr. og að sögn Helga Jóhannessonar bústjóra er því ljóst að veðkröfuhafar munu tapa veru- legum fjárhæðum en það ræðst af hvað sala hinna veðsettu eigna mun skila veðhöfum. Ljóst er að ekkert mun fást upp í launakröfur og aðr- ar forgangskröfur að sögn Helga en þær nema samtals 85.083.787 kr. eða upp í almennar kröfur sem nema samtals 697.588.204 kr. Heildartap kröfuhafa getur því orð- ið nokkuð á annan milijarð kr. vegna gjaldþrotsins samkværnt upplýsingum bústjóra. Veðkröfur í búið eru frá innlend- um og erlendum bönkum og lána- stofnunum og voru allar samþykkt- ar af bústjóra. Stærsta krafán er frá hollenska bankanum Bank Me- es & Hope að fjárhæð 404.996.338 kr. Búnaðarbankinn lýsti tveimur kröfum í búið vegna skuldabréfs og lánssamnings á fyrsta veðrétti, samtals að fjárhæð 130.480.149 kr. Iðnþróunarsjóður gerði kröfu að upphæð 67.334.651 kr. Krafa SE Banken í Svíþjóð er að upphæð 268.014.531 kr. og krafa frá Nord- banken í Svíþjóð að upphæð 152.728.000 kr. Alls gerðu 157 aðilar forgangs- kröfur í þrotabúið. Um er að ræða kröfur starfsmanna vegna launa, skyldusparnaðar og orlofs og kröf- ur frá verkalýðsfélögum og lífeyris- Sambandið gerði Kúveitum tilboð: Kuwait Petroleum íhugar kaup á 31% í Olíufélaginu - segir Margrét Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri Kuwait Petroleum (Q8) í Danmörku KÚVEISKA olíufélagið Kuwait Petroleum, sem jafnan gengur undir "^nafninu Q8, er nú með til skoðunar þær upplýsingar sem fulltrúar félagsins öfluðu sér hér á landi í síðustu viku um Olíufélagið h.f., þar sem félagið íhugar kaup á 31% eignarhlut Sambandsins í Olíufé- laginu. Að sögn Margrétar Guðmundsdóttur, sem er framkvæmda- stjóri Kuwait Petroleum í Danmörku, er ekki við því að búast að félagið geri upp hug sinn hvað kaupin varðar, fyrr en að nokkrum tima liðnum. Margrét sagði í samtali við Morg- unblaðið í gær að fyrir skömmu hefði verið haft samband við Q8, til þess að kanna hvort félagið hefði áhuga á að kaupa hlut Sambands- ins í Olíufélaginu. „Q8 safnar upp- lýsingum um viðkomandi félög ú öllum þeim tilvikum sem því er boðið að kaupa önnur olíufélög eða hlut í þeim. Félagið metur alla slíka möguleika af fullri alvöru. Að gagnasöfnun lokinni er farið yfir allar upplýsingar og það síðan met- ið hvort viðkomandi félag er þess virði að það sé keypt, eða ekki,“ sagði Margrét. „Þessar viðræður hafa átt sér stað og Q8 er nú að meta þetta tilboð Sambandsins og það hvort það er þess virði að skoðast nán- ar,“ sagði Margrét. Margrét sagði að eina leiðin fyr- ir olíufyrirtæki til þess að vaxa, væri að kaupa upp fyrirtæki sem fyrir væru á markaðnum. Á síðustu árum hefði Q8 keypt upp olíufyrir- tæki um alla Evrópu. Fyrst á meg- inlandi Evrópu, síðan smáfyrirtæki í Englandi og í Danmörku keyptu fyrirtækið BP árið 1987. Sjá viðtal við Margréti Guð- mundsdóttur á miðopnu. sjóðum vegna iðgjalda. Bústjóri samþykkti flestar kröfurnar. Stærstu samþykktu kröfurnar gera Lífeyrissjóður verksmiðjufólks vegna iðgjalda, samtals að upphæð 12.554.385 kr. Lífeyrissjóður málm- og skipasmiða vegna ið- gjalda að upphæð 2.135.797 kr., og Lífeyrissjóður verslunarmanna samtals 2.014.627 kr. Samþykktar launakröfur nema samtals 33.020.098 kr. Kröfur móðurfyrir- tækis Stálfélagsins, Ipasco Steel & Holding, að upphæð 2.347.905 kr. vegna leigu var hins vegar hafnað af bústjóra. Bústjóri tekur ekki afstöðu til 168 almennra krafna sem gerðar eru í búið og eru samtals að upp- hæð 697.588.204 kr. Stærstu kröf- urnar eru frá Ipasco Ltd. samtals 296.092.005 kr., Furu hf. að upp- hæð 88.368.970 kr., Mannesmann Handel samt. 82.091.741 kr., Fin- ans Scandic UK samt. 33.625.753 kr. Bæjarfógetanum í Hafnarfirði vegna opinberra gjalda samt. 16.296.833 kr., Eimskipafélagi ís- lands hf. samt. 11.691.324 kr., Team Meca-Transfert SA samt. 11.568.213 kr., Krönum BS samt. 9.732.590 kr., Raftækjavinnustofu Skúla samt. 8.668.037 kr., Bæjar- sjóði Hafnarfjarðar vegna ógreiddra fasteignagjalda o.fl. samt. 7.703.287 kr., íslenska járn- blendifélagjnu hf. samt. 7.635.014 kr., Sparisjóði Hafnarfjarðar samt. 6.367.542 kr., Foseco samt. 6.149.378 kr., Jóhanni Rönning hf. samt. 5.888.330 kr., Hepworth Refractories samt. 4.470.255 kr., Gámaþjónustunni hf. samt.- 4.452.539 kr., Landsbanka ísl. á Selfossi samt. 4.308.600 kr., Hirti Torfasyni samt. 4.400.000 kr. og Landsvirkjun samt. 4.059.298 kr.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.