Morgunblaðið - 19.03.1992, Side 10
10
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. MARZ 1992
SIEMENS
Sjónvarpstœki
Sjónvarps-
myndavélar
Hljómtœkja-
samstϚur
Ferðaviðtœki
Útvarpsvekjarar
Gœðatœki fyrir
þig og þína!
SMrTH&
NORLAND
Nóatúni 4 - Símí 28300
Þú svalar lestrarþöif dagsins
ásírtum Moggans!
51500
Hafnarfjörður
Breiðvangur
Góð 4ra-5 herb. íb. á 3. haéð.
Gott útsýni.
Blómvangur
Glæsil. efri sérh. í tvíbhúsi
ásamt bílsk.
Smyrlahraun
Gott eldra timbureinbh. ca 170
fm kj., hæð og ris. Verð 9,0 millj.
Hjallabraut
Góð 4ra-5 herb. ca 110 fm íb.
á 1. hæð.
Drangahraun
Höfum fengið til sölu gott iðn.-
og/eða versl.-/skrifsthúsn.,
382,5 fm. Fokhelt.
Einbýlishús óskast
í Hafnarfirði í skiptum fyrir efri
sérh. ásamt risi ca 140 fm.
Atvinnuhúsnæði
Vantar atvhúsnæði ca 1000-
1500 fm. Helmingur lagerpláss.
Vantar - vantar
Höfum kaupendur að 2ja, 3ja
og 4ra herb. íb. í Hafnarfirði.
Kópavogur - Álfabrekka
Gott einbhús á góðum stað á
tveimur hæðum ca 270 fm
þ.m.t. bílsk.
Árni Grétar Finnsson hrl.,
Stefán Bj. Gunnlaugss. hdl.,
Linnetsstíg 3, 2. hæð, Hafn.,
símar 51500 og 51501.
\Zterkurog
kl hagkvæmur
auglýsingamiðill!
Þorbjörg Höskuldsdóttir
Myndlist_____________
Eiríkur Þorláksson
í listasalnum Nýhöfn við
Hafnarstræti stendur nú yfir
sýning á málverkum Þorbjargar
Höskuldsdóttur, myndlistar-
konu. Þorbjörg hefur tekið þátt
í sýningarhaldi í tvo áratugi, en
eftir að hafa stundað listnám við
Myndlistarskóiann í Reykjavík
og við Listaakademíuna í Kaup-
mannahöfn hélt hún sína fyrstu
einkasýningu í Gallerí SÚM árið
1972. Síðan hefur hún tekið þátt
í ljölda samsýninga, bæði hér
heima og erlendis, auk þess að
halda einkasýningar; sýningin í
Nýhöfn mun vera níunda einka-
sýning listakonunnar.
Þorbjörg hefur komið víða við
í list sinni; hún hefur t.d. unnið
að leikmyndagerð fyrir Leik-
brúðuland og Þjóðleikhúsið,
myndskreytt bækur og unnið í
grafík. Þekktust mun hún þó
fyrir olíumálverk sín, en þar hef-
ur hún þróað ákveðna myndsýn
sem byggir á íslensku landslagi
annars vegar og framandi marm-
aragólfum og súlum hins végar.
Þessir hlutar vinna síðan saman
í fletinum á fjölbreyttan hátt.
Verkin á sýningunni í Nýhöfn
eru nær öll unnin á þennan hátt.
Hér er aðeins að finna eina
hreina landslagsmynd („Aftansk-
in, nr. 2), þar sem roðagullnar
hlíðar teygja sig upp að tign-
arlegum fjallstindi; þessi mynd
gefur fyllilega til kynna að hefð-
bundnar landslagsmyndir, átök
birtu og jarðlitar, gætu einnig
verið áhugavert viðfangsefni fyr-
ir listakonuna.
Listakonan notar landslagið í
myndum ðnum (sem að þessu
sinni virðist að mestu úr Skafta-
fellssýslum) á næi-ri draum-
kenndan hátt, og sjónarhorn,
þokubakkar eða skýjafar verða
oft til að auka reisn fjalla og
tinda, sem annars gætu orðið
ósköp hversdagsleg sýn. Loks
festir Þorbjörg þetta svífandi
landslag niður og raglar jafnvel
fjarlægðaskyn til þess með því
að leggja marmaragólf í for-
grunninn og reisa súlur sem síð-
an verða ósýnilegar eða birtast
jafnvel aftur ofan fjalla, í hróp-
andi mótsögn við myndbygging-
una í heild, eins og t.d. í „Fjall
(nr. 3) (Búlandstindur?).
í nokkrum myndanna á sýn-
ingunni gengur listakonan skref-
inu lengra og leitast á athyglis-
verðan hátt við að ramma lands-
lagið algjörlega inn á striganum
með því að leggja ekki aðeins
gólf, heldur einnig veggi og loft-
flötf í myndinfii. Þannig hefur
hiníim íslensku fjöllum verið hol-
að niður innan takmarkaðs rým-
is, sem þau rísa gegn, en eru
misjafnlega megnug að brjótast
út úr. „Lómagnúpur (nr. 10) er
ein athyglisverðasta myndin af
þessu tagi, þar sem þetta tignar-
lega fjall, séð frá óvæntu sjónar-
horni (sunnan að), yfirgnæfir
auðveldlega hið staðlaða rými
reitamynstursins.
Vatnslitamyndir Þorbjargar
sýna öðrum myndum fremur
fram á næmt auga hennar fyrir
veðrabrigðum, og litanotkun í
þeim jafnt sem olíumálverkunum
ber með sér góða tilfinningu fyr-
ir litum í íslenskri náttúra og á
hvern hátt birta og skuggar
kunna að breyta þeim. Það er
draumkenndur blær yfir náttúra-
sýn listakonunnar, sem er í fullu
samræmi við á hvem hátt hún
vinnur úr myndefninu.
Sýning Þorbjargar Höskulds- *
dóttur í listasalnum Nýhöfn við
Hafnarstræti stendur til mið-
vikudagsins 25. mars.
Gerðhamrar - sjávarlóð
Vorum að fá í einkasölu glæsilegt 198 fm einbýlishús
ásamt 33 fm bílskúr á einstökum stað innarlega í
götu við sjávarkambinn. 5 svefnherbergi. Stórglæsilegt
útsýni. Stór verönd. Áhv. 5,5 millj. þar af 5,0 millj.
veðd. Verð 21,0 millj.
SKÓLAVÖRÐUSTÍG 38A,
VIÐAR FRIÐRIKSSON,
LÖGG. FASTEIGNASALI,
HEIMASÍMI 27072.
29077
KRINGWN
KI5IMeNM
KRINGLAN
KRINGWN
KKIHeNM
Nú hafa bókaútgefendur hætt bóksölu á
Markaðstorgi Kringlunnar, 3. hæð. Nú tekurvíð sala
á fatnaði, búsáhöldum, skóm, hljómplötum, bókum
og ýmsu öðru.
Getum bætt við vörum og vöruflokkum, ef um góða
og ódýra vöru er að ræða.
Hafið samband sem allra fyrst við Erlu í síma
678857 eða Garðar í síma 642425.
KRINGWN
KBIMeNH
Markaðstarg
Xrlnglnnnai,
3. hæð.
KRINGWN
KBIHeNM
Félagsvísindadeild Háskóla fsiands
auglýsir nám íeftirtöldum námsgreinum
háskólaárið 1992-1993, sem sækja ber
sérstaklega um.
Gert er ráð fyrir að takmarka þurfi
aðgang að því.
I Nám í hagnýtri fjölmiðlun
(blaðamennsku)
Um. er að ræða eins árs nám (33 einingar).
Miðað er við a nemendur hafi lokið B.A./B.S. prófi, B.Ed.
prófi eða öðru háskólaprófi.
II Nám í námsráðgjöf
Um er að ræða 32 eininga nám, sem unnt er að taka
á einu eða tveimur árum.
Miðað er við að nemendur hafi lokið:
1. B.A. prófi í uppeldis- eða sálarfræði, eða
2. B.Ed prófi, eða
3. B.A./B.S. prófi í öðrum greinum ásamt kennslu-
réttindanámi.
Æskilegt er að nemendur hafi kennslureynslu.
III Nám í uppeldis- og kennslu-
fræðum til kennsluréttinda
Um er að ræða 30 eininga nám, sem unnt er að taka
á einu eða tveimur árum. Miðað er við að nemendur
hafi lokið:
1. B.A./B.S. prófi ef þeir hyggjast stunda allt námið
á einu ári.
2. A.m.k. 60 einingum í grein(um) í B.A./B.S. námi,
ef þeir hyggjast stunda námið á tveimur árum
samhliða námi í grein, samkvæmt ákveðnum regl-
um.
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar fást á skrif-
stofu félagsvísindadeiidar.
Umsóknir sendist fyrir 15. apríl nk. til skrifstofu félags-
vísindadeildar, Odda v/Suðurgötu, 101 Reykjavík.
Umsóknir, sem berast eftir 15. aprfl, verða ekki teknar
til greina.
Auglýsing þessi er birt með fyrirvara um nægilegar fjár-
veitingar tii kennslunnar.