Morgunblaðið - 19.03.1992, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. MARZ 1992
11
Vinnulöggjöf o g varnarmál
Bókmenntir
Erlendur Jónsson
SAGA. Tímarit Sögufélags.
XXIX. 302 bls. Ritstj. Gísli Ágúst
Gunnlaugsson, Sigurður Ragn-
arsson. Reykjavík, 1991.
Auk minningargreina, umsagna
um bækur og fleira af því taginu
skipa tvær ritgerðir mest rúm í
Sögu að þessu sinni. Aðdragandi
að aðskilnaði Alþýðuflokks og Al-
þýðusambands Islands árið 1942
nefnist hin fyrri; höfundur Hulda
Sigurborg Sigtryggsdóttir. Fróðleg
er samantekt sú fyrir margra hluta
sakir. Þótt miðað sé tii ársins 1942
í fyrirsögn eru það einkum svipting-
ar áranna 1938-40 sem Hulda Sig-
urborg hefur kannað. En á þeim
árum var lagður grunnur að verka-
lýðspólitík þeirri sem síðan réð ferð-
inni allt fram á síðasta áratug, og
að nokkru leyti til dagsins í dag,
þar með talin vinnulöggjöfin frá
1938. Hulda Sigurborg rekur gang
mála og leitast við að bregða ljósi
á rás atburðanna en sparar sér
getgátur.
Pólitík þessara ára var flókin og
skilst varla nema horft sé á stjórn-
málaþróunina sem heild frá upphafi
fullveldis og flokkamyndunar, en
einkum þó á hræringar fjórða ára-
tugarins hér og erlendis. Veður
voru válynd og átök víða mögnuð.
Af ritaskrá sést að Hulda Sigurborg
hefur víða leitað fanga. Fyllri hefði
ritgerð hennar samt orðið ef hún
hefði styrkt samantekt sína með
Baniföstrunám-
skeið Reykjavík-
urdeildar RKI
REYKJAVIKURDEILD RKÍ
heldur barnfóstrunámskeið nú
eins og undanfarin ár.
í 16 kennslustundum verður rætt
um þroska barna, leikfangaval ung-
barna, veik börn, slys í heimahús-
um, fyrirbýggingu slysa, kennd
verða undirstöðuatriði í skyndihjálp
o.fl. Námskeiðin byijuðu 18. mars
en alls verða haldin 10 námskeið.
Leiðbeinendur eru fóstra og hjúkr-
unarfræðingur.
Þór Whitehead
fjölbreyttari munnlegum heimild-
um. Margir eru enn á lífi sem muna
þessa tíma. Og ræðuhöld, ályktanir
og fundargerðir segja ekki alltaf
allan sannleikann.
Utanríkismál og verkalýðspólitík
sýnast eiga fátt sameiginlegU Þó
var sú tíð að ýmsir vildu tengja það
hvort öðru. Leiðin frá hlutleysi
1945-1949 eftir Þór Whitehead
kemur þó lítt inn á þau svið; getur
fremur skoðast sem framhald fyrri
rita hans um aðdraganda ófriðar
og styijaldarárin. Allt var það tíma-
bil í fyllsta máta sögulegj,. Á stríðs-
árunum ríkti hér sæmilegur friður.
En jafnskjótt sem styijöld lauk
mögnuðust innanlandsátök vegna
Keflavíkursamnings, inngöngu ís-
lands í Atlantshafsbandalagið og
að lokum varnarsamningsins við
Bandaríkin. Allt olli það heiftar-
legri og langvinnari deilum en aðrar
stjórnvaldsákvarðanir á sama tíma-
bili. Varla eru ýkjur að segja að
um skeið hafi ríkt hér ófriðarástand
í huglægum skilningi. Þarna laust
saman hugsjónum, sem stundum
líktust hreinu trúarofstæki, og
kaldri rökhyggju sem tók mið af
ástandi mála eins og það var. Hið
síðar talda leiðir sjaldan til harðra
deilna. Það eru tilfinningamálin sem
erfiðast er að leysa í pólitíkinni.
Ogþarna var enginn hörgull á þeim.
ísland hafði lýst yfir ævarandi
hlutleysi í upphafi fullveldis. Hér
hafði aldrei verið her fyrr en Bretar
hernámu landið 1940. Við stofnun
lýðveldis mun flestum hafa þótt
sjálfsagt að landið yrði aftur her-
laust að stríði loknu; og raunar um
alla framtíð. Hlutleysið fæli í sér
bestu vörnina. Ekkert herveldi gæti
verið þekkt fyrir að ráðast á slíkan
friðelskandi sakleysingja. En
stjórnmálamenn vissu betur. Þeir
sáu strax að hlutleysi gagnaði lítt
til varnar í hörðum heimi. Hér yrðu
að vera einhveijar hervarnit', hvem-
ig svo sem þeim yrði háttað. Vand-
inn var að sætta þjóðina við þá
gagngerðu stefnubreytingu sem
framundan hlaut að verða. Það
auðveldaði ekki úrlausn mála að
Bandaríkjamenn sóttu allfast að fá
hér einhveija aðstöðu þegar að
stríði loknu. Og fóru ekki dult með.
Jafnframt lá í hlutarins eðli að ís-
lendingar yrðu að þijóskast við.
Ella liti svo út sem þeir væru að
beygja sig fyrir valdinu. Fram kem-
ur í ritgerð Þórs að bandarískum
stjórnvöldum hafí þótt ráðamenn
hér erfiðir og tregir til samkomu-
lags.
Þegar að lokum gekk saman fór
því fjarri að landsfeðurnir íslensku
létu stjórnast af þjónkun við erlent
hervald. Það voru íslenskir hags-
munir einir sem þeir höfðu að leiðar-
ljósi, gagnstætt því sem andstæð-
ingarnir héldu fram, kommúnistar
og þjóðvarnarmenn. Eigi að síður
lágu þeir »í áratugi undir daglegum
brigslum um landráð og landsölu
vegna samskipta við Bandaríkin.«
Sterk ítök kommúnista í verkalýðs-
hreyfíngunni mögnuðu viðspyrn-
una.
Þannig varð kalda stríðið til að
skerpa línurnar; og raunar til að
sætta meirihluta þjóðarinnar við
stefnubreytinguna.
Þór Whitehead hefur hér sem
fyrr grandskoðað erlendar heimildir
og borið saman við íslenskar. Á
þann hátt skyggnir hann viðfangs-
efnið frá báðum hliðum. Þeir, sem
muna dylgjurnar og getsakirnar frá
þessum kaldastríðsárum, fá nú að
vita hvað raunverulega gerðist á
bak við tjöldin. Og þá kemur í ljós
að dæmið lítur talsvert öðruvísi út
en að minnsta kosti sumir gerðu
sér í hugarlund þar og þá.
Sigrún Hjálmtýsdóttir
Anna Guðný Guðmundsdóttir
Sigrún Hjálmtýsdóttir
________Tónlist____________
Jón Ásgeirsson
Sópransöngkonan Sigrún
Hjálmtýsdottir og Anna Guðný
Guðmundsdóttir píanóleikari
héldu tónleika á vegum Styrktar-
félags íslensku óperunnar sl.
þriðjudag. Á efnisskránni voru
nær eingöngu ítölsk sönglög og
aríur, utan eitt lag eftir Thomas
Arne og Klánge der Heimat, eft-
ir Johann Strauss.
Tónleikarnir hófust á þremur
ástarsöngvum eftir Bellini, sem
Sigrún söng fallega og á eftir
fylgdu tveir söngvar eftir Doniz-
etti en bæði hann og Bellini leit-
uðust við að ná fram lagstreymi
er væri jafn sjálfsagt og talað
mál, jafnvel þar sem lagið umt-
urnast í mjög skrautlegt lagferli.
í tveimur lögum eftir Verdi mátti
heyra hversu hann hefur tekið
Bellini og Donizetti sér til fyrir-
myndar, þó hann síðar meir næði
að bijótast undan galdratökum
skrautsöngsins. í tveimur lögum
eftir Rossini, L’invita og La
danza söng Sigrún af glæsibrag.
Rossini var óumdeilanlega' snill-
ingur og náði hann oft í örstutt-
um tónmyndum að búa til stef,
sem vel má jafna til þess snjall-
asta af stefhugmyndum Mozarts,
svo sem heyra mátti í L’invita,
sérlega skemmtilegu lagi og þá
ekki síður því fræga lagi La
danza.
Eftir hlé söng Sigrún eingöngu
aríur og fyrst um þreyttu her-
mennina eftir Thomas Arne en
var það eitt best sungna lag tón-
leikanna, fyrir utan aukalagið,
II Bacio (Kossinn), eftir Luigi
Arditi, sem Sigrún söng meist-
aralega vel. Tvær aríur eftit
Puccini, það fallega lag 0, mio
babbino caro, úr Gianni Schicchi
og söng Músettu, Quando me’n
vo, úr La boheme, söng Sigrún
mjög fallega. Caro nome, eftir
Verdi var glæsilega flutt og sama
má segja um Regnava nel si-
lenzio, úr Lucia di Lammermoor,
eftir Donizetti. Þarna sýndi Sig-
rún sitt besta í flúrsöng, sem
sannarlega er ekki á allra færi
að útfæra jafn vel, enda
„sprengdi" hún húsið, eins og
sagt er.
Síðustu lögin voru In seno alla
tristezza eftir Rossini og Klánge
der Heimat úr Leðurblökunni,
eftir Johann Strauss og lauk þar
með sérlega skemmtilegum tón-
leikum. Fyrir utan að vera snilld-
ar „Coloratura" söngvari, eins
og kom fram í Caro nome og
Regnava del silenzio, getur Sig-
rún leikið á fíngerðari strengi
eins og í 0, mio babbino caro og
þá er henni ekki síður lagið að
leika sérlega skemmtilega með
gamansemina, eins og í La
danza, Quando me’n vo og auka-
laginu, II Bacio. Anna Guðný
Guðmundsdóttir lék frábærlega
vel og var samstilling hennar við
söngvarann með miklum ágæt-
um, enda hafa þær stöllur starfað
saman vel og lengi.
Notaðir bílar á góðu verði
^ Allir skoðaðir 1992. Góð greiðslukjör í boði
Bíll vikunnar:
Dodge Aries, árg. 1988. Ekinn
42 þús. km. Sjálfskiptur. Lítið
ekinn og góður fjölskyldubíil
á frábæru verði.
Staðgr. 590.000,- kr.
BÍLAGALLERÍ • FAXAFENI 8 • SÍWII 685870 • Opið mónudaga til föstudaga kl. 9-18 • Laugardaga kl. 10-16
1
100-300þús. Kr. 300-500 þús. | Kr. 500-700 þús. 1 Kr. 700-900 þús. Kr. 900-1.100 þús. 1.100- 2.000 þús.
Daihatsu Charmant 4G 4D árg ’82 Ekinn 140. Tölvunr. 2049 stgr.130 Daihatsu Charmant 4G 4D '86 Ekinn 88. Tölvunr. 465 stgr.340 Ford Orion 5G 4D árg. '87 Ekinn 54. Tölvunr. 2008 stgr.530 MMC Colt GLx SSK 3D árg. '89 Ekinn 28.Tölvunr. 2116 stgr.720 Dai. Feroza EI-2 5G 3D árg. '89 Ekinn 49.Tölvunr. 1497 stgr.910 Volvo 740 GLE SSK 40 árg. '87 Ekinn 72.Tölvunr. 479 stgr. 1.120
Daihatsu Charade 4G 3D árg '84 Ekinn 83.Tölvunr. 1988 stgr.175 Daihatsu Charade 4G 5D árg. '87 Ekinn 38.Tölvunr. 2062 stgr.385 Mazda 323 5G 3D árg. '88 Ekinn 39. Tölvunr. 1934 stgr.570 Toyota Carina SSK 4D árg. '88 Ekinn 62. Tölvunr. 2078 stgr.725 Daihatsu Rocky 5G 3D árg. '87 Ekinn 65.Tölvunr. 1873 stgr.910 Dai. Feroza Special '90 5G 3D 4x4 Ekinn 16.Tölvunr. 1905 stgr. 1.130
Daihatsu Charade 4G 3D árg '84 Ekinn 57.Tölvunr. 2139 stgr. 180 Daihatsu Charade 5G 3D árg. '87 Ekinn 51.Tölvunr. 2173 stgr.390 Honda Accord 5G 4D árg. '87 Ekinn 122. Tölvunr. 1212 stgr.570 Volvo 240 GL 5G 4D árg. '87 Ekinn 73. Tölvunr. 1971 stgr.730 Daihatsu Feroza 5G 3D árg. '89 Ekinn 53.Tölvunr. 1661 stgr.930 Volvo 740 GL SSK 4D árg. '88 Ekinn 67. Tölvunr. 1027 stgr. 1.190
Volvo 343 GLS 4G 5D árg '82 Ekinn 130.Tölvunr. 1921 stgr.200 Daihatsu Charade 4G 3D árg. 88 Ekinn 53.Tölvunr. 1762 stgr.420 Daihatsu Charade 4G 5D árg. '90 Ekinn 27. Tölvunr. 2146 stgr.570 Suzuki Samurai 5G 3D árg. '89 Ekinn 42.Tölvunr. 2005 stgr.740 Daihatsu Applause 5G 5D árg. '91 Ekinn 13.Tölvunr. 2112 stgr.940 Volvo 740 GL SSK 4D árg. '88 Ekinn 46. Tölvunr. 1963 stgr. 1.200
Daihatsu Coure 5G 5D árg '86 Ekinn 47.Tölvunr. 1773 stgr.220 Subaru Justy 4G 3D árg. '87 Ekinn 28. tölvunr. 2121 stgr.440 Dodge Aries SSK 4D árg. '88 Ekinn 42. Töivunr. 1068 stgr.630 Volvo 240 GL 5G 4D árg. '87 Ekinn 65. Tölvunr. 1478 stgr.750 Volvo 460 GLE 5G 4D árg. '90 Ekinn 94. Tölvunr. 2090 stgr.950 Volvo 460 GLE SSK 4D árg. '90 Ekinn 11. Töivunr. 2056 stgr. 1.240
Ford Escort 5G 3D árg '84 Ekinn 93, Tölvunr. 1840 stgr.265 Volvo 240 GL 5G 4D árg. '84 Ekinn 150. Tölvunr. 1926 stgr.450 Volvo 240 GL SSK 4D árg. '86 Ekinn 75. Tölvunr. 1188 stgr.670 Volvo 740 GL 5G 4D árg. '85 Ekinn 71. Tölvunr. 1443 stgr.790 Volvo 440 GLT 5G 5D árg. '89 Ekinn 39. Tötvunr. 2076 stgr.950 Daihatsu Rocky disel 5G 3D árg. '90 Ekinn 30. Tölvunr. 2176 stgr. 1.520
Daihatsu Charade 4G 3D árg '86 Ekinn 75.Tölvunr. 1344 stgr.290 Daihatsu Charade 5G 5D árg. '88 Ekinn 69.Tölvunr. 1948 stgr.460 Volvo 240 GL st. 5G 5D árg. '86 Ekinn 108.Tölvunr. 2153 stgr.670 Volvo 740 GLSSK 4D árg. '85 Ekinn 75. Tölvunr. 2039 stgr.790 Volvo 240 station SSK 5D árg. '88 Ek- inn 72.Tölvunr. 2031 stgr.960 Dai. Rocky bensín5G 3D árg. '91 Ekinn 9.Tölvunr. 2050 stgr. 1.550
Lada 1200 4G 4D árg '90 Ekinn 18. Tölvu- nr. 1834 stgr.290 Volvo 340 GL 5G 4D árg. '86 Ekinn 52. Tölvunr. 1714 stgr.470 Volvo 240 GL SSK 4D árg. '86 Ekinn 64. Töivunr. 1685. stgr.680 Toyota Corolla 5G 3D árg. '88 Ekinn 67.Tölvunr. 2101 stgr. 815 Volvo 740 GL SSK 4D árg. '87 Ekinn 86. Tölvuinr. 1896 stgr. 1.025 Subaru Legacy SSK 5D árg. '91 Ekinn 0. Tölvunr. 1919 stgr. 1.580
Daihatsu Coure 5G 5D árg. '87 Ekinn 40.Tölvunr.2088 stgr.290 Daihatsu Charade 5G 5D árg. '88 Ekinn 44.Tölvunr. 1968 stgr.480 Nissan Sunny SSK 4D árg. '89 Ekinn 50. Tölvunr. 2001 stgr.680 BMW 316 5G 4D árg. '88 Ekinn 25.Tölvu- nr. 1580 stgr.850 Volvo 440 Turbo 5G 5D árg. '89 Ekinn 20.Tölvunr. 1811 stgr. 1.095 Volvo 740 GL SSK 5D árg. '90 Ekinn 20. Tölvunr. 2128 stgr. 1.590
Volvo 240 DL SSK 4D árg. '82 Ekinn 160.Tölvunr. 2180 stgr.300 Volvo 360 GL 5G 4D árg. '86 Ekinn 70 Tölvunr. 1956 stgr.500 Suzuki Samurari 5G 3D árg. '89 Ekinn 42.Tölvunr. 2005 stgr. 690 Volvo 740 GLE 5G 4D árg. '86 Ekinn 103. Tölvunr. 1473 stgr.890 Volvo 440 Turbo 5G 5D árg. '89 Ekinn 57.Tölvunr. 2019 stgr. 1.100 Volvo 740 GLE 5G 5D árg. '90 Ekinn 23.Tölvunr. 2143 stgr. 1.700
SSK = Sjálfskiptur. D = Dyrafjöldi. G = Gírar. St. = Station.