Morgunblaðið - 19.03.1992, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. MARZ 1992
21
tölfræðilegri aðferð (BLUP), eins
og margoft hefur komið fram, en
einstaklingsdómarnir frá hrossa-
sýningunum eru lagðir til grund-
vallar rétt eins og hveijar aðrar
mælingar í öðrum greinum. í ljósi
yfirburða kynbótamatsins yfír hin-
ar eldri aðferðir í hrossaræktinni
við uppgjör dóma er það síðan lagt
til grundvallar við ákvörðun verð-
launastigs stóðhesta með afkvæm-
um. Stóðhestar eru ekki sýndir með
afkvæmum fyrr en þeir eiga orðið
það mörg dæmd afkvæmi að áhrif
ættar þeirra og einstaklingsdóms
eru orðin hverfandi lítil í kynbóta-
matinu. Þá nýtast hins vegar aðrir
kostir aðferðarinnar hvað ýmsar
leiðréttingar varðar og afkvæma-
dómarnir eru því reiknaðir eins
nákvæmlega út og þekktar aðferð-
ir gefa tilefni til. Frekari þróun
kynbótamatsins, sem verið er að
vinna að, gerir kleift að reikna út
afkvæmadóma hryssna á hliðstæð-
an hátt. Aftur á móti er það at-
hugunarefni sem ekki verður tekið
hér til umræðu hvort afkvæma-
dómar sem slíkir eigi framtíð fyrir
sér eftir að kynbótamatið er komið
til sögunnar.
Það gerir kröfur til hrossarækt-
enda að geta gert greinarmun á
kynbótamati og kynbótadómi.
Hvað það varðar er Grímur Gísla-
son ekki með á nótunum, ef marka
má skrif hans, en svo er alls ekki
almennt. Ekki veit ég hvort Grími
finnst að bókmenntir nútímans
kasti rýrð á skáldmæringa fyrri
tíðar. Mér þykir það ekki, ekki frek-
ar en að ég telji nokkra hættu á
að útreikningur kynbótamats fyrir
undaneldishross geri það að verk-
um að hestafólk geri sér ekki leng-
ur grein fyrir því hvernig góður
hestur sé. Kynbótamatið er reiknað
út til að greina sauðina frá höfrun-
um í hrossastofninum í heild, svo
að reiðhross framtíðar verði vegna
markviss úrvals eðlis- og raunbetri
en þau eru nú. Kynbótamatið ber
að nota meira en til hliðsjónar ef
ræktandinn vill á annað borð not-
færa sér leiðbeiningar öðru vísi en
að hafa þær til hliðsjónar. Þetta
er hins vegar í valdi hvers og eins
ræktanda.
Kynbótaframför. Takist vel til
við að finna bestu undaneldishross-
in í stofninum á hveijum tíma með
þróttmiklu dómkerfi og góðu kyn-
bótamati og ef starfinu er fylgt
eftir af festu með ströngu úrvali
verður stofninn stöðugt eðlisbetri.
Kynbótaframför á sér stað. Við
útreikning kynbótamatsins er tekið
tillit til kynbótaframfarar í stofnin-
um hvað þá eiginleika varðar sem
mynda úrvalsmarkið. Það er einn
af kostum BLUP-aðferðarinnar.
Yngstu undaneldishrossin eru því
alla jafnan hvað hæst í kynbóta-
mati ef hrossaræktin er yfir höfuð
á réttri leið. í aðferðinni felst því
að kynbótahross fyrri tíðar eru
reiknuð til „núvirðis“ en ekki „þá-
virðis“ hvað gæði þeirra varðarsem
undaneldisgripir. Með öðrum orð-
um, þeir gripir sem sköruðu fram
úr fyrir t.d. þijátíu árum væru
ekki í fremstu röð núna vegna þess
að kynbótaframför hefur átt sér
stað. Skilningsleysi Halldórs Gunn-
arssonar á eðli og merkingu hug-
taksins kynbótaframför er algert
eins og þrásinnis hefur komið fram.
Hér í lokin vil ég segja það að
ráð er að hætta deilum um fram-
kvæmd stefnu leiðbeiningarþjón-
ustu Búnaðarfélags Islands í
hrossarækt. Stefnan er ljós, henni
verður ekki breytt á næstunni, þær
breytingar sem gerðar hafa verið
með víðtæku samráði hlutaðeigandi
aðila verða að fá tíma til að sanna
sig. A þessari skoðun eru eflaust
vel flestir og á þennan veg mátti
jafnvel skilja Grím Gíslason. Skrif-
um þeirra félaga í stjórn Félags
hrossabænda um þessi afmörkuðu
mál verður vart svarað frekar.
Fjöregg hrossabúskaparins felst
í útflutningi reiðhrossa, íslenskir
hrossaræktendur eru í alþjóðlegri
samkeppni og stefna Búnaðarfé-
lags íslands miðast við að þar sé
keppt að sigri.
Höfundur er
hrossnræklnrráduimutur hjá
Búnaðarrélngi íslands.
NOTAÐIR BILAR - BILAÞING - NOTAÐIR BILAR - BILAÞING - NOTAÐIR BILAR
ymm jiinn
RDÍJijjj
NOTAÐIR BÍLAR
Á RAUNHÆFU MARKAÐSVERÐI
TOYOTA COROLLA DX 1300 - árg. 1987, 4 gíra,
5 dyra, grábrúnn, ekinn 82 þ.km., verð kr. 395.000
HONDA CIVIC GL1400 - árg. 1988, 5 gíra, 4 dyra,
gylltur, ekinn 53 þ.km., verð kr. 560.000 stgr.
SUZUKI SWIFT 1000 - árg. 1991,5 gíra,
5 dyra., blár, ekinn 8 þ.km., verð kr. 590.000. stgr.
MMC LANCER GLX langb. 4X4 1800 - árg. 1987, 5 gíra,
5 dyra, hvítur, ekinn 67 þ.km., verð kr. 650.000.stgr.
MMC SAPPORO 2400i - árgerð 1988, sjálfsk., 4 dyra,
perluhvítur, ekinn 81 þ.km., verð kr. 890.000. stgr.
RANGE ROVER VOUGE 35001 - árgerð 1988,
sjálfskiptur, 5 dyra, grænsans, ekinn 80 þ.km.,
verð kr. 1980.000. stgr.
VIÐ BJOÐUM TRAUST OG ÓRUGG VIÐSKIPTl
GREIÐSLUSKILMÁLAR AÐ ÓSKUM KAUPENDA
HEKLUHÚSINU LAUGAVEGI 174
SÍMAR 695660 OG 695500
Opið virka daga kl. 9-18 Laugardaga kl 10-17
NOTAÐIR BILAR - BILAÞING - NOTAÐIR BILAR - BILAÞING - N0TAÐIR BILAR