Morgunblaðið - 19.03.1992, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. MARZ 1992
27
Forkosningar í Illinois og Michigan:
Fátt getur stöðvað Clinton -
áhlaupi Buchanans hrundið
Boslon. Frá Karli Blöndal, fréttaritara Morgunblaðsins.
GEORGE Bush Bandaríkjaforseti og William Clinton, ríkisstjóri
Arkansas, unnu báðir öruggan sigur í forkosningum, sem repúblikan-
ar annars vegar og demókratar hins vegar héldu í Illinois og Michig-
an í fyrradag. Framboð Patricks Buchanans, sjónvarpsmanns og
fyrrum ræðuritara Richards Nixons, á móti Bush er runnið út í
sandinn og forsetinn hyggst nú beina sjónum sinum að forsetakosn-
ingunum í nóvember. Clinton er ekki búinn að tryggja sér útnefn-
ingu demókrata, en andstæðingar hans, þeir Paul Tsongas, sem
dróst aftur úr í kosningunum, og Jerry Brown, sem vann á, geta
vart gert sér vonir um að stöðva hann af eigin rammleik.
Bush og Clinton hafa nú báðir
tryggt sér stuðning tæplega helm-
ings þeirra kjörmanna, sem þeir
þurfa til að hljóta útnefningu flokka
sinna fyrir forsetakosningamar í
nóvember. Bush hefur fengið stuðn-
ing 711 kjörmanna í forkosningum
repúblikana til þessa. Hann þarf
1446 atkvæði til útnefningar. Clint-
on er kominn með 944 kjörmenn
af 2145, sem hann þarf til að
tryggja sér útnefningu Demókrata-
flokksins.
Fréttaskýrendur segja að nú geti
aðeins tvennt stöðvað Clinton og í
báðum tilvikum er vandi hans sá
sami: fortíðin. Demókratar hafa
margir áhyggjur af því að Clinton
eigi við það mörg vandamál að
stríða að hann eigi ekki möguleika
gegn Bush í haust og gildir þá einu
um úrslit forkosninga. Ásakanir um
framhjáhald, tilraunir til að komast
hjá herkvaðningu þegar á Víetnam
stríðinu stóð og nú síðast um að
það sé ekki við hæfí að kona hans,
Hillary, vinni hjá lögmannsstofu,
sem fær mörg verkefni frá Arkans-
as-ríki, hafa hrjáð framboð Clint-
ons.
Tilraunir Tsongas til að nota
þessa veikleika Clintons hafa snúist
í höndunum á honum og hann
hyggst hér eftir leggja áherslu á
máiefnalegan málflutning. Brown
hefur hinsvegar kallað Clinton
„hneyksli-á-viku-frambjóðandann“
og hyggst halda áfram að hamra á
því að hann sé ekki framboðshæfur.
Bæði Tsongas og Brown verða
hins vegar að horfast í augu við
það að Clinton vann stórsigur í 111-
inois og Michigan, fékk-52% og 48%
atkvæða í fyrstu forkosningum
demókrata, sem haldnar voru í ríkj-
um, þar sem enginn frambjóðenda
var á heimavelli. Jafnframt heldur
Clinton áfram að laða að sér meiri-
hluta þeirra kjósenda, sem demó-
kratar hafa löngum byggt fylgi sitt
á. Hann fékk 70% atkvæða svartra
og um 60% atkvæða þeirra sem
aðeins hafa lokið skyldunámi og
teljast lágtekjufólk.
Tsongas hreppti annað sætið og
26% atkvæða í Illinois en vegnaði
verr í Michigan þar sem hann fékk
aðeins 18% og hafnaði í þriðja sæti.
Brown vann ötult kosningastarf í
Michigan, sem nægði honum til að
ná þar öðru sæti með 27% at-
kvæða. í Illinois var hann þriðji
með 15% atkvæða. Þótt Brown
hafi ítrekað beint spjótum sínum
að Clinton sýna skoðanakannanir
að hann tók ekki fylgi frá ríkisstjór-
anum í Arkansas í kosningunum í
Michigan, heldur frá Tsongas. Þyk-
ir þett sýna að fylgi Clintons sé
nokkuð traust, en Tsongas og
Brown bítist um þau atkvæði, sem
eftir eru.
Krossför Buchanans á enda
Buchanan viðurkenndi á þriðju-
dagskvöld að hann gæti ekki gert
sér vonir um að hljóta útnefningu
repúblikana til að verða forsetaefni
flokksins þegar gengið verður til
kosninga í nóvember. Kosningaher-
ferð hans virðist vera að missa
skriðþunga og sást það á því að
hann hlaut 22% atkvæða í Illinois
og 25% í Michigan, en hingað til
hefur fylgi hans verið í kringum
30%. Buchanan sagði hins vegar
að framboð sitt snerist um meira
en sigur og embætti: „Baráttan
snýst um hugsjónir okkar, um sál
Repúblikanaflokksins," sagði Buch-
anan.
Buchanan hélt kosningafundi og
flutti ræður í báðum ríkjum. Lítið
bar hins vegar á Bush. Forsetinn
lét sér nægja að nota sjónvarpið
og fremur en að vegsama sjálfan
sig beindi hann spjótum sínum að
mótframbjóðandanum. Bæði Mich-
igan og Illinois eru iðnríki og hið
fyrmefnda hefur farið flatt á þeim
samdrætti, sem verið hefur í banda-
rískri bifreiðaframleiðslu. Bush
kom höggi á andstæðing sinn með
því að hamra á því í sjónvarpsaug-
lýsingu að Buchanan æki um á
þýskum Mercedes Benz.
Þetta hreif. Þegar Buchanan kom
um helgina í bifreiðaverksmiðju í
George Bush Bill Clinton
Michigan, sem brátt verður lokað,
gerðu starfsmenn hróp að honum
og neituðu að tala við hann. Á sama
tíma fór Bush í bifreiðaverksmiðju
í Missouri-ríki og var vel tekið.
Efnahagsvandinn og hæfni
Bush
Hingað til hefur virst sem Bush
væri steinhissa á óánægju almenn-
ings og hann vissi ekki sitt ijúk-
andi ráð. En nú hefur áhlaupi Buch-
anans af hægri vængnum verið
hrundið. Fylgi hans fer dvínandi og
kosningasjóðir hans eru að tæmast.
Buchanan hyggst ekki draga fram-
boð sitt til baka enn um sinn, en
ætlar ekki að veita Bush alvarlega
keppni fyrr en í forkosningunum
2. júní í Kaliforníu. Þar hyggst
hann leggja grunninn að framboði
árið 1996.
Bush sagði að sigur sinn í Illin-
ois (76% atkvæða, Buchanan 22%)
og Michigan (67% atkvæða, Buch-
anan 25%) væri sigur fyrir efna-
hagstillögur sínar. Þetta þykir vís-
bending um að forsetinn hyggist
ráðast til atlögu gegn þinginu. Til-
lögur Bush liggja nú fyrir þingheimi
og í stefnuræðu sinni í janúar gaf
forsetinn demókrötum frest til
morgundagsins, föstudags, til að
afgreiða þær. Útilokað er að það
gangi eftir og í kosningaherbúðum
forsetans er kappsmál að láta líta
svo út sem þrotlausar málalenging-
ar þingmanna demókrata standi
björgunaraðgerðum hans og bráð- v
um efnahagsbata fyrir þrifum.
Staðan er nú þannig að Bush
getur nú miðað kosningabaráttu
sína við kapphlaupið um Hvíta hús-
ið og þarf hér eftir litlar áhyggjur
að hafa af ágreiningi innan flokks-
ins. Hann þarf hins vegar að sann-
færa kjósendur um að hann sé ekki
klunni í efnahagsmálum. Clintons
bíður þyngri þraut. Hann þarf enn
um sinn að kljást við Tsongas og
Brown og á meðan glata demó-
kratar að nokkru leyti frumkvæðinu
í kosningabaráttunni gegn Bush.
OFNHITASTILLIR
Á INNRENNSLI EÐA ÚTRENNSLI OFNS
DANFOSS ofnhitastillar eru tvenns konar og ætlaðir til notkunar við mismunandi skilyrði:
DANFOSS RA 2000 er ætlaður á innrennsli ofna en DANFOSS FJVR á útrennsli þeirra.
Meginregla framleiðandans er að nota skuli RA 2000: Hann nemur herbergishita og heldur þeim
kjörhita, sem valinn er, á hagkvæman hátt.
Þar sem hitasveiflur eru miklar, t.d. í forstofum eða bílageymslum, hentcu- FJVR hins vegar betur:
Hann stjómar hitastigi á útrennslisvatni frá ofninum óháð herbergishita.
Veldu réttan ofnhitastilli.
Veldu DANFOSS! Það borgar sig.
= HÉÐINN =
SELJAVEGI 2, SlMI 624260
VERSLUN - RÁÐGJÖF
GÓÐAN
DAG!
Þetta er litli risinn,
HHOBIRA CITYMAN
- mættur til leiks, aðeins 760 g.
Hinn geysivinsæli og handhægi Mobira Cityman
farsími er fóanlegur á ný. Nú fæst hann á mun
lægra verði en áður og kostar aðeins
136.000 kr.
Jt
Hátæknlhf.
ÁRMÚLA 26, SÍMAR 31 500 OG 36/00