Morgunblaðið - 19.03.1992, Qupperneq 33

Morgunblaðið - 19.03.1992, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. MARZ 1992 Mjólkursamlagr KEA: Vélar til átöppunar á plastflöskur keyptar Valnspökkunarsamstæða sem Mjólkursamlag KEA hefur fest kaup á verður send frá Bandaríkjunum, þaðan sem hún er keypt, til Akureyrar í lok mánaðarins. Gert er ráð fyrir að hún verði sett upp og prófuð í kringum páskana og að hægt verði að hefja átöppun vatns á plastflöskur í maí. Þórarinn E. Sveinsson mjólkur- LANDAÐ hefur verið um 20 þúsund tonnum af loðnu hjá Krossanesi, en það er það magn sem stefnt var að að ná þegar ákveðið var að byggja verk- smiðjuna upp á nýju eftir bruna samlagsstjóri sagði að menn frá samlaginu hefðu farið utan til Bandaríkjanna í gær til að læra á vélamar og prufukeyra þær. Véla- samstæðunni verður síðan pakkað saman og hún sett í skip 31. mars næstkomandi, en síðan verður henni komið fyrir í húsakynnum samlagsins. „Meiningin er að setja vélamar upp og koma þeim í gang fljótlega eftir páska, þannig að við vonumst að ræða hráefni sem til fellur hjá K. Jónsson á Akureyri, en Jóhann sagði að aðrir rækjuframleiðendur sem rætt hefði verið við hefðu lít- il viðbrögð sýnt. til að geta farið að flytja út vatn í plastflöskum í maí,“ sagði Þórar- inn. Vélasamstæðan kostar um 20 milljónir króna og til að byrja með verður vatni pakkað á 1V2 lítra og 0,3 lítra flöskur. Vatnið verður eingöngu selt á Bandaríkjamark- að. „Við værum auðvitað ekki að fara út í þessar fjárfestingar nema af því við höfum trú á þessu. MÖguíeikarnir á þessu sviði eru miklir, en þetta er dýrt, það þarf mikla peninga í markaðssetning- una og það er þar sem skóinn kreppir. Á þeim vettvangi þurfa vinnubrögðin að vera hnitmiðuð, það er ekki nóg að eiga húsnæði og geta keypt vélar, það er engin kúnst. Það eru 400 önnur vöru- merki á markaðnum sem við kepp- um við, þannig að það má orða það svo að þetta geti verið sýnd veiði en ekki gefin. Það er langt í frá að við séum farin að eyða gróðanum af þessum útflutningi, en við höfum vissulega trú á að þetta muni ganga í framtíðinni,“ sagði Þórarinn. Krossanes: 20 þúsund tonna markinu náð Skíðasvæðið nú opið daglega Skíðasvæðið í Hlíðarfjalli hefur nú verið opnað almenningi dag- lega og verður það opið frá kl. 13 til 19 alla virka daga, en frá kl. 10 til 17 um helgar. Ivar Sigmundsson forstöðumaður Skíðastaða sagði að gott skíða- færi væri nú í íjallinu, tvær lyftur væru opnar, þ.e. stólalyfta og stromplyfta og gætu skíðamenn valið um fjórar skíðaleiðir. Ein er í gilinu meðfram stóialyftunni, en hinar eru í Strýtu við stromplyftuna. Ivar sagði að loksins væri útlitið orðið gott og fyrirsjáanlegt að hægt væri að halda skíðasvæðinu opnu eins og venjulega. Þó nokkuð af fólki var á skíðum um helgina og fyrsti hópur skólafólks kom í Hlíðarfjall í gær, miðvikudag. Ferðir úr bænum upp í fjall verða hér eftir samkvæmt áætlun. Hótelherbergjum hefur fækkað úr 144 í 120: Umframframboð á hótelrými þó mikið miðað við árstíma - segir Gunnar Karlsson hótelstjóri á Hótel KEA GUNNAR Karlsson hótelsljóri á Hótel KEA segir að umframfram- boð á hótelrými á Akureyri sé mikið miðað við þennan árstíma. Lokun Hótels Stefaníu fyrir nokkru verði vissulega til þess að hin hótclin þrjú sem rekin eru í bænum fái fleiri gesti, en einkum um áramótin 1989-90. Akureyrsku loðnubátarnir Þórð- ur Jónasson EA og Súlan EA komu með fullfermi til Krossaness á sunnudag eða samtals um 2.100 tonn, en við það náðist 20 þúsund tonna markmiðið. Loðnuvertíðin hefur komið ágætlega út hjá verk- smiðjunni. „Ég yrði ekkert hissa þó við fengjum meiri loðnu og við munum síður en svo neita að taka á móti meira magni þó þessu marki sé náð,“ sagði Jóhann P. Andersen framkvæmdastjóri Krossaness, en búið verður að vinna þá loðnu í verksmiðjunni sem landað var á föstudagsmorg- un. Að lokinni loðnuvertíð verður farið að bræða bein, en sú vinnsla hefur verið í gangi í vetur sam- hliða loðnubræðslunni. Þá hóf verksmiðjan fyrir nokkru að vinna mjöl úr rækjuskel og sagði Jóhann þann þátt í starfsemi verksmiðj- unnar ganga allvel, en þó væri hægt að vinna úr mun meira hrá- efni en verskmiðjunni býðst um þessar mundir. Eingöngu er um komi það fram um helgar. Fjögur hótel hafa verið rekin á Akureyri, Hótel KEA, Hótel Stef- anía, Hótel Norðurland og Hótel Óðal, með samtals 144 herbergjum. í kjölfar lokunar Hótels Stefaníu fyrir nokkru fækkaði hótelher- bergjum í 120, en Gunnar telur að þrátt fyrir þessa fækkun sé um- framframboð enn talsvert þegar miðað er við nýtingu yflr vetrar- mánuðina. „Ég hugsa að á þessum tíma þegar umferðin er minnst myndu 80 herbergi vel duga,“ sagði Gunnar. Á Hótel Stefaníu eru 24 her- bergi og sagði Gunnar að vissulega yrðu menn varir við að gestir hót- elsins leituðu annað eftir lokunina, en það hefði þó ekki afgerandi áhrif, enda dreifðust þessir gestir á þrjú hótel. Þá væri nýting að jafnaði ekki mikil í miðri viku, en eflaust gæti lokunin að einhveiju leyti skýrt fleiri bókanir yfir helgar. Hann sagði að nú væri þó að lifna yfir viðskiptunum og sem dæmi hefði mátt heita að nær full- bókað hefði verið um síðustu helgi á hótelinu, vel bókað væri fyrir komandi helgi og helgin þar á eftir væri einnig nær fullbókuð. Þá væri líka þéttbókað á hótelið í apríl- mánuði. „Þetta er sá tími sem menn eru á ferðinni í svokölluðum helgarferðum, en það hefur líka haft sitt að segja hvað okkur varð- ar að mikið hefur verið um ráð- stefnur og fundahöld í bænum frá áramótum." Þrátt fyrir góða færð það sem af er vetri hefur umferð ferðafólks verið í dræmara lagi, að sögn Gunnars og taldi hann það einkum stafa af efnahagsástandinu í land- inu sem og óvissu í samningamál- um. „Það er minni umferð en á síðasta ári, m.a. frá fólki í ná- grannabyggðalögunum þrátt fyrir áð færðin sé hin ákjósanlegasta.“ Morgunblaðið/Margrét Þðra Júdóið vinsælt Akureyrarmót yngri flokka í júdó var haldið í júdósalnum í íþróttahúsi KA á sunnudag og kepptu fjöl- margir krakkar á aldrinum fjögurra til þrettán ára. Þessi íþróttagrein er afar vinsæl á Akureyri og hefur Jón Óðinn Óðinsson júdóþjálfari byggt starfsemi Júdódeildar KA upp af mikilli elju á liðnum árum. Á myndinni glíma Katrín og Skúli af miklu kappi á mótinu. Tónlistarskólinn: Þórunn Guðmundsdóttir og David Knowles leika ÞÓRUNN Guðmundsdóttir sópr- ansöngkona og David Knowles, píanóleikari halda tónleika í Tón- listarskólanuin á Akureyri sunnudaginn 22. mars næstkom- andi kl. 17. Undanfarin ár hefur Þórunn stundað nám í Bandaríkjunum, hún hefur lokið mastersgráðu og er langt komin með doktorsnám í söng og söngfræðum við Indiana Uni- versity. í tengslum við nám sitt hefur hún haldið átta sjálfstæða tónleika. David Knowles er Englendingur af velskum og þýskum ættum, hann hefur verið búsettur á íslandi síð- astliðinn tíu ár. Hann útskrifaðist frá Royal Northem College of Music í Manchester sem píanóleikari með undirleik sem sérgrein. Hann hefur komið fram með söngvurum og hljóðfæraleikurum bæði héiiendis og erlendis. Á efnisskrá tónleikanna á sunnu- daginn em lög eftir Warlock, Sibel- ius, Sinding, Sallinen, Rangström og Jón Leifs. (Fréttatilkynning) JNNLENT

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.