Morgunblaðið - 19.03.1992, Page 36
36
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. MARZ 1992
SIEMENS
Þvottavélar
Þurrkarar
Uppþvottavélar
Eldavélar
Örbylgjuofnar
'Gœfiatœki fyrir
þig og þína!
SMITH&
NORLAND
Nóatúni 4 - Sími 28300
Höfóar til
-fólks í öllum
starfsgreinum!
Spilið á öll spilin 52
__________Brids_____________
GuðmundurSv. Hermannsson
Bandariski háskólaprófess-
orinn og bridsmeistarinn Chip
Martel vann árlegu Bols-heil-
ræðakeppnina fyrir skömmu
með heilræði sem hann nefnir:
Spilið á öll spilin 52. Keppnin
fer þannig fram, að kunnir
bridsspilarar eru beðnir að
gefa bridsheilræði í málgagni
Alþjóðasambands bridsblaða-
manna og meðlimir sambands-
ins velja síðan úr heilræðunum
og þess má geta að Jón Baldurs-
son mun að öllum líkindum taka
þátt í næstu keppni. Verðlauna-
ritgerð Martels fer hér á eftir
í lauslegri endursögn:
„Þú spilaðir eins og þú sæir í
gegnum spilin,“ eru gullhamrar
sem ylja bridsspilurum um hjart-
aræturnar. Það er nauðsynlegt
hverjum bridsspilara að geta
reiknað út hvernig lokuðu hend-
umar líta út, en oft virðast ýmsir
möguleikar vera fyrir hendi.
Hæfnin til að komast að réttri
niðurstöðu skilur sauðina frá höfr-
unum.
íhugið til dæmis þetta dæmi-
gerða varnarvandamál:
Vestur
♦ 10842
y ÁG6
♦ K7
4KG63
Norður
♦ 963
y 1075
♦ 842
♦ 9852
Vestur Norður Austur Suður
1 lauf Pass 1 spaði Dobl
2 spaðar Pass Pass 3 grönd
Þú spilar út spaðatvisti gegn 3
gröndum og sagnhafi drepur kóng
austurs með ás. Hann tekur nú tíg-
ulás og spilar tíguldrottningu og
félagi spilar 10 og 9 og sýnir með
því tvíspil. Hvernig átt þú að spila?
Þú virðist þurfa að giska á hvert
sé rétta framhaldið. Ef sagnhafi á:
(a) S.ÁD H.Kxx T.ÁDGxxx L.ÁD;
dugar að halda áfram með spaðann
til að hnekkja samningnum en lauf
gefur sagnhafa 9. slaginn. En ef
sagnhafi á
(b) S.ÁD H.KDx T.ÁDGxxx L.Áx;
(c) S.ÁD H.KDxx T.ÁDGxxx L.Á;
verður þú að spila laufi til að btjóta
þér fimm slagi áður en sagnhafi
rekur út hjartaásinn. Og sagnhafi
getur átt allar þessar hendur fyrir
sínum sögnum.
En ef þú skoðar sagnir félaga
kemur rétta svarið í ljós. Hann
svaraði 1 spaða með aðeins 4-lit
og því getur hann ekki einnig átt
4-lit í hjarta. Því getur sagnhafi
ekki átt hendi (a) og þess vegna
verður þú að spila laufi til að bana
samningnum.
Góður spilari horfir á öll spilin
52, ekki aðeins eigin spil og spil
blinds. Þess vegna er Bols-heilræði
mitt: Þegar þú reiknar út hvaða
spil andstæðingarnir geta átt,
gakktu þá úr skugga um að út-
reikningar þínir séu í samræmi við
sagnir og spilamennsku beggja lok-
uðu handanna.
Ef vesturspilarinn hefði haft
þetta í huga hefði betur í þessu spili: Norður ♦ K963 y G875 ♦ D42 ♦ K2 honum farn
Vestur Austur
♦ Á108 ♦ G52
y á ♦ 43
♦ G109753 ♦ K86
♦ Á75 Suður ♦ 108643
♦ D74
y KD10962
♦ Á
♦ DG9
Vestur Norður Austur Suður
1 tígull Pass Pass 2 hjörtu
Pass 4 hjörtu A. pass
Vestur spilaði út tígulgosanum
og sagnhafi stakk upp drottningu
í blindum! Eftir að hafa tekið kóng
austurs með ás (austur gat varla
látið lítið) spiiaði sagnhafi spaða í
öðrum slag. Vestur hoppaði upp
með ásinn, og ætlaði að taka einn
slag í hveijum lit. Þar með slapp
sagnhafi við að gefa tvo slagi á
spaða.
Vestur sagði að hann hefði
reiknað með að sagnhafi ætti:
S.x H.KDlOxxx T.Áx L.DGxx.
En þótt þessi hönd passi við
sagnir og spilamennsku suðurs
hefði það þýtt að austur hefði pass-
að niður I tígul með
S.DGxxx H.xx T.Kx L.xxxx.
Og á þessi spil hefði hann svarað
með 1 spaða. Þar af leiðir að suður
á að minnsta kosti tvo spaða og
því var rétt að spara spaðaásinn í
öðrum slag.
Almennt séð verður þú mun
leiknari í að reikna út hvaða spil
eru á óséðu höndunum ef þú geng-
ur úr skugga um að báðar þær
hendur séu í samræmi við sagnir
og spiiamennsku fram að því. Ef
þú ferð eftir heilræði mínu munt
þú komast að því að „ágiskanir"
þínar standast oftar og oftar. Og
brátt mun félagi þinn og andstæð-
ingar þínir hrósa þér fyrir hæfiieik-
ann að virðast geta séð gegnum
spilin.
FLOTT Á ÞIG
—fermingarfötin færd þú í Hagkaup.
HAGKAUP
Kringlunni
!