Morgunblaðið - 19.03.1992, Side 43
43
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. MARZ 1992
Þorvaldur Sigurðs-
son - Kveðjuorð
© BOSCH
fyrir
fagmanninn
Fæddur 2. ágúst 1963
Dáinn 11. febrúar 1992
Þegar pabbi færði mér fréttirnar
af andláti Þorvaldar bróður míns, •
var mér allri lokið. Hvernig gat það
verið að hann, kornungur maðurinn
væri ekki lengur á meðakvor. Síð-
ast þegar við höfðum hist, það er
áður en hann átti að fara í upp-
skurðinn á hnénu, höfðum við talað
um að þegar því væri lokið og hann
búinn að fara í endurhæfingu
myndum við skreppa saman á ball
til að dansa. Þegar Þorvaldur var
yngri átti fótbolti hug hans allan,
og sýndi hann hina mestu leikni í
þeirri íþrótt, og var efnilegur mjög.
Slys á hnénu varð þess valdandi
að hann varð að leggja skóna á
hilluna og tók það mjög á hann.
Meðvindur hefur verið minni heldur
en mótvindur undanfarin ár, og því
fór sem fór. Nú á ég góðar minning-
ar um elsta bróður minn í systkina-
hópi föður míns, en þó að við höfum
ekki verið sammæðra, og áttum auk
þess þijá yngri bræður, höfðum við
engu að síður átt saman dýrlegar
stundir í hinum ýmsu fríum, þar
sem pabbi sá um að við hittumst
sem oftast. Flókið ijölskyldumynst-
ur okkar Þorvaldar; hann með sína
hálfbræður sammæðra, þá Sigur-
geir og Valgeir, og svo aftur sam-
feðra við mig, Viktor Svan, Hlyn
Smára og Aron Snæ, og svo ég
með mín fjögur hálfsystkini sam-
mæðra, varð oft að umræðuefni á
milli okkar. Þessar vangaveltur
voru harla óraunhæfar, þar sem
þær ultu upp á yfirborðið í heim-
sóknum okkar til ömmu og afa á
Irafossi, meðan við flatmöguðum
uppi á baðstofulofti og veltum því
fyrir okkur hvort allt væri ekki
betra ef að Sigrún og Reynir gengju
mér í foreldra stað. Jú, svo áttu
þau enga stelpu, og færu nú varla
að fúlsa við einni sem gæti hjálpað
til á heimilinu. Gauju og Geira átti
Þorvaldur að, hjá þeim hafði hann
herbergi, og í heimsókn minni þar
sem ég gisti hjá bróður mínum,
bjuggum við hjá þeim. Hann ætlaði
nú aldeilis að kenna systur sinni
hvernig ætti að bera sig að í golfi,
en eftir nokkur árangurslaus högg
sá hann að þessi kennsla stæði til
elliáranna með þeim framförum
sem ég sýndi, svo hann vatt sínu
kvæði í kross og fór með mig í alls-
heijar skoðunarferð um bæinn, þar
sem hann kynnti systur sína fyrir
hinum og þessum kunningjum, og
viðhafði fyndnustu tilburði við
kynninguna, þannig að ég roðnaði
og varð hin feimnasta. Gamansemin
og stríðnin var aldrei langt undan,
enda taldi ég þetta hina vænlegustu
kosti, og óskaði þess oft að ég hefði
þá til að bera. Þorvaldur var dugleg-
ur að rækta samband sitt við mig
eftir að ég komst á unglingsárin,
og vildi nú hafa hönd í bagga með
því hvernig ég bæri mig nú að því
þegar ég hafði náð 16 ára sveita-
balls-aldrinum, sendi hann mér
boðskort þar sem hann tiltók stund
og stað þar sem hann væri tilbúinn
að fylgja mér gegnum forboðnu
dyrnar, að samkvæmisiífi því sem
ég, unglingurinn, þráði svo að kynn-
ast. Eftir að ég fluttist vestur
minnkaði samband okkar, því að
íjarlægðin jókst, og ekki svona í
leiðinni að skreppa í heimsókn til
mín. En eftir að ég kom til Reykja-
víkur fyrir um það bil tveimur árum
til að hefja nám jókst það á nýjan
leik, og upplifði ég þá nýtt samband
við Þorvald þar sem ég gerði hann
að trúnaðarvini mínum, og leitaðist
hann við að hjálpa mér með marg-
vísleg málefni sem hann hafði þekk-
ingu og reynslu af. Það var gott
að geta talað við hann, og sótti ég
styrk tij hans þegar ég þurfti á að
halda. Ég hefði óskað þess að hann
hefði getað gert hið sama. Elsku
pabbi, Sigrún, amma, afi, Gauja,
Geiri og aðrir aðstandendur, megi
Guð gefa ykkur styrk í sorg ykkar.
Ég veit að þessi bæn hefur hjálpað
mörgum á erfiðum stundum, þar á
meðal Þoi’valdi. Megi hún hjálpa
ykkur.
Guð gefi mér æðruleysi til þess
að sætta mig við það sem
ég fæ ekki breytt,
kjark til að breyta því sem
ég get breytt,
og vit að greina þar á milli.
Stingsög m/SDS blaöfestingu.
Lykillaus blaðfesting. Þreplaus
hraöastilling stillanlegt land
Slípirokkur skífustærð 180 mm
„SDS“ skífufesting. Lykillaus
skífufesting. 2000 W.
<2\
Gunnar Ásgeirsson hf.
Aðalheiður Svana
Sigurðardóttir.
Borgartún 24
Sími: 626080 Fax: 629980
Umboðsmenn um land allt
Ö
<S^BOC/
4>
%]
opnar Sigurboginn,
ný snyrti- og gjafavöruverslun
á Laugavegi80
Gréta Boða, förðunarfræðingur, verðurá staðnum
og veitirfaglega ráðgjöf um liti og förðun.
—~Ti Tekiðer við tímapöntunum
KENZO ■ síma 611330, ef óskað er.
J ROCHAS
Ctuiríci o! tltc &rfz .y,
Verið velkomin að líta inn. I '
SIGURBOGINN
laprairie
| SWIT2ERLANO
t
Astkær sambýliskona mín, dóttir okkar,
systir og mágkona,
KOLBRÚIM SVALA
ANDERSDÓTTIR,
Borgarvegi 44,
Ytri-Njarðvík,
verður jarðsungin frá Ytri-Njarðvíkur-
kirkju föstudaginn 20. mars kl. 14.00.
Birting afmælis-
og minningargreina
Morgunblaðið tekur afmæl-
is- og minningargreinar til
birtingar endurgjaldslaust.
Tekið er við greinum á rit-
stjórn blaðsins á 2. hæð í Aðal-
stræti 6, Reykjavík og á skrif-
stofu blaðsins í Hafnarstræti
85, Akureyri.
Athygli skal á því vakin, að
greinar verða að berast með
góðum fyrirvara. Þannig verður
grein, sem birtast á í miðviku-
dagsblaði að berast síðdegis á
mánudegi og hliðstætt er með
greinar aðra daga.
í minningargreinum skal hinn
látni ekki ávarpaður. Ekki eru
tekin til birtingar frumort ljóð
um hinn látna.
Sverrir Guðlaugsson,
Guðrún Þóroddsdóttir, Anders Guðmundsson,
Bára Andersdóttir, Borgar Lúðvík Jónsson,
Oddur Sævar Andersson, Freyja Jóhannsdóttir,
Anna Guðrún Andersdóttir, Elfar J. Eiríksson,
Guðmundur Andersson.
t
SIGURÐUR ÓLI ÓLAFSSON
fyrrverandi alþingismaður,
Fossheiði 34,
Selfossi,
sem lést 15. mars sl., verður jarðsunginn frá Selfosskirkju laugar-
daginn 21. mars kl. 13.30.
Ferð verður frá Umferðarmiöstöðinni kl. 12.00.
Kristín Guðmundsdóttir,
Þorbjörg Sigurðardóttir, Kolbeinn Ingi Kristinsson,
Sigriður Ragna Sigurðardóttir, Hákon Ólafsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi,
HALLGRÍMUR THORLACÍUS,
Öxnafelli,
lést í Fjórðungssjúkrahúsi Akureyrar 13. mars.
Jarðarförin fer fram frá Grundarkirkju laugardaginn 21. mars
kl. 14.00.
Sesselja Andrésdóttir,
Ólafur Andri Thorlacíus, Fjóla Aðalsteinsdóttir,
Andri Thorlacius, Sindri Thorlacíus.
t
Ástkær eiginmaður, faðir, tengdafaðir og afi,
TORFI HELGI GÍSLASON,
Hafnargötu 74,
Keflavík,
verður jarðsunginn frá Keflavíkurkirkju þann 21. mars kl. 14.00.
Anna Bergþóra Magnúsdóttir,
Magnús Torfason, Kristín Helgadóttir,
Gísli Torfason, Sumarrós Sigurðardóttir
og barnabörn.
t Alúðarþakkir sendum við öllum þeim, sem sýndu okkur samúð og vináttu við fráfall og jarðarför
HARALDAR GUNNLAUGSSONAR.
Ágústa Haraldsdóttir, Árni Guðmundsson,
Gunnlaugur Haraldsson, Anna Vignis,
Herdís Haraldsdóttir, Hörður Haraldsson,
Lórelei Haraldsdóttir, Sigþór Lárusson, Þórður Kristjánsson,
Unnur Haraldsdóttir,
Þuríður Haraldsdóttir, Bjarni Sigurðsson,
Laila Hannesdóttir, indriði Jónsson, Helga Magnúsdóttir.
Róbert Hannesson,
t
Þökkum af alhug öllum þeim, sem sýndu okkur samúð og vin-
semd við andlát og útför
GUÐLAUGS GÍSLASONAR
fv. alþingismanns og bæjarstjóra
í Vestmannaeyjum.
Sigurlaug Jónsdóttir,
börn, tengdabörn, barnabörn
og barnabarnabörn.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og
útför eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður og ömmu,
JÓHÖNNU MARÍU BJARNADÓTTUR,
Dalatanga 25,
Mosfellsbæ.
Steindór Marteinsson,
Herdís Bjarney Steindórsdóttir, Snæbjörn Ingvarsson,
Guðriður Steindórsdóttir, Gunnar Þorvaldsson,
Þorgeir Lawrence
og barnabörn.
t
Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug við andlát konu minnar,
móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
HULDU MARÍU KARLSDÓTTUR,
Suðurgötu 15-17,
áður til heimilis á Blikabraut 9,
Keflavík.
Bjarni Guðmundsson,
Karl G. Sævars, Hallfríður Ingólfsdóttir,
Ingveldur Bjarnadóttir, Þröstur Einarsson,
Fríða Bjarnadóttir, Sigurður Herbertsson ,
Guðbjörn Bjarnason, Sigurlaug Þráinsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Innilegt þakklæti fyrir auðsýnda samúð
við fráfall eiginmanns míns,
SVERRIS JÓNSSONAR
járnsmiðst
Faxatúni 18,
Garðabæ.
Sérstakar þakkir til lækna og hjúkrunar-
fólks gjörgæsludeildar Borgarspítalans
fyrir kærleika og hlýju.
Guðrún Ólafsdóttír.