Morgunblaðið - 19.03.1992, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. MARZ 1992
45
Sólarkaffi Súgfirðinga
Suðureyri.
Það var margt um mannin í
Félagsheimili Súgfirðinga
sunnudaginn 1. mars þegar Súg-
firðingar komu þar saman til þess
að fagna komu fyrstu sólargeisl-
anna á þessu herrans ári 1992.
Kvenfélagið Arsól sá um kaffi-
veitingar að vanda. Ýmsilegt var
gert til þess að gleðja augu, eyra
og maga enda mikið fagnaðarefni
þegar að fyrstu geislar sólar teygja
arma sína inn milli íjallanna sem
merki þess að nú fari vetri að halia.
Sýndur var fatnaður frá nokkr-
um verslunum á ísafirði þar sem
hinar ljölhæfu kvenfélagskonur
ásamt börnum sínum sáu um
sýningarstörf. Hljómfögur dinner-
tónlist gladdi eyru kaffigestanna
enda fingrafimir tónlistarmenn
sem sáu um tónlistarflutninginn.
Þeir Sigurður Daníelsson sem lék
á píanó og Guðmundur Ágústsson
sem lék á harmonikku. Þá má
ekki gleyma dýrindis tertuhlað-
borði sem svignaði undan fagur-
skreyttum ijómatertum ásamt
öðru góðgæti sem rann ljúft í
Morgunblaðið/Sturla Páll Sturluson
Súgfirðingar létu sig ekki vanta á sólarkaffi Ársólarkvenna á Suður-
eyri sunnudaginn 1. mars sl.
Snyrtisérfrœbingur kynnir vorlitina
frá GIVENCHY kl. 13-17 í dag.
Sara
Bankastræti 8
maga kaffigestanna. Allur hagn-
aður af kaffisölunni mun renna til ■
kaupa á heitum potti við nýju
sundlaugina á Suðureyri.
- Sturla Páll.
VINABÆJARHEIMSOKN
Könnuðu Islendinga-
sögukunnáttu
jafnaldra sinna
Bærinn Fitjar í Noregi er vina-
bær Njarðvíkur og í síðustu
viku kom hópur nemenda ásamt
kennurum sínum og heimsótti
Njarðvíkinga. Heimsóknin var lið-
ur í sögunámi hjá norsku ungling-
unum sem dvöldu hér í eina viku.
Þau notuðu tímann vel á meðan á
heimsókninni stóð og fóru í
skoðunarferðir alla dagana. Meðal
annars heimsóttu þau forseta ís-
lands, Vigdísi Finnbogadóttur, og
tóku við hana viðtal. Þá töluðu þau
við kvennalistakonu og könnuðu
kunnáttu jafnaldra sinna á Islandi
í íslendingasögunum.
Norsku unglingarnir gistu á
heimilum í Njarðvík og í Keflavík.
Þau voru ákaflega ánægð með Is-
landsferðina sem þau sögðu að
hefði verið mikil upplifun. Þau
ætla síðan að skrifa ferðasöguna
í staðarblöðin og hvers þau urðu
vísari í ferðinni til íslands.
BB-
FJALLAH JÓLIN
SELDUST UPP 1991!
1992 ÁRGERÐIN ER KOMINl
Jazz VOLTAGE eru
geysivinsæl hérlendis
sem erlendis, enda var
VOLTAGE nýlega tilnefnt
„Bestu kaup í ódýrari
fjallahjólum“ af tímariti
bandarisku
neytendasamtakanna
„Qonsumer Reports“.
Jazz VOLTAGE eru til í
mörgum stellstærðum
fyrir unglinga og fullorðna
og bæði kynin. Þau eru
öll með 18 gírum,
breiðum og grófum
dekkjum, flötu stýri
o.s.frv.
Jazz Vo/fage verö kr. 24.929,- stgr.
Reiðhjólavers/unin
VISA'
Sérverslun SKEiFUNNi 11 SIMI67 98 90
i 65 ár verkstæðið sími 679891
RAÐGREIÐSLUR
PóstsenduYn um land allt
TREKi
FÖGNUÐUR
Morgunblaðið/Björn Blöndal
Norsku unglingarnir frá Fitjum í Noregi á síðasta degi heimsóknar-
innar, en þá var þeim haldið matarboð af bæjarstjórn Njarðvíkur í
veitingahúsinu Þotunni í Keflavík.
Hoostœtt verð ti Storno forsimum
(Storn®
\fcið er rniðaö vift
gengi 27. jan. 1992.
Vegna mikillar sölu á síðasta ári náðum við mjög
hagstæðum samningum við framleiðendur og getum
nú boðið Storno farsíma á hreint ótrúlega lágu verði.
Storno bílasími kr. 79*580 stgr. með vsk.
Storno burðarsími kr. 84.280 stgr. með vsk.
Burðarsíma fylgir 4 Ah rafhlaða.
POSTUR OG SIMI
Söludeildir í Ármúla 27, Kirkjustræti, Kringlunni
og á póst- og símstöðvum um land allt