Morgunblaðið - 19.03.1992, Page 51
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. MARZ 1992
51
Frá sýningu Fjölbrautaskóla Vesturlands á Blóðbræðrum.
Blóðbræður
Adda Rúna Valdimarsdóttir:
Fjölbrautaskóli Vesturlands á
Akranesi sýnir um þessar mundir
söngleikinn Blóðbræður eftir Willy
Russell. Megas íslenskaði. Söng-
leikurinn Blóðbræður íjallar um
tvíburana Mikka og Edda sem eru
aðskildir þegar þeir eru nýfæddir,
þar sem Jóna, fátæk móðir þeirra,
er alltaf að fjölga mannkyninu og
barnaverndarnefnd er byijuð að
snuðra. Jóna lætur því frú Ljóns,
vinnuveitanda sinn, fá annan tví-
burann. Frú Ljóns rekur svo Jónu
og hefur mikið fyrir því að koma
í veg fyrir að tvíburarnir hittist.
En þeir hittast af tilviljun þegar
þeir eru 7 ára og gerast fóstbræð-
ur. Þeir Mikki og Eddi taka upp
á mörgu skemmtilegu sem ekki
er vert að skrifa hér.
Það koma einnig fleiri við sögu:
Linda vinkona bræðranna, Sammi
eldri bróðir þeirra, herra Ljóns og
margar aðrar persónur.
Verkið byggist að miklu leyti
upp á tónlist, á milli 30 og 40
tónlistaratriði og mikið fjör allan
tímann. Þetta er í annað sinn sem
söngleikurinn Blóðbræður er settur
upp á íslandi. Leikfélag Akureyrar
sýndi verkið árið 1986 á Akureyri.
Um 50 manns taka þátt í sýn-
ingunni á Akranesi, þar af 9
manna hljómsveit. Leikstjóri er
Þröstur Guðbjartsson.
Willy Russell er fæddur árið
1947 í bænum Whiston sem er
nálægt Liverpool í Englandi. Hann
hefur skrifað mörg leikrit sem
hafa verið sýnd í leikhúsum og í
sjónvarpi. Hann hefur jafnframt
verið einn af þeim leikhússtjórum
sem átt hafa ríkan þátt í því hvað
Liverpool Playhouse hefur gott orð
á sér.
A 7. áratugnum samdi Russell
mörg þekkt dægurlög, svo sem „I
played in my back yard-yesterday“
og „The Mersey“, en flest hans lög
eru nú gleymd og grafin, sem
manni finnst furðulegt þegar mað-
ur heyrir tónlistina í „Blóðbræðr-
um“.
Blóðbræður er fyrsti söngleikur
Russells, hann samdi alla tónlist-
ina sjálfur. Það hafði lengi verið
draumur hans að skrifa söngleik,
þá meinar hann ekki bara handrit-
ið og söngtextana, heldur SÖNG-
LEIK: texta, ljóð og tónlist. „Bróð-
bræður“ var frumsýndur árið 1983
við mikið lof áhorfenda og gagn-
rýnenda.
VELVAKANDI
VISTHOLLIR
ÍSSKÁPAR
Jórunn Sörensen:
Hér með er lýst eftir visthollum
ísskáp. Á ferðum mínum er-
lendis hef ég séð að ísskápar
eru stundum auglýstir sem vist-
hollir. Mér er ekki alveg ljóst
við hvað er átt, hvort þeir eru
þá alveg lausir við efni er
myndu skaða ósonlagið ef þau
slyppu út í andrúmsloftið eða
hvort aðeins er minna af þeim
í kælikerfi skápsins. Eru vist-
hollir ísskápar til hér á landi?
UMFERÐAR-
ÓHAPP
Föstudaginn 13. mars, kl.
16.10, ók drengur á reiðhjóli á
hlið fólksbifreiðar á gatnamót-
um Ármúla og Háaleitisbraut-
ar. Leigubílstjóri sem varð vitni
að óhappinu er beðinn að
hringja í Fjólu í síma 814022
milli kl. 9 og 16.
R-8154
Miðvikudaginn 11. mars var
bifreiðinni R-8154 stolið af bila-
stæði Fjölbrautarskólans í
Breiðholti. Atburðurinn átti sér
stað milli kl. 15 og 18. Bifreið-
in er af gerðinni SAAB 99, ljós-
drapplit, með krók að aftan og
stuðarinn að aftan er beyglaður
upp. Allir þeir sem geta gefið
einhveijar upplýsingar vinsam-
legast hafi sambarid við Lög-
regluna í Reykjavík.
HÁLSFESTI
Gullhálsfesti með múrsteinam-
unstri tapaðist á Hótel Örk í
Hveragerði fimmtudagskvöldið
5. mars. Þetta er persónuleg
gjöf sem er mjög sárt saknað.
Finnandi er vinsamlegast beð-
inn að hringja í síma 75609.
Erpening
brennt að
óþörfu?
Frá David Butt:
Innilega þakka ég ykkur öllum, fjölskyldu
minni, œttingjum og vinum, sem glöddu mig
meÖ gjöfum, skeytum og hlýjum Jcveöjum á
70 ára afmœli mínu, þann 11. febrúar sl.
Kœrar kveÖjur.
Sigurður Sveinsson,
Hjallavegi 38, Reykjavík.
Mengunarmæling sem fram-
kvæmd var af LLoyds Register
of Shipping á 50 skipum á árinu
1990 sýndi að óbrennt eldsneytið
(HC) var að meðáltaii 2,7 kíló á
hvert tonn af brenndu eldsneyti.
Þegar þetta er reiknað í pening-
um þýðir það að fyrir hver 1.000
hö fara út í andrúmsloftið 200.000
krónur af óbrenndu eldsneyti.
Dæmi: 10.000 liö vél sem er keyrð
6.000 klst mun tapa 2.000.000
kr. 100 hö vél sem er keyrð 3.000
klst mun tapa 20.000 kr.
Samkvæmt nýjustu upplýsing-
um sem koma frá Bretlandi er
hægt að minnka þetta verulega.
Sá fjöldi skipa sem er með svo-
kallaðan „cleanburn" brennslu-
hvata hafa staðfest meðal annars
3 til 7% eldsneytis sparnað og
kannski það sem skiptir mestu
máli í dag er það að útblásturs-
mengun hefur minnkað talsvert.
Þessi sparnaður hefur verið stað-
festur af Llyods Register of Shipp-
ing, tækni og umhverfisdeild. Is-
lensk skip hafa einnig staðfesta
þetta.
Mengunarmæling sem var
framkvæmd á skipsvélum og öðr-
um vélum sem brenna gasolíu
hafa sýnt að óbrennt eldsneytið
(HC) í útblæstri hefur minnkað
allt að 60% þegar notaður er þessi
tegund af brennsluhvata. Þar kom
einnig fram að bæði NOx og Co.
hafa minnkað um 30 til 50%.
Amk. eitt skipafélaga (P & O
European Ferries, Felixstowe)
hefur fengið viðurkenningu fyrir
sitt átak í þágu umhverfismála. P
& O hefur notað „cleanburn" á sín
skip í tvö ár.
Siglingamálastofnun ríkisins
samþykkti nýlega notkun „clean-
burn“ á íslensk skip.
Umhverfismálaráðuneytið hef-
ur ekki ennþá, eftir eitt og hálft
ár tekið neina afstöðu til þessa
búnaðar eða „powerplus“ búnaðar,
þrátt fyrir að fjöldi skýrsla og stað-
festinga frá opinberum stofnunum
og einkafyrirtækjum sem hafa
prófað bæði „powerplus" eða „cle-
anbum“ er sent næst um því viku-
lega til umhverfismálaráðuneytis-
ins.
DAVID BUTT
Jaðarsbraut 7
Akranesi
Eftirmáli við
sorgarsögu
Frá Vilhjálmi Inga Árnasyni:
Sagan, sern sögð var í sunnudags-
blaðinu:,, Sorgarsaga í tilefni al-
þjóðadags neytenda“ er ekki búin.
Gamla konan var að fá tilkynn-
ingu um það að þrátt fyrir að hún
hafi borgað 50.000 krónurnar, þá
standi eftir um 20.000 krónur sem
hún skuldi. Miðað við það sem á
undan er gengið væri hægt að
hafa af henni enn meira, allt í
skjóli laga og réttar.
Hvar eruð þið lögmenn og laga-
semjendur íslands?
Hvemig stendur á því, að stöð-
ugt heyrist af óheiðarlegum lög-
mönnum, en minna af aðgerðum
til að sporna við starfsemi þeirra?
Er samtryggingin meðal ykkar
svo sterk, að þið standið ekki upp
og veijið heiður stéttarinnar og
þess lagabókstafs sem þið eigið
að túlka?
Fynnst ykkur siðleysi í lagi svo
lengi sem það getur talist löglegt?
VILHJÁLMURINGI ÁRNASON
Pétursborg, Glæsibæjarhreppi.
INNRÉTTINGAEININGAR sem seldar
eru flatpakkaðar af lager
Á LÆGRA VERÐI en þekkst hefur
fyrir gæðainnréttingar
VÖNDUÐ VARA fró Danmörku
SIEMENS
Kq?li - og frvstitœki í miklu úrvali!
Lítiö inn til okkar og skoðið vönduð
vestur-þýsk heimilistœki!
Hjá SIEMENS eru gœði, ending og
fallegt útlit ávallt sett á oddinn!
SMITH&NORLAND
NÓATÚNI 4 • SlMI 28300