Morgunblaðið - 19.03.1992, Blaðsíða 52
52
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. MARZ 1992
NEYTENDAMAL
Lesblinda
Nýlegar rannsóknir á lesblindu (dislexiu) þykja benda til þess
að lesblindir hafi meðfæddan galla í sjóntengikerfi í heila sem
geti valdið truflunum á mál- og lestrarhæfni og orðið einstakl-
ingi alvarleg hindrun í námi. Niðurstöður nýjustu rannsókna
komu fram í bandarískum dagblöðum, m.a. Boston Globe, í sept-
ember og október á síðasta ári. Eldri rannsóknum á lesblindu
var einnig lýst í Science News í september 1990.
Rannsóknirnar þykja hafa
sýnt fram á að lesblindir geti
haft fleiri galla í heilastarfsemi
sem geti orsakað truflanir á sjón
og heyrn. Truflanir á sjónsviði
og við greiningu á hljóðum geta
hindrað lesblinda við að meðtaka
ritað eða talað mál nægilega
hratt eða af nákvæmni. Kenn-
ingar hafa komið fram um að
orsakir sé að finna í þeim hluta
heilastarfseminnar sem vinnur
úr málinu, bæði töluðu og rit-
uðu. Nýjustu rannsóknir þykja
hafa sýnt fram á að truflanir í
framköllun sjónmyndar koma
mjög snemma fram hjá barni,
jafnvel áður en það lærir að tala.
Ef miklar truflanir verða bæði á
sjón og heyrn getur það hindrað
hæfileika barnsins til að skilja
tengslin sem eru á milli ritaðra
orða og þeirra hljóða sem mynda
orðin. Vísindamenn segja að
þetta geti verið ein af grunnor-
sökum námserfiðleika.
Lesblinda er trúlega mun al-
gengari en talið hefur verið. Hún
er til á mörgum stigum, væg og
á háu stigi, t.d. er talið að 10-15
prósent bandarísku þjóðarinnar
hnjóti um hin rituðu orð. Les-
blinda er algeng námshindrun
og er talið að hún sé fyrir hendi
á háu stigi hjá 4-5 prósentum
barna í Bandaríkjunum. Þá er
átt við þau börn sem hafa það
slæma Iesblindu að hún veldur
þeim miklum erfiðleikum við
lestur og við að tjá sig, og staf-
setja rétt. Þessar trufianir eru
þó á engan hátt tengdar greind
eða vitsmunum einstaklingsins.
Rannsóknir á lesblindu og
lestrarerfiðleikum hafa 'verið í
gangi við fjölda háskóla, bæði í
Astralíu og í Bandaríkjunum.
Mary C. Williams, sem er sál-
fræðingur við Háskólann í New
Orleans, rannsakaði hóp 8-12
ára lesblindra barna sem voru
með greind vel yfir meðallagi.
Þau reyndust vera allt að tveim
árum á eftir sínum jafnöldrum í
lestri, þrátt fyrir eðlilegan
árangur á öðrum sviðum. Áður
höfðu kannanir hennar og Will-
iams Lovengrove, vísindamanns
við Wollongong-háskóla í Ástral-
íu, leitt í ljós að hjá 70 prósent-
um lesblindra barna komu fram
hindranir á sjóntengisvæði, sem
er einskonar skiptiborð tauga-
boða í sjónstöð í heila, og sem
síðan framkallar heildstæða
mynd af sjónupplýsingum eins
og hreyfingu, fjarlægð og augn-
hreyfingar. Þau komust að því,
að flestir lesblindir virðast að
öðru leyti vinna eðlilega úr öðr-
um upplýsingum eða sjónmerkj-
um sem fyrir þá ber.
Vísindamenn hafa reynt að
finna leiðir til aðstoðar þeim sem
fæddir eru með þessar tafir eða
hægagang sjónmyndar á sjón-
tengisvæði. Gerðar hafa verið
tilraunir með að leggja litaðar
glærur yfir texta sem á að lesa.
Prófuð voru 38 lesblind börn og
32 börn með eðlilega sjón og
Nokkrar rannsóknir tengdar
hjartasjúkdómum, þykja benda til
þess að téngsl geti verið á milli
kaffidrykkju og hjartasjúkdóma
og kaffineytendur hafa óspart ver-
ið hvattir til að sniðganga venju-
legt kaffi til að vemda hjartað og
drekka fremur kaffeinlaust kaffi
í staðinn. Vísindamenn hafa lengi
talið það vera nokkuð öruggt að
neikvæð áhrif kaffis á hjartað séu
vegna kaffeins í kaffi. En ekki
lengur. Nú segja vísindamenn að
það sé ekki hið venjulega kaffi
heldur sé það kaffeinlausa kaffið
sem auki kólesteról í blóði og um
leið hættu á hjartasjúkdómum.
Að vísu hefur ekki verið kannað
hvort munur geti verið á innihaldi
hinna ýmsu tegunda kaffibauna
eða hvort hinar mismunandi að-
ferðir við að laga kaffi'geti haft
þar einhver áhrif á.
Science News greinir frá þess-
voru þau látin lesa texta á hvít-
um grunni í gegnum rauða, bláa
og græna glæru eða af tölvu sem
var með þessa liti á skjánum. í
ljós kom að lesblindir sýndu 80
prósenta framfarir í lestri þegar
bakgrunnur texta var blár eða
ljósgrár. Börn með eðlilega sjón
sýndu einnig nokkrar framfarir.
Aðrir litir sem prófaðir voru
reyndust engin áhrif hafa eða
neikvæð áhrif.
Ekki er vitað hvers vegna blái
liturinn eða sá ljósgrái getur
hraðað sjónupplýsingum til sjón-
stöðvar. Tilgátur hafa verið um
ari rannsókn á áhrifum kaffis á
hjartað, en niðurstöður hennar
voru birtar í bandaríska tímaritinu
Amerícan Journal of Clinical Nut-
rítion í september síðastliðinn. Um
var að ræða 16 vikna rannsókn
sem stjórnað var af Robert Su-
perko við hjartadeild Kaliforníu-
háskólans í Berkeley. Þátttakend-
ur voru 181 heilbrigður karl, sjálf-
boðaliðar, sem ekki reyktu en
drukku að jafnaði 3-6 bolla af
kaffi á dag.
Rannsóknin fór fram á þann
hátt að þátttakendur voru látnir
hafa venjulegt kaffi sem þeir áttu
að laga á hefðbundinn hátt í gegn-
um síur. Átta vikum síðar var
þátttakendum skipt í þrjá hópa.
Einn hópurinn fékk venjulegt
kaffi, annar fékk kaffeinlaust
kaffí og sá þriðji átti að sleppa
kaffidrykkju. Þátttakendur voru
beðnir um að snerta ekki annað
að lesblinda einstaklinga skorti
þessa liti í sjóntenginu sem
hindri að boðin komist eðlilega
um sjóntengið til sjónstöðvar í
heila.
Þessar rannsóknir eru taldar
mikilvægar, ekki síst til að eyða
fordómum gagnvart börnum sem
haldin eru lesblindu en hafa ver-
ið álitin hafa takmarkaðan mál-
skilning.
Harvard-vísindahópur undir
stjórn Margaret Livingston birti
nýjustu niðurstöður í The Natio-
nal Academy of Science ásamt
Glenn Rosen og Frank Drislain.
kaffi það sem eftir var rannsókn-
artímans.
Rannsóknin leiddi í ljós að hjá
þeim sem höfðu drukkið venjulegt
kaffi urðu engar breytingar á kól-
esterólmagni í blóði. Aftur á móti
varð um 6 prósent aukning á low-
density lipoprótein (LDL), hjá
þeim sem drukku kaffeinlausa
kaffið, en LDL er slæma kóleste-
rglið sem tengt hefur verið hjarta-
sjúkdómum. Þessi aukning var
reiknuð út og taldist hún jafngiida
10 prósenta áhættuaukningu. Ro-
bert Superko segir að þessi niður-
staða geti haft varhugaverðar af-
leiðingar þar sem talið er að um
20 prósent bandarískra kaffineyt-
enda drekki káffeinlaust kaffi.
Menn spyrja eðlilega, hvaða
efni eru það í kaffi sem geta haft
áhrif á kólesterólið? Superko telur
að um geti verið að ræða eitthvað
ákveðið efnasamband í kaffibaun-
Þau fengu til liðs við sig fimm
lesblinda einstaklinga og sjö
sjálfboðaliða sem ekki höfðu
truflanir á sjóntengi í heila, til
að taka að sér ákveðin sjónsviðs-
verkefni. Könnuð voru viðbrögð
heila við mismunandi hraða, m.a
með því að sveifla tveim kólfum
hratt fyrir augu þátttakenda. í
ljós kom að lesblindir framköll-
uðu mun hægar það sem fyrir
augu bar en hinir. Lesblindir sáu
aðeins annan kólfinn á meðan
sjálboðaliðar með eðlilega sjón
sáu báða.
inni sem hafi þessi áhrif og það
efnasamband sé aðeins að finna í
ákveðnum tegundum af kaffi-
baunum.
Venjulegt kaffi og kaffeinlaust
kaffi kemur ekki frá sömu bauna-
tegundinni. Venjulegt kaffein-
kaffi er lagað úr arabica baunum,
aftur á móti eru kaffeinlausar
kaffiblöndur aðallega úr robursta
baunum. Nú er unnið að því að
rannsaka frekar efnasamsetningu
þessara kaffitegunda í því skyni
að kanna betur mismun á inni-
haldi, sem gæti útskýrt hvað það
sé sem valdi aukningu á slæma
kólesterólinu LDL í blóði þeirra
sem drekka kaffeinlaust kaffi.
Það er orðið erfitt að lifa. Með
því að fyrirbyggja eina hættu er
annarri boðið heim.
M. Þorv.
Er meiri hætta á hjartasjúkdóm-
um við neyslu kaffeinlauss kaffis?
ÁRNAÐ HEILLA
Ljósmyndastofan Mynd, Hafnarfirði
HJÓNABAND. 31. desember sl.
voru gefin saman í Árbæjarkirkju
Eysteinn Arason og Katrín Óskars-
dóttir. Prestur var sr. Önundur
Björnsson. Þau eru til heimilis á
Jófríðarstaðavegi 11, Hafnarfirði.
Ljósmyndastofan Mynd, Hafnarfirði
HJÓNABAND, 22. febrúar sl. voru
gefin saman í Bessastaðakirkju
Snorri Jósepsson og Halla Jónsdótt-
ir. Prestur var sr. Bragi Friðriks-
son. Þau eru til heimilis að Hofi,
Álftanesi.
Mynd/Ljómyndarinn-Jóhannes Long
HJÓNABAND. 15. febrúar voru
gefin saman í hjónaband í Kópa-
vogskirkju af séra Pálma Matthías-
syni Helga Eiríksdóttir og Jósef
Pálsson. Heimili þeirra er í Víði-
hvammi.
Ljósmyndastofa Gunnars Ingimarssonar
HJÓNABAND. Hinn 9. nóvember
sl. voru gefin saman í hjónaband í
Hallgrímskirkju af sr. Grími Gríms-
syni, Sigurey Valdís Eiríksdóttir og
Stefán Torfi Sigurðssori. Heimili
þeirra er að Skólavörðustíg 29.
Ljósmyndastofa Gunnars Ingimarssonar
HJÓNABAND. Gefin voru saman
í hjónaband 20. september síðastl.
Lamiad Wongsun og Sigurður Á.
Ísaksson. Heimili þeirra er að Kára-
stíg 3, Reykjavík.