Morgunblaðið - 26.04.1992, Blaðsíða 1
96 SIÐUR B/C
94. tbl. 80. árg.________ SUNNUDAGUR 26. APRÍL 1992 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Afganistan;
Skæruliðar Hekmatyars
hernema forsetahöllina
Kabúl. Reuter.
SKÆRULIÐAR Gulbuddins Hekmatyars, heittrúaðs múslima, hertóku í gær for-
setahöllina í miðborg Kabúl og sögðust vera að undirbúa komu leiðtoga sins til
höfuðborgarinnar. Aður hafði Hekmatyar hafnað samkomulagi afganskra skæru-
liðahreyfinga um myndun nýs ráðs til að stjórna landinu til bráðabirgða.
Einmana alba-
trosi í norðrinu
ÁSTSJÚKUR
albatrosi hefur
verið að leita að
maka vitlausum
megin á jörð-
inni undanfarin
tuttugu ár.
Hann er nú enn
einu sinni kom-
inn til Herma-
ness, nyrst á
Hjaltlandseyj-
um, og byijað-
ur að fara á fjörurnar við súlur, sem
vijja auðvitað ekkert með hann hafa.
Fuglinn er með rúmlega tveggja metra
vænghaf en hann kemst samt ekki frá
Norður-Atlantshafinu yfir á næstu
varpstöðvar albatrosa, sem eru á Falk-
landseyjum í um 12.000 km fjarlægð.
Hann hefur því leitað til Hermaness á
hveiju vori frá 1972. Fuglafræðingar
telja hugsanlegt að annar albatrosi af
sömu tegund sé á norðurslóðum en
segja það nánast útilokað að þeir myndu
þá hittast í víðáttu hafsins.
Krabbameins-
varnir og kaffiböð
HEILSUBÖÐ eru mikið í tísku hjá ný-
ríkum Kínverjum og vinsælast að baða
sig upp úr sjóðheitu kaffi. Á það að
bæta blóðrásina og yngja húðina en auk
þess er boðið upp á bað í mjólk, te,
ediki og alls konar krúsarlegi, til dæm-
is hrísgijónavíni. Kostar hvert bað um
600 ISK., sem þykja góð vikulaun hjá
flestum Kínveijum. Almenningur á þess
líka kost að yngja sig upp fyrir lítinn
pening, til dæmis með því að nota kin-
verska tannkremið SOD en það hreinsar
ekki aðeins tennurnar, heldur sér það
til þess, að Elli kerling gerist ekki of
nærgöngul. Þá má nefna sígaretturnar
frá Yunnan. Þær koma beinlínis í veg
fyrir, að fólk fái krabbamein.
Ilmurinn skipt-
ir líka máli
BARÁTTAN milli bílaframleiðenda er
hörð og nú er svo komið, að það eru
ekki aðeins kostir bílsins sem bíls, sem
máli skipta, heldur einnig hvaða lykt
fylgir honum. Nissan-verksmiðjumar og
aðrir japanskir framleiðendur hafa sút-
að sætisleðrið þannig, að það er lyktar-
laust en það gengur ekki lengur, að
minnsta kosti ekki í Bandaríkjunum. Þar
vilja menn sína lykt og langvinsælust
er lyktin af nautshúð. Hún fellur best
að kúreka- og karlmennskuhugmyndum
Bandaríkjamanna. Nissan ætlar að sjálf-
sögðu að verða við þessum óskum.
„Við höfum allt svæðið á okkar valdi,
forsetahöllina og innanríkisráðuneytið,"
sagði einn af foringjum skæruliðanna. Hann
sagði að liðsmenn sínir hefðu fengið skipun
um að beita ekki skotvopnum og þeir her-
tóku forsetahöllina án bardaga. Hermenn
stjómarinnar flúðu eða gáfu sig á tal við
skæruliðana.
Forsetahöllin er geysistór og hýsir einnig
miðstjórn Föðurlandsflokksins, sem hafði
stjórnað landinu með harðri hendi í fjórtán
ár.
Annað veifið mátti heyra hleypt af byss-
um í grennd við höllina og greina mátti
spennu á milli skæruliða Hekmatyars og
liðsmanna keppinauts hans, Ahmads Shah
Masoods, sem höfðu tekið sér stöðu við eitt
af hliðum byggingarinnar.
Áður höfðu skæruliðar Hekmatyars náð
á sitt vald herstöð innanríkisráðuneytisins,
um fimm km frá miðborginni. Svo virtist
sem skyndileg framrás þeirra hafi komið
öðmm skæruliðahreyfingum í opna skjöldu.
Hekmatyar var staddur um 20 km frá Kab-
úl og var sagður á leiðinni til borgarinnar.
Stjómin í Kabúl skoraði á skæmliðahreyf-
ingarnar að sýna stillingu og kvaðst reiðubú-
in að afsala sér völdum með friðsamlegum
hætti. Hún fagnaði samkomulagi, sem
hreyfingamar náðu í pakistönsku borginni
Peshawar á föstudagskvöld. „Skæruliða-
hreyfingarnar hafa gefið til kynna að þær
virði heiður og stolt Afgana,“ sagði Abdul
Wakil, utanríkisráðherra Afganistans, er
hann var spurður hvort hann óttaðist að
skipulagslaus valdataka skæruliða myndi
leiða til gripdeilda og stjómleysis á götum
höfuðborgarinnar.
í samkomulagi skæmliðahreyfinganna
felst að myndað verður 50 manna ráð til
að stjórna landinu undir forystu Sibghat-
ullah Mojadidis, fýrrverandi trúfræðipró-
fessors við Kabúl-háskóla. Gert er ráð fyrir
að ráðið fari með völdin í tvo mánuði og
þá taki við ríkisstjórn, skipuð fulltráum allra
hreyfinganna. Talsmaður Hekmatyars sagði
að samkomulagið í Peshawar væri of flókið,
vitlegra væri að sleppa ráðinu og mynda
ríkisstjórn þegar í stað.
Auk hreyfingar Hekmatyars er flokka-
bandalag shíta-múslima andvígt samkomu-
laginu. Bandalagið nýtur stuðnings írans-
stjórnar og hefur krafist þess að fá að
minrista kosti fjórðung ráðherraembætta í
nýrri stjórn. Súnní-múslimar eru í meiri-
hluta í landinu.
Magnús Gunnarsson formað-
ur Samstarfsnefndar atvinnu-
rekenda í sjávarútvegi
I Iagneóing
alltaf
lausnaroröið
Við Grunda-
skóla á Akra-
nesi hefur verið
unnið þróunar-
starf, sem miðar
að breyttum
kennsluháttum
á unglingastigi
SKÁKRI 16
SK0LI ~
FLÓTTra ER
EMARFIim
14
HEIMSÓKN í FLÓTTAMANNABÚÐIR
PALESTÍNUMANNA í JÓRDANÍU
yíkingarnir
komnir
tilparísar
BLAÐ