Morgunblaðið - 26.04.1992, Qupperneq 14
Tár, bros en engir takkaskór. Fótboltinn á sinn sess í flótt- Mágkona Amers sá ástæðu til að hylja allt hold í návist „Það er glæpur að vera Palestínumaður í Kúveit núna,“
amannabúðum eins og annars staðar. ókunnra gesta. segir Rayef Hussin Amer, sem er hér til vinstri ásamt
bróður sínum og dóttur hans.
HEIMSOKN I FLOTTAMANNABUÐIR
PALESTÍNUMANNA í JÓRDANÍU
eftir Ásgeir Friðgeirsson
Myndir: Póll Stefónsson
ér er sama
um alla póli-
tík. Ég hef
bara sjálfs-
virðingu og
Kúveitar
misbuðu
mér,“ sagði Rayef Husin Amer,
28 ára gamall palestínskur flótta-
maður í Jórdaníu í viðtali sem ég
átti við hann á dögunum í Bacca-
flóttamannabúðunum í Amman í
Jórdaníu.
Hann er einn hinna 300 þúsund
palestínsku flóttamanna í Jórdaníu
sem ekki eru á flótta undan ísrael-
um heldur Kúveitum. Þeir hafa
hrökklast frá Kúveit eftir að Persa-
flóastríðinu lauk. Palestínumenn,
sem er sú þjóð sem mest hefur
þjáðst vegna átaka ísraela og
araba, eiga nú tvo hatramma óvini
að mati Amers.
„Ég var í Kúveit á meðan írak-
ar voru þar. Þegar Kúveitar komu
aftur eftir frelsunina voru þeir
miklu verri við okkur Palestínu-
mennina en írakar,“ hélt hann
áfram. „Þeir tóku frá mér vinn-
una, þeir stoppuðu mig sífellt út á
götu og ieituðu á mér og niður-
lægðu. Þeir óðu oft inn á heimili
mitt og skefldu konuna mína og
dóttur. Á endanum handtóku þeir
mig og héldu inni í þrjá klukku-
tíma.“
Amer var reiður. Hann sagðist
hata Kúveita. „Það er glæpur að
vera Palestínumaður í Kúveit
núna,“ sagði hann biturlega. Hann
sagðist kjósa frelsið í flóttamanna-
búðunum frekar en að lifa við ógn-
anir og niðurlægingu í Kúveit þar
sem hann bjó í 24 ár. Frá unglings-
árum hafði hann verið banka-
starfsmaður.
Þegar ég spurði hann af hverju
Kúveitar hefðu snúist svona gegn
Palestínumönnum benti hann á
frænda sinn Jamal A. Qassem sem
sat þarna með okkur á heimili
Amers í Bacca-flóttamannabúðun-
um. „Jamal var í fangelsi í fimm
mánuði,“ sagði Amer. „Þegar hann
var handtekinn sagði einn kú-
veisku hermannanna við hann: „ír-
akar drápu átta frændur mína. Ég
ætla að drepa þig,“ og svo spark-
wm
Glaðværð er ávallt skammt undan í þröngum húsagörðum flóttamannabúðanna.
aði hann í mig.“
Á Amer var það helst að skilja
að reiði Kúveita út í íraka, vegna
hernámsins, beindist að Palestínu-
mönnum og Jórdönum, en sem
kunnugt er tóku þessar þjóðir ekki
þátt í frelsun Kúveits með herjum
bandamanna í Persaflóastríðinu á
síðasta ári.
Kynslóðir á flótta en ekki
alitaf sami óvinur
Foreldrar Amers flúðu einnig frá
Kúveit. Þau eru flóttanum kunn,
því þau flýðu frá landsvæðum sem
nú tilheyra ísrael, árið 1948 þegar
ríki gyðinga var stofnsett. Móðir
hans er frá Jaffa við Miðjarðar-
hafsströndina en faðir hans frá
smábæ skammt frá Tel Aviv.
Palestínskar fjölskyldur
hafa í fjóra áratugi, kyn-
slóó fram af kynslóó,
verió áflótta - lengst af
undan í sraelum en nú
einnig Knveitum
Þau settust strax að í flótta-
mannabúðum í Jórdaníu en fluttu
16 árum síðar eða þremur árum
fyrir sex daga stríðið 1967, til
Kúveit. Það er ekki laust við að
Amer fyndist það vera óumflýjan-
leg örlög sín og fjölskyldu sinnar
að vera á flótta. Flóttinn var hans
arfur og þegar ég spurði hann um
framtíð dóttur hans varð honum
svarafátt.
Hann kvartaði ekki en sagði að
veturinn sem var kaldari en nokkru
sinni í manna minnum og snjó-
þungur með eindæmum, hefði ver-
ið erfiður fyrir fjölskylduna. Hann
býr ásamt eiginkonu og dóttur,
foreldrum, bróður, mágkonu og
bami og tveimur systrum í tveimur
svefnherbergjum, einni stofu og