Morgunblaðið - 26.04.1992, Page 40
•mmmmmmm mmmm mtm mm ^mmm^ mm
M’ IiÖÍ^MMLuIMuM Grunnur
^ mmmm mm m mm 'mmmr FORGANGSPÓSTUR
UPPLÝSINOASÍMI 63 71 90 m Landsbanki Mk íslands mi 5L iAu Banki allra landsmanna
MORGUNBLAÐIÐ, ADALSTRÆTI 6, 101 REYKJA VÍK
SÍMl 691100, SÍMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 1555 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85
SUNNUDAGUR 26. APRÍL 1992
VERÐ í LAUSASÖLU 110 KR.
Þormóður rammi á
hlutabréfamarkað:
Heimild fyr-
-*ir allt að 100
milljóna kr.
nýju hlutafé
AÐALFUNDUR Þormóðs ramma
á Siglufirði verður haldinn 2. maí
nþ. Fyrir fundinum liggur að ósk-
að verður eftir heimild til útgáfu
á allt að 100 milljónum króna í
nýju hlutafé en ætlunin er að skrá
hlutafé fyrirtækisins á almennum
markaði. Róbert Guðfinnsson
framkvæmdastjóri Þormóðs
ramma segir að unnið hafi verið
y^p-að undirbúningi málsins að und-
anförnu og að útboð á nýju hlut-
afé á bilinu 50-100 milljónir kr.
verði skráð á hlutafjármarkaði.
Róbert segir að grundvöllur að
þessari skráningu sé mjög góð af-
koma fyrirtækisins á síðasta ári, en
ríflega 85 milljón króna hagnaður
var af rekstri Þormóðs ramma en
útflutningsverðmætið nam um 890
milljónum kr. Sökum þessa mun
verða lagt til á aðalfundinum að
greiddur verði 10% arður af hlutafé
en það mun í fyrsta sinn í sögu fyrir-
~ 'v*tækisins sem það er gert. Nafnverð
hlutafjár í Þormóði ramma er nú 240
milljónir króna þannig að arðgreiðsl-
ur kunna að nema 24 milljónum
króna.
Hinn nýi frystitogari Þormóðs
ramma, Sunna, kom úr sinni fyrstu
veiðiferð nú fyrir helgi með um 95
tonn af rækju. Aflaverðmætið nemur
23-25 milljónum króna. Róbert segir
að þessi fyrsta veiðiferð hefði geng-
ið mun betur en menn áttu von á
og ekki annað hægt að segja en að
bjartsýni ríkti um framtíð fyrirtækis-
ins.
-----♦ ♦ ♦----
Islenska óperan:
• •
Oryggis okkar Maríönnu er
mjög vel gætt héma í Kabúl
SKIPIÐ MALAÐ
Morgunblaðið/Þorkell
‘Lucia di
Lammermoor
flutt í haust
ÁKVEÐIÐ hefur verið að íslenska
óperan flytji i haust óperuna Luc-
ia di Lammermoor eftir Donizetti
og á listahátíð í sumar verður flutt
óperan Rigoletto eftir Verdi.
Ólöf Kolbrún Harðardóttir óperu-
stjóri, segir að enn hafi ekki verið
tekin ákvörðun um hvaða verkefni
verði tekið fyrir hjá óperunni eftir
áramót. í viðtali við Morgunblaðið,
>3egir Ólöf, að staða óperustjóra sé
eingöngu titill, „Ég breyti engum
aðferðum, stend aðeins í forsvari."
Sjá viðtal bls. C6
segir Elín Guðmundsdóttir hjúkrunarfræðingur í Afganistan
„VIÐ Maríanna erum við góða heilsu og öryggis okkar er mjög vel
gætt. Það er rólegt hér, þó spenna sé í lofti. Ef ástandið helst svip-
að verðum við báðar hérna okkar fyrirfram ákveðna starfstíma, ég
til loka maí og Maríanna fram í miðjan júní,“ sagði Elín Guðmunds-
dóttir, hjúkrunarfræðingur á sjúkrahúsi alþjóðaráðs Rauða krossins
í Kabúl, höfuðborg Afganistan, þegar Morgunblaðið hafði tal af
henni í gærmorgun.
Elín sagði að þær Maríanna væru
auðvitað mjög slegnar eftir að fé-
lagi þeirra, Jón Karlsson, var skot-
inn til bana á miðvikudag. „Það eru
allir hérna miður sín að missa svo
góðan félaga úr hópnum. Við lítum
hins vegar svo á, að þessi hræðilegi
atburður tengist ekki endilega
ástandinu hér í dag. Þetta hefði
eins getað gerst fyrir nokkrum
mánuðum eða vikum og við lítum
á þetta sem einangrað tilfelli."
Elín sagði að flestir starfsmenn
Rauða krossins á sjúkrahúsinu yrðu
áfram í Kabúl, en einhvetjir væru
þegar farnir til Pakistan. „Öryggis
okkar er mjög vel gætt. Það er til
dæmis séð fyrir því að við söfn-
umst saman í eins konar loftvarnar-
byrgi við hliðina á sjúkrahúsinu, ef
eitthvað fer úr böndunum. Það eru
allir búnir að pakka niður og eru
Biskup situr Skálholt
á ný eftir tæp 200 ár
JÓNAS Gíslason vígslubiskup í Skálholtsstifti mun flytjast búferl-
um og setjast að í Skálholti um miðjan maí. Tæp 200 ár eru þá
liðin síðan Hannes Finnsson biskup féll frá, en hann sat síðastur
biskupa í Skálholti.
Hannes Finnsson biskup tók við
biskupsdómi í Skálholti af föður
sínum árið 1785, en árið 1784
gengu jarðskjálftar yfir Suðurland
og féllu hús niður á staðnum. Var
þá ákveðið samkvæmt beiðni bisk-
ups að flytja stólinn burt af staðn-
um og til Reykjavíkur. Hannes sat
Skálholt á sumrum og þegar Skál-
holt var selt keypti hann jörðina
og bjó þar til dauðadags 1796.
„Dvöl vígslubiskups á staðnum
breytir einhverju en hvað það
verður kemur í ljós síðar,“ sagði
Jónas. Fyrir Alþingi liggur frum-
varp um Skálholtsskóla og starf-
andi er Skálholtsnefnd, sem fjallar
um framtíð staðarins.
Skálholtskirkja
Marianna
Csillag
Elín
Guðmundsdóttir
tilbúnir að fara með stuttum fyrir-
vara. Okkur var einnig ráðlagt að
birgja okkur upp af matvælum til
nokkurra daga. Við búum mjög
nálægt sjúkrahúsinu og sum á
sjúkrahúslóðinni sjálfri. Flugvöllur-
inn er opinn og flugvél Rauða kross-
ins flýgur þaðan tvær ferðir á dag
núna og er til taks ef flytja þarf
starfsmenn á brott.“
Elín er í sinni annarri för sem
sendifulltrúi Rauða kross íslands,
en hún starfaði í Thailandi árið
1990. Maríanna Csillag er í fyrstu
ferð sinni. „Það gilda strangar regl-
ur um það, hveijir fara út fyrir
borgarmörkin og við Maríanna ger-
um það aldrei. Nú hafa allar ferðir
hjúkrunarfólks út fyrir borgar-
mörkin verið stöðvaðar, en áður var
farið daglega að ná í særða. Það
er ómögulegt að segja til um hvern-
ig þetta þróast. Eins og horfurnar
eru í dag þá gildir þetta bann
áfram.“
Elín og Maríanna starfa á barna-
deild sjúkrahússins. „Ástandið þar
er svipað og síðustu mánuði," sagði
Elín. „Tilvikum, þar sem fólk slas-
ast við að stíga á jarðsprengjur,
fjölgar á vorin, enda engin furða
að börn, sem hlaupa út um allar
trissur, verði fyrir slíkum meiðslum.
Það er viða ótrúlega þétt net af
jarðsprengjum."
Í lok samtalsins sagði Elín, að
hún yrði að verða sér úti um slæðu
fyrir andlitið og karlmann til fylgd-
ar, áður en hún sneri aftur heim í
hinn enda borgarinnar. „Ég var á
næturvakt og missti af fundi í
morgun, þar sem skýrt var frá því,
að við mættum ekki ferðast einar
um borgina. Ég fór þess vegna ein
hingað í höfuðstöðvarnar til að fara
í símann, en þeir sleppa mér ekki
aftur slæðu- og karlmannslausri.
En mig langar að lokum til að senda
bestu kveðjur frá mér og Maríönnu
til allra ættingja og vina á íslandi.
Það amar ekkert að okkur.“
--------------♦ ♦ ♦--------
Brotist inn í
Víðistaðaskóla
BROTIST var inn í Víðistaða-
skóla við Hrauntungu í Hafnar-
firði aðfararnótt laugardagsins.
Töluvert var stolið af tækjum úr
kennarastofu skólans en farið
var inn í hann með því að sparka
upp hurð á bakhlið.
Rannsóknarlögreglan hefur mál-
ið til rannsóknar en samkvæmt
upplýsingum frá henni var m.a.
stolið úr skólanum tveimur tölvum,
myndbandstökuvél og sjónvarps-
skermi. Ljóst er að um mikið tjón
er að ræða fyrir skólann.