Morgunblaðið - 30.05.1992, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. MAÍ 1992
Þrettán ára
háseti á
hunmrveiðum
HILMAR Ómarsson er líklega
með yngri hásetum á humarveið-
um í sumar. Hann er aðeins 13
ára og fékk leyfi frá útburði á
Morgunblaðinu til að fara á sjóinn
með föður sínum, Ómari Krist-
mannssyni skipstjóra á Skúla fóg-
eta frá Vestmannaeyjum. „Þetta
er fínt,“ sagði Hilmar, þegar
Morgunblaðið hringdi í hann út á
sjó. Þeir feðgar voru þá að toga
og Hilmar sagði, að sér líkaði vel
á sjónum. Hann hefði reyndar
orðið svolítið sjóveikur fyrst, en
það hefði lagazt. „Þetta er gam-
an, en kannski ekki endilega betra
en að bera út Moggann. Það er
þó meira upp úr sjómennskunni
að hafa,“ sagði Hilmar. Hann var
ekki viss um að hann legði sjó-
mennskuna fyrir sig, tíminn
myndi leiða það í ljós. „Strákurinn
stendur sig vel, það var reyndar
Morgunblaðið/Sigurgeir
kaldafyla í fyrri túmum okkar og
hann varð þá sjóveikur, en hann
komst fljótt yfir það,“ sagði Ómar.
Ráðstefna um aðferðir til að draga
úr afleiðingum náttúruhamfara:
Gróðurhúsaáhrif
fjölga fellibyljum
TVEGGJA daga alþjóðlegri ráðstefnu verkfræðinga um aðferðir til
að draga úr afleiðingum náttúruhamfara lauk á föstudag. Rúmlega
100 verkfræðingar frá 11 löndum sóttu ráðstefnuna, sem þótti takast
n\jög vel. Haraldur Sigurðsson, prófessor í jarðfræði við háskólann á
Rhode Isiand og einn fyrirlesara á ráðstefnunni, sagði að hún hefði
sýnt að Islendingar væru framarlega á þessu sviði og gætu hugsan-
lega flutt út þekkingu sína á náttúruhamförum, sérstaklega jarðsþjálft-
um og eldgosum. Ýmislegt athyglisvert kom fram á ráðstefnunni.
Meðal annars það að tíðni vissra náttúruhamfara s.s. fellibylja hefði
aukist á undanförnum árum.
Haraldur sagði að eitt af því sem
komið hefði fram væri að tíðni ákveð-
inna náttúruhamfara hefði aukist.
Nefndi hann í því sambandi vissa
Forstjóri St. Louis Colddrawn eftir viðræður á Islandi um verksmiðju Stálfélagsins:
Samstarfs leitað um söfnun
brotajáms og sjóflutninga
Mikill áhugi á þessu af opinberri hálfu, segir iðnaðarráðherra umst vænlanlega innan nokkurra
WILLIAM McNair, forstjóri bandaríska stálfyrirtækisins St. Louis
Colddrawn, segist enn vera mjög áhugasamur um kaup á verk-
smiðju þrotabús íslenska stálfélagsins og segir að samningaviðræður
muni halda áfram. Hann var á Islandi ásamt ráðgjafa sínum í þrjá
daga í vikunni og hitti m.a. iðnaðarráðherra, fulltrúa Landsvirkj-
unar, forystumenn verkalýðsfélaga, skipafélaga, brotajárnsfyrir-
tækja og fulltrúa Hafnarfjarðarbæjar að máli áður en hann hélt af
landi brott síðdegis í gær. Hann segir að fyrirtæki hans hafi áhuga
á að kaupa rekstur stálverksmiðjunnar sjálfrar en leiti eftir hvort
íslensk fyrirtæki hafi áhuga á að taka að sér ýmsa þætti sem snúa
að söfnun og móttöku brotajáms og alla flutninga afurða verksmiðj-
unnar frá Islandi til Bandaríkjanna.
McNair sagði i samtali við Morg-
unblaðið í gær að ef samningar
takist megi ætla að líði sex mánuð-
ir þar til hægt verður að hefja fram-
leiðslu í verksmiðjunni. Jón Sigurðs-
son iðnaðarráðherra sagði í gær að
sér hefði litist vel á fulltrúa banda-
ríska fyrirtækisins og þá starfsemi
26 milljarðar hafa veríð gefnir út í húsbréfum:
Áætla má að afföll
á verðbréfamarkaði
nemi 2,5 milljörðum
Afgreiðsla húsbréfa vegna notaðs
húsnæðis 30% minni en í fyrra
SAMTALS hafa verið gefin út húsbréf að upphæð 26 milljarðar
króna frá því húsbréfakerfið hóf göngu sína fyrir tæpu tveimur
og hálfu ári og gera má ráð fyrir að afföll af húsbréfum á verð-
bréfamarkaði hafi numið um 2,5 milljörðum króna á þeim tíma.
Byijað var á nýjum flokki húsbréfa að upphæð fjórir milljarðar
króna mánudaginn 18. maí. Sigurður Geirsson, forstöðumaður
húsbréfadeildar Húsnæðisstofnunar, sagði að húsbréfaútgáfan
væri I samræmi við áætlanir á árinu. Samdráttur í húsbréfaút-
gáfu vegna sölu á notuðu húsnæði væri í kringum 30% frá þvi
sem var á siðasta ári, en húsbréfaútgáfa vegna nýbygginga
væri nokkurn veginn sú sama.
Talið er að tæplega % hlutar
útgefínna bréfa séu seldir á
markaði, en sá þriðjungur sem
eftir sé eigi fólk sem spamað eða
noti í áframhaldandi viðskiptum.
Fyrstu flokkar húsbréfa báru
5,75% vexti ofan á verðtrygg-
ingu, en þeir voni síðan fljótlega
hækkaðir í 6%. Ávöxtunarkrafan
hefur sveiflast frá því að vera
6,55% í byijun í 9% þegar hún
fór hæst um skamman tíma á
síðasta ári. Það jafngildir afföll-
um á verðbréfamarkaði frá því
vel innan við 10% í nær 25% til
að vega upp muninn á nafnvöxt-
um bréfanna og ávöxtunarkröf-
unni. Sé miðað við að afföll hafi
að meðaltali verið í kringum 15%
hafa afföllin numið í kringum 2,5
milljörðum króna frá því hús-
bréfakerfið hóf göngu sína.
Sigurður Geirsson sagði í sam-
tali við Morgunblaðið að af-
greiðsla húsbréfa frá 15. janúar
hefði numið um 4 milljörðum
króna og nýr flokkur að upphæð
4 milljarðar króna hefði hafið
göngu sína 18. maí. Hann sagði
að allar áætlanir varðandi hús-
bréfaútgáfu stæðust. í upphafi
árs hefði verið gert ráð fyrir að
húsbréfaútgáfa á árinu næmi 12
milljörðum króna og endurskoðuð
áætlun gerði ráð fyrir aðeins
lægri upphæð eða 11,5 milljörð-
um. Hann sagði að umsóknir um
húsbréf vegna notaðs húsnæðis
væru um 30% minni það sem af
væri þessu ári en í fyrra og um
2% minni vegna nýbygginga.
sem þeir hefðu áform um á Is-
landi. Hann segir að niðurstaðan
ráðist af samningum fyrirtækisins
við lánardrottna en opinberir aðilar
sýni þessu mikinn áhuga.
McNair sagði að helstu kostir við
starfsemina hér á landi væru fram-
boð brotajáms innanlands og lágt
raforkuverð. Hins vegar væri hár
flutningskostnaður ókostur. Því
hefði verið ákveðið að St. Louis
Colddrawn lýsti áhuga á að taka
eingöngu við starfsemi stálverk-
smiðjunnar sjálfrar en leitað yrði
til annarra fyrirtækja um brota-
jámsöflun og sagðist hafa rætt við
Hringrás hf. um að taka þann þátt
starfseminnar að sér. Þá sagðist
hann hafa rætt við tvö skipafélög
hérlendis um að taka að sér alla
flutninga á afurðum verksmiðjunn-
ar til Bandaríkjanna en fyrirtækið
áformar að verksmiðjur þess í
Bandaríkjunum kaupi framleiðslu
stálverksmiðjunnar hérlendis.
McNair sagðist einnig hafa rætt
við fulltrúa Landsvirkjunar um raf-
orkuafhendingu og skilmála varð-
andi raforkuverð sem Landvirkjun
myndi leggja fram fljótlega. Þá
sagðist hann hafa átt viðræður við
fulltrúa þriggja verkalýðsfélaga og
meðal annars útskýrt stjómunarað-
ferðir sem krafist væri við há-
gæðastálframleiðslu.
„Þessi heimsókn hefur verið mjög
upplýsandi og gagnleg. Samninga-
viðræður hafa gengið vel þó ekkert
hafí enn verið ákveðið en við hitt-
vikna,“ sagði hann.
Fyrirtækið St. Louis Colddrawn
sérhæfír síg í vinnslu úr völsuðu
stáli sem er meðal annars notað í
höggdeyfa og stýrisstangir bifreiða.
Verksmiðjan sem reist yrði á ís-
landi veitir 30-40 starfsmönnum
störf en allt í allt er talið að skap-
ast gætu um 100 störf í kringum
alla starfsemina.
Jón Sigurðsson sagði að á fundin-
um í gær hefði verið fjallað al-
mennt um aðstöðu og möguleika
fyrirtækisins til að taka við rekstri
þrotabús Stálfélagsins. „Þetta er
mjög sérhæft stálframleiðslufélag
sem fæst við svonefnda kalddregna
stálframleiðslu sem er verðmeiri en
heitdregin framleiðsla. Fyrirtækið
er með beina samninga við við-
skiptavini sína, meðal annars í bíla-
iðnaðinum og hefur mikinn áhuga
á að ná hér langtímasamningum
um rafmagn og líst vel á mannskap-
inn hér á landi. Við munum reyna
að greiða götu þess hér og ég tel
að þetta séu mjög efnilegir sam-
starfsaðilar en hvort úr þessu verð-
ur fer fyrst og fremst eftir hvort
þeir ná samningum við bankana
sem eru aðalkröfuhafarnir en það
makemur í ljós á næstu vikum,“
sagði Jón.
Helgi -Jóhannesson bústjóri
þrotabúsins sagði að viðræðurnar
hefðu verið mjög jákvæðar og heim-
sóknin vel heppnuð. Sagði hann að
þeir hefðu hitt fjölmarga aðila að
máli hérlendis og meðal annars
mögulegan hluthafa auk þess að
skoða sjálfa verksmiðjuna.
tegund af fellibyljum í Karabíska-
og Kyrrahafínu og sagði að ástæðan
fyrir því að þeim hefði fjölgað væru
gróðurhúsaáhrif. Ennfremur sagði
hann að fram hefði komið að áhrif
náttúruhamfara yrðu sífellt meiri
vegna fólksfjölgunar og vaxandi
byggðar. Taka þyrfti meira tillit til
náttúrhamfara, sérstaklega í van-
þróðu ríkjunum þar sem um vaxandi -
vandamál væri að ræða.
Hann sagði að töluvert hefði verið
fjallað um að hve mikilu leyti náttúru-
hamfarir væru sök manna og að hve
miklu leyti sök innri og ytri vélar
náttúrunnar en innri vélin orsakar
t.a.m eldgos og jarðskjálfta en sú
ytri stendur í tengslum við loftslagið.
Haraldur sagði að fólk hefði verið
sammála um að reyna þyrfti að draga
úr afleiðingum náttúruhamfara áður
en þær riðu yfir meðal annars með
því að vara fólk við í tæka tíð, flytja
það burt af hættusvæðum og hvetja
til þess að ekki væri byggt á varhuga-
verðum svæðum.
Mikið var rætt um Reykjanesskag-
ann á ráðstefnunni. Haraldur sagði
að þar væri um að ræða kraftmikið
jarðsvæði. Lftið hefði bólað á því á
undanfömum árum en virknin væri
sveiflukennd og allt eins mætti búast
við eldsumbrotum þar næstu árin.
Sprungur gætu hugsanlega opnast
og hraunstraumur haft áhrif á Hafn-
arfjarðarsvæðið og sunnar á skag-
anum.
♦ ♦ ♦-----
Slippstöðin:
237 milljóna
tap í fyrra
SLIPPSTÖÐIN hf. á Akureyri
tapaði 237 milljónum króna á síð-
asta ári. Viðræður standa nú yfir
við rafeindafyrirtækið DNG og
fyrirtæki í málmiðnaði um kaup á
hlutafé í fyrirtækinu.
Aðalfundur Slippstöðvarinnar var
haldinn í gær. Á hluthafafundi fyrir
fundinn var ákveðið að lækka hluta-
fé í fyrirtækinu úr 108 milljónum
króna í 21,7 milljónir.
Sjá frétt á bls. 34.
Prentsmiðjan Gutenberg hf.:
Átta aðilar lýsa yf-
ir áhuga á kaupum
FRESTUR til að skila inn skriflegum yfirlýsingum um áhuga á
viðræðum um kaup á hlutafé í Prentsmiðjunni Gutenberg hf. rann
út á hádegi í gær. Fyrirtækið var auglýst til sölu 21. maí sl. af
Landsbréfum hf. fyrir hönd Ríkissjóðs Islands.
Þegar Prentsmiðjan Gutenberg
var auglýst til sölu var óskað eftir
því að þeir aðilar sem hefðu áhuga
á að ganga til viðræðna um að
kaupa hlutabréf í fyrirtækinu lýstu
því yfir skriflega. Fresturinn rann
út á hádegi í gær og skv. upplýs-
ingum frá fjármálaráðuneytinu
bárust skriflegar yfirlýsingar frá
átta aðilum, einstaklingum og fyr-
irtækjum. Nöfn þeirra fengust
ekki gefin upp í gær.
Fulltrúar eigenda Gutenberg
munu ásamt fulltrúum Landsbréfa
hf. eiga viðræður við þessa átta
aðila í næstu viku þar sem ýmis
gögn um rekstur og fjárhag fyrir-
tækisins verða lögð fram. Stefnt
er að sölu þess fyrir lok júní nk.
Lítil breyting
á vöxtum
VEXTIR hjá bönkum og spari-
sjóðum breytast lítið 1. júní
nk. samkvæmt drögum að
vaxtabreytingum frá Seðla-
banka Islands. Þær breyting-
ar sem eiga sér stað eru fyrst
og fremst breytingar á geng-
isbundnum liðum í samræmi
við þær breytingar sem átt
hafa sér stað á erlendum
mörkuðum.
_ Einu breytingarnar sem eiga
sér stað á innlendum liðum er
að Islandsbanki hækkar vexti á
yfirdráttarlánum úr 14% í
14,15% en er þó með lægri vexti
á þessum lið en aðrir bankar og
sparisjóðir. Einnig hækkar ís-
landsbanki vexti á Visa-skipti-
greiðslum úr 16,5% í 16,65%.
Þann 1. júní eru meðalvextir
almennra skuldabréfa 12 2%
samanborið við 13,8% þann í
maí, og vísitölubundinna lána
9,0% samanborið við 9,7% þann
1 maí.