Morgunblaðið - 30.05.1992, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. MAI 1992
-----------------------------------
Draumahlutverkið
er að syngja Carmen
- segir Sigurbjörg H. Magnúsdóttir mezzó-sópran,
sem heldur einsöngstónieika á M-hátíð í Sandgerði
„Svo hlý og nota-
leg stemmning“
- segir Alda Ármanna Sveinsdóttir
sem opnar 11. einkasýningu sína
„Það er svo hlý og notaleg stemmning í bænum þessa dagana,
sumarið að koma og Listahátíð að hefjast, að ég vildi endilega
vera hluti af þessu og ákvað að setja upp sýningu," sagði Alda
Ármanna Sveinsdóttir myndlistamaður í samtali við Morgunblaðið,
en sýning hennar verður tvískipt, 10 myndir verða á veggjum
Esperantistasamtakanna, en 11 myndir verða á veggjum „Komdu
í París“ í Hlaðvarpanum.
Alda sýnir aðallega „konumyndir“,
eins og hún kallar þær. „Eg get
ekki stoppað mig með þetta við-
fangsefni, ég hef svo gaman af
því. Það koma margar konur til
mín og spjalla. Ég mála þær og
legg áherslu á stemmninguna sem
skapast við fund okkar. Stundum
verður eitthvað úr þessum mynd-
um,“ segir Alda.
Sem fyrr segir er hluti mynd-
anna á veggjum Esperantistasam-
takanna, en þau eru til húsa að
Skólavörðustíg 6b. Samtökin
munu kynna starfsemi sína sam-
hliða sýningu Öldu, en hún hefst
í dag og stendur til 20. júní. Þetta
er 11. einkasýning Öldu Ármönnu.
„Þetta kann að virðast svo í
fljótu bragði, en þó mezzó-sópranar
séu færri í óperuheiminum, þá eru
jafnframt færri hlutverk fyrir
mezzó-sópran í óperum en sópran.
Það er helst í óperum eftir tón-
skáld á borð við Verdi og Wagner,
sem hafa skrifað stór hlutverk fyr-
ir allar raddtegundir. Hins vegar
er algengast að aðalhlutverkin séu
skrifuð fyrir sópran og tenór,"
sagði Sigurbjörg, og bætti því við
að draumahlutverkið væri auðvitað
að syngja Carmen, en þó það væri
ef til vill eitt frægasta sönghlut-
verkið fyrir mezzó-sópran, þá væru
einnig til mörg önnur góð en minna
þekkt hlutverk.
Áhugi á óperum hefur farið vax-
andi í heiminum undanfarna tvo
áratugi að mati Sgurbjargar, og
segir hún þessarar grósku ekki síst
hafa orðið vart á Islandi þar sem
söngáhugi hafi verið mikill frá
fornu fari.
„Söngskólinn í Reykjavík er
fimmtán ára gamall og byrjaði því
á alveg hárréttum tíma, og sömu-
leiðis íslenska óperan, sem hóf
starfsemi upp úr því. Og sé Island
tekið sem dæmi, þá kynnir hver
sá íslendingur sem lærir að syngja
sönginn fyrir sínum nánustu, og
kynningin vekur þannig áhuga sem
breiðist fljótt út. Hlustendur eru
oft íhaldssamir á okkar dögum, en
þeír vilja heyra gömlu óperurnar,
og óperuhúsin uppfæra þau verk
sem búist er við að sem flestir
komi að sjá. Metropolitan í New
York hefur til dæmis verið gagn-
rýnd fyrir að vera íhaldssöm í
óperuvali. Nýverið var þar hins
vegar flutt ný bandarísk ópera, The
Ghosts of Versailles etir John
Corigliano, sem þótti mjög góð og
hlaut einróma lof gagnrýnenda.
Þannig get ég vel ímyndað mér að
á næstu tíu til tuttugu árum fari
þessi aukni áhugi á óperum að
skila sér í fleiri nýjum óperum,"
sagði Sigurbjörg H. Magnúsdóttir.
Alda Svelnsdóttir
SIGURBJÖRG Hvanndal Magn-
úsdóttir mezzó-sópran heldur
fyrstu einsöngstónleika sína hér
á landi í samkomuhúsinu í Sand-
gerði á næstkomandi sunnu-
dagskvöld kl. 20.30, en tónleik-
arnir eru liður í dagskrá M-
hátíðar á Suðurnesjum. Sigur-
björg er nýútskrifuð með meist-
aragráðu í óperusöng frá Boston
University í Bandaríkjunum, en
þar stundaði hún nám í rúmlega
þrjú ár að loknu námi í Söngskól-
anum í Reykjavík. Undirleikari
á tónleikunum í Sandgerði verð-
ur Ólafur Vignir Albertsson.
Sigurbjörg er ættuð frá Sand-
gerði og í samtali við Morgunblað-
ið sagði hún að sér hefði fundist
vel við hæfi að koma fyrst fram
þar. Á efnisskrá tónleikanna verða
mestmegnis íslensk lög eftir þau
Jórunni Viðar, Pál ísólfsson, Karl
O. Runólfsson og Sigvalda Kalda-
lóns, en einnig syngur hún lög eft-
ir Brahms og Sibelíus. Hún sagði
óvíst að hún héldi aðra tónleika
hér á landi að þessu sinni, þar sem
hún á von á barni eftir rúman
mánuð. Síðan er hún á förum til
Stokkhólms þar sem eiginmaður
hennar, Bjöm Auðunsson, er að
fara í framhaldsnám, en þar ætlar
hún að reyna fyrir sér í sönglist-
inni. „Ég held að það ættu að vera
nokkuð góðir möguleikar þar því
mikið er um söng í Svíþjóð, og þar
eru margar góðar óperur. Síðan
er stutt þaðan til meginlands Evr-
ópu. Við verðum í Svíþjóð í þijú
ár, og síðan verður bara að sjá til
hvernig gengur,“ sagði hún.
Sigurbjörg er mezzo-sópran, en
lengi vel var hún talin dramatískur
sópran og naut kennslu samkvæmt
því. Þegar hún hélt lokatónleika
sína við Boston University var hún
því ekki aðeins að Ijúka námi, held-
ur einnig að koma fram í fyrsta
sinn sem mezzó-sópran. Kennari
hennar við skólann var Richard
Cassilly, sem sungið hefur stór ten-
Sigurbjörg H. Magnúsdóttir
óperusöngkona.
órhlutverk í La Scala óperunni í
Mílanó, Metropolitan í New York,
Vínaróperunni og víðar, og fljót-
lega eftir að Sigurbjörg hóf nám
hjá honum kom í ljós að það hent-
aði raddsviði hennar betur að
syngja sem mezzó-sópran en
dramatískur sópran. Rödd hennar
þykir kraftmikil, og að eigin sögn
var alltaf frá því hún man eftir sér
verið að biðja hana um að hafa
ekki svona hátt. „Þegar ég var
krakki heyrðist óvenju mikið í mér
og ég hef alltaf haft mjög sterka
rödd. Og þótt það sé mikill kostur
er það líka mjög erfitt, því það er
erfitt að temja hana. Mér líkar
samt miklu betur að hafa farið úr
því að vera dramatískur sópran í
að vera mezzó-sópran, því nú ræð
ég betur við röddina,” sagði hún.
Þótt ýmsar dyr lokist við að
syngja neðar þá opnast aðrar, því
það eru færri mezzó-sópranar í
heiminum en sópranar, og því ættu
möguleikarnir kannski að vera
meiri.
• Grafík
eftii
• Haok Oór
• logikerg M.
• Jóo Reykdal
t Karólínu L.
t Tolla
t Þðrð Hall
í tilefni Listahátídar
Nýkomið mikið úrval eftir J. MIRÓ o.fl.
★Ath.:
veitum
afslatt
af plaggðtum
fra 30. mai
til 6. jum nk
O Opiö:
• I dag.
RAMMA
MIÐSTOÐIN
Joan Mirö
INNROMMUN
SIGTÚNI 10 -SÍMI 25054
Sunnudag.
12.00-11.00
★ Málverk
eftir
• Atla Má