Morgunblaðið - 30.05.1992, Qupperneq 35

Morgunblaðið - 30.05.1992, Qupperneq 35
35 Sandgerði: Kynning á Ingibjörgn Sigurðardótt- ur á M-hátíð KYNNING á Ingibjörgu Sigurð- ardóttur rithöfundi og verkum hennar verður í Sandgerði sunnudaginn 31. maí sem liður í M-hátíð á Suðurnesjum. Lesið verður úr eftirtöldum bók- um Ingibjargar Sigurðardóttur: Sigrún í Nesi, Læknir í leit að hamingju, Beggja skauta byr og Feðgarnir á Fremra-Núpi. Einnig verður söngur og hljóðfæraleikur og að lokinni dagskrá verður kaffi- sala. Ingibjörg Sigurðardóttir fædd- ist að Króki í Skagafirði árið 1925 en fluttist til Sangerðis 21 ári síð- ar og bjó þar í 45 ár. Komið hafa út 30 bækur eftir hana, sú fyrsta árið 1958 og nýjasta bók hennar, Glettni örlaganna, kom út á síð- asta ári. Dagskráin verður í Samkomu- húsinu í Sandgerði og hefst klukk- an 20.30. -----» ♦ ♦---- Franskir listamenn í Nýlista- safninu í Nýlistasafninu sýna frönsku listamennirnir Michel Verjux og Francois Perrodin. Þeir hafa báðir tekið þátt í fjölmörgum samsýningum og einnig hafa þeir haldið einkasýningar m.a. í Centre George Pompidou og Musée d’art Moderne de la Ville de Paris. Þeir eru jafnaldrar og báðir búsettir í París. Sýn- ingin opnar sunnudaginn 31. maí. Sýningin í Nýlistasafninu er ávöxtur af góðum samskiptum við Jack Lang menntamálaráðherra Frakklands og rausnarlegum styrk frá Association d’Action Artistique í París. Þá hafa þessir aðilar hlaup- ið undir bagga: Eimskip hf., Sjóvá- Almennar, franska sendiráðið og Myndlista- og handíðaskóli ís- lands. Umsjónarmaður með sýn- ingunni er Kees Visser. Sýning Francois Perrodins og Michels Veijux á Listahátið er opin daglega í Nýlistasafninu við Vatnsstíg frá kl. 14.00-18.00 og stendur til 28. júní. MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. MAÍ 1992 Eru þeir að fá 'ann ? F.v. Ólafur Haukur Ólafsson, Ólafur Ólafsson og Jón G. Baldvins- son formaður SVFR tylla sér hjá einum bagganum í hrauninu við Norðurá. Það var ófögur sjón sem blasti við mönnum er stjórn SVFR og starfsmenn árnefndar SVFR fyrir Norðurá fóru í hreinsunarferð upp í Norðurárdalinn á dögunum. Er hersingin kom á svæðið sem veiði- manna á milli gengur undir nafn- inu „milli fossa“, þ.e.a.s. á milli Laxfoss og Glanna kom í ljós hvað orðið hafði um nokkra tugi hvítra plastheybagga sem sópuð- ust af túninu að Veiðilæk í vatn- avöxtunum miklu í vetur. í jaðri Grábrókarhrauns, við svokallaða Paradís, sem er frið- lýst svæði, voru baggamir á víð og dreif á stóru svæði og sýnt að ekki yrði hlaupið að því að koma bifreiðum eða vinnuvélum á staðinn til að fjarlægja þá. Höfðu menn á orði að vatnselgur- inn myndi hafa þeytt böggunum eins og um risavaxnar borðtenn- iskúlur væri að ræða. Það styttist í fyrstu köstin. 1. júní opna fyrstu ámar að vanda, en að þessu sinni, eins og í fyrra, fá menn ekki fyrstu vísbending- arnar um fiskigengd frá neta- bændum í Feijukoti og á Hvítár- völlum. Veiðin hefði verið byijuð, því ávallt var miðað við 20. mai. Mikið vatn hefur verið í Borgar- fjarðaránum í hlýindunum að und- anförnu og menn sem hafa kíkt eftir fiski hafa lítið séð. Aftur á móti hafa menn séð skvetti í Hvítá og séð konung fiskanna berum augum í Laxá í Kjós, Elliðaánum og í Korpu. Vænn lax sást einnig á lofti austur í Hólsá, skammt neðan mynnis Ytri Rang- ár og óvenjulega mikil umgangur sela á því svæði að undanförnu bendir til fiskigengdar. 3 selir voru skotnir í Ytri Rangá og Hólsá um síðustu helgi og 8 selir til við- bótar voru á ferli í ósnum. Þarna sést hvemig baggarair eru á víð og dreif í hraunjarðrinum suiuniuDAGinini s í u a s t i Á morgun,sunnudag, verður sérstakur heimilislistadagur í Kolaportinu. Allt aö 100 aðilar hvaöanæva af landinu munu sýna og selja alls konar listmuni og handiðnaö, svo sem úr gleri, leir, vefnaði, prjónaskap, saumaskap, smíöar og útskurö, skartgripagerð, skúlptúra, grafík og fleira og fleira. Auk þess verður eins og venjulega | bráöskemmtilegt markaöstorg í Kolaportinu fullt i af góðum vörum á góðu verði - grænmeti, s ávextir, silungur og lax, harðfiskur, broddur, sælgæti, fatnaður, antík, snyrtivörur, skartgripir, handverkfæri, blöðrur o.s.fv. Eftir þessa helgi tekur sumartíminn við hjá okkur en þá verður markaðstorgið eingöngu opið á laugardögum. Opið í dag frá kl.10-16 og á morgun frá kl.11-17. KOIAPORTIÐ MrfR KaÐStOftT - kemur sífellt á óvart! 38 dúkategundir meö 38% meöalafslætti í 38 opnunartíma Hefst á föstudag kl. 11 til miðvikudags kl. 18. DÆMI: Aður kr. 1.730.-..Nú kr. 865.-..-50% Áður kr. 1.298-...Nú kr. f r» Opið kl. 9-18 mán. - fös. og 10-14 lau. Teppa GRENSASVEG113, SIMI813577

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.