Morgunblaðið - 30.05.1992, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. MAI 1992
37
■ UPPELDIS- og meðferðar-
heimilið í Sólheimum 7 heldur
sinn árlega flóamarkað í Safnaðar-
heimili Langholtskirkju sunnu-
daginn 31. maí kl. 14-17. Uppeld-
is- og meðferðarheimilið í Sólheim-
um 7, Reykjavík, er heimili fyrir
unglinga á aldrinum 12-16 ára sem
þurfa á aðstoð að halda. Heimilið
sem er deild innan Unglingaheimil-
is ríkisins tók til starfa 1. septem-
ber 1985 og geta 7 unglingar búið
þar á hverjum tíma. Á heimilinu
er lögð mikil áhersla á tómstunda-
starf og skipa ferðalög stóran sess
í því starfi. í sumar er fyrirhugað
að fara í hálendisferð og er unnið
að fjáröflun til þeirrar ferðar. Einn
þáttur í fjáröflun er hinn árlegi flóa-
markaður. Þar verað til sölu ódýr
föt, búsáhöld, leikföng og skraut-
munir. Uppboð verður á húsgögn-
um og munum kl. 15. Einnig verð-
ur tombóla og blómamarkaður.
Kvennalistinn mótmælir
úthlutunarreglum LIN
ÞINGFLOKKUR Kvennalistans hefur sent frá sér ályktun þar sem
mótmælt er harðlega framkomnum tillögum meirihluta stjórnar
Lánasjóðs íslenskra námsmanna að nýjum úthlutunarreglum.
„Á síðustu dögum þings voru
knúin í gegn ný lög um Lánasjóð
íslenskra námsmanna sem fela í
sér mun harðari greiðsluskilmála
en áður tíðkuðust auk þess sem
námsmenn fá engin lán sér til
framfærslu fyrr en á næsta ári,
hvernig sem á því stendur. Margt
bendir til þess að nýsett lög muni
valda því að hópur námsmanna,
einkum konur, verði að hverfa frá
námi og íj'ölda nemenda er beint
út á almennan lánamarkað þar sem
þeir verða komnir upp á náð og
miskunn bankakerfisins.
Lánasjóður íslenskra náms-
manna hefur um árabil verið eitt
mesta jöfnunartæki okkar samfé-
lags og hefur gert þúsundum
kvenna og karla kleift að afla sér
menntunar, samfélaginu öllu til
góðs. Nú skal blaðinu snúið við.
Greinilega er ætlunin að fækka
námsmönnum til muna, gera betur
við þá sem mest hafa efnin og
koma í veg fyrir að fólk sem er
með börn á framfæri stundi skóla-
nám. Þessi stefna gengur þvert á
þau markmið um jafnrétti til náms
sem stefnt hefur verið að um ára-
bil og er vægast sagt undarleg
hagspeki þegar atvinnuleysi fer
vaxandi og atvinnulífið hrópar á
menntun, rannsóknir og hugvit.
Hvar á það fólk að starfa sem
verður að hverfa frá námi? Er betra
fyrir þjóðfélagið að greiða atvinnu-
leysisbætur en að fjárfesta í
menntun?,“ segir í ályktun Kvenn-
alistans.
Firmakeppni á afmælishátíð Bridsfélags Reykjavíkur:
Landsliðin röðuðu sér
í fjögur efstu sætin
Brids
Arnór G. Ragnarsson
Pólska landsliðið sigraði í
opinni firmakeppni á 50 ára af-
mælishátíð Bridsfélags Reykja-
víkur sem Iauk sl. fimmtudags-
kvöld. Pólverjarnir spiluðu fyrir
Ásbjörn Ólafsson og Vélar og
þjónustu. Pólska liðið tryggði
sér sigur í síðustu umferðinni
með því að fá 25 stig gegn sveit
Landsbankans.
Fyrir síðustu umferðina höfðu
landsliðin raðað sér í efstu sætin.
Pólveijarnir voru efstir með 167
stig ásamt Bretum sem höfðu
sama skor og spiluðu fyrir Jón
Ásbjömsson, útflutningsverzlun.
Svíar spiluðu fyrir Brimborg og
voru í þriðja sæti með 165 stig og
heimsmeistaramir spiluðu fyrir ís-
landsbanka og vora með 161 stig.
Allar þessar sveitir höfðu áður
spilað saman í mótinu þannig að
þær spiluðu allar gegn íslenzkum
sveitum.
Eins og áður sagði gerðu Pól-
veijar út um mótið með því að fá
hámarksskor^ í síðustu umferð.
Svíamir spiluðu gegn sveit Eim-
skipa og unnu með 21-9, Bretar
fengu eflaust erfiðasta hlutskiptið.
Þeir spiluðu gegn sveit Samvinnu-
ferða/Landsýnar og unnu leikinn
21-9 og komust þar með að hlið
Svía. Heimsmeistararnir okkar
spiluðu gegn Sjóvá/Alniennum og
unnu 24-6 en það dugði ekki til
og þeir urðu að sætta sig við fjórða
sætið.
Sigur Pólveija var nokkuð sann-
færandi þrátt fyrir að þeir séu
ekki með sitt sterkasta lið. Þeir
spiluðu ekki vel fyrri daginn enda
örþreyttir eftir langt og strangt
ferðalag en höfðu gott rennsli eins
og sagt er síðari daginn. Spilaður
var Monrad og spiluðu 33 sveitir.
Lokastaðan:
Ásbjöm Ólafsson/Vélarogþjónusta 192
Brimborghf 188
Morgunblaðið/Amór
Pólveijarnir Krzysztof Jassem og Dariusz Kovalski spila gegn bret-
unum Sowter og Smolski. Póverjar sigruðu í mótinu en bretar urðu
í 2.-3. sæti ásamt svíunum.
Gísli Hafliðason og Björn Theodórsson spila gegn svíunum Anders
Morath og Sven Áke Bjerregárd.
Jón Ásbjömsson útflverzl. 188
íslandsbanki hf. 185
Hönnun hf. 169
SPR0N 165
Tryggingamiðstöðin hf. 164
Samvinnuferðir/Landsýn 162
Keppnisstjórar vora Kristján
Hauksson og Agnar Jörgensson
en mótsstjóri Sigmundur Stefáns-
son.
í gær fór fram keppni erlendu
landsliðanna gegn þremur liðum
frá BR, heimsmeisturanum, ís-
lenzka landsliðinu og sveit Trygg-
ingamiðstöðvarinnar. Þeirri keppni
lauk seint í gærkvöldi.
Pinus mugo.
Fura — þöll — pinus
Blóm vikunnar
Umsjón: Ágústa Björnsdóttir
Þáttur nr. 235
Hrömar þöll, sús stendr þorpi á
hlýrat henni börkr né barr
svá es maðr, sás manngi ann
hvat skal hann lengi lifa?
(Hávamál)
Kjörum einstæðingsins sem
engum þykir vænt um er hér líkt
við kjör furunnar, sem stendur
ein sér á hijóstugu berangri.
Bæði veslast þau upp fyrir aldur
fram. Finnst mér vel við hæfi að
rifja upp þetta fallega erindi núna
þegar áhugi landsmanna beinist
svo mjög að tijárækt til þess að
minna okkur á að fara með meiri
gát og hlúa betur að öllu sem lifir.
Þöll er fomt heiti á furu sem
enn er til lítið breytt í norsku og
sænsku toll og tall. En það hvarf
alveg úr íslensku þar til farið var
að nota það sem heiti á öðru
fallegu barrtré, en það er tsuga,
sem svolítið er ræktað hér á
landi. Allmargar tegundir eru til
af furu og eru þær útbreiddar á
norðurhveli jarðar og margar
norðarlega í tempraða beltinu. í
Evrópu eru taldar um 10 tegund-
ir, 16 í Asíu, um 30 vestantil og
15 austantil í Norður-Ameríku.
Fururnar eru barrtré og allar
greinar klæddar löngum, mjúk-
um barrnálum. Þær eru oftast
4-6 cm á lengd á þeim tegundum
sem hér eru ræktaðar en eru oft
miklu lengri, allt að 20 cm á
sumum erlendum tegundum.
Barrnálarnar eru í knippum með
slíðri úr himnukenndum blöðum
neðst og nálahúsi. Geta verið 2,
3 eða 5 nálar í knippi, mismun-
andi eftir tegundum. Flestar fur-
utegundir verða einstofna og
hávaxin tré, en nokkrar tegundir
eru margstofna runnar t.d. fjalla-
furan. Furan hefur oftast mjög
reglulega greinabyggingu fram-
an af aldri, þar sem hliðargreinar
koma í krönsum við grunn árs-
sprotanna. Kemur þá hver
greinakransinn fyrir ofan annan,
og trén verða fallega löguð fram-
an af. Karlblóm og kvenblóm
koma á sama tré, en í sér blóm-
skipunum. Varla er þó hægt að
tala um blóm þar sem aðeins fijó-
blöð og fræblöð eru til staðar.
Karlblómimn mynda stórar og
áberandi blómskipanir neðst á
árssprotunum snemma sumars.
Þarf lítið að koma við þær til
þess að gul ský af frjódufti þyrl-
ist í allar áttir. Kvenblómin, sem
eru bara opin fræblöð með tveim-
ur eggjum, mynda svolitla blóm-
skipun eða vísi að köngli. Fyrsta
sumarið eftir fer fijóvgun fram
og fræin fara að þroskast. Köng-
ullinn vex í fulla stærð og fræ-
blöðin verða hörð og trékennd.
Könglamir opnast síðan á þriðja
ári og fræin losna þá og dreif-
ast. En einstöku furutegundir
bera köngla sem haldast harð-
lokaðir og geyma fræin þannig
árum saman og opnast jafnvel
ekki fyrr en skógareldur hefur
geisað. Könglar sumra furu-
tegunda verða mjög stórir og
fallegir, t.d. könglar freysfurunn-
ar (Jeffreysfurunnar, P. Jeffrey)
í Oregon, sem eru 15-20 cm á
lengd og eru seldir hér í blóma-
búðum fyrir jólin.
Fjallafura — pinus mugo
Fjallafuran vex víða í fjöllum
í Mið-Evrópu, Pyreneafjöllum,
Alpafjöllum, Karpatafjöllum og á
Balkanskaga. Hún vex mjög hátt
uppi í fjöllunum, við skógarmörk
eða í allt að 2.600 m hæð, og
myndar víða mjög þétt, mishátt
kjarr. Þarna er hún ómissandi
við að binda jarðveginn með
víðfeðmu rótarkerfi og innan um
vaxa svo einir, víðir, rósir,
blábeijalyng o.fl. fjallaplöntur.
Fjallafura er með tvær nálar í
hveiju knippi eins og stafafuran,
en nálarnar á fjallafuru eru miklu
mjórri og oft nokkuð stinnar og
beinar. Þær eru 2-8 cm og
mislangar eftir afbrigðum, en
fjallafura er mjög breytileg í útliti
eftir því á hvaða svæðum hún
vex.
Eftirtalin afbrigði eru algeng
í ræktun:
Pinus mugo var. pumilo —
skriðull, þéttgreinóttur runni,
sem verður varla meira en 1 m
á hæð.
Pinus mugo var. mughus —
einnig lágvaxinn runni, en getur
þó orðið allt að tveir og hálfur
metri á hæð. Þetta afbrigði er
mest ræktað í Noregi.
Pinus mugo var. rotundata —
er margstofna eins og hin
afbrigðin en verður miklu hærri
eða allt að 6 m í heimkynnum
sínum.
Hólmfríður Sigurðardóttir.