Morgunblaðið - 30.05.1992, Side 40
40
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. MAI 1992
Minnning:
Þorsteinn Jónsson,
Kaðalsstöðum
Fæddur 21. ágúst 1921
Dáinn 20. maí 1992
Steini á Kaðalsstöðum, eins og
hann var alltaf kallaður, föðurbróðir
okkar, er látinn. Hann, sem enn var
svo ern og var að huga að kindum
sínum þegar kallið kom - allt of
snemma.
Steini fæddist á Kaðalsstöðum í
Stafholtstungum og ól þar allan sinn
aldur. Hann var yngsta barn hjón-
anna Jóns Ólafssonar bónda og
smiðs á Kaðalsstöðum og konu hans
Ingibjargar Þorsteinsdóttur. Jón var
sonur Olafs Þorbjarnarsonar frá
Helgavatni í Þverárhlíð, síðar bónda
á Kaðalsstöðum og konu hans Þor-
gerðar Jónsdóttur. Ingibjörg var
dóttir hjónanna Ástríðar Þorsteins-
dóttur og Þorsteins Magnússonar á
Húsafelli.
Systkini Steina eru Ólafur smiður
á Kaðalsstöðum II, Ástríður sem bjó
með Steina á Kaðalsstöðum og elst
er Ólína, hálfsystir þeirra, nú búsett
á Akranesi.
Margir afkomenda séra Snorra á
Húsafelli hafa verið nafntogaðir fyr-
ir smíðar og það átti svo sannarlega
við um Steina.' Hann var sérlega
hagur og með eindæmum greiðugur
fnaður. Alveg var sama hvernig á
stóð hjá honum sjálfum, alltaf var
SEGLAGERÐIN
ÆGIR
EYJASLÓÐ 7 • REYKJAVÍK • s.fi-62Í7£0
hann reiðubúinn að rétta öðrum
hjálparhönd. Hvort sem það var biluð
heybindivél um hásláttinn eða veik
kýr var hringt í Steina og hann lagði
sín verk til hliðar og gerði við eða
læknaði og þurfti þá oft langt að
fara, jafnvel í aðrar sýslur.
Steini gegndi mörgum trúnaðar-
störfum gegnum tíðina. Hvort sem
það var í slökkviliði, forðagæslu eða
búnaðarfélagi var hann tilbúinn að
ljá krafta sína og vinna þau störf
er þurfti. Þá var hann til margra
ára fjallkóngur Stafholtstungna-
manna í haustleitum. Á Kaðalsstöð-
um er stórt verkstæði og þangað
komu margir annaðhvort til að gera
við sínar vélar sjálfir eða fá liðsinni
Steina til að finna hvað var að og
fá hans hjálp til að gera við. Á verk-
stæðinu voru oft bæði jarðýta,
slökkvibíll auk annarra véla.
Steini hafði mjög gaman af að
spila brids og mörg voru þau þorra-
blótin og böllin sem hann „startaði",
enda þótti honum gaman að dansa.
Steini var samur við alla. Hjálp-
arhönd léði hann hverjum sem í hlut
átti - hvort sem það var á nóttu
eða degi, virkan dag eða helgan
gátu allir leitað til Steina og öllum
vildi hann liðsinna. Þakklæti svei-
tunganna var líka mikið. Þegar
Steini varð fimmtugur gáfu sveit-
ungar hans og vinir honum nýjan
bíl og sýnir það vel hvern hug menn
báru til hans.
Steini kvæntist aldrei, var barn-
laus, en mörg eru þau börnin og
unglingarnir sem hafa dvalist hjá
Steina og Ástu í gegnum tíðina.
Mörg þeirra komu ár eftir ár og
hafa haldið tiyggð við heimilið síð-
an. Steini átti mjög gott með að
umgangast ungmenni og er okkur
Kveðjuorð:
Kristín Hannesdóttir
minnisstætt að Steini hafði lag á að
biðja þannig um hlutina að við lögð-
um allt á okkur til að uppfylla óskir
hans fljótt og vel.
í hugum okkar systranna eru
nöfnin Steini og Ásta á hinum bæn-
um samofín og til þeirra var alltaf
hægt að leita. Nú eru börnin okkar
komin á sveitaaldurinn og mikið
„sport“ að reyna að hjálpa til og
fara með Ástu og Steina í fjósið og
fjárhúsin. En nú er Steini horfinn.
í Hávamálum segir:
Deyr fé,
deyja frændur,
deyr sjálfur ið sama.
En orðstír
deyr aldregi
hveim er sér góðan getur.
í dag kveðjum við frænda okkar.
Margir munu sakna hans. Okkar
innilegustu samuðarkveðjur til Ól-
ínu, pabba og Ástu og afkomenda
hennar sem voru svo mikið hjá
Steina.
Blessuð sé minning Þorsteins
Jónssonar.
Sigrún, Unnur, Björk
og fjölskyldur.
Kynni okkar ömmu Kristínar
hófust fyrir tæpum aldarfjórðungi
og þeim lauk nú fyrir skemmstu.
Ég varð þeirrar gæfu aðnjótandi
að fá að búa á heimili hennar ásamt
foreldrum mínum fyrstu æviárin,
og það eru ár sem seint líða mér
úr minni. Hún skammaðist aldrei,
bannaði aldrei og reiddist aldrei.
Hún fyrirgaf alltaf allar yfirsjónir
og huggaði þegar þess þurfti með.
Og svona var hún við alla. Þegar
ég vaknaði á nóttunni, lítil, hrædd
og myrkfælin, þá bankaði ég á her-
bergisdyr ömmu Kristínar og var
alltaf tekið opnum örmum. Fyrst
fórum við fram í eldhús og fengum
okkur í svanginn og síðan leyfði
hún mér að kúra hjá sér í bólinu
það sem eftir lifði nætur — yfirleitt
við litla hrifningu foreldra minna,
því oft varð elsku amma að fara
úrvinda til vinnu næsta dag, enda
plássið I mjóa rúminu hennar
naumt. En amma mátti ekki heyra
á það minnst að mér væri bannað
þetta athæfi. Hún vildi leyfa börn-
unum að koma til sín, eins og Drott-
inn hennar og frelsari. Þau voru
fleiri barnabörnin sem fengu að
stíga sín fyrstu spor undir verndar-
væng hennar og handleiðslu, og öll
erum við þakklát fyrir þann trygga
og raungóða vin sem hún var okkur.
Söknuðurinn er mikill, en við vit-
um að hvfldin var kærkomin og
minningamar um þessa ötulu, ósér-
hlífnu, en umfram allt góðu konu
eiga eftir að ylja okkur um hjarta-
ræturnar alla ævi.
Amma Kristín var líka skemmti-
leg og naut sín alltaf vel í marg-
menni. Og einmitt þannig fékk hún
að deyja — með hóp náinna ætt-
ingja og vina í kringum sig. Hún
veifaði okkur öllum að skilnaði, og
fáum mínútum síðar var hún öll.
Hún var vænsta og besta mann-
eskja sem ég hef þekkt og held að
allir sem kynntust henni og hennar
milda hugarfari hafí orðið ríkari
fyrir vikið.
Katrín Axelsdóttir.
Birting afmælis-
og minningargreina
Morgunblaðið tekur afmæl-
is- og minningargreinar til
birtingar endurgjaldslaust.
Tekið er við greinum á rit-
stjórn blaðsins á 2. hæð í Aðal-
stræti 6, Reykjavík og á skrif-
stofu blaðsins í Hafnarstræti
85, Akureyri.
Athygli skal á því vakin, að
greinar verða að berast með
góðum fyrirvara. Þannig verður
grein, sem birtast á í miðviku-
dagsblaði að berast síðdegis á
mánudegi og hliðstætt er með
greinar aðra daga.
ERFIDRYKKJUR
r&r> Perlan á Öskjuhlíð
p h r l a n sími 620200
[y^ARUD }
ÓHIISSANDI mn y
Höldum kynningu í
frá kl. 12 - 15 á b
glæsileg
sem ris i
SOLVOGUR - IBUÐIR FYRIR ALDRAÐA
Nú eru framkvæmdir komnar vel á veg við þetta glæsilega fjölbýlishús í Fossvogi. Um er að
ræða stórar 2ja, 3ja og 4ra herbergja íbúðir, sem afhendast fullbúnar að utan sem innan, án
gólfefna. Suðvestursvalir. Glæsilegt útsýni. Verð frá kr. 8.000.000,-
Á 1. hæð í húsinu verður íbúð fyrir húsvörð, salur þar sem verður ýmis þjónusta á vegum
Reykjavíkurborgar, gufubað, sturtur, búningsklefar, heitir pottar o.fl. Þá verður sameiginleg setu-
stofa á 5. hæð og samkomu- og spilasalur á 8. hæð. Teikningar og allar nánari upplýsingar á
skrifstofu okkar.
Komum heim með teikningar
ef óskað er.
Heitt kaffi á könnunni
Gerið svo vel að líta inn.
ÓDAL
fasteignasala
Skeifunni 11 a
«679999