Morgunblaðið - 30.05.1992, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. MAI 1992
45
Þórmundur Guð-
steinsson - Minning
Þórmundur Guðsteinsson bíl-
stjóri er Iátinn og upp í hugann
koma endurminningar æskuár-
anna og rás tímans til þessa dags.
Þórmundur var kvæntur Sigur-
björgu Guðmundsdóttur, Boggu
frænku frá Hurðarbaki, sem lifir
mann sinn.
Þórmundur var einn þeirra fjöl-
mörgu sem settist að á Selfossi á
upphafs- og uppgangsárum
staðarins sem sveitarfélags. Þetta
fólk skóp og lagði grunn að menn-
ingar- og athafnalífi samfélagsins
við Ölfusárbrú.
Þórmundur, eða Mundi eins og
við kölluðum hann, bjó á Flúðum
utan árinnar ásamt konu sinni og
börnum. Húsið var byggt á þeim
árum þegar menn nefndu þau með
nafni. Flúðir standa á sérstökum
stað þar sem horft er út yfir flúð-
ir Ölfusár. Og það var með
Þórmund eins og svo marga aðra
að hann átti það að tómstunda-
gamni að renna fyrir lax, enda
stutt niður á árbakkann.
í hafsjó minninganna kalla nöfn
fólks fram myndir sem gott er að
staldra við. Þau Mundi og Bogga
voru eins og aðrir ættingjar ómiss-
andi við afmælisborð okkar
systkinanna og það var sérlega
gaman að eiga afmæli og það var
ekki afmæli nema Hurðarbaks-
systur væru til borðs ásamt mök-
um og þannig var það langoftast.
Á þessum árum snerist umræðu-
efni heimilisfeðranna um ýmis
framfaramál í ungu byggðarlagi.
Vissulega höfðu strákapollar lítið
til mála að leggja en með tímanum
hafa þessi samtöl karlanna krist-
allast og sýna hversu mikilvægt
er að íbúar hafi skoðanir á málefn-
um umhverfis síns og þeirri upp-
byggingu sem þar á sér stað.
Karlarnir voru ekki alltaf sam-
mála, þeir höfðu skoðanir.
Þórmundur hafði ákveðnar
skoðanir á málum og sagði þær
umbúðalaust svo skildist.
Árin liðu og afmælin hættu að
vera sömu ættarmótin og áður.
En í hvert sinn sem Mundi birtist
hafði hann lag á því að fá ungvið-
ið til við sig með spaugsemi. „Hvað
segirðu Lási minn,“ sagði hann
gjarnan og fékk hjá okkur nafnið
Mundi lási og Mundi lási var góð-
ur karl. Það var gaman að fara í
kröftuga krumlu við hann, reyna
sig í sjómann eða krók með
skemmtilegri örvun frá Munda.
Síðan kom góðlátlegur hlátur og
hvatning um að borða meira og
verða sterkur.
Tíminn leið og leiðir lágu sam-
an, á brúsapallinum í Mjólkurbúi
Flóamanna og áfram þegar fjöl-
skyldurnar hittust. Alltaf var stutt
í spaugsemina og undir hijúfu
yfirborði fundu þeir sem hann
þekktu þá hlýju sem laðar að.
Hlýja Munda var ríkuleg og henn-
ar nutu börn hans, barnabörn og
vinir.
Þórmundur var vinnsuamur
maður eins og þeir fjölmörgu sem
byggt hafa upp þjóðfélag okkar.
Hann vann 10 stundir daginn áður
en hann lauk störfum, hélt sínu
striki eins og bílstjórastarfið hafði
ávallt boðið honum. Og manni seg-
ir svo hugur að svo mikill vinnu-
maður sem hann var hafi hann
viljað vinna áfram einhver ár.
Á skilnaðarstundu þökkum við
Munda fyrir að hafa gefið okkur
stundir af lífi sínu. Endurminning-
in er dýrmæt. Hún laðar fram
hughrif hlýrra minninga og dregur
upp mynd af traustum manni sem
alltaf var á sínum stað, tiltækur
þeim sem lögðu leið sína til hans.
Bestu kveðjur eru færðar frá
fjölskyldunni á Austurvegi 31.
Sigurbjörg, börn og allir aðstand-
endur fá innilegar samúðarkveðj-
ur. Megi góður Guð styrkja ykkur
í sorginni.
Sigurður Jónsson.
ingar, standandi í dyrunum með
kökudiskinn eða annað góðgæti því
ekki mátti maður fara án þess að
fá eitthvað, en það var eitt af því
sem fylgdi heimili þeirra Ingu og
Nonna alla tíð.
Frá Hyrningsstöðum fluttust þau
að Hofstöðum en árið 1954 reistu
þau nýbýli á Seljanesi í Barmahlíð
og þjuggu þar þangað til að heilsan
bilaði hjá Nonna en þá byggðu þau
sér hús við Reykjabraut 9 á Reyk-
hólum og bjuggu þar síðan.
Ég fór ung úr Reykhólasveitinni
en kom seinna vestur að Seljanesi,
þá sem tengdadóttir þeirra Ingu og
Nonna og þá fann ég strax sömu
gestrisnina og hjartahlýjuna og
áður, sem hélst alla tíð.
Ég held að á Seljanesi hafí þau
átt sín bestu ár. Þar var oft margt
um manninn, enda stóð heimilið
ávallt öllum opið og aldrei heyrði
ég Ingu kvarta þótt mikið væri að
gera, en oft minnist ég þess þegar
hún var búin að búa um alla og
einhver spurði, hvar ætlið þið að
sofa? þá var svarið alltaf það sama
„elskurnar mínar, það er nóg pláss“.
Mér finnst þetta lýsa henni nokkuð
vel, því hún gerði aldrei neinar kröf-
ur fyrir sjálfa sig.
Síðastliðinn vetur veiktist Inga
af krabbameini og lá þá lengi á
Landakotsspítala og var vart búist
við að hún ætti afturkvæmt í sveit-
ina sína, sem hún þráði þó, en heim
komst hún og þegar ég talaði við
hana næst og spurði um heilsuna
svaraði hún „ég fann að mér batn-
aði um leið og flugvélin lenti“.
Ég veit að Inga mín þjáðist oft
þótt hún kvartaði aldrei en að kvarta
eða hugsa um sjálfa sig voru hugtök
sem hún þekkti ekki. Ég veit Iíka
að hún var orðin ósköp þreytt og
því sátt við að losna við þennan
jarðlíkama „því hvað er það að deyja
annað en standa nakin í blænum
og hverfa inn í sólskinið" (Kahlil
Gibran) og eins og hún tók alltaf
vel á móti öllum veit ég að það
hefur verið tekið vel á móti henni
og ég efast ekki um að bæði Nonni
og Jói hafa beðið hennar við strönd-
ina hinum megin.
Um leið og ég þakka tengdamóð-
ur minni allt það sem hún var mér
sendi ég aðstandendum samúðar-
kveðjur og kveð hana með erindi
sem mér finnst segja meira en mörg
orð.
Og hver á nú að blessa blóm og dýr
og bera fuglum gjafir út á hjamið
og vera svo í máli mild og skýr,
að minni í senn á spekinginn og bamið,
og gefa þeim, sem gðtu rétta flýr,
hið góða hnoða, spinna töfragamið?
Svo þekki hver, sem þigpr hennar beina,
að þar er konan mikla, hjartahreina.
(D. St.)
Wivi Hassing.
■ Á SAMEIGINLEGUM stjórn-
málafundi framkvæmdastjórnar
Sambands ungra framsóknar-
manna og Félags ungra fram-
sóknarmanna við Djúp sem hald-
inn var á ísafirði 16. maí sl. var
eftirfarandi ályktun samþykkt:
„Fundurinn mótmælir þeirri ójafn-
aðarstefnu sem núverandi ríkis-
stjórn framfylgir. Ríkisstjórnin hef-
ur á einu ári brotið niður og afnum-
ið fjölmörg atriði jafnréttis og fé-
lagshyggju, sem komið hefur verið
á hér á Iandi á síðustu áratugum,
sum hver eftir mikla baráttu og
fórnir. Það fólk sem harðast verður
úti vegna þessara grundvallarbreyt-
inga á þjóðfélagi voru, sem ríkis-
stjórn hægri flokkanna er að koma
í kring, er fyrst og fremst barna-
fólk, menntafólk svo og sjúkir og
aldraðir. Á sama tíma er ekki hreyft
við afkomu hópa í þjóðfélaginu sem
mest eiga og hæstar hafa tekjurn-
ar, nema þá helst til að auka hag-
sæld þeirra. Til þessara óhæfuverka
hefur ríkisstjórnin ekkert umboð,
því ætti hún að segja af sér strax.
og leggja verk sín undir dóm þjóðar-
innar.“ (Fréttatilkynning)
BIFREIÐAR &
LANDBÚNAÐARVÉLAR HF.
Ármúla 13 • Sími: 68 12 00
Bein lína: 3 12 36
HYunoni
...til framtíðar
„flaggskipið“
4 dyra stallbakur • 131 eða 143 hestafla vél • 2000 DOHC
16 ventla eða V6 3000 vél • Tölvustýrð fjölinnspýting •
5 gíra beinskipting eða 4 þrepa tölvustýrð sjálfskipting •
Rafdrifnar rúður og samlæsing á hurðum • Hvarfakútur
Verð frá: 1.284.000,-kr. •
Aukabúnaður (t.d.) : Topplúga: 48.000,- kr.
og álfelgur: 45.000,- kr.