Morgunblaðið - 30.05.1992, Qupperneq 55
M0R<3UNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 80. MAi 1992
55
MIÐAVERÐ KR. 300
Á 5 OG 7 SÝNINGAR
ALLA DAGA
FÓLKIÐ UNDIR STIGANUM
r,í hverju hverfi er hús sem fullorðnir tala um og börn forðast." f þessari mynd fáum
við að kynnast hryllingnum sem leynist innandyra...
Aðalhlutverk: Brandon Adams, Everett McGill, Wendy Robie.
Leikstjóri: Wes Craven (Nightmare on Elm Street).
★ ★ ★ ★ L.A. Times
Sýnd í A-sal kl. 5, 7,9 og 11. - Bönnuð innan 16 ára.
Æ.V ÍÍAl".
★ ★★★ L.A. XIMES
★ ★★★ PRESSAN
★ ★★ MBL.
«
IKHUSIÐ
STÓRA SVIÐIÐ:
LITLA SVIÐIÐ:
í Húsi Jóns Þorsteinssonar, Lindargötu 7
A JELENA
eftir Þórunni Sigurðardóttur.
Mán. 8. júní kl. 20, síðasta sýning.
eftir Astrid Lindgren
Sun. 31. maí kl. 14, næst síðasta sýning, örfá
sæti laus, og kl. 17, síðasta sýning, örfá sæti laus. .
Miðar á Emil í Kattholti sækist viku fyrir sýn-
ingu, ella seldir öðrum.
Miöasalan er opin frá kl. 13-18 alla daga nema
mánudaga og fram aö sýningu sýningardagana.
Auk þess er tekiö viö pöntunum í síma frá kl. 10
alla virka daga.
Greiöslukortaþj’ónusta - Græna línan 996160.
Hópar, 30 manns eÖa fleiri, hafi samband í síma
11204.
LEIKHÚSGESTIR ATHUGIÐ: ÓSÓTTAR
PANTANIR SELDAR DAGLEGA.
eftir Ljudmilu Razumovskaju
Sun. 31. maí kl. 20.30, uppselt, mið. 3. júní
kl. 20.30, uppselt, föst. 5. júní kl. 20.30, upp-
selt, lau. 6. júní kl. 20.30, uppselt, lau. 13.
júní kl. 20.30, uppselt, sun. 14. júnf kl. 20.30,
uppselt. Síðustu sýningar.
LEIKFERÐ ÞJÓÐLEIKHÚSSINS:
SAMKOMUHÚSIÐ Á AKUREYRI:
Fös. 19. júní kl. 20.30, lau. 20. júní kl. 20.30,
sun. 21. júní kl. 20.30.
Forsala aðgöngumiða hefst þriðjud. 2. júní
miðasölu Leikfélags Akureyrar, sími 24073,
opið kl. 14-18 alla virka daga nema mánud.
Ekki er unnt að hleypa gestum í salinn eftir að sýn-
ing hefst. Miðar á Kæru Jelenu sækist viku fyrir sýn-
ingu, ella seldir öörum.
SMÍÐAVERKSTÆÐIÐ:
Gengið inn frá Lindargötu
ÉG HEITI ÍSBJÖRG,
ÉG ER LJÓN
eftir Vigdísi Grímsdóttur
Sun 31. maí kl. 20.30, tvær sýningar eftir,
fáein sæti laus, fóst. 5. júní kl. 20.30, fáein
sæti laus, næst síðasta sýning, lau. 6. júní, kl.
20.30, fáein sæti iaus, allra siöasta sýning, þar
sem verkiö verður ekki tekið aftur til sýninga
í haust.
Ekki er unnt aö hleypa gestum í salinn eftir aö sýning
hefst. Miöar á ísbjörgu sækist viku fyrir sýningu ella
seldir öörum.
Vitleysisgangur í völundarhúsi
Kvikmyndir
Sæbjöm Valdimarsson
Laugarásbíó
Fólkið undir stiganum -
„The People Under the
Stairs“
Loikstjórn og handrit Wes
Craven. Bandarísk. Uni-
versal 1991.
Sú var tíðin að Wes Craven
gat skotið kvikmyndahús-
gestum skelk í bringu, og það
svo um munaði. Það var í
ódýrum B-myndum sem báru
hin drungalegustu nöfn eins-
°g Dauðs manns blessun,
Hæðirnar hafa augu, Heim-
boð til heljar, osfrv. Og oftar
en ekki var hryllingurinn
dável blandaður gálgahúmor
og endirinn sá að karl datt
niður á hina gullnu formúlu
og sló í gegn með Martröð
við Álmstræti og komst á
mála hjá dreifingarrisunum í
Hollywood. Er skemmst frá
því að segja að síðan hefur
hallað undan fæti hjá þessum
lúnkna hrollvekjusmið og
þær væntingar sem kvik-
myndaverin og áhorfendur
höfðu til hans eru litlar orðn-
ar.
Það tekur því ekki að fara
mörgum orðum um nýjustu
afurð Cravens, Fólkið undir
stiganum. Þó hún sé fram-
leidd af hinu volduga Univer-
sal er hún afturför frá hinum
hráu en skemmtilega óvið-
felldnu smámyndum leik-
stjórans á árum áður. Þetta
er fimbulfamb um afskræmi
sem búa á milli þilja í völund-
arhúsi snargeggjaðrar fjöl-
skyldu. Til sögunnar koma
þrír innbrotsþjófar, einn rétt
af barnsaldri. Leysir hann
leyndarmál þessa rauna-
ranns, fríar veggbúana og
verður húsráðendum úti um
hin maklegustu málagjöld.
Bragðlítið og einkar aula-
legt allt saman og skopskyn
höfundar virðist farið veg
allrar veraldar. Eini ljósi
punkturinn er negradrengur-
inn í aðalhlutverkinu, það er
með eindæmum hvað honum
tekst að gera úr litlu. Þá er
myndin subbuleg og helst
reynt að ná til áhorfenda með
tómatsósu og ofbeldi. Slíkt
telst til örþrifaráða.
STÓRA SVIÐIÐ kl. 20:
• ÞRÚGUR REIÐINNAR
byggt á sögu John Stcinbeck. Leikgcrð: Frank Gaiati.
f kvöld, uppsclt.
Sun. 31. maí, fáein sæti.
Þri. 2. júní, fáein sæti.
Mið. 3. júní, fáein sæti.
Fös. 5. júní, uppselt.
Lau. 6. júní, uppselt.
Mið. 10. júní.
Fim. ll.júní.
Fös. 12. júni, fáein sæti.
Lau. 13. júní, fáein sæti.
Fim. 18. júní 3 sýn. eftir.
Fös. 19. júní 2 sýn. eftir.
Lau. 20. júní næst síð. sýn.
Sun. 21. júní allra síð. sýn.
Þrúgur reiðinnar verður ekki á fjölunum í haust.
Miðar óskast sóttir fjórum dögum
fyrir sýningu, annars seldir öðrum.
LITLA SVIÐIÐ:
• SIGRÚN ÁSTRÓS
eftir Willy Russel
Sun. 31. maí, fáein sæti laus.
Miðasalan opin alla daga frá kl. 14-20 nema
mánudaga frá kl. 13-17. Miöapantanir 1 síma
alla virka daga frá kl. 10-12, sími 680680.
Myndsendir 680383
NÝTT! Leikhúslínan, sími 99-1015.
Greiðslukortaþjónusta.
■ MENNINGAR- og
friðasamtök íslenskra
kvenna stóðu fyrir fjölsóttri
námstefnu í Brekkuskógi
helgina 22.-24. maí. Fyrir-
lesarar voru Hannes Jóns-
son fv. sendiherra, Kristín
Einarsdóttir alþingismaður
og Stefanía Traustadóttir
félagsfræðingur. Á nám-
stefnunni var fjallað um
EES-samningana og aðra
hlið þeirra en þá sem reifuð
er í bæklingi þeim sem utan-
ríkisráðlierra hefur nú sent
inn á hvert heimili í landinu.
Umræður voru fjörugar og
var meðal annars borin upp
sú spurning hvort við íslend-
ingar viljum einangrast með-
al 18 þjóða Evrópu, flestra
gamalla nýlenduþjóða, eða
halda frelsi okkar til að velja
okkur einnig félagsskap með-
al hinna 180 þjóðanna í heim-
ínum.
(Fréttatilkynning)