Morgunblaðið - 21.06.1992, Page 4

Morgunblaðið - 21.06.1992, Page 4
4 FRÉTTIR/YFIRUT MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21. JÚNÍ 1992 ERLEIMT INNLENT vikuna 13/6-20/6 Tillaga um 28-34% skerðingn þorskafla Fiskifræðingar Hafrannsókna- stofnunar leggja til að þorskafli verði heldur meiri en Alþjóða haf- rannsóknaráðið lagði til, en þó ekki meiri en 190.000 tonn á næsta ári og 175.000 tonn tvö næstu físk- veiðiár þar á eftir. Svarar það til 28-34% skerðingar frá þeim 265.000 tonnum af þorski sem leyfílegt er að veiða á yfírstand- andi ári. Stofnunin leggur til að veitt verði 25.000 tonnum meira af öðrum kvótabundnum botnfísk- tegundum, ýsu, ufsa og grálúðu, en hún lagði til fyrir yfírstandandi ár og 20.000 tonnum meira en kvóti fyrir þessar tegundir er. Jafnframt að óbreyttur afli verði fyrir hefðbundinn karfa milli físk- veiðiára og er bent á að miklir möguleikar séu á auknum afla af úthafskarfa. Einkaréttur afnuminn íslensk stjómvöld hafa fallist á að einkaréttur íslenskra aðalverk- taka á Keflavíkurflugvelli verði afnuminn ekki síðar en 1. apríl 1995. Er það eitt af skilyrðum sem fjárveitinganefnd mannvirkjasjóðs setur fyrir afgreiðslu á frekari verkefnum á Islandi, en nefndin heiur samþykkt framkvæmdir fyr- ir 3,5 milljarða króna. Fæðingarheimilið ðdýrara Gerð hefur verið úttekt á hús- næði fæðingardeildar Landspítal- ans og Fæðingarheimilis Reykja- víkur, sem bendir til þess að hag- kvæmara sé að reka áfram fæðing- argang á Fæðingarheimilinu og bjóða þar upp á svipaða þjónustu og gert hefur verið undanfama ERLENT Maastricht samþykkt á írlandi ÍRAR samþykktu Maastricht- samninginn um aukinn sammna Evrópubandalagsríkjanna í þjóð- aratkvæðagreiðslu á fimmtudag með miklum meirhluta. Stjórnvöld á írlandi og í öðmm Evrópubanda- lagslöndum hafa fagnað úrslitun- um enda hefði verið úti um samn- inginn hefðu írar farið að dæmi Dana og fellt hann. Nú hefur samningurinn hins vegar öðlast nýtt líf og líklegast, að hann nái fram að ganga óbreyttur í öðmm aðildarríkjum EB. Franska þingið samþykkti á föstudag með mikl- um meirihluta breytingar á stjóm- arskránni, sem nauðsynlegar em vegna Maastricht-samningsins. Kjamorkuvopnum fækkað MIKILL árangur varð af viðræð- um Borís Jeltsíns, forseta Rúss- lands, og George Bush Bandaríkj- aforseta um afvopnunarmál í þriggja daga heimsókn þess fyrr- nefnda í Washington. Urðu þeir sammála um stórfellda fækkun langdrægra kjarnavopna og verð- ur tveimur af hverjum þremur kjarnaoddum eytt. Vegna mikils kostnaðar við eyðinguna virðist hins vegar óhjákvæmilegt að vest- ræn ríki rétti Rússum hjálpar- hönd. Þau ummæli Jeltsíns, að bandarískir stríðsfangar úr þrem- ur styijöldum, heimsstyijöldinni síðari, Kóreu- og Víetnamstríðinu, hafí verið í sovéskum fangabúð- Lítill kosningaáhugi í ísrael: Málefni af skomum skammti en því meira af gróusögum Reuter Yitzhak Rabin, formaður Verkamannaflokksins í ísrael, stendur hér við borð með hluta af 75.000 póstkortum frá ísraelskum kjós- endum sem sendu honum kortin til að segja honum að þeir hygg- ist kjósa flokkinn í þingkosningum 23. júní. NÚ ÞEGAR kosningabaráttu í ísrael er að ljúka virðast spár hníga í þá átt að hvorugur stóru flokkanna, Likud eða Verka- mannaflokkurinn, fái afgerandi meirihluta; trúlegast sé að sams konar staða verði og eftir síð- ustu tvennar kosningar að aragrúi smáflokka verði áfram í oddastöðu í ísraelskum stjóm- málum. Flestum ber saman um að kosn- ingabaráttan hafí sjálf ein- kennst af áhugaleysi háttvirtra kjósenda og þar valdi margt — málefnaleysi flokkanna eða að minnsta kosti skeytingarleysi um að kynna almennilega það sem þeir vilja og þó ekki síður að gaml- ir menn eru að beijast um atkvæð- in, Yitzhak Shamir forsætisráð- herra er 76 ára og hinn „nýi“ leið- togi Verkamannaflokksins, Rabin, er kominn á áttræðisaldurinn líka. „Það virðist sem ungt fólk gefí sig alls ekki í stjómmál hér í landi nú, hvort sem það stafar af sérhlífni og áhugaleysi eða það kemst hrein- lega ekki að,“ sagði ísraélskur blaðamaður í Jerúsalem í símtali. Kosningabaráttur í ísrael hafa frá stofnun ríkisins verið háværar, kröftugar og ekki hefur verið ann- að umræðuefni manna á meðal, en nú er öldin önnur. „Gyðingar af Ashkenazi og Sefardím svívirða hveijir aðra og allir niða svo inn- flytjendurna nýju. Til að fylgjast með tímanum efna flokkamir til rokktónleika og uppákoma til að laða unga fólkfð að og gæta þess að ræðumaður frá þeim flokki sem er að halda samkomuna tali ekki of lengi og þreyti kjósend- ur. Gróusögum er komið á kreik, allt að því skipulega, og þær út- breiddustu og langsamlega vinsæl- ustu nú em þær að Yitzhak Sham- ir sé líklega með Parkinson-veiki og Yitzhak Rabin drekki í laumi. Aftur á móti vita fæstir hvaða mál þessir menn ætla að beijast fyrir að kosningum loknurn," segir í grein eftir fréttaritara Reuters í Jerúsalem, Jack Redden. í kosningunum 23. júní em 3,4 milljónir manna á kjörskrá, þar af em um 350 þúsund á aldrinum 18-22 ára sem em að kjósa í fyrsta sinn. Eftir athugunum ísra- elskra fjölmiðla að dæma skiptist þessi hópur nokkum veginn jafnt milli harðlínuflokksins Tsomets og hófsama flokksins Merets. í grein sem birtist í vikuritinu Time i vikunni er varpað fram þeirri kenningu að rússneskir inn- flytjendur til landsins allra síðustu ár kunni að hafa umtalsverð áhrif á niðurstöðumar í kosningunum. Þeir ráða 7% atkvæða og þó að 60% hafi fullyrt að þau hefðu enn ekki gert upp hug sinn þykjast sérfróðir hafa vissu fyrir því að mikill meirihluti þeirra muni greiða Verkamannaflokknum atkvæði sitt. Það gæti gefið Yitzhak Rabin, formanni flokksins, þann meiri- hluta sem skipti sköpum en er svo sem langt frá sjálfgefið. Meðal rússnesku innflytjend- anna er reiði í garð núverandi vald- hafa, þeir telja sig hafa verið blekktir og að ísrael sé ekki það gósenland sem lýst var fyrir þeim. Einnig þykir þeim illa hafa verið staðið að því að hjálpa þeim að koma sér fyrir og atvinnuleysi meðal þeirra er 35% miðað við 11% hjá öðmm borgumm. Talsmenn Likud sem hafa nú verið meira og minna við stjórnvöl- inn frá 1977 segja að það sé eng- in þörf á að vera að fjalla um stefnu flokksins. Talsmenn flokks- ins segja sem svo að kjósendur þekki nú orðið Likud að öllu góðu, viti hver eru hugsjónamál þeirra og hvemig þeir starfi. „Við látum verkin tala,“ klykkja þeir út með og hefur þetta slagorð vakið að- hlátur margra. Þá hefur verið eft- ir því tekið hvað Shamir hefur verið lítið áberandi í undirbúningi kosninganna. Haim Ramon, þing- maður Verkamannaflokksins, tjáði sig um það: „Ég skil vel að þeir hampi ekki Shamir, ég myndi bregðast við eins og þeir ef minn fiokkur hefði svona formann. Samt em ýmsir á því að Shamir lumi á einhveiju, kannski muni hann grípa til þess að fyrirskipa meiri háttar hernaðaraðgerðir eða herða atförina að Palestínumönnum til að slá sér upp. Ef svo er þykir mér sem hann sé nú eiginlega á síðasta snúningi að beita þessu „leynivopni“.“ Yitzhak Rabin, formaður Verka- mannaflokksins, sem hefur verið ofan á í skoðanakönnunum frá upphafi þó ekki muni miklu, ætl- aði án efa að sópa til sín athygli og atkvæðum með þeim yfírlýsing- um í upphafi kosningabaráttunnar að kæmist hann til valda væri hann til viðræðu um að afhenda Sýrlendingum Gólanhæðir að veru- legum hluta. Þetta vakti að sönnu athygli enda einhver mesta yfírlýsing sem mér fínnst hafa verið gefín og hefði átt að hleypa nýju lífi í við- ræðurnar milli deiluaðila í Mið- austurlöndum. Einhverra hluta vegna spunnust aldrei um málið þær umræður sem hefði mátt álykta og viðbrögð hjá Likud sem ekki vill skila þumlungi af hem- umdu landi voru í daufara lagi. Meðaí sögusagna í ísrael nú nokkrum dögum fyrir kosningam- ar eru að Seðlabankinn ætli að fella gengið strax eftir kosningar. Þetta hefur ekki verið staðfest en veldur kvíða hjá fólki. „Menn hugsa meira um peninga, ísrael er að verða neysluþjóðfélag númer eitt, tvö og þijú. Hugsjónir og föð- urlandsmetnaður er fyrir bí,“ sagði ungur maður í samtali við Reuter. Hann sagði að ungt fólk væri upp- gefíð og vonsvikið vegna spillingar innan valdakerfísins og menn væm greinilega á því að allt væri falt svo fremi stjómmálamenn mökuðu krókinn. Ekki er síst ástæða til að furða sig á því hvað intifada Palestínu- manna, ásakanir um kúgun ísraela á íbúum hernumdu svæðanna og friðarviðræður um framtíðarskip- an í þessum eldfíma heimshluta hefur fjarri því verið mikið mál og hvorugur stóm flokkanna reynt að ýta undir umræður um þessi atriði sem einhvern tíma hefðu þótt mikilvægust allra. „Það er sama ástæðan og fyrir öðm í þessu landi. Við emm á kafí í neyslu, eiginhagsmunagæslu og sjáum varla fram á nefbroddinn — og nennum ekki að velta flóknum málum fyrir okkur,“ sagði ungur háskólanemi, Gabriel Eytan, í sam- tali við Morgunblaðið. Þetta er lík- lega rétt. En það er ekki betra fyrir það. BAKSVIÐ eftir Jóhönnu Kristjónsdóttur Kenning'ar um Hess marklausar EINN furðulegasti atburðurinn í síðari heimsstyrjöldinni var þegar Rudolf Hess, hægri hönd Adolfs Hitlers, flaug á orrustuvél af gerð- inni Messerschmitt 110 yfir Norðursjó og lenti í fallhlíf í Skotlandi til að friðmælast við Breta. Bresk yfirvöld sögðu að Hess hefði far- ið þessa ferð að eigin frumkvæði en margir efuðust um að það væri rétt. Samsæriskenningarnar um þennan dularfulla atburð reyndust hins vegar staðleysur þegar slqöl um málið voru loksins birt í síðustu viku, að sögn breska dagblaðsins The Independent. áratugi, í stað þess að innrétta sérstaklega heimilislegan fæðing- argang á Landspítalanum. Báðir valkostir em til skoðunar og er niðurstöðu að vænta innan tíðar. Aukin fyrirgreiðsla ekki á dagskrá Friðrik Sophusson fjármálaráð- herra segir að það leysi engan vanda að ríkissjóður hlaupi undir bagga með þeim sem fyrirsjáan- legur samdráttur í þorskveiðum muni bitna verst á. Hefur hug- myndum sjávarútvegsmanna þeg- ar verið hafnað um að hætt verði við að taka Hagræðingarsjóð sjáv- arútvegsins til að standa undir rekstri Hafrannsóknastofnunar. Segir ráðherra að aðrir sem fara muni fram á fyrirgreiðslu úr ríkis- sjóði muni fá sömu svör. Lækkun á símtölum til útlanda Gjaldskrá símtala til útlanda lækkar að meðaltalin um 15% um næstu mánaðamót. Mest lækka símtöl til Bandaríkjanna, Frakk- lands, Þýskalands, Japans, Hol- lands og Norðurlanda. Tekin hefur verið upp ný þjónusta fyrir þá sem vilja hríngja heim frá útlöndum. Geta þeir fengið kostnaðinn færð- an á eigin símreikning. íslandsmótið í knattspyrnu Úrslit í 4. umferð: Víkingur-FH 1-2, KA-KR 1-1, Breiðablik-ÍA 0-1, ÍBV-Þór 0-1, Valur-Fram 1-4. S. umferð: ÍA-KA 1-0, FH-Valur 0-0, KR-ÍBV 3-0. Úrslit lágu ekki fyrir í leikjum Fram og Breiðabliks og Þórs og Víkings. ÍA er efst með 11 stig eftir 5 leiki en Þór hefur 10 stig eftir 4 leiki. um, hafa vakið mikil viðbrögð vestra en nokkuð er efast um áreiðanleik þeirra. Tékkar og Slóvakar íhuga skilnað FLEST bendir til, að til fulls að- skilnaðar komi með þjóðunum, sem byggja Tékkóslóvakíu, Tékk- um og Slóvökum. Vilja Slóvakar sjálfstæði en vera þó áfram í efna- hags- og vamarbandalagi með Tékkum en þolinmæði tékkneskra ráðamanna virðist á þrotum. Ætla þeir að reyna að semja við Sló- vaka um framtíð landsins í nokkra daga enn og efna síðan til þjóðar- atkvæðagreiðslu um fullan að- skilnað. Vonarglæta í Sarajevo NOKKRIR tugir friðargæsluliða á vegum Sameinuðu þjóðanna hafa komið sér fyrir á flugvellinum í Sarajevo, höfuðborg Bosníu- Herzegóvínu, og er vonast til, að unnt verði að hefja flutning vista og lyfja til borgarinnar takist að koma á vopnahléi milli Serba og vamarsveita Króata og múslima. Carrington lávarður, milligöngu- maður Evrópubandalagsins, hefur boðið leiðtogum ríkjanna, Serbíu, Króatíu og Bosníu, til fundar í Strassborg á fímmtudag og verð- ur þar enn reynt að fínna ein- hveija pólitíska lausn. Blaðið segir að flest bendi til að yfírvöld hafí sagt sannleikann um málið og helsta ráðgátan sé nú hvers vegna þau birtu ekki skjölin fyrr. Menn höfðu verið með getgátur um að Hess hefði farið til Bretlands að undirlagi Hitlers en samkvæmt Simon lávarði, þáverandi forseta lávarðadeildarinnar, sem stjórnaði yfírheyrslunum yfír Hess, var helsta markmið hans að koma sér í mjúk- inn hjá Hitler. „Hann var einn síns liðs í þessu,“ skrifaði lávarðurinn til Winstons Churchills 9. júní 1941, tæpum mánuði eftir að Hess kom til Skot- lands. Kenningar um að Hess hefði lát- ið Bretum í té upplýsingar og skýrt þeim frá áformum Hitlers um inn- rás í Sovétríkin reyndust einnig marklausar. „Hann virðist ekki vita neitt um hemaðaráform Hitlers," skrifaði Simon lávarður. Samkvæmt lávarðinum fór Hess til Bretlands í þeirri trú að mörgum breskum stjórnmálamönnum stæði ógn af hernaðarmætti Þjóðvetja og vé'rið úmKugað að semja um frið.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.