Morgunblaðið - 29.07.1992, Page 9
9
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. JÚLÍ 1992
Fyrir
vershmrmarmahelgim
Sumartilboð a skófatnaði
Fjölbreytt úrval afstriga- ogsportskóm
SKÓSALANy
Laugavegi 1, gegnt Skólavörðustíg,
sími 16584.
Nú er rétti tíminn til a ö
hefja reglulegan spamað með
áskrift að spariskírteinum
Raunasaga Díönu selst vel hér á landi:
Húsmæður í úthverfuml
lesa bókina um Díönu
Bóldn „Uún>‘‘ eftir Andrew Morton hefur selst vcl hér i landi en hún koml
í bóloverslanir á fimmtudaginn var. Bókin olli mildu fjaftrafold þcgar hún |
kom út í Bretlandi og hefur valdft athygli út um allan heim.
Almenna bókafélagið gefur bókina
út ( þýðingu Sigríðar Astríðar Ei-
ríksdóttur og er hún gefin út í 3.500
eintökum.
Ekki þótti forráðamönnum útgáf-
unnar ráðlegt að biða til jóla með að
gefa bókina út. þar eð þá gaeti áhugi
almennings hafa dalaö á einkamál-
um prinsessunnar.
Á fimmtudaginn seldust u.þ.b. 10
i eintök af bókinni (Pennanum (Hall-
armúla og er það afar gott miðað við
það að ekki er mikið keypt af bókum
I á þessum árstíma. Einnig hefur mik-
| ið verið hringt og spurt um hana.
í bókabúð Sigfúsar Eymundssonar í
I Kringlunni var þaö sama upp á ten-
ingnum, fólk var forvitið um bókina
og gott þótti að 4-5 eintök seldust
þar á fyrsta degi.
Díönuáhuginn virðist vera hverfis-
sonar í Austurstræti hafði bókin lítið I
selst en aftur á móti á Eiðistorgi var I
salan góð. Að sögn einnar af- I
greiðslustúlkunnar eru það heima- I
vinnandi konur úr úthverfunum I
sem kaupa bókina: „Það eru ekki I
karlmertnimir sem kaupa hana, það ]
er kvenfólkið." .
Eins og kunnugt er orðið segir bók-
in frá ýmsum vandamálum Díönu,
prinsessu af Wales. líkamlegum sem
andlcgum, og sýnt fram á að hjóna-
band hennar og Charles prins sé alls
ekki eins mikill tangó á túlípönum
og það hefur litið út fyrir að vera.
Þaö er líklega þessi sameiginlegi
reynsluheimur kvenna undir þrúg-
andi ógn karlveldisins. sem islensk-
ar húsmæöur finna við lestur bókar-
innar um Díönu og geta samsamað
sig við í sumarleyfinu.
Hverfabundinn bók-
menntasmekkur!
Dagblaðið Tíminn birtir „þrumufrétt" um
bókina um Díönu, prinsessu af Wales,
síðastliðinn laugardag. Fréttin fellur vel
að fjölmiðlafári um frægt fólk og einkalíf
þess út í hinum stóra heimi. Og fagmann-
lega er að verki staðið; íslenzkir lesendur
bókarinnar nánast greindir eftir stétt
og/eða búsetu: „Að sögn einnar af-
greiðslustúlkunnar eru það einkum
heimavinnandi konur úr úthverfunum
sem kaupa bókina." Staksteinar staldra
við þessa Tímafrétt í dag.
Annað gildir í
Austurstræti
en við Eiðis-
torg
Frásagnir af einkalífi
„fræga fólksins" falla í
góðan jarðveg á Islandi,
ekkert síður en í öðrum
heimshornum, einkum
og sér í lagi hjá kven-
fólki í úthverfum höfuð-
borgarsvæðisins, ef
marka má bókmennta-
lega- og félagsfræðilega
fréttaúttekt dagblaðsins
Tímans síðastliðinn laug-
ardag.
Bókin um Díönu, sem
sögð er fjalla um einka-
mál og hjónaband brezku
prinsessunar, „olli miklu
fjaðrafoki þegar hún
kom út í Bretlandi", að
sögn Tímans, „og hefur
vakið athygli um allan
heim“. En „Díönuáhug-
inn virðist vera hverfis-
skiptur", segir blaðið,
„þvi í bókaverzlun Ey-
mundsonar i Austur-
stræti hafði bókin lítið
selst en aftur á móti á
Eiðistorgi var saian góð.
Að sögn einnar af-
greiðslustúlkunnar eru
það heimavinnandi kon-
ur úr úthverfunum sem
kaupa bókina: „Það eru
ekki karlmennimir sem
kaupa hana, það er kven-
fólkið.““
„Tangó á
túlípönum“
Frétt Tímans lætur
ekki við það sitja að kyn-
og hverfismerlqa ís-
lenzka lesendur Andrews
Mortons og Díönuáhang-
endur, sem út af fyrir sig
segir þó nokkuð um
heimsmannsleg vinnu-
brögð þessa fréttavaka
hér á skerinu, yzt í ver-
aldarútsæ. Fréttin gerir
og efni bókarinnar skýr
skil og skorinyrt. Og ekki
skortir punktinn yfir i-ið,
það er fréttalegt mat á
þeim konunglega hjú-
skap, sem íslenzkt út-
hverfafólk er sagt svo
áhugasamt um.
Orðrétt segir í Tíma-
fréttinni:
„Eins og kunngt er
orðið segir bókin frá
ýmsum vandamálum Dí-
önu, prinsessu af Wales,
likamlegum sem andleg-
um, og sýnt fram á að
hjónaband hennar og
Charles prins sé alls ekki
eins mikill tangó á túlí-
pönum og það hefur litið
út fyrir að vera.“
Þrúgandi út-
hverfaógn
karlveldisins
Frétt Timans gerir það
ekki endasleppt við les-
endur. Rúsínan í pylsu-
endanum er sum sé á sín-
um stað; ekki aðeins út-
tektin á því hveijir lesi
bókina, það er konur í
úthverfum, heldur og
skýringin á því hvað stað-
bundnum lesáhuganum
valdi. Skýringin er að
vísu ekki ný af nálinni
en væntanlega góð og
gild engu að síður. Og
felur þar að auki i sér
nýja spuraingu, sem
blaðið lætur ósvarað enn
sem komið er.
Fréttaleg niðurstaða
Tímans hljóðar svo:
„Það er líklega þessi
sameiginlegi reynslu-
heimur kvenna, undir
þrúgandi ógn karlveldis-
ins, sem íslenzkar hús-
mæður finna við lestur
bókarinnar um Díönu og
geta samsamað sig við í
sumarleyfinu."
Samsömun í sumar-
leyfinu eru snjallyrði, en
spurningin, sem þessi
skyggna frásögn Timans
felur í sér, er með öðrum
orðinn sú, hvort „heima-
vinnandi konur í úthverf-
um“ búi öðrum fremur
„undir þrúgandi ógn
karlveldisins" og þá eink-
um og sér í lagi í sumar-
leyfinu?
Miðbæjar-
tangó í út-
hverfin!
Með skýringu Timans
á lesáhuga fólks í hinum
ýmsu borgarhverfum að
leiðarljósi má kannski
gera ráð fyrir því að við-
ar en í konungsgörðum
sé mannlífið „ekki eins
mikill tangó á túlípön-
um“'og vonir stóðu til i
„den tid“.
Það er á hinn bóginn
huggun harmi gegn ef
það, sem Tíminn lætur
einnig að liggja, sum sé
að mannlifstangóinn sé
(júfari í miðborginni en
úthverfunum, styðst við
einhvera flugufóL Þá má
jafnvel færa út kvíar
miðbæjartangósins, eins
og liitaveitunnar, svo
hann ylji einnig upp út-
hverfin.
Það ætti ekki að vera
erfiðara verk, íslending-
um, en að byggja upp
þorskstofninn, sem er
efnhagslegt og físki-
fræðilegt vandmál og þvi
vart á bók setjandi á sól-
björtum sumarnóttum,
það er að segja ef bókin
á að seljast jafnt í Austur-
stræti sem við Eiðistorg.
Með öðrum orðum þá
hafa tangó og túlípani
hafsins ekki verið eins
nýliðunargæf og þjóð-
hagfræðin telur nauðsyn-
legt til að neyzlusamfé-
lagið risi undir nafni
næstu misserin.
En þrátt fyrir dimma
skýjabakka í Nú-Tíman-
um þýðir ekki annað en
að rækta með sér bjart-
sýni og treysta á þann
túlipanatangó, sem for-
sjónin skenkir okkur,
hvort heldur er í mið-
borg, úthverfum eða líf-
ríki sjávar.
ríkissjóbs.
Notaðu símann núna,
hringdu í
62 60 40,
69 96 00
eða 99 66 99
sem er grænt númer.
RÍKISVERÐBRÉFA
Kalkofnsvegi 1, Hverfisgötu 6, símí 91- 626040
sími 91- 699600 Kringlunni, sími 91- 689797
9*6% raunávöxtun*
y • •
Oryggi
Eignarskat tsfre Isi
Ekkert innlausnargjald
SJÓÐSBRÉF 5
Sjóðsbréf 5 eru eignarskattsfrjáls og henta því vel þeim
sem greiða háan eignarskatt. Sjóður 5 er einnig mjög
öruggur þar sem hann fjárfestir eingöngu í verðbréfum
með ábyrgð Ríkissjóðs íslands. Bréfin beragóða ávöxtun
og hefur raunávöxtun þeirra verið 9,6% sl. 3 mán.
Bréfm eru mjög sveigjanleg þar sem þau eru fáanleg í
hvaða einingum sem er. Þau er einnig hægt að innleysa
hvenær sem er án innlausnargjalds.
Ráðgjcifar VIB veita frekari upplýsingar um Sjóðsbréf
5 og auk þess er hægt að fá sendar upplýsingar í pósti.
Verið velkomin í VTB.
* Arsávöxtun m.v.
sl. 3 mán.
VERÐBRÉFAMARKAÐUR ÍSLANDSBANKA HF.
Ármúla 13a, 155 Reykjavík. Sími 68 15 30. Telefax 68 15 26. Símsvari 68 16 25.