Morgunblaðið - 29.07.1992, Side 14

Morgunblaðið - 29.07.1992, Side 14
14 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR. 29. JÚLÍ 1992 Hín hliðin á málinu eftir Hönnu Kristínu Guðmundsdóttur Vegna frásagnar ungrar konu í fjölmiðlum af viðskiptum sínum við fyrirtæki mitt Hárgreiðslustofuna Kristu sf. og meintu tjóni sem hún hafí orðið fyrir á stofunni er ég undirrituð, Hanna Kristín Guð- mundsdóttir, hárgreiðslumeistari og vinnuveitandi 35 starfsmanna Kristu sf., tilneydd til að skýra frá atvikum máls þessa eins og þau horfa við mér. Ég hef starfað við hárgreiðslu í 26 ár og ávallt haft mikla ánægju af starfi mínu og þeim mannlegu samskiptum sem því fylgja. Mér hefur fundist það mjög gefandi að bæta eða hjálpa við að bæta útlit fólks og þar með sjálfsímynd þess. Ég hef lagt mikinn metnað í starf mitt bæði hvað varðar mín eigin handverk svo og starfsmanna minna eftir að ég hóf rekstur eigin stofu fyrir 22 árum. Þær eru ófáar stundimar á ári hveiju sem farið hafa í menntun og þjálfun starfs- manna minna á stofunni og nám- skeiðum hérlendis og erlendis. Hár- greiðsla er þjónustustarf og ég, sem og aðrir sem þetta starf stunda, hlýt að hafa það að aðalmarkmiði að veita viðskiptavinum mínum góða þjónustu því ánægður við- skiptavinur kemur aftur. „Slys“ í starfi eftir 26 ár Þann 17. júlí sl. kom á hár- greiðslustofu mína ung kona sem fékk að eigin ósk permanent í hár sitt, ein af mörgum þann dag og í sjálfu sér ekki í frásögur færandi nema fyrir það að þegar permanent- meðferðinni var lokið kom í ljós að hár hennar var ónýtt að því er virt- ist, þó svo að ekki yrði endanlega gengið úr skugga um það, því kon- an hafnaði öllum bónum mínum um að fá að þurrka eða meðhöndla hár hennar frekar. Unga konan fékk mikið áfall þegar þetta var ljóst og brast hún í grát. Ég og starfsmaður minn, hárgreiðslumeistari sá sem setti permanentið í ungu konuna, sáum að „slys“ hafði orðið og varð okkur sem von var mikið um. Þar sem þetta er í fyrsta skipti á starfsferli mínum sem slíkt hendir á stofu /Á^ARUD minni hef ég enga reynslu af því hvemig bregðast skuli við í tilvikum sem þessum en viðbrögð mín voru þau annars vegar að reyna að hug- hreysta konuna og bjóða henni að þjónusta hár hennar frekar þá þeg- ar og áfram síðar og hins vegar að benda henni á vátryggingu stofu minnar. Eiginmaður konunnar að við töldum sem hafði beðið eftir henni reyndi líka að hughreysta hana en unga konan var ekki mönn- um sinnandi og brást hún ókvæða við. Hún kvaddi okkur með því að hóta okkur hvoru tveggja fjölmiðl- um og skaðabótamálssókn. Um góð ráð Á hárgreiðslustofum er eðli máls- ins samkvæmt mikið gert af því að leiðbeina og ráðleggja um með- höndlun hárs bæði hvernig við- skiptavinir sjálfir skuli eða skuli ekki meðhöndla hár sitt svo og um þá ýmsu þjónustu sem stofumar bjóða upp á. Þannig er oft lagt á ráðin um hvað fagmaðurinn telur að fari viðskiptavini sínum vel svo og hvaða meðferð henti eða henti ekki hári hans svo sem litun, aflitun eða permanent. í sumum tilvikum er viðskiptavini leiðbeint um að litun eða aflitun hárs eða permanentmeð- ferð þess sé hárinu beinlínis óholl. Þetta er gert í þeim tilvikum sem hári viðkomandi hefur auðsjáanlega verið ofgert með of tíðri meðhöndl- un litar, aflitar eða permanents miðað við styrkleika þess. Aðvörun um að meðferð sé hári óholl felur í sér þegar háralitun er annars vegar að búast má við að litur hárs viðskiptavinarins verði ekki sá sem hann væntir en aðvör- un um afleiðingar permanents lýtur að ofþornun hársins og því að hárið verði matt áferðar, illa viðráðanlegt og „dautt" að sjá. Flestir viðskiptavinir á hár- greiðslustofum fylgja þeim ráðlegg- ingum sem fagmennirnir veita en sumir láta ráðleggingar og aðvar- anir sem vind um eyru þjóta. í þeim tilvikum er það ávallt matsatriði hvenær skuli synja um þjónustuna. Hugað er að því hvaða væntingar viðskiptavinurinn gerir sér og hversu raunsær hann er á ástand eigin hárs. Það segir sig hins vegar sjálft að ef ástæða er til að ætla að meðferðin geti ónýtt hár við- skiptavinar þá neitar fagmaður honum um hana. Á hárgreiðslustofu minni, frá því ég hóf rekstur henn- ar fyrir 22 árum, hefur það aldrei gerst að hár viðskiptavinar ónýttist. Um „slysið“ Spurningunni um hvers vegna hár ungu konunnar fyrrgreindu ónýttist get ég ekki svarað til fulls heldur einungis lagt að því líkur. Unga konan var með mjög aflitað ljóst hár. í hársverði hennar sást að eðlilegur háralitur hennar var brúnn og að hár hennar hafði vaxið um 1-1'A cm. frá því að það hafði verið aflitað sem þýðir að um það bil 30 dagar voru síðan það hafði verið gert síðast. Vegna aflitunar- innar var konan vöruð við afleiðing- um permanents, þ.e. að hár hennar gæti orðið mjög matt og þurrt. Hárendarnir, sá hluti hársins sem er elstur og mest hefur mætt á og því ávallt í verstu ásigkomulagi, voru samkvæmt venju skoðaðir eft- ir að hár konunnar hafði verið þveg- ið enda eftir þvott ekki lengur fyrir að fara næringu eða öðrum efnum í hári sem geta gefið til kynna betra ástand þess en raun er. Hár kon- unnar var eftir þessa skoðun talið permanent tækt enda yrði notað og var notað veikt permanent sem sérstaklega er ætlað lituðu og aflit- uðu hári. Permanentmeðferðina ætla ég ekki að rekja hér en hún var öll frá upphafi til enda í sam- ræmi við leibeiningar þær sem efn- inu fylgja og farið hefur verið eftir við setningu permanents í hár þús- unda annarra kvenna og karla með góðum árangri. Þannig legg ég lík- ur að því að hvorki permanentefn- inu né meðhöndlun þess sé um að kenna. Konan upplýsti eftir á að hún hefði síðast, þ.e. um 40 dögum fyr- ir permanentið, sjálf aflitað hár sitt. Hár hennar var, andstætt því sem ætla mátti, verst farið efst, þ.e. frá u.þ.b. 1 til 1‘A cm. frá rót að ca 10 cm. frá rót. Efnið sem hún kvaðst hafa notað og keypt i stór- markaði er frá virtum framleiðanda og hefur verið á markaðinum í lang- an tíma. Unga kona er ein til frá- sagnar um það að hún hafí í einu og öllu farið eftir leiðarvísi um notk- un þess. Orsakir „slyssins", þ.e. þess atburðar að hár ungu konunn- ar ónýttist við permanentið, tel ég vera ástand hársins áður en per- manentið var sett í það. Það segir sig sjálft að hefði svo mikið sem hvarflað að okkur sá möguleiki að ástand hárs konunnar yrði eftir permanentið það sem í raun varð, þá hefði henni verið synj- að um permanentmeðferð. Eðlileg viðbrögð og „frétt" í gúrkutíð Spurningunni um hvað teljist eðlileg viðbrögð við. „slysi" sem því er henti ungu konuna á hárgreiðslu- stofu minni læt ég öðrum eftir að svara en ipnan við klukkustund eft- ir að hún fór frá okkur, um kl. 17.30 föstudagskvöldið 17. júlí sl. var hún búin að fá sér lögmann og búin að fara á aðra hárgreiðslu- stofu þar sem hún falaðist eftir staðfestingu á því að hár hennar væri ónýtt. Eftir því sem ég best veit lauk hún því jafnframt af sam- dægurs að láta mynda sig á ljós- myndadeild Morgunblaðsins. í Morgunblaðinu þann 22. júlí sl. birt- ist síðan við hana viðtal ásamt tveimur myndum af henni, annarri Funheitt grill- tilbod á gæða- kjöti frá Blönduósi SOLUFELAG A- HÚNVETNIN GA Hanna Kristín Guðmundsdóttir „Orsakir „slyssins“, þ.e. þess atburðar að hár ungu konunnar ónýttist við permanentið, tel ég vera ástand hársins áð- ur en permanentið var sett í það.“ af henni með hárið og hinni af henni eftir að hún hafði látið klippa sig. Morguninn eftir mætir hún síðan í viðtal hjá Eiríki Jónssyni á Bylgj- unni. Samtal þeirra Eiríks var að vísu stutt en yfirlýsingin sem hún las var þeim mun lengri. Fyrirfram hefði ég búist við öðrum efnistökum hjá Morgunblaðinu en raunin varð á. Blaðamaðurinn sem skrifaði „fréttina“ hringdi að vísu í mig og leitaði staðfestingar á því að unga konan hefði fengið tiltekna „útreið“ á hárgreiðslustofu minni, en birti síðan svar mitt klippt og skorið. „Frétt“ Morgunblaðsins fær mest pláss allra frétta þennan dag, 5 dálka á fjóruðu síðu og sett fram í æsifréttamennsku stíl. Þolandi og gerandi Unga konan hefur þegar staðið við aðra hótun sína, þá að fara með frásögn sína af „slysinu" í fjöl- miðla. Um frásögn konunnar í ofan- greindum viðtölum ætla ég ekki að fjölyrða hér. Það eru alltaf minnst tvær hliðar á öllum málum. Hennar frásögn er í flestum atriðum önnur en okkar á hárgreiðslustofu minni. Hins vegar gladdist ég yfir því að heyra hana staðfesta á Bylgjunni að rétt permanent hefði verið notað í hár hennar, þó hún virtist ómeðvit- uð um það og ekki hafa ætlað sér það. Sömu sögu er að segja um frásögn hennar af því hversu oft hárgreiðslumeistarinn kom og skoð- aði hár hennar meðan á meðferð- inni stóð svo og hversu lengi hár hennar var skolað enda telst hvoru- tveggja til fyrirmyndar í vinnu- brögðum við permanentmeðferð. Það sem hins vegar vekur furðu mína og annarra er hvað henni gangi til, hveijum hagsmunum hún er að þjóna. Orð hennar í niðurlagi yfirlýsingarinnar sem hún las á Bylgjunni þar sem hún varar aðrar konur með fallegt hár (lýsing henn- ar sjálfrar á hári sínu) við að skipta við okkur svo og að það sem henti hana hafi ekki verið slys heldur léleg vinnubrögð geta samkvæmt mínu viti ekki réttlæst af umrædd- um atburði og eru meiðandi, ekki aðeins fyrir mig sem eiganda og rekstraraðila hárgreiðslustofunnar heldur líka fyrir alla þá 35 starfs- menn sem hjá mér starfa. Hina hótun ungu konunnar, um skaðabótamálssókn á hendur fyrir- tæki mínu, hefur hún þegar þetta er skrifað ekki ennþá efnt, en hún staðfesti á Bylgjunhi þá fyrirætlan sína. Það sem hins vegar vekur furðu, þar sem af minni hálfu lög- manni hennar var tilkynnt strax daginn eftir „slysið“ um vátrygg- ingu okkar hjá Sjóvá-Almennum hf., er að áður en unga konan fór með frásögn sína í fjölmiðla kynnti hún sér hvorki sjálf né lögmaður hennar, skýrslu þá sem við höfðum þá þegar, tvéimur dögum fyrir við- talið í Morgunblaðinu og þremur dögum fyrir viðtalið á Bylgjunni, gefið tryggingafélaginu um atvik tjónsins. Lögmanni hennar var full- kunnugt um að skýrslan lá þá þeg- ar fyrir og ungu konunni líka, enda vísar hún til hennar í viðtölunum. Þannig var óþarfi að fara rangt með efni hennar í fjölmiðlunum. Þegar þetta er skrifað hefur trygg- ingafélagi okkar auk þess ekki enn- þá borist nein kröfugerð af hennar hálfu en það skýtur skökku við að hóta málssókn fyrr en afstaða þess til bótakröfu ungu konunnar liggur fyrir. Þessi skrif éru ekki til þess að afsaka eða bera í bætifláka fyrir okkur heldur til að skýra okkar hlið á málinu og að vara almenning og eigendur þjónustufyrirtækja t.d. hársnyritstofa við þeim „slysum" sem geta orðið. Ekki þó síður að beina þeim til- mælum til fólks að það setji ekki „eitthvað" efni, sem það kaupir út í búð á hár sitt eða húð - nema það fylgi fyrirmælum framleiðanda út í ystu æsar. Snúið ykkur til fag- manna og fáið réttu ráðin og trygg- ið þannig rétta meðferð á hári ykk- ar. Einnig til eigenda og starfsfólks hársnyrtistofa, ef þið þekkið ekki hár viðkomandi og/eða eruð í vafa um útkomuna, verið þá ekki rög við að neita þjónustunni ef einhver vafí leikur á að útkoman verði ekki góð. Höfundur er hárgreiðslumeistari. Rekaviðarbrú yfir Árnesá. Trékyllisvík: Morgunblaðið/Vilmundur Hansen Rekaviðarbrú yfir Amesá Trékyllisvík. TALIÐ er að brúin yfir Árnesá í Trékyllisvík sé síðasta brúin á landinu sem smíðuð er úr reka- við. Því var talið við hæfi að halda henni við og nota eingöngu reka nú þegar ákveðið var að endurbyggja hana. Aðspurður sagði Arinbjörn kirkjusmiður Bernhardson að viður- inn í brúnni væri mjög misjafn. Brúin var byggð um 1950 úr bikuð- um rekavið sem fenginn var úr fjör- unni við Finnbogastaði. Hann sagði að rauðaviður og seig selja væri í góðu ástandi en að fura hefði stað- ið sig verr. Allur viður sem nú er notaður í endurbyggingu er fenginn úr fjörunni við Finnbogastaði og sér Guðmundur Þorsteinsson bóndi á Finnbogastöðum um að saga hann. - V.Hansen

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.