Morgunblaðið - 29.07.1992, Síða 21

Morgunblaðið - 29.07.1992, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. JÚLÍ 1992 21 <8. 1- Draumurinn um eina Evrópu-mynt fjarlægist Skiptar skoðanir um ECU-mynteininguna innan EB Brussel. The Daily Telegraph. ÞAÐ er mun fleira en dyntir danskra kjósenda sem plaga for- ystumenn Evrópubandalagsins og drauma þeirra um einingu Evrópu þessa dagana. Efnaliagsþróun ríkjanna tólf, sem á að vera að steypast í sama mót, virðist vera að fara út og suður. Upplausnin í stjórnmálum og efnahagsmálum á Ítalíu er slík að margir veðja á gengisfellingu lírunnar innan skamms, sem myndi verða áfall fyrir núverandi samvinnu í gengismálum, hvað þá hugmyndir um eina Evrópumynt. Og Italía er ekki eina vandamálið. Fyrir sjö mánuðum skrifuðu leiðtogar Evrópubandalagsríkj- anna undir samkomulag í Ma- astricht í Hollandi, sem meðal annars kvað á um mynteiningu. Áætlað var að efnahagsþróun í ríkjunum tólf myndi smátt og smátt verða einsleitari, þannig að ríkisútgjöld, verðbólga og skuldasöfnun yrðu á endanum, árið 1996, með svipuðum hætti og í sjálfu borgvirki stöðugleik- ans, Þýskalandi. Þegar slíkri full- komnun væri náð yrðu hinar tólf myntir að einni Evrópumynt, sem væri þá fyrst og fremst sálfræði- leg breyting, en hefði litla efna- hagslega jarðskjálfta í för með sér. Reyndin hefur orðið önnur. Þróunin á Italíu er vissulega ekki hægfara leið til fullkomins stöð- ugleika. Fyrir utan óskammfeilin mafíumorð, vanmáttuga ríkis- stjóm og fjármálahneyksli hátt- settra stjórnmálamanna virðist efnahagslífið vera að fara úr böndunum. Skuldir eru 105 pró- sent af þjóðarframleiðslu, fjár- lagahallinn 15 prósent af þjóðar- framleiðslu og ítalski seðlabank- inn hefur þegar eytt helmingi gjaldeyrisforða síns til að reyna að halda uppi gengi lírunnar. „Ástandið á Italíu er orðið stjórn- íaust, það er stórslys yfirvof- andi,“ segir virtur hagfræðingur í London. Ef þýski seðlabankinn hækkar svokallaða Lombard-vexti í haust, eins og nú er talið líklegt, má búast við að gengisflot EB- ríkjanna riðlist í fyrsta sinn í fimm ár og er talið líklegt að gengi lírunnar og sterlingspunds- ins lækki. „Það er.ólíklegt að Teiknari franska dagblaðsins Le Monde virðist telja að Mit- terrand Frakklandsforseti (hér í líki Loðviks fjórtánda) taki ECU full nærri sér. mynteining EB myndi þola mikl- ar innbyrðis gengisbreytingar," segir hagfræðingurinn sem áður er vitnað í. Mynteining gæti frestast um áratug Þegar Maastricht-samkomu- lagið var samþykkt í desember í fyrra voru allar stjömur hag- stæðar einingu Evrópu. Góður hagvöxtur hafði verið árin á und- an, Þjóðveijar voru tilbúnir að leggja þýska markið undir sam- eiginlega stjóm, sem eins konar leyfisgjald fyrir sameiningu Þýskalands og nýr breskur for- sætisráðherra var ekki tilbúinn að malda í móinn eins og Margar- et Thatcher skömmu fyrir tvísýn- ar þingkosningar í Bretlandi. Þessi samstilling hinna póli- tísku himintungla er nú öll á skjön og ástandið minnir óþægi- lega mikið á það sem var rétt fyrir olíuhækkanimar 1973-’74, en þá ruku áætlanir um myntein- ingu út í veður og vind. Ef nú væri bullandi hagvöxtur í Evrópu væri ólíklegt að 23.000 danskir kjósendur gætu sett mynteiningu EB út af sporinu, en núverandi efnahagslægð getur auðveldlega frestað slíkum áætlunum um 5-10 ár. Ef til vill skilur nú á milli þeirra sem geta haldið í við Þjóðveija í efnahagslegum dyggðum og þeirra ríkja sem hafa lítinn hemil á verðbólgu og skuldasöfnun. Þannig gæti orðið til lítil efnahagseining Frakka og Þjóðverja og örfárra nágranna innan stærri og losaralegri ein- ingu EB-ríkjanna tólf (eða fleiri), sem er það sem Bretar hafa vilja forðast í lengstu lög. Reuter Jackson færlögbann POPPGOÐIÐ Michael Jackson fékk lögbann sett á birtingu andlits- myndar af sér í breska dagblaðinu London Daily Mirror. Blaðið sagði nýlega að Jackson væri skrímsli með andlit þakið örum, holu í nefinu, ójöfn kinnbein og signa höku; Það birti í gær nærmynd af söngvaran- um þessu til staðfestingar. í grein Lundúnaspegilsins frá því í júní segir að Jackson sé hroðalega afmyndaður í andliti eftir aðgerðir lýta- lækna. „Sýndu þitt rétta andlit Michael," segir í fyrirsögn gærdags- ins. Jackson hefur stefnt blaðinu fyrir meiðyrði og samningsrof, þar sem lofað hafi verið að selja ekki myndir sem ljósmyndari þess tók af söngvaranum á tónleikum í Miinchen og birta enga þeirra oftar en einu sinni. Lögfræðingar Jacksons segja hann bæði reiðan og sáran og búast við háum skaðabótum. Þeir bæta við að Michael sé reiðubú- inn að koma fyrir kviðdóm og sýna fram á að hann sé aðlaðandi ung- ur maður eins og einn þeirra komst að orði. Á myndinni má sjá Jackson í Eurodisney í gær. MONTANA tjaldvagnar Kynningarvero 295.000,- stgr Fortjald 45.000,- Skoöun og skráning innifalin í veröi Settir upp með einu handtaki. Látið þetta tækifærí ekki fram hjá ykkur fara. Opið mánud.-föstud. kl. 10-18.30 Laugard. kl. 10-16 Wodeikur VrsirRiiriMAR Faxafeni 10, sími 686204 lambakjöl á funheitu grilltilbodi • lambakjöt á funheitu grilltilboöi • lambakjöt á funheitu grilltilbodi • lambakjöt á funheitu grilltilboði HREINASTI BUHNYKKUR LAMBAKJÖT Á FUNHEITU GRILLTILBOÐI MEÐ MINNST 15% AFSLÆTTI Kryddlegnar framhryggjarsneiðar, rauðvínsleginn hryggur, kryddlegnar grillsneiðar. Notið tækifærið, gerið kjarakaup og setjið lambakjöt á funheitu grilltilboði - beint á grillið. a SMrWi 1 j lambakjöt á funheitu grilltilboöi • lambakjöt á funheitu grilltilbodi • lambakjöt á funheitu grilltilboöi • lambakjöt á funheitu grilltilboöi

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.