Morgunblaðið - 29.07.1992, Qupperneq 37
TILBOÐSVERÐ Á
GOLFKERRUM
Seljum út þessa viku golfkerrur með 30% afslætti.
é Dæmi: Caddy Kub, nú 4.700,- áður 6.700,-
Je Kaddy, nú 5.400,- áður 7.600,-
o Thrundler, nú 7.990,- áður 11.900,-
Nú er tækifæri til að fá sér golfkerru á frábæru verði!
1 íþróttabúðin,
<z> Borgartúni 20, sími 91-620011.
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. JÚLÍ 1992
ÍJtsala
Mikil verðlækkun
Elízubúöin,
Skipholti 5.
Morgunblaðið/Bj arni
Haldið upp á 100 tölublað Nýs Lífs, f.v.: Gullveig Sæmundsdóttir ritstjóri Nýs Lífs, Jóhanna Sigurðar-
dóttir félagsmálaráðherra, og Rannveig Guðmundsdóttir alþingismaður.
TÍMARITAÚTGÁFA
Hundraðasta tölublað Nýs Lífs
*
Utgefendur Nýs Lífs fögnuðu
því á dögunum að nýjasta
tölublað tímaritsins er hið eitt
hundraðasta í röðinni frá því að
blaðið hóf göngu sína. Að sögn
Gullveigar Sæmundsdóttur, rit-
stjóra Nýs Lífs, kom blaðið fyrst
út árið 1978, og er það lífseigast
af stóru íslensku tímaritunum sem
eru gefin út. Gullveig sagði að
blaðið hefði alltaf haft töluvert
mikla útbreiðslu og staðið framar-
lega á því sviði. Blaðið kæmi út
átta sinnum á ári og seldist í dag
í rúmlega fímmtán þúsund eintök-
um. Gullveig sagði að það seldist
til jafns í áskrift og í lausasölu.
Gullveig varð ritstjóri blaðsins
árið 1984 en hún er fjórði ritstjóri
Nýs Lífs. Fyrsti ritstjóri blaðsins
var Hildur Einarsdóttir. Þegar hún
hætti tók Katrín Pálsdóttir við
stöðunni en þriðji ritstjóri blaðsins
var Bryndís Schram. Aðspurð
sagði Gullveig að ekki stæði til
að gera neinar róttækar breyting-
ar á Nýju Lífí á þessum tímamót-
um enda væru slíkar breytingar
ekki vænlegar til árangurs í fjöl-
miðlum. Á meðan að kaupendur
blaðsins væru sáttir við það eins
og það væri yrði haldið áfram á
svipaðri braut. Enga að síður yrðu
Erla Haraldsdóttir, eiginkona Magnúsar Hreggviðssonar útgefanda,
skálar við Knút Signarsson, skrifstofustjóra Odda, og konu hans
Kristínu Waage.
Hildur Einarsdóttir fyrrverandi
Karlsdóttir kaupmaður.
ritstjóri Nýs Lífs, og Aðalheiður
alltaf vissar breytingar af því að blaðið yrði að vera í takt við tím-
þjóðfélagið væri að breytast og ann.
Morgunblaðið/Róbert Schmidt
SKEMMTUN
Skjásöngvakeppni á Hópinu
Foreldrar og eigendur veitingastaðarins Hópsins héldu nýlega skjá-
söngvakeppni (karaoke) fyrir böm á öllum aldri. Börnin tóku þessu
uppátæki fagnandi og voru óhrædd við að troða upp. Foreldrar aðstoðuðu
börnin og hvöttu þau til dáða og var glatt á hjalla á Hópinu þennan
dag. Helgina á undan var haldin keppni fyrir kráargesti og tókst það í
alla staði mjög vel.
Minar bestu kveðjur og þakklæti til barna
minna, tengdabarna, œttingja og allra vina
fyrir heimsóknir, gjafir og skeyti á 70 ára
afmœli mínu þann 20. júní sl.
Guð blessi ykkur öll.
Sigríður A rnfinnsdóttir.
ÍÞRÓTTA- OG FJÖLSKYLDUHÁTÍÐIN Á KALDÁRMELUM
Sídan skein sól, Júpíters, Nýdönsk, KK-band, Bogomil Font
og milljónamæringarnir, Blues Brothers, Kolrassa krókrídandi,
Lipstick Lovers, Sororicide, Orgill og íslenskir tónar.
REIF TJAÍD: AJAX, INSANE, MIND IN MOTION, T-WORLD
Landslið skífuknapa íslands að ógleymdum einum þekktasta
SKÍFUKNAPA NEW YORK BORGAR, SEM SNÝR OG ÞEYTIR SKÍFUM í
HINU ÞEKKTA DISKÓTEKI LlMELIGHT í NEW YORK.
íþrórrir, uppákomur, leikir, glensog goman, hœfileikakeppni Hemma Gunn, Ómar
Ragnarsson, víraspyrnukeppni QldQrinnar (Ingi Djöm, Hemmi, Matthías Haligrims,
Pétur Péturs og Guðmundur Steins) Srjörnulið Ómars gegn úrvalsliði rokkora.
Aflraunir í heimsklassQ. Frjálsíþrórrakeppni í mörgum öldursflokkum.
Mótsstaður er 30 mín frá Borgarnesi. Afmarkað fjölskyldusvæði.
Sætaferðlr frð Norðurlandi, Vestfjörðum, Vesturlandi, frð Reykjavfk
og helstu stöðum ð suð-vesturhorninu og Suðurlandi.
H>yefAAA, böUut)
Kerrudagar - kerrudagar - kerrudagar