Morgunblaðið

Dagsetning
  • fyrri mánuðurjúlí 1992næsti mánuður
    SuÞrMiFiLa
    2829301234
    567891011
    12131415161718
    19202122232425
    2627282930311
    2345678

Morgunblaðið - 30.07.1992, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 30.07.1992, Blaðsíða 27
36ör 14rJ(, ,flg 30?)/.tí,lTM:V.J1 eiQAlílKOOJÍOM MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. JÚLÍ 1992 ;í‘ -27 Norrænt psalmod- ikon-mót •• eftir Onnu Þórhallsdóttur í þessari viku er væntanlegur hópur manna af Norðurlöndum, Svíþjóð, Noregi og Finnlandi til að kynna ofangreint þjóðarhljóðfæri Svía, sem var í hættu með að vera algjörlega aflagt úr sænsku þjóð- lífi, líkt og gerðist með okkar þjóð- arhljóðfæri langspilið sem lá í dauðadái að mestu leyti frá síðustu aldamótum eða þar til mér tókst að endurvekja það 1961. Norður- landa-þjóðarhljóðfærin eru sem hér segir: Svíþjóð, psalmodikon, Noreg- ur langeleik, Finnland kantela og vireekanel ásamt Danmörku cantocord. Félag sem stofnað var í sam- bandi við þessa vakningu sá dagsins ljós árið 1986. Þann 7. júní 1986 voru haldnir tónleikar í Mulltorps- héraðsskólanum, Vástra Tunham, sem liggur mitt á milli Vánersborg og Trollhattan. Á þessari hátíð var ég fulltrúi íslands og lék á langspilið og söng 24 þjóðlög. Skemmtunin stóð yfir hálfan daginn þar sem leikið var á norrænu hljóðfærin. Maðurinn sem stóð fyrir því að íslandi var boðin þátttaka heitir Rodney Sjöberg, skólastjóri í Troll- hattan, ásamt Ingvari Ekbrand, á Islandi Anna Þórhallsdóttir fræðslumálastjóra í Vánersborg. Hann er kunnugur á íslandi, því hann er giftur frænku minni, Þóru Gunnarsdóttur. Hennar faðir var séra Gunnar Árnason, prestur í Kópavogi. Við bjóðum þessa frændur vora velkomna og óskum þeim ánægju- legrar dvalar. Þessi tónlistar- skemmtun verður 1. ágúst kl. 5 í Norræna húsinu. Höfundur er söngkona. Reykhólahreppur: Áhyggjur af yfirstand- andi atvinnuleysi Midhúsum. ALMENNUR borgarafundur var haldinn að Mjólkurvöllum á Reyk- hólum fimmtudaginn 23. júlí og var farið yfir stöðu hreppsmála. Framkvæmdir hafa verið miklar á síðasta ári. Sundlaugin endur- bætt og komið upp gufubaði, hitaveitukerfið endurnýjað á Reykhól- um og ný kaldavatnslögn lögð. Eignir hreppsins eru miklar og einnig skuldir og er því fjárhagsstaða hreppsins þung. Skatttekjur hreppsins 1991 voru 37 milljónir Framsögu höfðu Stefán Magnússon oddviti, Bjami Pétur Magnússon sveitarstjóri og Vilborg Guðnadóttir framkvæmdastjóri. Umræður urðu miklar og sátu fundinn um 50 manns. Einn þing- maður sat fundinn, Einar Kr. Guðf- insson og ræddi hann um byggða- mál. Fundarstjóri var Daníel Jóns- son bóndi. Eftirfarandi tillaga var sam- þykkt samhljóða: „Fundurinn lýsir áhyggjum sín- um vegna yfirvofandi atvinnuleysis þegar uppsagnir starfsfólks Þör- ungaverksmiðjunnar taka gildi. Fundurinn fagnar því samstarfi sem tekist hefur með stjórnendum verksmiðjunnar, starfsfólki henn- ar, stjómendum Kaupfélagsins og hreppsnefnd um að skapa störf fyrir þá sem missa vinnuna í haust. Þá fagnar fundurinn skilningi heil- brigðisráðherra á því að flýta loka- framkvæmdum við dvalar- og hjúkrunarheimilið Barmahlíð í þeim tilgangi að fjölga störfum í vetur. Fundarmenn skora á stjórnvöld að veita áfram framlag til sérstaks átaksverkefnis vegna ferðamála- fulltrúa a.m.k. til eins árs í enn. Ferðamálafulltrúinn hefur síðasta ár lagt grunn að margvíslegri starfsemi á sviði ferðamála í hreppnum sem og komið að ann- arri atvinnuuppbyggingu sem nauðsynlegt er að fylgja eftir til HARÐVIÐARVAL HF. KRÓKHÁLSI 4 R. SÍMI 671010 og íbúar eru innan við 400. að tryggja að góður árangur náist. Samgöngubætur em og verða mesta byggðamál héraðsins. Fund- urinn þakkar fjárveitingarvaldinu fyrir framlag til úrbóta á hafnarað- stöðu og treystir því að áfram verði haldið á þeirri braut og hafnirnar í hreppnum bættar þannig að hreppurinn byggist sem jafnast. Fundurinn ítrekar fyrri sam- þykktir um áskorun á þingmenn og ríkisstjórn að þegar verði hafíst handa við þverun Gilsfjarðar sem er og verður forsenda fyrir öflugri byggð við norðanverðan Breiða- fjörð.“ — Sveinn. Verð frá: 1.548.000,- Greiðslukjör við allra hæfi Til sýnis núna að Vatnagörðum 24 virka daga kl. 9:00 - 18:00 . Nánari upplýsingar í síma 68 99 00 (HJ 1 __________Brids___________ Umsjón Arnór G. Ragnarsson Sumarbrids í Reykjavík Frekar rólegt var í sumarbrids síð- asta laugardag. 18 pör mættu til leiks. Úrslit urðu: Norður/suður: BjömÁrnason-BjömSvavarsson 256 GunnarGunnarsson-KáriÖrlygsson 251 Þórarinn Ámason - Þorleifur Þórarinsson 233 Austur/vestur: Þrösturlngimarsson-ÞórðurBjömsson 284 Geirlaug Magnúsdóttir - Torfi Áxelsson 240 HaukurÁmason-GústafSteingrimsson 231 Góð þátttaka var hins vegar á mánudaginn. Þá mættu 36 pör til leiks. Úrslit urðu: Norður/suður: Sigurður B. Þorsteinss. - ísak Örn Sigurðss. 510 Bergsveinn Breiðfíörð - Sigurleifur Guðjónss. 508 ErlendurJónsson-VignirHauksson 453 Eyþór J ónsson - Víðir Jónsson 448 RóbertGeirsson-JóhannesEiriksson 423 Austur/vestur: SigfúsÞórðarson-GunnarÞórðarson 511 Þrösturlngimarsson-RagnarJónsson 511 GuðmundurPétureson-MagnúsTorfason 511 PerClaren-DanHansson 495 KjartanJóhannsson-ÞórðurSigfússon 487 Athyglisvert er, að Þröstur Ingi- marsson nánast sigrar 1 hvert skipti sem hann mætir. Sennilega er hann með 9 sigra af 10 (90%) í þau skipti sem hann hefur mætt. Einstakur árangur: Vakin er sérstök athygli á því að sumarbrids verður ekki á laugardag- inn kemur (1. ágúst) vegna verslunar- mannahelgarinnar. Spilað verður hins vegar á mánudaginn og opnar húsið að venju kl. 18. Spilamennska hefst síðan kl. 19 á mánudögum og þriðju- dögum. Á fimmtudögum hefst fyrsti riðill kl. 17, annar riðill kl. 18 og síð- asti riðill (riðlar) fara af stað kl. 19._ Ágæt aðsókn hefur verið á fimmtu- dögum og er sífellt að aukast. Síðasta fimmtudag mættu 40 pör til leiks. Allt spilaáhugafólk velkomið í Sigt- ún 9 (hús BSÍ). Bikarleikir Eins og kunnugt er stendur yfir önnur umferð bikarkeppninnar og hefir þætlinum borist tilkynning um leik Raftogs hf. og Roche. Leikurinn verð- ur spilaður í Fjölbrautarskólanum í Ármúla 12. ágúst nk. og hefst kl. 18. Þá verður leikur Tryggva Gunnarsson- ar Akureyri og sveitar Arnórs Ragn- arssonar af Suðurnesjum spilaður 15. ágúst á Akureyri. Nánari staðsetning og tímasetning er enn ekki ákveðin. Til hamingju með Motorola farsímann; Assocíate 2000 ■ nýl farsíminn frá Motorola Um leið og við þökkum þeim rúmlega átta þúsund íslendingum sem tóku þátt í Farsímaleik Motorola og Bylgjunnar fyrir að vera með, óskum við þeim 10 heppnu sem fengu Associate 2000 farsíma frá Motorola, til hamingju. Vinningshafarnir eru: Ingvar H. Guðmundsson Laufey Karlsdóttir Sólveig Þ. Arnfinnsdóttir Gunnar Hrafn Birgisson Svala Eiríksdóttir Þorgerður Gísladóttir Margrét Lárusdóttir Reynir Arnarson Sigurður Andrésson Vilhjálmur Örn Gunnarsson Reykjavík Kópavogi Vestmannaeyjum Reykjavík Kópavogi Akureyri Garðabæ Höfn Mosfellsbæ Flateyri MOTOROLA Ai§§giéit@ 2900 - enginn venjulegyr farsími Söluaðili Motorola farsíma á íslandi PÓSTUR OG SllUII SÖludeildir í Ármúla 27, Kirkjustræti, Kringlunni og á póst- og simstöðvum um land allt.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað: 171. tölublað (30.07.1992)
https://timarit.is/issue/124919

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.

171. tölublað (30.07.1992)

Aðgerðir: