Morgunblaðið - 01.08.1992, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 01.08.1992, Blaðsíða 21
21 MORGUNBLAÐIÐ LAUQARDAGUR 1. ÁGÚST 1992 V erzlunarmannahelgin: Helgardagskrá í Viðey Margbreytileg dagskrá verður í Viðey um verzlunarmannahelgina. í fréttatilkynningu frá staðarhaldara segir að ýmsar endurbætur hafi farið fram í eyjunni, þannig að útivistarsvæðið sé einkar að- gengilegt. Bátsferð út í Viðey tekur sjö mínútur og eru ferðir á heila timanum frá kl. 13 alla daga helgarinnar og á hálfa tímanum í land til kl. 17.30. Sjávargatan í Viðey er nú orðin steinlögð að mestu, þannig að auð- veldara er að koma bæði barnakerr- um og hjólastólum heim á hlað. Þá hefur verið gerður göngustígur á suðurströnd Vestureyjarinnar, þar sem áður var nánast ófært. Nú er hægt að ganga um alla Vestu- reyna. Á nokkrum stöðum á Heima- eynni og Austureynni hefur einnig verið komið fyrir borðum og bekkj- um. Dagskrá helgarinnar er á þá leið, að á laguardag kl. 14.15 verður farið í gönguferð á Austureyna. M.a. verða skoðaðar rústir þorps- ins, sem var á Sundbakkanum á fyrri hluta aldarinnar. Á sunnudag verður guðsþjónusta kl. 14. Sr. Hjalti Guðmundsson messar, organisti verður Kjartan Siguijónsson og Dómkórinn syng- ur. Kl. 15.15 verður staðarskoðun, þriggja stundarfjórðunga skoðun á Viðeyjarkirkju, fornleifauppgreftri og næsta nágrenni Viðeyjarstofu. Á mánudag verður gönguferð á Vestureyna kl. 14.15. Þá verður farin nýja gönguleiðin, þar sem m.a. er að sjá stóran klett, þar sem smiðurinn og bókbindarinn í Viðey hjuggu nöfn sín fagurlega árið 1842. Kaffisala verður í Viðeyjarstofu bæði laugardag og sunnudag kl. 14-16.30. Á mánudag verður selt ódýrt vöfflukaffí í Viðeyjarnausti, skála í eigu Reykjavíkurborgar vestarlega á suðurströnd Heimaeyj- ar. Þar er kaffisala mánudaga til miðvikudaga, þegar Viðeyjarstofa er lokuð. „Það er ýmislegt að sækja til Viðeyjar um verzlunarmannahelg- ina sem endranær. Forráðamenn Viðeyjar vænta þess, að fólk geti sótt þangað holla útivist og afþrey- ingu, sögufróðleik og frið í sál,“ segir í fréttatilkynningu staðarhald- ara. Náttúruverndarráð: Göngnm vel um landið Morgunblaðinu hefur borist frétt frá Náttúruverndarráði, þar sem áréttað er við ferðamenn að þeir virði náttúru landsins og 'hlífi náttúrulegum verðmætum í hvívetna. Þar segir ennfremur að ferða- menn hafi víða valdið skemmdum á gróðri með notkun á einnota grill- um og með því að hella heitu vatni á svörðinn. Brunasár eftir grill eða heitt vatn komi ekki strax í ljós og því líklegt að ferðamenn geri sér ekki grein fyrir skemmdunum. Nauðsynlegt sé að hafa grillin í nokkurri hæð til að koma í veg fyrir skemmdir af völdum þeirra. Til þess að koma í veg fyrir óþarfa mengun af sorpi er þess vænst af Náttúruvemdarráði að ferðamenn skilji ekki eftir msl á áningarstað. Ökumenn em einnig minntir á að óþarfa akstur utan vega, sem getur valdið land- skemmdum, er bannaður og einnig þurfi að huga að álagi á gróður og land þegar bílum er lagt. -----» » «-- Ekkert mót í Skaftafelli Morgunblaðinu hefur borist frétt frá þjóðgarðinum í Skafta- felli, þar sem ítrekað er að tjald- svæði þjóðgarðsins eru fyrst og fremst gististaður fyrir náttúru- unnendur, en ekki samkomustað- ur til skemmtanahalds. Væntanlegir gestir eru vinsam- legast beðnir að haga ferðaáætlun sinni þannig að þeir séu komnir í þjóðgarðinn fyrir klukkan 23, þar sem næturró miðast við þann tíma. Fjöldi gesta á tjaldsvæðinu er tak- markaður við 2.000 manns. Morgunblaðið/E.Pá Hjól og bíll Með ýmsu móti er ferðast um ísland. Þessi bíll sem við rákumst á í helli- rigningu við Goðafoss vakti athygli. Þar voru 16 Svisslendingar á ferð og höfðu meðferðis reiðhjólin sín sem var komið haganlega fyrir á rútu- bílnum. Á hverjum degi taka þeir hjólin og hjóla í 3-4 tíma, sögðu þeir. En vegirnir þóttu þeim frekar erfiðir undir hjól. Þannig komast þeir líka á þá staði sem þá langar án þess að keyra þungan bíl á viðkvæmum stöðum. Jökulsárgljúfur: Ijaldað í friði og ró Morgunblaðinu hefur borist fréttatilkynning frá þjóðgarðin- um í Jökulsárgljúfrum, þar sem segir að tjaldsvæði séu fyrst og fremst ætluð fólki, sem áhuga hafi á að njóta útivistar og nátt- úrufegurðar í friði og ró. Gestir eru beðnir um að hafa sam- band við lándverði áður en tjaldað er. Leyfilegur fjöldi í Vesturdal er 250 gestir, en í Ásbyrgi 850 gestir. Þess er vænst að gestir hagi ferðaá- ætlun sinni þannig að þeir séu komn- ir í þjóðgarðinn fyrir klukkan 23, þar sem næturró miðast við þann tíma. Áréttað er að ákvæðum um næturró og lagaákvæðum um áfeng- isneyslu verður fylgt eftir. RmUSTIII Pöntunarsími 52866 B.MAGNUSSON Mikið úrval. Frábært verð. 1.100 síður. Verð kr. 400,- (án burðargjalds). hefst þriójnda&lnn 4. ágúst

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.