Morgunblaðið - 07.08.1992, Qupperneq 1
80 SÍÐUR B/C/D/E
176. tbl. 80. árg. FÖSTUDAGUR 7. ÁGÚST 1992 Prentsmiðja Morgunblaðsins
Frekari sannanir fyrir voðaverkum í fangabúðum Serba
Vitni lýsa morðum og
öðrum hryðjuverkum
Travnic, Bihac, Sarajevo. The Daily Telegraph, Reuter.
Félagarnir fallnir
Særður bosnískur hermaður syrgir tvo fallna félaga sína eftir að sprengja frá herbúðum Serba sprakk í búðum
þeirra í Bosanski Luzine.
Ítalíuþing samþykkir hert lög gegn mafíunni
Fangelsi fyrir að fá að-
stoð mafíu í kosningum
Róm. The Daily Telegraph, Reuter.
STJÓRN Ítalíu tókst í gær að
GEORGE Bush Bandaríkjafor-
seti fyrirskipaði í gær tafarlausa
rannsókn á hvort Serbar séu sek-
ir um þjóðarmorð í Bosníu.
Breskir fréttamenn sem rætt
hafa við flóttamenn í Norður-
Bosníu segja að Serbar stundi
skipulagt ofbeldi í „þjóðernis-
hreinsunum" sínum, en telja sig
ekki hafa sannanir um að þeir
reki útrýmingarbúðir á borð við
nasista. Fréttamaður JTN-sjón-
varpsins, sem fékk aðgang að
Omarska-búðunum sagði fanga
greinilega vannærða og ástand
fólksins réttlætti kröfur um taf-
arlausa rannsókn á aðbúnaði
þess. Fólk sem kom frá Omarska
sagði að barsmíðar og nauðganir
væru þar daglegt brauð.
Bush krafðist þess að fangabúðir
Serba yrðu opnaðar eftirlitsmönn-
um og að „þjóðernishreinsunum"
þeirra yrði tafarlaust hætt. Hann
útilokaði ekki að bandarískir her-
menn yrðu sendir á vettvang og
krafðist líka herts viðskiptabanns á
Serbíu og boðaði að Bandaríkin
tækju upp fullt stjórnmálasamband
við lýðveldi Júgóslavíu sem lýst
hafa yfir sjálfstæði frá stjórninni í
Belgrad. Flugvöllurinn í Sarajevo
hefur verið lokaður vegna bardaga
í þrjá daga en Bush sagðist ekki
ennþá tilbúinn til að skipa hermönn-
um að grípa þar til vopna.
Blaðamenn The Daily Telegraph
hafa rætt við flóttamenn sem kom-
ið hafa til bæja á yfirráðasvæði
Króata og múslima og telja sig
geta staðfest fréttir af skipulögðum
hryðjuverkum Serba. Flóttamenn-
irnir eru flestir konur, börn og
gamlir karlmenn, en Serbar virðast
halda yngri mönnum eftir. Fólk sem
kom frá Omarska-búðunum sagði
að þar væri um 3.000 mönnum
haldið í vörubílageymslu, þar sem
þeir gátu ekki einu sinni lagst til
svefns vegna þrengsla. Fangar
væru ítrekað barðir til óbóta. Einn
flóttamannanna sagðist hafa borið
tvo menn burtu örenda eftir bar-
smíðar. Annar sagðist hafa orðið
vitni að aftöku þriggja manna.
Múslimsk kona sagðist hafa verið
neydd að bera eld að tíu húsum í
þorpi sínum og hún hafi séð lík
liggja eins og hráviði á leið til
fangabúða í Tmjopole, þar sem um
5.000 manns eru taldir vera í haldi.
Önnur kona sagðist hafa séð konu
skotna til bana þar sem hún var
að gefa barni sínu brjóst og að
nauðganir væru daglegt brauð í
búðunum.
Milan Panic, forsætisráðherra
Júgóslavíu (Serbíu og Svartfjalla-
lands), fór í gær með fréttamönnum
til fangabúða í Serbíu, og sögðu
þeir að múslimskir fangar sem þeir
sáu þar virtust vel hirtir. Panic
neitar að nokkrar einangrunar- eða
útrýmingarbúðir sé að finna í Serb-
íu og Svartfjallalandi.
koma í gegnum þingið lögum um
aukið frelsi lögregiu til ýmiss kon-
ar aðgerða í baráttunni gegn
mafíunni. Refsingar fyrir að
semja við glæpasamtök gegn því
að fá stuðning þeirra í kosningum
voru mildaðar. Það var ákaft
gagnrýnt af fiokki á Sikiley er
gert hefur baráttu gegn mafíunni
að helsta máii sinu.
Sumir þingmenn gagnrýndu
harkalega að yfirvöld fengju svo
mikil völd og töldu hættu á misnotk-
un. Alfredo Biondi, varaforseti þings-
ins, sagði: „Þetta andlát réttarríkis-
ins og fæðing lögregluríkisins.“ Refs-
ingin við áðurgreindum tengslum
stjórnmálamanna við mafíuna verður
allt að sex ár. Lögregla fær nú leyfi
til að beita símahlerunum og húsleit
í auknum mæli, réttindi fanga sem
dæmdir hafa verið fyrir mafíuglæpi
verða takmörkuð og vitni gegn sam-
tökunum fá aukna vernd.
Pina Maesano, öldungardeildar-
þingmaður og ekkja eins af fóm-
arlömbum mafíunnar, hefur setið í
tíu ár á þingi og tekið þátt í að sam-
þykkja 113 lög gegn glæpasamtök-
unum. Hún var svartsýn á að gagn
yrði að þessum aðgerðum. „Það var
ekki þörf á nýjum lögum, miklu frem-
ur að hafíst yrði handa við að fram-
fylgja þejm sem í gildi eru,“ sagði
hún.
Irakar
neita að
opna fleiri
ráðuneyti
Bagdad, Washington. Reuter.
ÍRAKAR iýstu því yfir í gær að
nýrri eftirlitsnefnd frá Sameinuðu
þjóðunum yrði ekki hleypt inn í
ráðuneyti þeirra og stofnanir.
Bandaríkjaforseti svaraði með
kröfu um að írakar færu að öllum
óskum eftirlitsmanna og sagðist
eila viija beita hervaldi.
Sagan af harðlæstum ráðuneytum
í frak og hörðum viðbrögðum Banda-
ríkjamanna virðist nú ætla að endur-
taka sig. Hópi á vegum SÞ var hleypt
inn í landbúnaðarráðuneytið í
Bagdad eftir langt þóf en engar hem-
aðarupplýsingar fundust. írakar
kváðust í gær ætla neita leitarmönn-
um sem senda á til Bagdad um að-
gang að höfuðstöðvum ráðuneyta,
slíkar heimsóknir beindust gegn full-
veldi íraks og-sjálfstæði.
George Bush Bandaríkjaforseti
brást hart við yfirlýsingu íraka.
Hann var á kosningaferðalagi í Kól-
oradó þegar fregnaðist um afstöðu
þeirra gagnvart þessum skilmálum í
vopnahléssamkomulaginu við SÞ.
Málið komst þegar í brennidepil
kosningabaráttunnar. Skoðanakann-
anir segja fylgi Bush nú komið niður
í 33%. Hann naut hylli 91% Banda-
ríkjamanna fyrst eftir sigurinn á
írökum í Kúveit 1990.
-----» ♦ ♦----
Nashyming-
ar í hættu
Delhi. The Daily Telegraph.
INDVERSKIR nashyrningar eru í
bráðri útrýmingarhættu þar eð
veiðiþjófar drepa þá vegna horn-
anna, sem seljast dýrum dómum
sem kynörvandi lyf.
Indversk yfírvöld segja að 1.129
nashymingar séu á verndarsvæði í
Assam í norðvestur Indlandi, en
umhverfisverndarsinnar segja stjóm-
völd vísvitandi falsa tölur og aðeins
3-400 dýr séu eftir. Þeir segja að
400 dýr hafi verið drepin með raf-
losti úr haspennulínum á verndar-
svæðinu. Veiðiverðir hafa skotið
Qóra veiðiþjófa til bana, en óvíst er
hvort þeim takist að bjarga nashyrn-
ingunum frá aldauða, þrátt fyrir svo
harkalegar aðgerðir.
Landnemar
gyðinga
mótmæla
Þúsundir manna efndu til mótmæla
í Jerúsalem í gær gegn takmörkun-
um á landnámi gyðinga á her-
numdu svæðunum, nokkrum
stundum áður en Yitzhak Rabin
forsætisráðherra hélt til Bandaríkj-
anna. Þar mun ísraelski ráðherrann
ræða við George Bush forseta eftir
helgina en Bush hefur látið í ljós
ánægju með stefnu hinnar nýju
Israelsstjórnar. Á miðvikudag
bannaði stjórnin allt frekara land-
nám og hétu leiðtogar Palestínu-
manna í gær að gera sitt til að
næsta lota friðarviðræðnanna í
Washington bæri árangur.
Reuter