Morgunblaðið - 07.08.1992, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 07.08.1992, Blaðsíða 26
Morgunblaðið/Eiríkur Á þingi götunnar Niðursokkin í umræður - ef til vill um handbolta kvöldsins, ef til vill um bikarleik komandi dags - ungmenni við blómakerin á göngu- götunni á Akureyri í gær. Undanúrslit í Mjólkurbikarkeppni KSÍ: Bikarslagur á Akur- eyrarvelli í kvöld Undanúrslitaleikurinn í Mjólkurbikarkeppninni í knattspyrnu milli KA og Akurnesinga verður á Akureyrarvelli í kvöld. Leikurinn átti að vera í gær en honum var frestað vegna handboltaleiks Islendinga og Samveldismanna á Ólympíuleikunum í Barcelona. Sveinn Brynjólfsson, formaður knattspymudeildar KA sagði að mik- ill hugur væri í KA-mönnum og þeim væri ekkert ofar í huga en að vinna þennan leik. Gengi KA-manna hefur verið valt í deildarkeppninni í sumar og þeir standa þar nokkuð illa, en hafa ekki í hyggju að leikurinn í kvöld verði síðasti bikarleikurinn á þessu sumri. Sveinn sagði að KA-menn hygðu á sitthvað til að gera þennan dag eftirminnilegan. Búast mætti við óvæntum uppákomum á íþróttavell- inum í kvöld. Auk þess kæmu í heim- sókn fjöllistamenn úr hópi Cirkus Arena, sem er við sýningar á Akur- eyri þessa dagana. Þá sagði hann að efnt yrði til happdrættis í tilefni árangursins í Mjólkurbikarkeppninni og leiksins í kvöld. Happdrættismiðar yrðu seldir í miðbæ Akureyrar í dag og á bikarleiknum í kvöld. Á vinn- ingaskránni væru 25 vinningar, með- al annars ferð til Edinborgar, fjalla- hjól, myndavél, hljómtæki, íþrótta- vörur og fleira. Aðeins væru gefnir út 1.500 miðar og kostuðu 500 krón- ur hver en verðmæti vinninga væri á fjórða hundrað þúsund krónur. Sveinn sagði að þrátt fyrir þetta yrði megináherslan lögð á að leika góða knattspymu og árangursríka og vonaðist til að Akureyringar fjöl- menntu á völlinn og þar yrði skemmtilegur og góður samtaka andi við að styðja KA-menn tii sig- urs á Akumesingum. Mývatnssveit: Þijár jarðir fá hitaveitu Björk, Mývatnssveit. ÞRJÁR jarðir munu í ágústmánuði tengjast hitaveitu frá borholu við Arnarvatn, en þar var borað á síðasta ári og fékkst talsvert sjálfrenn- andi 65 gráðu heitt vatn. í sumar hafa leiðslur verið lagðar að jörðun- um, en notendur verða alls tíu. Á síðasta ári létu bændur á þrem- ur bæjum í Mývatnssveit, Gautlönd- um, Ámarvatni og Helluvaði, bora eftir heitu vatni. Bomð var ein hola við vatnið Amarvatn. Þegar komið var á 950 metra dýpi var komið nið- ur á 65 stiga heita æð. Talið var að holan gæfi 30 sekúndulítra. Ákveðið var eftir svo jákvæðan árangur að leiða þetta heita vatn frá holunni til að hita upp hús á viðkom- andi jörðum. í sumar hófust heimamenn handa við að leggja leiðslur vegna væntan- legrar hitaveitu eftir að góð fyrirgre- iðsla fékkst í lánastofnunum og er þeim framkvæmdum nú að mestu lokið. Vatnið er sjálfrennandi upp úr holunni og þrýstingur er eitt og hálft kfló. Vatnið er fyrst leitt í tank í 8 metra hæð, síðan taka við tvær dælur. Önnur dælir vatninu í gegn- um 90 millimetra svera lögn í Hellu- vað og.Amarvatn en hin í gegnum 70 millimetra lögn í Gautlönd. Einn- ig er gert ráð fyrir þriðju dælunni þar heima við. Alls eru lagnirnar 6 til 7 kflómetrar að lengd. Leggja þarf rafmagnskapal frá Gautlöndum að borholunni. Ekki er endanlega ljóst hver kostnaðurinn verður fyrir hvert býli, en talað er um eina til tvær milljón- ir, eða svipaða upphæð og sæmileg- ur jeppi kostar í dag. Notendur verða tíu. Hér er um merkilegt og lofsvert framtak að ræða, ekki síst fyrir svo fámennan hóp. Til stendur að taka hitaveituna í notkun í ágústmánuði. - Kristján MYNDLISTASKOLJNN Á AKUREYRI auglýsir inntöku nýrra nemenda í fornámsdeild veturinn 1992-1993. Allar nánari upplýsingar veittar í síma 96-24958. Umsóknarfrestur er til 26. ágúst. Skólastjóri. Unnið úr afgangsvöru á Akureyri: Framleiðsla á bygg- ingarefni úr rúllu- baggaplastí og pappír Morgunblaðið/Eiríkur Valdemar Gunnarsson með stauta sem unnir eru úr úrgangs- plasti og dagblöðum annars vegar og plasti og mjólkurfernum hins vegar. Áhugamenn um endur- vinnslu á Akureyri hafa mörg járn í eldinum. Meðal annars hafa þeir í hyggju að vinna efni úr „bændaplastinu" svo- nefnda og pappír, til dæmis dagblöðum og mjólkurumbúð- um. Þetta efni getur á ýmsan hátt nýst í iðnaði, til dæmis sem millilegg í vörubretti og sem lektur í byggingariðnaði. Mikil nauðsyn er að koma á breytingum á sorphirðu og sorpflokkun og framundan er tilraunaverkefni á því sviði á vegum Héraðsnefndar Eyja- fjarðar og Úrvinnslumanna. Valdemar Gunnarsson um- búðafræðingur hefur tekið til starfa við endurvinnsluverkefni á vegum Úrbótarmanna á Akur- eyri. Úrbótarmenn eru Þórarinn Kristjánssoii framkvæmdastjóri Gúmmívinnslunnar hf., Hólm- steinn Hólmsteinsson fram- kvæmdastjóri Malar og sands og Sveinn Heiðar Jónsson húsa- smíðameistari. Valdemar sagði að stefnt væri að stofnun Úrvinnslu, hlutafélags um endurvinnslu af sem flestu tagi, en hlutverk sitt væri að vinna ýmis undirbúningsstörf sem að vísu væru að sumu leyti komin nokkuð á veg. Fyrst af öllu yrði lögð áhersla á að vinna verðmæta vöru úr plasti og papp- írsvörum, sem mjög mikið félli til af hér á landi. Fyrst væri að nefna heybaggaplastið, sem væri þegar orðið til vandræða hjá bændum, en talið er að til falli af því 700 tonn á ári. Valdemar sagði að samkvæmt opinberum skýrslum félli til pappír af ýmsu tagi á heimilum landsmanna sem svarar til 135 kílóa árlega á hvern íbúa landsins og auk þess afar mikið af úrgangspappír í iðnaði. Að sögn Valdemars eru ýmsar leiðir til að endurvinna þetta efni án þess að búa til plast úr plasti og pappír úr pappír. Það sem menn hefðu fyrst í hyggju að gera hér væri að vinna úr plasti og pappír efni sem nýst gæti á ýmsan veg. Blanda af pappír og plasti væri pressuð saman og mótuð við mikinn þrýsting, til dæmis í kubba eða stauta, sem taldir væru hentugt efni til marg- vislegra nota. Meðal annars væri ætlunin að nota efnið í millikubba í vörubretti, en auk þess mætti saga það niður og nota sem lekt- ur, til dæmis í byggingariðnaði, í svonefndar sjóngrindur, sem hafðar væru utan með ttjástofn- um, til dæmis í miðbæjum, í skrautgrindur í görðum, vegstik- ur og margt fleira. Þetta efni væri býsna sterkt og hefði afar gott naglhald. í sambandi við sænskan samstarfsaðila, sem stundaði hliðstæða framleiðslu, myndi auðsótt að útvega vélar til vinnslunnar. Fleiri vörur nefndi Valdemar sem husanlegt er að verði fram- leiddar hér úr afgangspappír. Meðal annars er um að ræða eins konar pappírsló, sem er fínt tætt- ur pappír, sem blandaður fleiri efnum getur nýst vel sem ein- angrun, sem hjálparefni með fræi í sáningu og jafnvel sem bindi- efni með asfalti í malbik. Eins væri í athugun að framleiða hljóðeinangrunarplötur úr af- gangspappír. Með ákveðinni meðferð væri svo frá gengið að þessi pappírsefni væru ekki eld- fím. Grundvallaratriði þess að framleiðsla úr sorpi, sem Valde- mar kýs að kalla frekar afgangs- vöru, er að hans mati að stór- breyting verði á sorphirðu og flokkun þess sem fleygt er, eins og tíðkast núorðið mjög í öðrum löndum, til dæmis Norðurlöndun- um og Þýskalandi. „Ef við getum fengið afgangsvöruna hreina og nokkuð vel flokkaða á þetta að geta gengið vel. Og ég hef trú á það verði svo, enda hefur hugarf- ar fólks gagnvart endurvinnslu og úrvinnslu þess sem fleygt er breyst afar mikið upp á síðkast- ið. Fólk er orðið svo miklu með- vitaðra en það var um að við erum daglega með í höndunum efni sem hægt er að vinna úr nýtilega vöru. Sjáum til dæmis allar umbúðimar, þótt ekki væri nefnt annað en mjólkurfemur - og svo dagblöðin. Við eram með hugmyndir um að framleiða úr þessu efni margvíslega vöru og markaðssetja hana hér og erlend- is. Úr því sem daglega er kallað sorp má framleiða verðmæti, skapa atvinnu með því, auka út- flutning með því að koma þessu á markáð erlendis og draga úr innflutningi, þar sem þessi efni geta nýst í stað annarra inn- fluttra.“ Valdimar sagðist telja að 35-40% af því sorpi sem til félli mætti endurvinna, en Úrvinnslu- menn á Akureyri stefndu að því að byija smærra og auka starfið svo þegar á liði. En fátt yrði gert án samráðs við sveitarfélög- in og breytinga á sorphirðumál- um. Því yrði á næstunni hrundið af stað tilraunaverkefni í samráði við Héraðsnefnd Eyjafjarðar um að koma á sorpflokkun, meðal annars frá heimilum, en eins og málum er háttað nú er vaxandi hluti sorps af Eyjafjarðarsvæðinu urðaður á Glerárdal. Hins vegar væri þess að gæta að ísland væri lítið, markaðurinn lítill í samanburði við stórþjóðir erlend- is, og því yrði að sníða þessum hugmyndum um endurvinnslu stakk eftir vexti. Valdimar sagði að Úrvinnslu- menn væm vongóðir án þess að vera í skýjaborgum. Fylgst væri náið með því sem þróaðist í end- urvinnslu erlendis og samstarf væri orðið mikið milli fyrirtækja á þessu sviði í ólíkum löndum, meðal annars talsvert um að af- gangsvara væri flutt milli landa og unnin þar sem heppilegast og hagkvæmast væri. Endurvinnsla væri mikilvægt verkefni í veröld- inni allri og þar yrðu íslendingar að gæta þess að dragast ekki of langt aftur úr öðrum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.