Morgunblaðið - 07.08.1992, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. ÁGÚST 1992
4
Skemmtilega ósátt við leikritið
Frá Frá Erlingi E. Halldórssyni:
Leiklistar-gagnrýni Guðrúnar Þóru
Gunnarsdóttur (Mbl. 12. júlí) um
sýningu Stúdentaleikhússins á
„Beðið eftir Godot“ var einkar at-
hyglisverð, bollaleggingar hennar
um efni leikritsins hefðu gjaman
mátt vera nákvæmari, svo fróðlegar
sem þær voru: ung stúlka árið 1992,
að gera úttekt á öndvegisverki sem
eggjaði áhorfendur til endurmats,
og olli straumhvörfum í leiklist þeg-
ar það var sýnt í Babylon-leikhúsi
við bvd. Raspail fyrir um íjórum
áratugum.
Sex ár (misminni mig ekki!) gekk
Becket á milli leikhúsa með leikrit
sitt, þá sem nú voru leikhús-menn
ekki sérlega ginnkeyptir fyrir frum-
leika, og hugsuðu sjálfsagt líkt og
Óperustjórinn: verk sem fólk þekkir
ekki þýðir' ekki að sýna, en því
miður verður leikhúsið með því
móti að þess konar hallelújasam-
komu sem lítilsvirðir Þalíu!
Leikritið olli töluverðum úlfaþyt,
því áhorfendur vissu ekki almenni-
lega hvað þeir áttu að halda, eins
og Guðrún Þóra, eins og undirritað-
ur sem þarna var þá staddur: ein
sú dýrmætasta reynsla af leikhúsi
sem hann hefur öðlast (nefna mætti
í sömu andrá „Marmara" Kambans,
við leikstjórn Gunnars Hansens),
fágæt reynsla, og næsta ólík því
sem mönnum er yfirleitt boðið að
sjá á leiksviðunum.
Kemur þá í hugann lýsing Svav-
ars Guðnasonar á einkennum góðs
málverks: maður fær högg í hnakk-
ann snúi hann við því baki.
Guðrún Þóra er skemmtilega
ósátt við leikritið: hálfvandræðaleg
gremja hennar dylst ekki, en aftur
á móti er undirrituðum ráðgáta að
henni skuli hafa leiðst („Sýningin
verður þannig ... því miður alltof
löng ...“ ritar hún. „ ... Sú tilfinning
var farin að ágerast að það væri
með endinn eins og Godot“) ... úr
því... „Frábær leikur kom þægilega
á óvart." Hugrenningar hennar um
leikritið segja raunar aðra sögu!
En gagnrýnendur líkjast stór-
skáldinu sem fer á gandreið um
Iandið og yfir jöklana á tölvunni
sinni: Þeir segja aldrei annað en
það sem þeim finnst!
ERUNGUR E. HALLDÓRSSON
rithöfundur
Broddanesi, Hólmavík
VELVAKANDI
TÝNDUR
KÖTTUR
Lúsífer er tveggja ára gamall
geltur fress, svartur með hvítar
loppur, háls og maga. Hann er
einnig með hvíta kampa (neðri
kjálki svartur) og hvítan rófu-
brodd. Hann hvarf að heiman,
frá Vatnsendabletti 27 við Elliða-
vatn 21. júní sl. og hefur ekkert
spurst til hans síðan. Hann var
með ljósbláa hálsól með tveimur
háværum bjöllum á. Ef einhver
getur gefið upplýsingar um af-
drif hans þá vinsamlegast hafið
samband við Hallveigu í heima-
síma 673621, vinnusíma 19200
eða látið vita í Kattholti í síma
672909.
KÖTTURí
ÓSKILUM
Hvítur köttur með svartar og
gular skellur á baki og höfði er
í óskilum að Sunnuvegi 19 í
Reykjavík. Upplýsingar í síma
34688.
KETTLINGAR
Þrír fallegir kettlingar, kassa-
vandir, fást gefins á gott heim-
ili. Upplýsingar í síma 12213.
Óskað er eftir heimili fyrir
átta vikna gamlan högna sem
er svartur og hvítur, þrifinn
og kassavandur. Upplýsingar
gefur Guðbjörg í síma 667232.
Óskað er eftir heimili fyrir
svartbröndóttan ellefu vikna
kettling með hvítan blett á
bringu. Hann er fjörugur og vel
upp alinn. Upplýsingar í síma
30605 eftir kl. 18.
SVEFNPOKAR
Þrír svefnpokar, tveir fyrir
fullorðna og einn barnasvefn-
poki, töpuðust miðvikudaginn 29.
júlí, ef til vill fyrir framan gisti-
heimilið Steina á Djúpavogi eða
á leiðinni frá Djúpavogi til
Reykjavíkur. Pokarnir voru í
stórum, svörtum plastpoka.
Finnandi er vinsamlegast beðinn
að hringja í síma 73487. Fundar-
launum heitið.
ÚR
Svart tölvuúr tapaðist á
Galtarlækjarmótinu um helgina.
Finnandi er vinsamlegast beðinn
að hringja í síma 51863.
GLERAUGU
Gleraugu í tauhulstri og sól-
gleraugu töpuðust fyrir skömmu,
ef til vill við Tómasarhaga eða
Dunhaga. Finnandi er vinsam-
legast beðinn að hríngja í síma
642494.
MYNDAVÉL
Myndavél fannst við Kringl-
una. Upplýsingar gefur Erna í
síma 10830.
Kettlingar fást gefíns. Upplýs-
ingar í síma 20267.
EINOKUN
RÍKISÚTVARPS
Hólmfríður Maríusdóttir:
Ég vil taka undir orð Þorleifs
Kr. Guðlaugssonar, sem skrifar
greinina Óþarft Ríkisútvarp í
Morgunblaðinu 5. ágúst. Þjón-
usta Ríkisútvarpsins er neydd
uppá almenning og verður fólk
að greiða afnotagjöldin hvort sem
það nýtir sér þjónustuna eða ekki.
Það er ekki hægt að tala um lýð-
ræði hér á landi meðan þetta við-
gengst. Þetta er eins og einhver
heildsali gæti sent vörur sínar
heim til fólks og krafist þess að
þær væru keyptar, eins þó fólk
hefði ekkert að gera með viðkom-
andi vöru. Maður getur átt sjón-
varp og afruglara án þess að
greiða neitt til Stöðvar 2 en Ríkis-
útvarpið stendur fast á rétti sín-
um og krefst afnotagjalds af
hveiju sjónvarpstæki. Almenn-
ingur ætti að krefjast lýðræðis
og hnekkja þessari einokun hið
fyrsta.
SKOKKARINN
1992
Handbók fyrir skokkara, jafnt byrjendur sem
lengra komna, eftir Gunnar Pál Jóakimsson og
Sigurð P. Sigmundsson-
í bókinni er fjallað um öll helstu atriði er skipta
máli fyrir skokkara.
Fæst í bókabúðum. Einnig hægt að panta hjá
FRÍ í síma 91-685525.
STEINAR WAAGE
SKÓVERSLUN
HELSAR
skórnir komnir
aftur
MJúkt leður,
ieðurfóðraðir
og leðursóli.
Verð kr.
9.900,-
Litur: Svartur.
StærðÍR 34-431/2
Póstsendum samdægurs. 5% staðgreiðsluafsláttur.
Domus Medica,
Egilsgötu 3,
sími 18519
Kringlunni,
Kringlunni 8-12,
sími 689212
145.000
VERÐLÆKKUN Á
HONDA ACCORD
Gerðu raunhæfan samanburð á verði og gæðum. Eftir
að verðið á Accord hefur verið lækkað ber hann
höfuð og herðar yfir keppinautana. Verð eftir lækkun:
Accord EX með sjálfskiptingu: 1.518.000,-
Accord EXi með sjálfskiptingu: 1.615.000,-
$3
ÁRÉTTRI LÍNU