Morgunblaðið - 12.08.1992, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. ÁGÚST 1992
21
AF ERLENDUM VETTVANGI
eftir BÖRK GUNNARSSON
Hörmungar múslima í Bosníu:
Við biðjum ríki Evrópu
að veita þessari út-
grátnu þjóð okkar skjól
í stofunni heima.
Morgunblaðið/Börkur Gunnarsson
Flóttamenn láta fyrir berast í rústum húsa og vörubílum eins og þessum hérna. Þeir bíða þess að fá
einhvers staðar hæli meðan striðið stendur.
„VIÐ viljum aðeins skjól og vinnu
þar til bardögum linnir. Mér er
sama hvort það er á Nýja Sjá-
landi, Kanada eða Islandi. Bara
ekki meira stríð.“ Þannig kemst
Mahid að orði, bosnískur múslimi
sem bíður örlaga sinna ásamt
nærri 2.000 öðrum flóttamönnum
nálægt einu brúnni sem eftir
stendur ósprengd milli Bosníu
og Króatiu. Ég hitti hann í hópi
manna fyrir rúmri viku á ferða-
lagi mínu um þessi stríðshrjáðu
ríki.
Enginn vill taka við múslimunum
sem bíða brottflutnings við
brúna sem tengir ríkin tvö. Þeir
hafa hrakist frá heimilum sínum í
norðurhluta Bosníu undan byssum
Serba og sumir beðið við landamær-
in svo mánuðum skiptir. Barist er
nokkrum kílómetrum sunnar og
verður ekki aftur snúið. Verðir við
brúna hleypa múslimunum ekki yfir
til Króatíu, enda flóttamannabúðir
þar yfirfullar. Þetta fólk segir engu
skipta hvert það fari, húsaskjól og
starf sé jafn gott hvar sem er. En
stríðið verði að taka endi.
Landamærabærinn Bosonski
Brod minnti mig á draugaborg þeg-
ar þangað kom snemma á mánu-
dagsmorgni í síðustu viku. Húsiri
voru rústir einar, fólk lét fyrir ber-
ast undir veggjum sem eftir stóðu
og margir sem ekki höfðu náð að
festa sér slíkt skjól sváfu undir
tijám eða í bílhræjum. Ég kom tii
bæjarins með Kanadamanni og
Nýsjálendingi sem ég hafði hitt í
Zagreb.
Þegar við stöldruðum við til að
taka myndir af eyðileggingunni
þennan bjarta morgun komu til
okkar nokkrir múslimar og vildu
vita hvort við værum fréttamenn.
Við fylgdum þeim inn í hús sem
vantaði tvo veggi og lofuðum að
koma orðum þeirra á framfæri eft-
ir bestu getu. Mahid, sem ég nefndi
áður, talaði við mig á þýsku og
túlkaði fyrir félaga sína.
Nærri 2.000 múslimar hafa dval-
ist við landamæri Bosníu-Herzegó-
vínu og Króatíu svo mánuðum eða
vikum skiptir. Þeir hafa lifað á vist-
um sem Rauði krossinn sendi og
reynt að drepa tímann með því að
lappa upp á hálfhrunin hús og spila
á spil í stofum búnum spýtnabraki,
glerbrotum og sundurskotnu drasli.
Hvað varð um yfirlýsingar
Genfar- ráðstefnunnar um
flóttafólk?
Mahid spurði hvað orðið hefði
úr vilja þeirra 50 landa sem kváð-
ust reiðubúin að taka við flótta-
mönnum á ráðstefnu í Genf í lok
júlí. Okkur varð heldur svarafátt,
en hann sagði víst að múslimum
yrði hleypt gegnum Króatíu ef ein-
. hver lönd fengjust til að veita þeim
hæli.
„Ég kom hingað til Bosonski
Brod með 7.000 Króötum og músl-
imum sem neyddust til að flýja
heimili sín,“ sagði Mahid. „Á leið-
inni voru 23 drepnir og hundruð
særðust. Þegar hingað kom fengu
Króatamir að fara yfir en við hin
milli eitt og tvö þúsund manns,
höfum hrakist hér um og sofið úti
á götum nærri brúnni til Króatíu.
Daglega fellur einhver úr þessum
hópi og um fimm særast af sprengj-
um eða í loftárásum."
Flugvélagnýr og sprengjudrunur
fylltu skyndilega hlustirnir eins og
til að staðfesta orð Mahids. Ég hljóp
út á götu með myndavélina, fólk
þusti í skjól undir hleðslum og hús-
veggjum og ekkert að gera nema
fara að dæmi þess.
Vélarnar fjarlægðust eftir þijár
árásir og loksins þá fóru sírenur í
gang til að vara við hættunni.
Mögnuð stríðsvopn Bosníumanna
keyrðu um, strætisvagn í felulitum
með þijá vélbyssuvopnaða unglinga
innanborðs og vörubfll með skot-
vopn á pallinum. Mahid sagði að á
hveijum degi kæmu sjálfskipaðir
fulltrúar Bosníuhers í heimsókn til
að ræða hvernig þeir gætu flutt
menn aftur á vígstöðvarnar. „En
við viljum ekki aftur í stríðið," seg-
ir hann, „við elskum lífíð meira en
við hötum Serbana."
Orðin sem Mahid og félagar hans
kvöddu okkur með voru sterkari en
öskrin í sprengjum flugvélanna.
„Við biðjum ríki Evrópu og heims-
ins að veita þessari útgrátnu þjóð
okkar skjól þar til friður kemst á í
Bosníu. Hér bíða hjálpar þúsund
karlar, konur og börn.“
Höfundur stundar nám við
Háskóla íslands var nýverið á ferð
í Bosníu.
JTOR-
UTSALA
LITAVERS
. ..
AFSlATTUR
MALNING HF. KYNNIR
INNIMÁLNINGU. 15% AFSLÁTTUR
AF ALLRIMÁLNINGU
GOLFTEPPI15 - 35% AFSLATTUR
GÓLFDÚKUR 15 - 40% AFSLÁTTUR
CERAMICFLÍSAR 15 - 50% AFSLÁTTUR
STÖK TEPPI 20% AFSLÁTTUR
DÆMI: MONACO 160 X 230 7.880,-
SHARA 160 X 230 KR. 4.632,-
DREGLAR - M0TTUR - LÍM - SPARSL
0PIÐ LAUGARDAG FRÁKL.10.00-13.00
VISA - EURO - SAMKORT
RAÐVISA TIL 18 MÁNAÐA
GRENSÁSVEG 18 • SÍMI 812444
JLitta vtcL í Aitmvt jíuí fuwi úefcct wuUlt
i • : : ■ ' V' i