Morgunblaðið - 20.08.1992, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 20.08.1992, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. ÁGÚST 1992 Gæti tekið 3-4 ár að ná hag- ræðingn í mjólkuriðnaðinum - segir formaður Samtaka afurðastöðva í mjólkuriðnaði ÓSKAR H. Gunnarsson, formaður Samtaka afurðastöðva í ny'ólkuriðn- aði, segir að tekiðg eti 3-4 ár að koma á þeirri hagræðingu sem talin er nauðsynleg meðal annars með fækkun mjólkurbúa. Hann segist telja að fækka þurfi búunum um 5-6 af þeim 15 sem nú eru starfandi. „Þetta eru allt saman sjálfstæðar rekstrareiningar sem verða að gera upp við sig hvort þær telja sig geta haldið áfram rekstri eftir að verðmiðlunar- sjóðurinn hefur verið tekinn í burtu, og þá er spurning hvaða starfs- skilyrði verða í framhaldi af því. Menn þurfa auðvitað að hafa ein- hvern tíma til þess að átta sig á því hvað þeir geta gert,“ sagði Óskar. Viðræður Samtaka afurðastöðva í Óskar að þar væri um að ræða mjólkuriðnaði og ríkisins um hag- ræðingu á vinnslustigi mjólkur eru á byijunarstigi að sögn Óskars, en hann telur að skriður komist væntan- lega á þær nú þegar samningur ríkis- ins við kúabændur liggur fyrir. „Við munum auðvitað reyna að ganga í þetta af krafti núna, en ég á von á því að menn vilji ljúka þessu sem fyrst þannig að þeir viti hvaða grundvöllur verður fyrir rekstri og umfangi þeirrar framleiðslu sem þama hefur farið i gegn og við hvaða kjör menn geta átt við að búa á komandi árum,“ sagði hann. Varðandi þá fækkun mjólkurbú- anna sem talin er nauðsynleg sagði VEÐUR ákvörðun hvers mjólkurbús fyrir sig. „Framleiðslumunstur mjólkurbú- anna er ákaflega misjafnt og þar af leiðandi misjafnt hver framlegðin er á hinum ýmsu vörutegundum. Þann- ig sitja þau ekki við sama bórð, og spuming hvemig á því máli verður tekið, en það er ekki alveg ljóst. Ég hef lýst því yfir að jafnvel geti búun- um fækkað um 5-6, en það eru þá þau bú sem eiga hvað erfiðast, og svo verða menn að taka tillit til vega- kerfis og annars slíks sem hefur breyst á umliðnum ámm og áratug- um. Þá er mjólkurmagnið mun minna nú en það var þegar uppbygging þessara stöðva átti sér stað. Svo verður væntanlega einhver tilfærsla milli afurðastöðvanna eftir að farið er að veita heimild til sölu á kvóta, og þá kemur sú spuming upp hvort þessar einingar standast rekstrar- lega séð,“ sagði Óskar. í ályktun aðalfundar Landssam- bands kúabænda sem haldinn var nú í vikunni var þeirri áskorun beint til mjólkuriðnaðarins að auknum kröfum neytenda eftir minna með- höndlaðri mjólk yrði sinnt og jafn- framt leitað leiða til að draga úr umfangi umbúða og umbúðakostn- aði. Óskar sagði að ekkert hefði ver- ið fjallað um þetta innan Samtaka afurðastöðva í mjólkuriðnaði fram að þessu. „Það er til dæmis spuming hvað neytendur vilja varðandi um- búðir, en það em auðvitað sumir sem hafa áhuga á því að fara aftur til fortíðarinnar að því leyti til. Þetta er bara hlutir sem ekkert hefur verið rætt um, en ég hygg nú að flest verði skoðað þegar þetta kemur frá framleiðendum á þennan máta,“ sagði Óskar H. Gunnarsson. ÍDAGkl. 12.00 / / Helmild: Veðurstola Islands (Byggt á vedurspá kl. 16.16 I gær) xm, VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12.00 í gær að ísl. tíma hltl voöur Akureyri 16 skýjað Reykjavík 12 úrkoma Bergen 15 skýjað Helsinki 16 rigning Kaupmannahöfn vantar Narssarssuaq 6 skýjað Nuuk vantar Osló 20 lóttskýjað Stokkhólmur 17 skýjað Þórshöfn vantar Algarve 24 þokumóða Amsterdam 22 þokumóða Barcelona 27 skýjað Berlín 24 hátfskýjað Chicago 14 léttskýjað Feneyjar 32 þokumóða Frankfurt 28 léttskýjað Glasgow 17 skýjað Hamborg 21 hálfskýjaö London 20 skýjað LosAngeles 20 léttskýjað Lúxemborg 27 skýjað Madrt'd 28 skýjað Malaga 28 léttskýjað Mallorca 28 iéttskýjað Montreal 18 skúr NewYork 23 mistur Orlando 24 háifskýjað París 27 skýjað Madeira 24 skýjað Róm 30 hálfskýjað Vfn 33 Iétt8kýjað Washington 21 þokumóða Winnipeg 14 skýjað Morgunblaðið/Kristinn Fjölskyldan og fuglalífið Þessi móðir staðnæmdist við lækinn í Hafnarfirði, til að leyfa bömun- um að skoða fuglalífíð. Veðrið lék við fjölskylduna, en mávurinn virt- ist athyglinni lítt hrifinn og flaug á brott. Ölgerðin Egill Skallagrímsson: Sex vikna birgðir seld- ust á tveimur vikum ÖLGERÐ Egils Skallagrímssonar setti nýlega á markaðinn nýja gerð af bjór, Tuborg gron. Aður en Norðfjarðarvegur: Lægsta tilboð 7 milijónir undir áætlun BORGARFELL hf. átti lægsta til- boð í lagningu Norðfjarðarvegar, frá Oddsdal að Norðfjarðará, í nýlegu útboði Vegagerðar ríkis- ins. Tilboð fyrirtækisins var 7 milljónum undir kostnaðaáætlun. Tilboð Borgarfells var rúmar 11 milljónir kr. sem er 61% af kostnað- aráætlun Vegagerðarinnar sem hljóðaði upp á rúmar 18 milljónir kr. Sex aðrir verktakar buðu í verkið. ---------» ♦ '4- Gjaldþrot Ragnarsbakarís: Kröfurnar 33 millj. en eign- ir 14 milljónir SKIPTUM í þrotabúi Ragnarsbak- arís í Keflavík, sem varð gjald- þrota í desember 1987, er lokið. Tæplega 30% greiddist upp í höf- uðstól almennra krafna, sem alls námu tæpum 27 milljónum króna. Lýst var í þrotabúið forgangskröf- um að fjárhæð 6,2 milljónir króna og greiddust þær að fullu og auk þess nægðu eignir búsins til greiðslu á 7,7 milljónum króna upp í almenn- ar kröfur, sem námu 26,7 milljónum króna, auk vaxta og kostnaðar frá upphafsdegi skipta. bjórinn var settur á markaðinn hafði Ölgerðin komið sér upp birgðum, sem áætlað var að myndu duga í sex vikur. Að sögn Lárusar Berg, framkvæmdastjóra Ölgerð- arinnar, seldust þessar birgðir upp á tveimur vikum. Hver lögun tekur þijár vikur og að sögn Lárusar er mikilvægt að bjór sé ferskur og því er ekki hægt að safna upp miklum birgðum. Þessi mikla sala hafí því komið þeim í erf- iða stöðu þótt tekist hafi að anna allri eftirspum, en núna væri búið að ná betur utan um hlutina. Enn væri þó ekki hægt að koma upp lag- er, þar sem að öll framleiðsla væri keyrð beint í áfengisútsölur. ♦ ♦ ♦----- Sjávarútvegs- ráðherra Mex- íkó hérlendis Sjávarútvegsráðherra Mexíkó, Guillermo Jimenez-Morales, hóf opinbera heimsókn sína hér á landi í gær. Tilgangur heimsókn- arinnar er að kynnast íslenskum sjávarútvegi, þar á meðal skipu- lagi veiða, fiskvinnslu og mark- aðsstarfi. Heimsókninni lýkur á laugardag. Ráðherrann er hér á landi í boði Þorsteins Pálssonar sjávarútvegs- ráðherra. Mun hann eiga fund með sjávarútvegsráðherra auk þess að hitta forsætisráðherra og utanrík- isráðherra að máli. Þá mun ráðherr- ann tala við forseta Alþingis og full- trúa íslenskra sjávarútvegsfyrir- tækja. Hann mun og heimsækja fisk- vinnslufyrirtæki í Vestmannaeyjum og fara í kynnisferð til Þingvalla. I fylgd með ráðherranum eru embættismenn, fulltrúar frá mexí- kóskum sjávarútvegi og sendiherra Mexíkó á íslandi, sem aðsetur hefur í Osló.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.