Morgunblaðið - 20.08.1992, Qupperneq 7

Morgunblaðið - 20.08.1992, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. ÁGÚST 1992 7 Tónlistar- hátíð hefst á Kirkjubæj- arklaustri Tónlistarhátið verður í félags- heimiiinu Kirkjuhvoli á Kirkju- bæjarklaustri dagana 21.-23. ágúst. Tvo fyrri dagana hefjast tónleikarnir kl. 21 en lokatón- leikamir hefjast kl. 17. Á föstudaginn verða flutt verk eftir Haydn, fyrir fiðlu og selló, sónata í e-moll fyrir selló og píanó eftir Brahms, Variationir fyrir selló og píanó eftir Martinu, þá verða leikin fjórhent verk eftir Rakhman- inov og 6 ljóð eftir Tsjajkovskíj verða sungin við undirleik sellós og píanós. Á laugardag verður m.a. flutt Liebeslied og La Gitana eftir Kreisl- er, og Sónata fyrir fíðlu og píanó eftir Turina, 4 ljóð eftir Garcia Lorca, Le Grand Tango fyrir selló og píanó eftir Piazzella og argent- ínsk tangóljóð sungin af Jorge Chaminé við undirleik Olivers Manoury sem leikur á bandóneon. Á sunnudag verða flutt önnur argentínsk tangóljóð, verkið Conte eftir Janacek á selló og píanó, Dumky (píanótríó) eftir Dvorak, 3 ljóð Villa-Lobos og 4 argentínsk ljóð eftir Gustavino, sungin, og leikið undir á píanó. Auk áðurtaldra tónlistarmanna koma fram Auður Hafsteinsdóttir fíðluleikari, Christophe Beau selló- leikari, Edda Erlendsdóttir píanó- leikari, og Marie-Francoise Buccquet píanóleikari. (Fréttatilkynning) Sigurður Á. Friðþjófsson Ljóðabók eft- ir Signrð A. Friðþjófsson ÚT ER komin ljóðabókin Kross- götur eftir Sigurð Á. Friðþjófs- son. Krossgötur er önnur ljóða- bók höfundar en auk þess hefur hann gefið út tvær skáldsögur, smásagnasafn og viðtalsbók. Einnig hefur komið út bók með þýðingum Sigurðar á ljóðum sænska (jóðskáldsins Göran Sonnevi. í ár eru liðin 18 ár frá því Sig- urður kvaddi sér hljóðs með ljóða- bókinni Fúaveggir, sem ófáanleg hefur verið um langt skeið. Ljóðin í Krossgötum hafa orðið til á löng- um tíma, þau elstu eru frá áttunda áratugnum og þau yngstu voru ort í ár. Sigurður hefur undanfarin ár starfað sem blaðamaður, nú síðast sem ritstjóri Helgarblaðsins. Krossgötur eru fjörutíu síður að stærð. Útgefendur er Sáfi, en Steinmark sá um prentun. Bókin er fáanleg í helstu bókaverslunum en einnig hjá höfundi. Sá liprasti í bænum! KOSTAR STAÐGREIDDUR, líOMINN Á QÖTUNA FRÁ: DAN-UKI"£jiJ BRIIVIBORG FAXAFENI 8 • SIMI91 - 68 58 70

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.