Morgunblaðið - 20.08.1992, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. ÁGÚST 1992
9
Word fyrir Windows 2.0
15 klukkustunda námskeið fyrir þá sem gera kröfur um góða ritvinnslu.
Höfum kennt á Word frá árinu 1987.
Tölvu- og verkfræðiþjónustan .4°
Verkfræðistofa Halldórs Kristjánssonar fjr
Grensásvegi 16*stofnuð 1. mars 1986 ®
hk-9282
einföld , ódýr, örugg
GARÐ LYSING
sem allir geta sett upp
ÞÓRf
ÁRMÚLA 11 - 8(MI 681500
RYMINGARSALA
Allt á seljast
Verslunin hættir
Verslunin Rauðhetta,
Eiðistorgi.
Ávöxtun verðbréfasjóða
1. júlí.
Kjarabréf
Tekjubréf
Markbréf
Skyndibréf
6 mán.
7,5%
8,2%
8,2%
6,0%
Skandia
Tll hmgsbóta
fyrlr íslmhdlngm
FJÁRFESTINGARFÉLAGIÐ SKANDIA HF.
HAFNARSTRÆTI, S. (91) 619700 - KRINGLUNNI, (91) 689700 - AKUREYRI.S. (96) 11100
IjVofði vinnubúðavist yfír
iöfði Stefáns Pjeturssonar?
Mlr K" »7*™- Irmtr dhr rtugórt AQ>t«ubUAm. nhu ur LmM. Bmlnr
MmMlallMmitaAr nr lyntw Mmkn komntaMU t* ■« rin
tt rMlrgtnu, innm Sm4U*juM-. MM og ~|U I
kkMi.a|lnM<áU>|MUMk|. M. Aiwór H.MlbMi... d
m HM »" Dr. Aradr HimUmU- Mbi 9M1> bMK Mr þU ik mkt mmIA * M U •* bafl Ut Sufte l>
IM(M baguf M «r ulM KmM- rt» H •» .tM.HimOr.Uf yi»i m I «bmM«r I Soduftjm J
Almannarómur og
tengslin við Moskvu
Eitt það athyglisverðasta við þær upplýs-
ingar sem fram hafa komið hjá Jóni
Ólafssyni, fréttamanni ríkissjónvarpsins,
og Arnóri Hannibalssyni prófessor eftir
athugun þeirra á gögnum í skjalasöfnum
í Moskvu, er sú staðreynd að þessar
upplýsingar staðfesta þann almannaróm
sem áratugum saman hefur verið á ferð-
inni um tengsl kommúnista á íslandi við
Moskvu og önnur Austur-Evrópuríki. Um
þessi tengsl er fjallað í Staksteinum í dag.
Stefán Péturs-
son og Gúlagið
I áratugi hefur verið
um það talað að Stefán
Pétursson, fymun rit-
stjóri Alþýðublaðsins,
hafi verið í lífshættu í
Sovétríkjuiiurn og að
ekki hafi verið ætluruyf-
irvalda þar að hann
slyppi lifandi frá landinu.
Rætt hefur verið um að
islenzkir stjómmála-
menn hafi beitt sér fyrir
því að honum yrði bjarg-
að frá Sovétríkjunum
með atbeina Dana.
Nú hefur þetta umtal
og þessi orðrómur verið
staðfestur. Samkvæmt
gögnum sem Amór
Hannibalsson hefur
fundið í Moskvu og sagt
var frá i Morgunblaðinu
sl. laugardag var ætlun
sovézkra kommúnista að
senda Stefán Pétursson í
Gúlagið. Það gefur auga-
leið að hann hefði aldrei
sloppið þaðan lifandi.
Væntanlega hefur
kommúnistum hér verið
kunnugt um þetta síðar
meir, en ekkert bendir
til að sú vitneskja hafi
haft áhrif á afstöðu
þeirra til Sovétríkjanna á
þeim tima eða sovézka
kommúnistaflokksins.
Má það furðu gegna, svo
að ekki sé meira sagt.
Þótt lengi hafi verið
vitað um hvaða hlutskipti
Stefáni Péturssyni var
ætlað í Sovétríkjunum
fyrir meira en hálfri öld
hefur hugmyndaflug
manna hér ekki verið
nægilegt til þess að nokk-
ur hafi látið sér til hugar
koma að erindrekar
kommúnismans hér
mundu fara fram á eftir-
laun frá sovézka komm-
únistaflokknum fyrir
störf í þágu hins alþjóð-
lega komnrúnisma! Upp-
lýsingar Arnórs Hanni-
balssonar um að Kristinn
E. Andrésson hafi farið
fram á slík eftirlaun og
fengið eingreiðslu eins
og það heitir á nútfma-
máli eru því alveg nýjar
og segja mikla sögu um
þau nánu samskipti sem
þarna hafa verið á ferð-
inni.
Alþjóðleg
samskipti Sós-
íalistafíokk-
sins
í viðtali Morgunblaðs-
ins við Lúðvik Jósepsson
sl. sunnudag, sem vikið
var að í Staksteinum í
gær, fullyrti þessi fyrr-
verandi formaður Al-
þýðubandalagsins að frá
stofnun Sameiningar-
fiokks alþýðu - Sósíal-
istaflokksins árið 1938
hefðu sósíalistar á Islandi
ekki verið aðilar að neinu
alþjóðlegu samstarfi. Á
blaðamannafundi sem
Ólafur Ragnar Grímsson,
núverandi formaður Al-
þýðubandalagsins, efndi
til fyrir skömmu lagði
hann áherzlu á að frá
1968 hefði Alþýðubanda-
lagið ekki átt nein flokks-
leg samskipti við Sósíal-
istaflokka í þeim Varsjár-
bandalagsríkjum sem
gerðu innrás í Tékkóslóv-
akíu það ár.
Nú hefur Lúðvík sem
sagt upplýst að þessi sam-
starfsslit sósíalista hér við
skoðanabræður £ komm-
únistaríkjunum hafi faríð
fram ekki 1968 vegna
innrásarinnar í Tékkó-
slóvakíu eins og Ólafur
Ragnar Grímsson heldur
fram, heldur 1938. Hver
trúir þessu?! Væntanlega
þýðir þessi yfirlýsing
Lúðviks að ef farið verð-
ur í fundargerðarbækur
Sósialistaflokksins frá
1938 til 1968 finnist engin
merki um samskipti við
sósialista í Austur-Evr-
ópuríkjunum á þvi tfma-
bili. Það er auðvitað jafn-
lítið að marka yfirlýsing-
ar Lúðvíks eins og yfirlýs-
ingar Ólafs Ragnars. Báð-
ir fara með rangt mál
eins og komið er í Ijós í
þeim gögnum sem fundizt
hafa í Moskvu.
Skjalasafn
Stasi
Nú þegar hafa fundizt
athyglisverðar upplýs-
ingar í skjalasöfnum i
Moskvu um tengsl komm-
únista hér við kommún-
ista í Sovétríkjunum. En
ekki er ólíklegt að enn
fróðlegri upplýsingar
verði dregnar fram í
dagsljósið þegar menn
fara að rýna í skjalasafn
Stasi. Hveijir höfðu milli-
göngu um námsferðir ís-
lendinga til Austur-
Þýzkalands á sínum tíma?
Hvaða upplýsingar koma
fram i þeim gögnum um
athafnir einstakra is-
lenzkra námsmanna þar
i landi?
Þá verður fróðlegt að
kynnast þvi hvernig fjall-
að er í skjalasafni Stasi
um viðskipta- og fjár-
hagstengsl kommúnista í
Austur-Þýzkalandi við
fyrirtæki kommúnista
hér á íslandi. Ekki er ólík-
legt að þá fáist frekari
upplýsingar um fjár-
streymið til starfsemi sós-
íalista hér. Staðreyndin
er nefnilega sú að seinni
árin fóru samskipti Sós-
íalistaflokksins við hinn
alþjóðlega kommúnisma
mjög fram i gegnum
Austur-Þýzkaland. Það
verður þvi forvitnilegt að
fylgjast með þvi þegar
skjalasafn Stasi verður
opnað „fræðimönnum og
fulltrúum _ almennings"
eins og Ólafur Ragnar
Grimsson komst að orði
þegar hann „opnaði“
fundargerðarbækur Al-
þýðubandalagsins á dög-
unum!
SALA HLUTABRÉFA
I JARÐBORUNUM HF. HEFST í DAG
Almenningi gefst nú í fyrsta skipti kostur á að kaupa hlut í opinberu fyrirtæki sem einkavæðist.
Stefnt er að sölu 60% hlutafjár og er sölugengi hvers hlutar 1,87. Jarðboranir hf. hafa fengið
staðfestingu ríkisskattstjóra á að draga má kaupverð hlutabréfanna frá tekjuskattsstofni
einstaklinga almanaksárið 1992.
Eigendur hlutabréfanna, Reykjavíkurborg og ríkissjóður, leggja áherslu á að gera Jarðboranir hf.
að virku almenningshlutafélagi.
Einstaklingar sem kaupa hlutabréf að kaupverði allt að 100.000 kr. fyrir
15. september, geta greitt upphæðina með f jórum jöfnum greiðslum fram til
I 5. desember 1992.
Lágmarksupphæð kaupa er 30.000 kr. að nafnverði (56.100 kr. að kaupverði).
Nokkrar tölur úr ársreikningi 1991 millj. kr.
Tekjur (meðalverðlag '91) 197,5
Hagnaður (meðalverðlag '91) 15,9
Eignir í árslok 614,0
Eigið fé í árslok 535,5
Ýmsar kennitölur
Hagnaðarhlutfall 8,0 %
Veltufjárhlutfall 6,6
Eiginfjárhlutfall 87,2 %
Innra virði hlutabréfa 2,27
Allar frekari upplýsingar veita ráðgjafar
Kaupþings hf. og Kaupþings
Norðurlands hf. Einnig liggur sölulýsing
frammi í afgreiðslum annarra verðbréfa-
fyrirtækja, Búnaðarbanka Islands og
sparisjóðanna um land allt.
KAUPÞING HF
Kringlunni 5, simi 689080
í eigu Búnaðarbanka íslands og sparisjóðanna