Morgunblaðið - 20.08.1992, Side 11

Morgunblaðið - 20.08.1992, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTÚDAGUR 20. ÁGÚST 1992 11 Borgarráð: Meirihluti fyrir sölu lóð- arinnar við Listabraut - segir Markús Örn Antonsson borgarstjóri Morgunblaðið/KGA Frá kynningarfundi Sammenntar. Talið frá vinstri: Hellen Magnea Gunnarsdóttir, Kristján Jóhannsson, fundarstjóri, Þorsteinn Helga- son, Ágúst Ingþórsson og Oddfríður Halla Þorsteinsdóttir. Sammennt: MARKÚS Örn Antonsson borg- arstjóri, telur að meirihluti sé fyrir því í borgarráði að bjóða lóðina á horni Listabrautar og Kringlumýrarbrautar hæstbjóð- anda til kaups. Tillaga þess efnis hefur verið lögð fram í borgar- ráði og er gert ráð fyrir að lóðin verði seld í einu lagi og geta kaupendur verið einstaklingar, fyrirtæki og/eða stofnanir, einn eða fleiri saman. 25% kaupverðs- ins greiðist með 3 jöfnum greiðsl- um á 6 mánuðum, fyrst við undir- ritun kaupsamnings, en eftir- stöðvar lánar borgarsjóður til 6 ára. Á borgarráðsfundi í gær lagði Katrín Fjeldsted fram til- 23 milljóiia króna styrkur til íslands Á ÍSLANDI hefur verið starfrækt síðan í september 1990 Sam- starfsnefnd atvinnulífs og skóla, Sammennt, og er hún milligöngu- aðili íslands við Comett-áætlun Evrópubandalagsins. Comett-áætl- unun gengur út á að efla samskipti skóla og atvinnulífs innan EB en lönd innan EFTA geta einnig orðið aðilar að áætluninni. Styrk- veitingar Comett nema um 300 mil\jónum íslenskra króna og rúm- lega 23 miHjónir fara til verkefna á íslandi. Skilyrði fyrir styrk frá Comett vegi, og koma í aðgengilegt form eru nokkur en ófrávíkjanlegt er að á móti þeirri upphæð sem Co- mett leggur fram komi önnur jafn- há eða hærri frá aðilum að verk- efnunum. Stærsti styrkurinn, rúmar 16 milljónir króna, fer til verkefnis á sviði gæðastjórnunar í sjávarút- vegi. Reynt verður að safna saman þeirri þekkingu og reynslu, sem er til staðar í evrópskum sjávarút- og á framfæri við evrópsk sjávar- útvegsfyrirtæki. Verkefninu verður stjómað frá skrifstofu Sammenntar og felst í því að útbúa námsgögn fyrir þijú námskeið um gæðastjómun fyrir starfsmenn og stjómendur í evr- ópskum sjávarútvegi. Flestir þátt- takendur koma frá íslandi en auk þess standa að verkefninu fyrir- tæki, stofnanir og háskólar í níu ríkum EB. Áætlaður kostnaður við námskeiðið er 43 milljónir króna. Mismunurinn er aðallega fyár- magnaður með aðstöðu- og vinnu- framlagi þeirra fyrirtækja og stofnana, sem að verkefninu standa. Um 2,6 milljóna króna styrkur verður notaður til að standa að þremur stuttum þjálfunamá- mskeiðum um nýja staðla í málm- iðnaði, geymsluþol matvæla og pappírslaus viðskipti. Sammennt fær einnig 3 milljón- ir króna í styrk frá Comett til að standa að stúdentaskiptum. Tólf íslendingar munu fara til starfa í fyrirtækjum í Englandi, Danmörk, írlandi, Þýskalandi og Spáni. Tveir stúdentar frá Belgíu og írlandi munu koma til íslands og dvelja hér í sex mánuði hvor um sig. Loks var veitt rúmlega 1 milljón króna til að standa að tveimur starfsmannaskiptum. Kennari frá Iðnskólanum í Hafnarfirði mun vera í 6 mánuði við CAE stofnun- ina í Þýskalandi en þar er unnið að rannsóknum og þróun á fram- leiðslutækni í málmiðnaði. Starfs- maður Iðntæknistofnunar íslands mun dvelja í 3 mánuði við The Welding Institue í Englandi og er dvölin þar liður í uppbyggingu málmsuðunáms á íslandi, þannig að það standist ítrustu kröfur sem gerðar eru í Evrópu. lögu um að lóðinni verði breytt í grænt svæði, en afgreiðslu máls- ins var frestað. Fyrir liggur umsókn um lóðina frá McDonald’s veitingahúsakeðj- unni og í umsögn skipulagsnefndar kemur fram að nefndin telji ekkert því til fyrirstöðu að gera ráð fyrir veitingahúsi á lóðinni. Borgarráð samþykkti bókun skipulagsnefndar með fjórum at- kvæðum gegn einu. Elín G. Ólafs- dóttir, Kvennalista og Guðrún Ág- ústsdóttir, Alþýðubandalagi, áheyrnarfulltrúar á fundum borgar- ráðs, lögðu fram bókun um að þær teldu æskilegt að halda lóðinni á homi Listabrautar og Kringlumýr- arbrautar auðri og því væru þær á móti úthlutun hennar. í bókun Katrínar Fjeldsted, Sjálf- stæðisflokki, sem greiddi atkvæði gegn bókun skipulagsnefndar, segir að hún sé þeirrar skoðunar að á umræddri lóð eigi ekki að byggja, heldur sé rétt að rækta hana upp. „Mér þykir nóg hafa verið byggt umhverfis Borgarleikhúsið og vek athygli á því að eina óskerta sjón- línan að leikhúsbyggingunni er frá Kringlumýrarbraut. Byggingar á homi Listabrautar og Kringlumýr- arbrautar myndu skerða hana. Umhverfi Kringlunnar er fyrst og fremst malbik og steypa, þannig að svæðið hefur grátt og fremur óaðl- aðandi yfirbragð. Lágvaxinn gróður á umræddri lóð væri þannig að auki til prýði í grárri flatneskjunni." STETNIAUS VATNSMELÓNA, 59, KR./KG. KANARÍ-MELÓNA 99 KR./KG. RAUÐBLEK HUNANGS- MELÓNA, 99 KR./KG. Melónur eru bragðmildar en ljúffengar og umfram allt safaríkar. Nú gefst gott tækifæri til að kynnast margvíslegum melónum því þær fást á sérstöku tilboðsverði í Hagkaup. Hunangsmelónur, jólasveinamelónur, Casaba- melónur, persneskar melónur, steinlausar vatnsmelónur - komdu í Hagkaup og fáðu þér afbragðsgóða og safaríka melónu. HVÍT HUNANGSMELÓNA, 99 KR./KG. HAGKAUP -aUt í einni Jerö PERSNESK MELÓNA, 99 KR./KG. CASABA-MELÓNA, 99 KR./KG.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.